Tíminn - 02.10.1960, Blaðsíða 4
TÍMINN, sunnudagmn 2. októbcr 1960.
þáTtur kirkjunnar
þig,“ sagði
fóíkið, þegar þakk-
áð var fyrir eifthvað. Og
þannig er sagt enn stoku
sinnum, þegar mikið skal
vfð haft og hátíðlega, og
óskað er alls hins bezta.
En annars er þessi ósk
ekki að hverfa af vörum
nútímafólks?
Þá er þar eitt af gull-
imyn'tum tungunnar að
týnast, ef þessi orð eru
sögð af hjarta, fela þau í
sér æðstu og helgustu fyr-
irbæn lífsins. Blessunarorð
eiga hinn æðsta uppruna,
og ef til vill hafa engin orð
mannlegra vara verið sögð
af heitari þrá, bjartari
kærleika til fleiri kynslóða.
Það er líkt og blessun
Guðs fylgi fremur einum
en öðrum. Og stundum hef-
ur það þótt flestum auðæf-
Blessun
um betra að fá blessun
hinna beztu meðal sam-
ferðafólksins í hverri kyn-
slóð.
Allir kannast í því sam-
bandi við blessunarbænir,
vígslur, yfirsöngva og
handayfirlagningar Guð-
mundar biskups góða.
Meira að segja njótum við
Reykvikingar þeirrar bless
unar í hverjum vatnsdropa,
sem neytt er hér í borginni,
enda mun vart í víðri ver-
öld betra vatn.
En þótt blessunarkveöjan
sé að hverfa í daglega líf-
inu, ómar hún stöðugt í
helgidóminum og nefnist
þar hinu fagra heiti:
„Drottinleg blessun."
Á vegum heilagrar kirkju
er hún hið fyrsta, sem flutt
er, þegar barnið hefur við
heilaga skírn verið tekið
inn í söfnuð Drottins og hið
síðasta sem sagt er við
hinztu kveðju við höfðalag
siðustu hvilunnar.
f þessum heimi er víst
ekki margt, sem kemst í
samjöfnuð við þá dýpt hugs
unar og speki, sem felst í
þessum þrem orðum:
„Drottinn blessi þig.“
Blessun þýðir gjöf frá
Guði. En þær gjafir geta
verið margvíslegar.
Einum er það hjálp, öör-
um fyrirgefning, sumum
friður eða kraftur til að
bera byrðar og inna af hönd
um hlutverk sín.
Og í blessun, sannri
blessun er einhver leynd-
ardómsfull orka, sem kem
ur ofan að frá föður ljós-
anna. Stundum getur maö-
ur fundið þennan mátt
sitra um vitundina, veita
einhverja sælu og sjálfs-
traust, sem ekki er þó
sjálfstraust heldur trú á
sigrandi mtt kærleikans og
orð geta ekki lýst.
Þessum krafti innri bless
unar mætti líkja við ein-
hvern verndargrip, sem
verndar og skín líkt og ljós
á veginum og vísar á rétta
leið.
Það getur borgað sig að
fara í kirkju, þótt ekki
væri til annars en fá þetta
Ijós með sér heim. Sé geng
ið til daglegra starfa í
birtu orðanna: „Guð blessi
þig“, sögðum af heilum
hug, þá veitir það heill og
hamingju við störf dagsins,
og leiki og nám. Hver
mundi geta gleymt þessum
orðum af vörum móður,
föður, kennara, prests eða
vinar, sögð þeirri rödd, sem
maður elskar. Erfiðleikarn-
ir víkja, hið vonda hverfur
eins og héla fyrir vorgeisl-
um. Við finnum okkur und-
ir Guðs handleiðslu og
krafti í alls konar vanda.
Og séu þeir eða þau, sem
sögðu þessi orð á hugþekk-
an hátt horfin, þá er sem
eitthvað skorti á öryggi og
vellíðan.
En samt er enn meira
innifalið í þessari fögru
ósk. Eitthvað, sem tekur
til eigin krafta og persónu-
leika: Vertu öðrum til
blessunar. Veittn þeim af
þeirri blessun, sem þér er
veitt. Allri sannri blessun
er þannig varið, að hún vex
við það að gefa af henni á
einhvern hátt. Láttu því
þína blessun verða öðrum
þaö, sem í orðinu felst:
Gleði, hjálp, uppörvun,
vonir, góðvild. Sú mann-
eskja ein er blessuð, sem
ekki einungis veitir miklu
viðtöku, heldur einnig veit
ir og gefur mikið.
Lífið er svo auðugt af
f jölbreytni atvika og örlaga.
Og oft skiljum við ekki,
hvaðan blessun streymir,
kannske undan þeim
skikkjufaldi skugga og
rauna, sem við hugðum
sizt. Suma gera sorgir og
andstreymi harða og kalda,
aðrir gefast upp. Er það
líka blessun? Nei, sannar-
lega ekki þeim, sem leita
síns eigin og sjá aðeins
grimm örlög í öllu, sem ger
ist. Séu þær manneskjur
án innri kraftar og ljóss,
auðgast þær aðeins af
beizkju og angri, gremju
og hatri .
Þess vegna er lotnnig, auð
mýkt og tilbeiðsluþrá
frumskilyrði blessunar.
Það hugarfar, sem getur
kropið að fótum drottins og
tekið í skikkjufald hans
líkt og unga stúlkan á göt-
unni forðum, er hæfast
fyrir sanna blessun og það
getur sagt með almætti
þolgæðis í rödd og svip:
„Ég sleppi þér ekki fyrr
en þú blessar mig.“ Og við
óvini og andstæðinga getur
þetta sama fólk lyft bless-
andi höndum og sagt með
mildu brosi fyrirgefningar
og sáttfýsi: „Þér ætluðuð
að gjöra mér illt, en Guð
sneri því til góðs.“
Og ekki má það gleym-
ast, að kraftur blessunar
nærist af lindum þakklæt-
isins. Þakklætistilfinning-
in er sá huldi þráður, sem
kveikir og sendir ljós og
varma blessunar frá sál, til
sálar, tengir hjörtun, teng-
ir himin og jörð, Guð og
menn. Þannig blómgast
Guðs ríki á jörðu í sólskini
orðanna:
„Drottinn blessi þig.“
Árelíus Níelsson.
Nýjar bækur frá Leiftri
HANNA fer í siglingu og
MATTA-MAJA sér um sig
Spyrjið ungu stúlkurnar hvaða bækur þeim þyki
skemmtilegastar. Og þær svara flestar á eina leið:
skemmtilegustu og mest spennandi sögurnar eru
um HÖNNU og MÖTTU MAJU
K I M og týndi iögregluþjónninn
og ANDi EYÐIMEBKURINNAR —
Tvær nýjar bækur í vinsælum bókaflokkum.
BOB MORAN. Ungur ofurhugi
Sögurnar um Bob Moran fara nú sem eldur í
sinu um öll lönd. Bob Moran er ofurhuginn sem
allir drengir dá. Hann er hetja dagsins. UNGUR
OFURHUGI er fyrsta bókin i þessum vinsæla
bókaflokki. — Hinar koma svo hver af annarri.
. Hann bar hana inn í bæinn.
Sögur eftir Guðmund Jónsson. Guðmundur er Skagfirðingur að ætt og uppruna,
fór ungur til Danmerkur og dvaldist þar í 28 ár,
' fyrst við garðyrkjunám og síðar sem sjálfstæður
garðyrkjumaður. — Guðmundur er góðkunnur á
Norðurlandi og víðar. Hann hefur beitt sér fyrir
stofnun minningarlunda: Hjálmarslunds (Bólu-
:■ : Hjálmars), Elínargarðs, og nú síðast minningar-
|1||/ lunds og styttu Jóns Arasonar. — 1957 gaf K
Guðmundur út bókina: ,Heyrt og séð erlendis",
f jörlega og skemmtilega bók, er fékk góða dóma.
Ný kennslubók í dönsku,
e. Harald Magnússon og Erik Sönderholm lektor.
íslenzk fræói, 18. hefti.
í heftinu eru 3 ritgerðir: 1. Nokkrar athuganir
á rithætti þjóðsagnahandriía í safni Jóns Árna-
sonar, eftir Árna Böðvarsson. 2. On the so-called
„Armenian Bishops“, eftir Magnús Má Lárusson,
og 3. A note on Bishop Gottskálk’s Children,
eftir Tryggva Oleson.
Verkefni í enska stíla,
eftir Sigurð L, Pálsson yfirkennara Verkefnin
eru aðallega ætluð fyrir bókina „Úrval enskra
bókmennta.
Fást í öllum bókaverzlunum
Bílaeigendur
HaldiS lakkinu á bílnum
við.
Bílasprsutun
Gunnars Júlíussonar
B-göxu 6, Blesugróf
Sími ?2867
TRÚLOFUNARHRINGAR
A(qrcittir .amdaequr.
HAU.DÓR
Slrólavörðu.tiq 2, 2.
2
Ibúð
til leigu tyrir eina eða tvær
konur á góðum stað. Uppl.
sendist bréfi til Tímans
merkt „Góð íbúð“.
Bændur - Bændur
Eftirtaldar landbúnaðarfélar, sem verið hafa til
prófunar hjá Verkfæranefnd ríkisins, Hvanneyri
í sumar, eru til sölu:
Þýzk mjaltavél „Impulse" tveggja fötu
Þýzkur áburðardreifari (skáladreifari)
Vicon Lely hjólmúgavél, 6 hjóla, dragtengd
Vicon Lely hjólmúgavél, 4 hjóla, dragtengd
Fahr heyþeytari
Norskur mykjudreifari, „Nauma"
Norskur Gnýblásari No. 2 með öllu tilheyrandi
Þýzkur Roto-Klaus jarðtætari
Kvernelands staurabor
Allar vélarnar eru til sýnis á Hvanneyri, en nánari
upplýsingar um þær má fá hér á skrifstofunni. Frá
verði vélanna verður gefinn 10% afsláttur vegna
notkunar í sumar Væntanlegir kaupendur þurfa
að hafa tekið vélarnar á Hvanneyri eigi síðar en
15. október.
ARNI GE&T6SON
Vatnsstíg 3 — Sími 17930