Tíminn - 07.10.1960, Side 12

Tíminn - 07.10.1960, Side 12
n T í MIN N, föstudaginn 7. október 1960. %*'$'• -j, t',"' " .............." Sérstakír æfingatímar fyrir stúlkur hjá K.R. Vetraræfingar í frjálsum íþróttum hefjast RITSTJORI HALLUR SIMONARSON mmmMmm Vetraræfingar iþróttafélag-' anna eru nú í þann mund aS hef jast, og eins og verið hefur undanfarin ár mun frjálsí- þróttadeild Knattspyrnufélags Reykjavíkur gangast fyrir reglubundnum æfingum í í- þróttahúsi Háskólans á vetri komanda. Benedikt Jakobsson, íþróttakennari Háskólans, sem jafnframt hefur verið þjálfari frjálsíþróttamanna KR um langt árabil mun sjá um þjálf- un og er það félaginu mikill fengur, því vart mun völ á sérmenntaðari manni í því fagi. Æfingatímarnir verða nær þvi sömu og var á síðastliðn- um vetri, en sú nýbreytni tek in upp, að hafðir verða sér- stakir tímar fyrir unga drengi byrienduma, sem sérstaklega verða við þeirra hæfi og verða þeir undir samstjórn Bene- dikts Jakobssonar og Guð- mundar Þorsteinssonar, en hann hefur stundað nám við íþróttaskólann á Laugarvatni Þá mun verða efnt til sér- stakra æfingatíma fyrir stúlk ur, og er það gert til þess að mæta þeim áhuga, sem verið hefur vaxandi meðal ungra stúlkna á íþróttum, þá ekki sízt á friálsum íþróttum, svo sem vel kom fram á mótum sumarsins. Þjálfun hinna eldri verður hagað með svipuðum hætti og verið hefur. Lögð verðut á- herzla á venjulega leikfimi, staðæfingar o. fl. framan af. En er líður á veturinn þyngj- ast æfingarnar, og þegar kem ur fram yfir áramót, hefjast hinar svo kölluðu þrekæfing- ar, sem miða að því að byggja upp undirstöðuþjálfun og út- hald, og nær sú þjálfun há- marki síðari hluta vetrar. Tímar fyrir fullorðna verða á mánudögum og föstudögum kl. 8.30 til 9.20 síðdegis, fyrst um sinn, tímar fyrir drengi frá kl. 7.40 til 8.30 sömu daga, en til að byrja með verður föstudagstíminn (kl. 7.40 til 8.30) ætlaður fyrir stúlkur, en í ráði er að fjölga þeim tímum í tvo á viku, bæði fyrir rirengi o>- stúlkur. þegar frá líður. Það hefur marg sinnis kom ið fram, bæði i viðræðum við erlenda þjálfara, sem hér hafa dvalizt, og aðra, sem kvnnt hafa sér íbróttamál, að hér á landi er að finna mörg afbragðs eóð íþróttaefni og bví er bað von friálsíbrótta- deildar KR, ag sú nvbreytni, sem nú hefur verið tekin upp muni verða til bess að margir nýliðar bætist við í vetur. Allar nánari unnlvsingar CTefur formeðnr dePdarinnar Sigurður Björnsson, síma 10798. Nörrköping meistari IFK Nörrköpig hefur í níupda skipti orðið ^sænsk- ur meistari í knattspyrnu. Á sunnudaginn sigraði Nörr köping Helsingþorg með 3 mörkum gegn 1 og tryggði sér með því meistaratitil, þrátt fyrir það, að tveir leik ir eru eftir í All-svenskan. Verðlaunagripir Elliotts vandamál fyrir hlauparann Það hefur verið erfitt að fylgj ast með öllum hlaupum Ólym- píumeistarans Herbert Elliott síðustu vikurnar, en fréttir hafa borizt um að hann hafi keppt næstum hvern einasta dag — og að undanförnuí hefur liann hlaupið í Gautaborg, Stokk- hólmi, Dublin, Manchester, London og Stokkhólmi aftur. Áhorfendur búast við því, að ég lilaupi innan við fjóra.r mín útur í hvert einasta skipti, scm ég hleyp mfluna, segir heims- methafinn, en ég er þreyttur, og ástæðan er auðvitað hin mörgu hlaup undanfarið. Og Ástralíumaðurinn hefur einnig önnur vandamál að glíma við, því að nú er hann kominn í vandræði með öll verð launin, sem hann hefur hlotið. Ekki hefur hann komið þeim öllum í ferðatöskur sínar, og erfitt er orðið að finna laust pláss í hinni litlu íbúð hans í London. Nýlega fékk hann hnífapör í verðlaun í London — og þar sem hann á nóg af þeim fyrir næstum til að geta opnað verzlun — skipti hann á þeim við Frakkann Michel Bernard og fékk í staðinn verð laun Frakkans, sem hafði feng ið kaffistell. Og auðvitað tekur stellið meira pláss en hnífapör- in og enn aukast vandamálin. Fyrir nokkrum dögum fengum við þessa mynd senda frá Noregi, en þar hefur fyrsti bowling-völlurinn verið tekinn í notkun og er í Bergen. Á myndinni sjást nokkrir gestir reyna sig í þessari íþrótt, þegar húsið var opn- að. Fyrir nokkrum árum var bowling iðkað nokkuð hér á landi — en lagðist fljótlega niður sökum húsnæðis- skorts. Danska knattspyman : Skomðu tvívegis í byrjun með 19-3 arliðunum, þvl að AB, Frem og B1903 eru í neðstu sætunum. Frem og B1903 hafa ekkert stig hlotið í leikjunum í haust. Staðan í deildinni er nú þann- ig: en Meða! hinna jöfnu knatf- spyrnuliSa í 1. deild dönsku knattspyrnunnar tr óvenju- legt, að mjög háar markatöl- ur koma fyrir Út af þessu var þó brugðið á sunnudaginn var þegar KB sigraði Frem á Idretsparken og voru skorðuð hvorki meira né mmna en 13 i mörk. Frem skoraði tvö fyrstu mörkin í leiknum. en tapaði samt 10—3. Leikur KB var mjög góður, einn öezti leikur félagsliðs í Danmörku. Landsliðskantmaðurinn Jörn Sörensen leikur nú í stöðu mið- herja hjá KB og hefur sýnt mjög góða leiki þar, og hann var í þessum leik aðaldriff jöður fram- línunnar, enda eiga íáir leik- menn léttara að leika á and- stæðing en einmitt hann, og það er nokkuð, sem íslenzkir knatt- spyrnumenn hafa komizt að. Frem byrjaði mjög vel 1 leikn- um og strax á fyrstu mínútun- um skoraði liðið tvö mörk, en eftir 19 mínútur hafði KB jafnað og eftir það var aðeins eitt lið á vellinum. Tvö mörk KB voru skoruð úr vítaspyrnu. Úrslit í leikjunum um helgina urðu sem hér segir: Skovshoved—AI . BI903—AGF .... KB—Frem....... Fr.havn—B1913 .. OB—Vcjle...... Esbjerg—B1909 .. 1—1 - 1—2 10—3 2—2 0—2 2—2 KB og AGF hafa því enn sömu stigatölu, en markatala KB er orðin miklu betri. AGF var heppið að sigra Kaupmannahafn arliðið B1903, og í þeim leik þurfti vítaspyrnu til að koma einhverjum gang í józka liðið. AB hafði talsverða yfirburði gegn Skovshoved, en tókst þó ekki að nýta þá yfirburði til sig- urs, enda barðizt Poul Andersen — „ljónið“ —af miklum móði í vörn Skovshoved. AB er nú að- eins tveimur stigum á eftir Frem í deildinni, en var sjö stig- um á eftir, þegar keppnin hófst að nýju í haust. Möguieikarnir hafa þvi aukizt mikið, og liðinu tekst ef til vill að bjarga sér frá falli, þótt aðeins sex leikir séu eftir. Tvö neðstu liðin í deild- inni falla niður, og útlitið er ekki gott hjá Kaupmannahafn- KB 16 10 2 4 41-25 22 AGF.... 16 9 4 3 33-23 22 Vejle .... 16 8 4 4 34-25 20 OB 16 7 5 4 31-24 19 Fr.havn . . 16 7 4 5 22-19 18 B1909 . . . 16 5 5 6 27-26 15 Esbjerg . . 16 5 5 6 18-24 15 B1913 . . . 16 6 2 8 30-26 14 Skovshoved 16 3 8 5 18-26 14 B1903 . . . 16 5 3 8 15-22 13 Frem . . . 16 4 3 9 28-41 11 AB .... 16 3 3 10 18-34 9 Ársþing HSÍ Arsþing Handknattleiks- sambands íslands verður haldlð um næstu helgi á skrifstofu íþróttasambands íslands, Grundarstíg 2, og hefst kl. 2 á laugardaginn. Danska deildakeppnin í handknattleik er nýlega hafin og þessi mynd er frá leik í 1. deild milli Schneekloth og Skovbakken. Hans Jacobsen, Schneekloth, hefur brotizt í gegn á línunni og kastar á markið, en mark- maðurinn, Knud Mayer, varði. ísland og Danmörk lenda saman í riöli I heimsmeistarakeppninni, en Danir eiga eitt bezta handknattleikslið i heimi.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.