Tíminn - 15.10.1960, Síða 3
TÍMINN, laugardagiun 15. október 1960.
3
Lyftitæki setja Gísla
J. Johnsen í naust
Báturinn settur fram á fimm mínútum
Björgunarbátnum Gísla J.
Johnsen hefur nú verið komiS
fyrir í nausti í hinu nýja húsi
Slysavarnafélags íslands á
Grandagarði. Er báturinn tek-
inn upp á þurrt með sérstak-
lega smíðuðum lyftitækjum
og komið fyrir í innskoti í hús-
inu. Tekur aðeins fimm mín-
útur að setja bátinn fram eða
taka hann upp.
Forráðamenn Slysavarnafélags-
ms sýndu fréttamönnum útbúnað
þennan í gær, en hann er teikn-
aður af Guðfinni Þorbjarnarsyni,
vélfræðingi, sem einnig hafði yfir-
umsjón með verkinu.
í ávarpi gat forseti Slysavarna-
félagsins, Gunnar Friðriksson,
þess að merkum áfanga hefði nú
verið náð í slysavörnum. Björgun-
arbáturinn hefði áður verið stað-
settur í lægi við Örfirisey, en svig-
rúm hefði verið ófullnægjandi
þar. Hefðu aíhuganir farið fram
ge ;§æq i»a ^ioAq tacJ b
haga svo málum að hægt væri
að hafa bátinn stöðugt til taks en
þó í geymslu. Leitað var tilboða
erlendis, en það eina sem til
mála kom reyndist langt um of
dýrt. Guðfinnur leysti vandann
fyrir félagið, teiknaði tækin, sem
samstanda af tveimur uglum, og
vökvaþrýstistrokkum. Vélsmiðjan
Klettur í Hafnarfirði smíðaði tæk-
in og Volti annaðist raflögn, en
yfirumsjón og uppsetningu ann-
aðist Guðfinnur. Kosta tækin upp-
komin um hálfa milljón króna.
Krafizt dauðadóms
yfir Menderes
ViII fá að tala við lögfræðing.
í gær hófust á eyju einni
undan strönd Tyrklands rétt-
arhöld í máli Bayars fyrrv.
forseta landsins, Menderez
fyrrv. forsætisráðherra og 500
manna annarra þar á meöal
nokkurra ráðherra úr stjórn
Menderez. Eins og kunnugt
er var gerð stjórnarbylting í
Tyrklandi á s.l. ári og Mend-
erez og stjórn hans þá velt úr
GURSEL
stóli. Síðan hefur Gursel hers-
höfðingi verið æðsti maður
Tyrklands.
Bayar, Menderez og liö'-
menn þeirra hafa veriö fang
ar frá því að byltingin var
ger® og hefur þeixra verið
vandlega gætt. Erlendir frétta
menn fá að vera viðstaddir
réttarhöldin í málum þess-
ara manna og segja þeir, að
réttarsalarins sé vandlega
gætt svo og eyjar þeirrar,
þar sem réttarhöldin fara
fram.
Krafizt dauðadóms
Saksóknari hefur krafizt
dauðadóms yfir þeim Bayar
og Menderez og 38 öðrum. Á
alla þessa menn eru bornar
hinar þyngstu sakir. Þeir eiga
að hafa þverbrotið stjórnar-
skrá landsins, sóað fjármun-
um, misnotað dómsvaldið,
stefnt að einræði og auk þess
staðið fyrir ofsóknum á hend
ur grískum mönnum.
MENDEREZ
Menderez fyrrum forsætis
ráðherra kom fyrstur fyrir
rétt í morgun. Hann virtist
tekinn eftir fangelsisvist-
ina og kvaraði um meðferð
þá, er hann hefði hlotið. Þá
sagðist hann ekki hafa feng
ið tækifæri til að ráðfæra sig
við lögfræðing og bar fnam
kæru þess vegna. Hann hefði
eingöngu fengið að hitta full
trúa sakadómara að máli. Aðr
ir sakbornlngar báru fram
svipaðar kröfur og lofaði
dómsforseti að taka þær til
athugunar.
Magnús
svarar
Lögfræðingur Magnúsar
Guðmundssonar, lögreglu-
þjóns, hetur sent lögreglu-
stjóranum í Reykjavík bréf
varðandi frávikningu Magnús-
ar úr lögregluliði Reykjavik-
ur og fer bréfið hér á eftir.
„Umbjóðandi minn, hr. lög-
regluþjónn Magnús Guðmunds-
son, Vesturgötu 27, hefur falið
mér að svara bréfi yðar dag-
settu í gær varðandi frávikningu
hans úr starfi sem lögreglu-
þjónn. Þessari frávikningu er hér
með mótmælt sem algerri lög-
leysu og geymir umbjóðandi
minn sér allan rétt til skaða-
bótakrafa af þessu tilefni, bæði
persónulega á hendur yður og
fjárhagslega á hendur bæjar-
sjóði Reykjavíkur. Þetta tilkynn-
ist yður hér með.
Fyrir hönd Magnúsar Guð-
mundssonar,
Guðlaugur Einarsson."
Þá er þess að geta að lögreglu-
vörður var næturlangt við hús
Magnúsar á Vesturgötu í fyrrinótt.
Þessi mynd er af lyftitækjum SVFI (Ljósm: Tíminn, KM)
Tveir menn handtekn-
ir með smyglvarning
Á fimmtugdagsmorgun
handtók lögreglan tvo pilta
sem höfðu í fórurr: sínum all-
mikið magn af smyglvarn-
ingi. Varningurinn. kom frá
Keflavíkurflugvelli og er varn
arliðsmaður viðriðinn málið.
Var annar íslendingurinn
dæmdur í 4 þús. kr. sekt„ en
varnarliðsmaðurinn í 8 þús.
kr. sekt. Varningurinn var
gerður upptækur til ríkis-
sjóðs.
Um fimmleytið á fimmtu-
lagsmorguninn hafði lögregl
m veður af tveimur piltum
neð stóra svarta ferðatösku
>g þótti ekki einleikið um ferð
r þeirra. Piltarnir fóru upp í
eigubifreið en lögreglan elti
>g stöðvaði þá á mótum
3ankastrætis og Ingólfsstræt
s. Kröfðust lögreglumenn
)ess að taskan yrði opnuð og
•eyndist hún full af vindling
im og tyggigúmmíi. Lagt var
íald á töskúna, og báðir pilt
irnir settir inn.
Um hádegi á fimmtudag
?ar málið tekið fyrir. Viður-
cenndi annar piltanna að
íann hefði fengið varning-
nn hj á varnarliðsmanni,
jtöddum í Reykjavík. Piltnr-
nn vinnur á Vellinum og gaf
upp nafn og heimilisfang
/árnarliðsmannsins. Var
aann fluttur í bæinn eftir að
aafa neitað sakargiftum fyrst
: stað við yfirheyrzlu á vell
ínum. — Þegar hingað kom
idðurkenndi varnarliðsmað-
urinn að hann ætti töskuna
Dg varninginn og sagðist hafa
selt piltinum en greiðsla væri
ókomin. Málið var strax tekið
til dóms og féll hann svo sem
að framan greinir.
íhaldið tapar
Þorvaldseyri, 14. okt. — Ný-
lega var kosið í verkalýðsfé-
laginu hér um fulltrúa á 27.
þing ASÍ, og eru nú miklar
breytingar síðan í fyrra. Þá
átti íhaldið fulltrúann, og
var hann kosinn með nokkr-
um yfirburðum. Nú varð hins
vegar vinstri maður fyrir val
inu, Geir Sigurgeirsson, sem
fékk 20 atkvæði, en íhalds-
maðurinn fékk ekki meira en
10 atkv. EÓ
Japanir óttast
skálmöld
Það hefur verið ókyrrt í
Japan frá því á miðvikudag-
inn, er leiðtogi Jafnaðar-
manna, Inejiro Asanuma, var
myrtur í Tókíó af öfgafullum
hægrisinna Asanuma var að
flytja ræðu á útifundi, er
sautján ára gamall piltur, |
Yamaguchi, réðst að honum j
og stakk hann tvívegis í brjóst|
ið með sveðju. Asanuma var|
fluttur á sjúkrahús og and-
aðist þar skömmu síðar Til-
ræðismaðurinn var handtek-
irin.
Vinstri menn í Japan, einkum
stúdentar, hafa mótmælt þessu at-
viki harðlega og farið hópgöngur
og haldið útifundi, og hefur lög-
reglan hvað eftir annað orðið að
sker’ast í leikinn. Það er ekki vitað,
hvað morðið á Asanuma kemur til
með að hafa í för með sér, en
flestir eru þeirrar skoðunar, að
framundan sé aukið fylgi Jafnað-
armanna í þingkosningum, og
hætta sé á svipuðum óeirðum og
ur’ðu í Japan í vor í sambandi
við fyrirhugaða heimsókn Eisen-
howers forseta.
Andvígur Bandaríkjunum
Asanuma var mikill andstæðing-
ur bandarískra herstöðva í Japan.
Hann átti sinn þátt í því, að Eisen
hower forseti varð að hætta við
Japansför sína og Kishi forsætis-
ráðherra Japan varð að biðjast
lausnar s.I. vor. Asanuma var
harður andstæðingur Bandaríkj-
anna og sakaði þau jafnan um
heimsveldisstefnu og kvað þau
vera sameiginlegan óvin Japana
og Kínverja. Hann er þr’iðji mað-
urinn, sem öfgafullir hægri menn
hafa reynt að ráða af dögum á
þessu ári. Kishi fyrrverandi for-
sætisráðherra var ein þessara
manna. Hann var við dánarbeð
Asanuma ásamt ungri dóttur
hans. Hann sagði um Asanuma, að
hann hefði verið mikill stjórn-
skörungur og sæi hann persónu-
lega mikið eftir slíkum manni.
Bandaríkjastjórn hefur’ komið á
framfæri við japönsku stjórnina
orðsendingu, þar sem hún segist
haripa þennan atburð og fordæma.
Jafnframt hefur hún sent fjöl-
skyldu Asanuma samúðarkveðjur.
Ógnaröld framundan?
Morðingi Asanuma er meðlim-
ur í öfgafullum samtökum, sem
nefna sig japanska föðurlandsvina-
félagið. Meðlimir þess munu vera
um 15 þúsundir, og sló hvað eftir
annað í brýnu milli þeirra og and-
(Framhald á 2. síðu).