Tíminn - 15.10.1960, Blaðsíða 12

Tíminn - 15.10.1960, Blaðsíða 12
12 TÍMINN, laugardaginn 15. október 1960 RITSTJÓRI HALLUR SÍMONARSON Verður handknattleikur keppn- isgrein á dlympíuleikunum? Eins og skýrt hefur verið frá hér á síðunni, var ársþing Handknattleikssambands ís- Úr skýrslu stjórnar Handknattleikssambands Islands lands háð hér í Reykjavík um síðustu heigi. Ský- sla stjórnar- innar var mjög itarleg Eins og kunnugt er mun ísland taka þátt í heimsmeistara- keppninni á næsta ári en sú keppni var skipulögð á fundi alþjóðahandknttleikssam- bandsins, sem haldið var í Belgíu síðast í september. Fulltrúar tslands á þinginu voru Ásbjörn Sigurjónsson og Hannes Sigurðsson og segir svo í skýrslunni um þingið. Héldu þeir utan þann 2. sept. og komu á ákvörðunarstað kl. 9 um kvöldið, og voru fulltrúar Norðurlandanna í því að hefja viðræðufund sín á milli til undir- búnings mála fyru tæknilegu nefndina, ráð I.H.F. og þingið í heild. fslenzku fulltrúarnir fundu strax samstarfsvilja frænda okkar á Norðurlöndum, enda hafði Axel F.inarsson varaform. áður haft tal a? Axel Ahm frá Danmörku, sem er í tæknilegu nefndinni, og skýrt aístöðu okkar varðandi þátttöku í heimsmeistarakeppninni. Brasilíumenn og Japanar höfðu gert þau skilyxði fyrir þátttöku að sleppa við undankeppni. Vild- um við ekki gera nein skilyrði, heldur skýra málið. Þingið var síðan á föstudagsmorgun kl. 9 sett af forseta I.H.F. hr. Hans Eaumann frá Sviss. Helztu mál, sem tekin voru fyrir. Inntaka nýrra landa í I.H.F. Arabíska sambandsiýðveldið, Suð- ur-Kórea, Marokkó. Austur-Þjóð- verjar óskuðu eftir sjálfstæðri þátt töku, en var synjað og samþykkt tillaga þess efnis, að Vestur- og Austur-Þjóðverjar skildu stilla upp sameiginlegu liði eða keppa inn- byrðis um þátttöku í heimsmeist- arakeppni. Skýrt var frá væntaniegum þátt tokuþjóðum, Kanada, Englandi, Malaga, Mexíkó og Túnis. Hér sjást þrír fremstu tugþrautarmenn heims — frá vinstri Kínverjinn Yang, Bandaríkjasvertinginn Rafer Johnson og Vasily Kuznetsov, Sovét- ríkjunum ___ en þessir menn hlutu verSIaunin í tugþraut í Róm. Johnson hlaut 8392 stig, Yang 8334 stig og Kuznetsov 7809 stig. Heimsmet Johnsons er 8683 stig. Miklar líkur eru á, að 7 manna handknattleikur verði tekinn á dagskrá á Ólympíuleikum í Tokíó 1964. Laugardaginn 25. september voru ræddar ýmsar tillögur um Mgabreytingar I.H.F. og breyting- ar á handknattleiksreglum, en fiestar af þessum tillögum voru felldar. Einnig var rætt um út- gáfu leiðbeiningarbæklings fyrir dórnara, ferðakostnað þeirra og stjórnarmeðlima. Samþykkt var að halda dómara- rámskeið í Svíþjóð 1961, eins og áður er frá skýrt. Evrópubikar- keppni kvenna, innanhúss; verður haldin í Tékkóslóvakíu. Óákveðið er um karlakeppnina og einnig ó- ákveðið um heimsmeistarakeppni karla utanhúss 1963. Enginn hafði heldur boðizt til að halda heimsmeistarakeppni' kvenna ínnan húss 1962, og lítur il'.a út með framkvæmd þessa ir.óís. Stjórnárkosning fór svo að for- seti var endurkjörinn ásamt öll- um fyrrverandi meðstjórnendum, nema Tékki sem vék fyrir Belg- iskum. Forseti sleit síðan þinginu og bauð þátttakendum til veizlu um kvöldið og þar voru fluttar kveðj- ur og skipzt á gjöfum. Fulltrúar okkar inntu Austur- Þjóðverja eftir kvikmynd, sem þeir lofuðu að senda okkur strax rð loknu H. M. 1958. Einnig var rætt við Tékka, Rúmena og Ung- verja um möguleika á ferð til þeirra vorið 1962, og tóku þeir þeirri málaleitan vel. ★ ★ Ungverska meistaralið- ið í knattspymu, Ujpest sigr- aði á, miðvikudaginn Rauðu stjörnuna frá Belgrad með 3—0 í Evrópubikarkeppninni. Ujpest kemst því áfram í keppninni. Vann einnig fyrri leikinn 2—1. í næstu um- ferð leikur Ujpest við Bene fica frá Portúgal. ★ ★ í Evrópukeppninni fyrir bikarsigurvegara vann Austr- ia frá Austurríki á miðviku- daginn Wolverhampton með 2—0. Leikurinn fór fram í Vín og áhorfendur voru 15 þús. Tvímenningskeppm B:R Fjórða umferð í tvímenn- ingskeppni meistaraflokks hjá Bridgefélagi Reykjavíkur var spiluð á fimmtudagskvöldið og eru þessir efstir að henni lokinni: 1. Kristinn—Lárus 983 2. Stefán—Jóhann 953 3. Hilmar—Rafn 948 4. Gunnar—Einar 916 | 5. Jóhann Vilhjálmur 913 6. Jakob—Jón 905 i 7. Ásmundur—Hjalti 904 8. Guðjón—Róbert 898 9. Símon—Þorgeir 891 10. Ásbjörn—Öm 890 11. Jón—Sigurður 871 12. Eggert—Þórir 868 13. Ólafur—Brandur 865 14. Ásta—Rósa 849 15. Bernhard—Zakarías 848 16. Eggrún—Sigurbjörg 848 Síðasta umferðin verður spiluð í Skátaheimilinu kl. 8 á þriðjudagskvöldið. ★ ★ í sömu keppni tryggði Glasgow Rangers sæti í næstu umferð. Rangers tap- aði þó fyrir ungverska liðinu Ferenovaros með 2—1, en hafði unnið í fyrri leik fé- laganna með 4—2. ★ ★ Einn leikur enn fór fram í þessari keppni á mið vikudag. f höfuðborg Búlga- ríu léku bikarmeistarar lands ins, CDNA, við Juventus frá ítálíu og sigraði með 4—1. í fyrri leikoum sigraði Juvent us með 2—0. í næstu umferð leikur CDNA við sænska liðið Malmö IFK. Ólympíumeistari í góðum félagsskap. Biil Nieder, sigurvegari i kúluvarpl á Rómarleikunum, sést hér með fallegrl stúlku, Mary Lynn, sem á að takaþátt í einhvers konar keppni veitingamanna — og hefur fengið ólym- píumestarann til að kenna sér tökin á kringlunni Og ekki er að efa, að fleiri vildu vera í sporum meistarans. Norðurlandamót kvenna 1964. Eins og skýrt var frá í árs- skýrslu ^H.S.Í. 1959, lögðu fulltrú- ar H.S.f. á ráðstefnu í sambandi við Norðurlandamótið í Þránd- beimi fram boð um að halda Norð urlandameistaramótið 1964 á fs- landi. Var þá ákveðið að málið skyldi rætt nánar á ráðstefnu þeirri, sem haldin yrði í Svíþjóð. Ráðstefna þessi var síðan haldin í júní s.l. í sambandi við Norður- líiidamótið og voru fulltrúar ís- lands þeir Iíúnar Bjarnason og Axel Einarsson, en þeir voru rinnig fulltrúar á þinginu í Þránd- Ixeimi 1959. Boði íslands var mjög vel tekið enda lögðu fulltrúar okkar fram áætlanir um ferðakostnað, sem bæði Flugfélag íslands og Sam- einaða gufuskipafélagið stóðu að. Varð sú niðurstaða á þinginu að þatttökulöndin skyldu tilkynna hvort þau gætu komið fyrir 1. júní 1963. Ástæðan fyiir þessari ákvörðun er fyrst og fremst fjárhagsleg, því ekki er hægt að neita því að ferða- lög til íslands eru dýr. Einnig lom það fram á ráðstefnunni að hin Norðurlöndin höfðu samstöðu um þessa ákvörðun. f fagnaði, sem haldinn var að móti loknu héldu forystumenn Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur ræður og ræddu m.a. um hina ó- væntu og góðu frammistöðu ís- lsnzka liðsins. Voru þeir ailir sam rnála um það, að næsta Norður- landamót yrði að halda á íslandi cg sögðu að við mættum treysta því að allt yrði gert til að slíkt yrði mögulegt. Geta má þess að í mörgum blöð- um á Norðurlöndum hafa komið fréttir þess efnis, að næsta Norð- urlandamót verði á íslandi 1964. Er það að sjálfsögðu haft eftir forráðamönnum í handknattleiks- málum í viðkomandi landi. Olympíuleikar 1964. Japanar skrifuðu okkitr og eru mjög áhugasamir um að hand- knattleikur veiði tekinn upp sem keppnisgrein á Olympíuleikunum i Tókíó 1964. Þeir skrifa okkur einnig og óskuðu þess að við kæmum til Tókíó í heimsókn í tvo mánuði og kepptum þar til undir- búnings þessari keppni 1964. Vegna kostnaðar var náttúrlega ekki hægt að sinna þessu, en samþykkt var að slyðja það að handknattleikur yrði tekinn upp sem keppnisgrein á Olympíuleik- unum 1964 og var'fuiltrúa okkar í Olympíunefnd falið að bera þetta vpp á Olympíunefndarfundi. Sam- þykkti nefndin að styðja málið. Athugasemd Þeir, sem voru á kvikmyndasýn- ingunni í Tjarnarbíói í fyrrakvöld, að sjá heimsmeistarakeppnina í knattsyprnu, geta fengið að sjá það, sem þá var sleppt að sýna, í Tjarnarbíói í dag kl. 2.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.