Tíminn - 15.10.1960, Qupperneq 13
TÍMINN, laugardaginn 15. október 1960.
13
ÍCjarval 75 ára
(Framhald af 8. síðu).
heldur ótrauður áfram starfi sínu
þótt við örðugleika væri að etja.
Fátæktin er mikil þótt vinir hans
hlaupi undir bagga og einhverjar
myndir seljist. Það er gestkvæmt
í húsi listamannsins, þangað
leggja fleiri leið sína en banka-
stjórar og höfðingjar að fala
myndir þar eiga hæli þeir sem
ekki eiga í annað hús að
venda. Og Kjarval gerir vel við
alla, setúr alla á sama bekk og
greinir ekki milli manna. Þó var
fátæktin einatt slík, að fyrir kom
að hann varð að sitja í myrkri á
vinnustofu sinni, peningarnir, sem
Rafveitan átti að fá, höfðu farið
fyrir litatúbur. Þar við bættist
að oft varð hann að launa smá-
greiða með margföldu verðmæti
verka sinna.
Brátt fór þó að sjá til sólar, og
kunnugir telja að sjaldan hafi
Kjarval átt betr'i daga en þjóðhá-
tíðarsumarið 1930. Þá dvaldi hann
sumarlangt á Þingvöllum, m-álaði
ótölulegan fjölda af myndum,
smáum og stórum. Hann hafði
þá nýlega selt Menntamálaráði
málverk á 5000 krónur, komizt
þannig úr skuldum og átt að auki
skotsilfur fyrir litum og efni. Þar
við bættist að dóttir hans kom í
heimsókn til föður síns og veitti
honu-m gleði og ánægju. Og há-
tíðaskap hinnar 1000 ára þjóðar
hefur örvað hug hans og dug.
Safnar ekki gulli
Nú þarf Kjarval ekki lengur að
kvíða fjárhagskröggum, á nokkr-
um dögum málar hann fyrir heilt
íbúðarverð. Þó hefur líferni hans
í engu breytzt. Hann sækist ekki
eftir lystisemdum þessa hekns,
safnar ekki að sér gulli. Hann
dreifir því á báða bóga.
Um Jóhannes Kjarval hefur
myndazt ara-grúi þjóðsa-gna, hann
er þegar í lifenda lífi sveipaður
söguljóma. Hann er yndi og eftir-
læti þjóðar sinnar og er umsetinn
aðdáendu-m sínum, svo að hann
verður því sem næst að fara huldu
höfði. Það er táknrænt að meist-
arinn mikli hefur þannig útbúinn
síma í vinnustof-u sinni að aðeins
er hægt að hringja úr símanum,
en ekki í hann.
Enda er Kjarval hamhleypa til
verka, surnar myndir verða til á
dagstund, að öðrum vinnur hann
um árabil. Hann fer einförum um
heiðar og fjöll, reikar um hraun
og daladrög, staðnæmist fra-mmi
fyrir dýrð Drottins og lyftir hend-
inni eins og sá sem valdið hefur.
Og honum er gefið mikið vald.
Beztu myndir hans eru eins og
opinberun, sem við höfum beðið
effiir um aldir. Sjálfstætt, ógn-
. þrun-gið líf þeirra er mikilfengleg
upphafning á íslenzku þjóðareðli
og íslenzkri náttúru.
Én þrátt fyrir kyngina í
myndum Kjarvals, skynjar áhorf-
andinn að hér er ekki nema brot
af þeirri stúrkostlegu veröld, sem
blasir við meistaranum, neisti frá
' -hinni voldugu sól, sem aldrei
verður litin beru-m augum.
Á þessum forsendum verður
skiljanlegt að hlutföll raunheims-
ins sýnist harla lítilmótleg í aug-
um meistarans. Þess vegna skenk-
ir hann með glöðu g-eði þvotta-
konunni sinni dýrindismálverk
sem forsætisráðherrann sækist
- eftir,
Blaðið hefur sannfr'étt að Kjar-
val muni í dag staddur á Austur-
landi.
xy
Fréttapistill
(Framhald af 5. 6Íðu).
meira, er atkvæði voru greidd
á þinginu nokkrum dögum
seinna um það, hvort taka
skyldi á dagskrá þátttöku Kína
í S.Þ. Þá greiddu 18 Asíu- og
Afríkuríki atkvæði með þeirri
tillögu, en 9 á móti og 18 sátu
hjá. Þau af þessum ríkjum, er
telja's-ig hlutlaus. skiptust nokk
urn veginn til helminga, annar
helmingurinn greiddi atkvæði
með tillögunni, en hinn helm-
ingurinn sat hjá.
Hin mikla fjölgun Asíu- og
Afríkuríkja í S.Þ. seinustu ár-
in, hlýtur að hafa í för með
sér mikiar breytingar á skipan
og störfum þessara miklu sam-
taka í framtíðinni. Hér eftir er
það útilokað, að starfhæfur
meirihluti verði myndaður þar
nema með miklum stuðningi
hinna nýju ríkja,
Þ.Þ.
Gunnar Eyjólfsson
(Framhald af 11. síðu).
sé eitthvað athugavert við tal
mitt, þá hlýt ég að taka tillit
til þess, hvort sem mér tekst
að bæta mig, það er önnur
saga.
— Hverni-g geðjast þér að
ga-gnrýni blaðanna yfirleitt?
— Leikga-gnrýni hefur fleygt
jafn mikið fram og leiklistinni.
En þó má finna gagnrýnendur,
sem eru að verða hættulega
staðnaðir, en það er hlutur,
sem þeir eru einmitt að saka
súma leikarana u-m.
— Ertu ánægður með þá
gagnrýni, sem þú fék-kst nú?
— Leikarar eru sjaldan
ánægðir með gagnrýni, en ég
hef ekki undan neinu að
kvarta. Einn af hæfari gagnrýn-
endunum sa-gði, að 1-eikur minn
hefði fallið áhorfendum í geð.
Það gladdi mig, því um-mæli á-
horfenda eru mér nefnilega
miklu meira virði heldur en
lofsöngur gagnrýnendanna —
það var víst einmitt í Tímanum
sem einn gagniýnandinn sagði,
að „gagnrýnendur væri hjörð
sauða, þar s-em hver elti ann-
an.“ En mér finnst það full
djúpt í árina tekið, sauði,
myndi ég aldrei kalla þá.“
essg.
Sigrún Ragnarsdóttir
(Framhald af 11. síðu)
fundizt Ágústa fallegri, enda
er nú gullfalle-g stúlka.
— Heldurðu að hún hefði
unnið í keppninni um titilinn
fegurðardrottning íslands?
— Það er mér ekki nokkur
leið að segja um.
— En svo ferðu til Ameríku
næsta sumar og tekur þátt í al-
þjóðakeppninni þar. Hvernig
leggst það í þig?
—Vel, nema hvað ég hef
aldrei komið út fyrir landstein-
ana og getur það háð mér, því
í svona keppni hefur það ekki
svo lítið að segja að vera ekki
eins og fiskur á þurru landi.
— Þú, gætir kannske skropp
ið eina æfingaferð til Vest-
mannaeyja. Sumir kalla það
að fara til útlanda.
— Já, kannske fer ég enn
einu sinni til Eyja. Það er alltaf
skem-mtilegt að koma þan-gað.
essg.
Auglýsið i TÍMANUM
_____________________________
Rætt vi’Ö Valgeríi
á Lómatjörn
ALLT Á SAMA STAÐ
(Framhald af 6. síðu).
ASr-a dúka fékk ég oft litaða
og pressaða hjá Gefjunni og
það voru mikil þægindi. Svo
saumaði ég á börnin og ann-
að heimafólk úr þessum efn-
um.
Eigum ávallt fyrirliggjandi:
Willys jeppa
— LœrSir þú fatasaum?
— Ekki annað en það, sem
móðir mín kenndi mér, en
hún var ákaflega handvirk
manneskja. Allan fatnað -á
sitt heimafólk saumaði hún
í höndunum, þangað til ég
eignaðist saumavél, átján ára
-gömul, og fór að sauma fyrir
han-a. Já, mér þótti alveg ynd
islegt þegar ég eignaðist
-saumavélina og hana átti ég
lengi.
— Voru eJcki fráfœrur enn
tíðkœðar í þínum búskap?
— Við gerðum aldrei mikið
af því, færðum venjulega frá
25 ám, til að drýgja kúamjólk
ina. En mikill var kosturinn
í sauðamjólkinni og margur
fékk úr henni holla næringu.
Eg taldi aldrei eftir mér að
mjalta kvíærnar á kvöldin og
skilja mjólkinn, þó að þá
væru venjulega aðrir farnir
að sofa. Og yngri krakkamir
sátu ærnar tvö og tvö sam-
an. Já, þannig var búið þá.
Nú er ööruvísi umhorfs inn-
an stokks og utan. Samt var
mikið búið að bæta jörðina
áður en stórvirku tækin komu
til sögunnar. Guðmundur
sléttaöi stóra móa utan túns
og rækaði.
— Er það ekki sonur ykkar,
sem nú býr á Lómajörn?
— Jú, Sverrir sonur okkar
tók við búi 1939 og var ég
ráðskona hiá honum þar til
hann kvæntist. í sumar varð
hann fyrir þeirri þungu raun
að missa' konu sína, yndis-
lega manneskju — frá þrem
ur ungum dætrum.
— Þú munt eiga æði marga
afkomenáur?
— Eg er hætt að reyna að
telja langömmubömin, en
barnabörnin eru orðin 37, en
eitt af þeim er látið.
Prú Valgerður missti mann
sinn 1949. Hún var við góða
heilsu þar til sjónin tók
snögglega að bil-a á s.l. sumri.
Síðan hefur hún dv-alið í
Reykjavík hjá dóttur sinni
og tengdasyni og leitað lækn
inga.
Eg er nú orðin vonarveik
um læknin-gu, sagði hún æðru
laust, en líklega dvel ég hér
enn um sinn að sjá hvað set
ur. Hugurinn er reyndar
heima og þegar mig dreymir,
þá er ég á Lómatjörn hjá
blessuðum litlu -stúlkunum
þremur.
— Viltu bera móður þinni
kveðju mína? sagði frú Val-
•gerður, er við skildum og þeg
ar ég kom kyeðjunni til skila,
sagði móðir mín: — Hún Val
gerður á Lómatjörn; það er
yndisleg kona.
Og því trú’ ég vel eftir
þessa samverustund. Eg leyfi
mér að færa henni ámaðar-
óskir á 85 ára afmælinu, og
vona að ævikvöldið verði
henni rótt og fagurt í skini
minninganna.
Sigríður Thorlacius.
STALHUS,
JEPPAKÚRFUR,
BRETTI og HÚDD
VARAHLUTIR í MIKLU ÚRVALI
Einnig STÁLHÚS á
rússnesku landbúnaðarbifreiðina GAZ-69
Sendum gegn kröfu hverf á land sem er.
on
Laugaveg 118, sími 2-22-40.
Sölubörn
Munið merkjasölu Blindravinafélags íslands á
morgun sunnudaginn 16. október. Mc-rkin verða
afhent á þessum stöðum frá kl. 10 til 17 á
sunnudag:
Melaskóla
Öldugötuskóla
Ingólfsstræti 16 (syðri dyr)
Austurbæjarskóla (Vitastígsmegin)
Eskihlíðarskóla
Laugarnesskóla
Langholtsskóla
Háagerðisskóla
í KÓPAVOGI:
Kársnesskóla
Kópavogsskóla
Sölulaun eru 10%
Merkin gilda sem happdrættismiðar.
Blindravínafélag íslands
Husqvarna
Notuð Husqvarna sauma-
vél til sölu. Upplýsingar í
síma 32575.
Til leigu
bílskúr ca '20 ferm Tilboð
sendist til afgr blaðsin.s
merkt: Bílskúr