Tíminn - 15.10.1960, Page 14
14
T f MIN N, Iaugardaginn 15. október 1960.
Hún rels þyngslalega á fæt
ur og kom auga á jakka
Davíðs á stólbakinu. Hún leit
aði í vösunum en fann ekk-
ert. Pipa, kveikjari, vasahníf
ur og annað smádót. Ekkert
annað.
Þegar hún rétti sig upp
aftur, heyrði hún allt í einu
að Davíð var að koma. Hún
greip fyrir munninn á sér til
að kæfa óp og hljóp út að
glugganum. Ef hún færi út
um gluggann rnyndu bílljós-
in beinast að henni og Davið
sæi hana. Hún var eins og
mús í gildru. Ef Davíð fyndi
hana hér, vissi bann að hún
njósnaði um eiginmann sinn
og þar með væri hjónabandi
þeirra lokið.
Hún barðist við að stilla
sig um að reka upp óp. Svo
kom henni skyndiegla lausn
í hug.
Hún hljóp að dyrunum,
sneri lyklinum, opnaði og
gekk fram í forstofuna. Hún
sneri lyklinum til hálfs og
skellti á eftir sér, svo að dyrn
ar lokuðust að innan eins og
áður.
Hún tók í handfangið
Dymar voru læstar.
Elísabet eyddi ekki tíman
um til ónýtis. Nokkrum sek
úntum síðar var hún kom-
in aftur upp í rúm og lá með
lokuð augu.
Hún heyrði að Davið fór
inn um vinnuherbergisglugg
ann og skömmu síðar var
svefnherbergisdyrunum lokið
varlega upp.
Elísabet lá stíf af ótta, hún
reyndi af öllum mætti að
anda hægt og rólega. Hún opn
aði augun og leit á mann
sinn. Hann hafði hægri hönd
ina í vasanum og hún sá að
hann hélt utan um einhvern
hlut.
Hann gekk að rúminu og
leit á hana. Elísabet bylti sér,
eins og hún væri að rumska.
— Elísabet.
Rödd hans var hás.
Hún opnaði augun betur
og reyndi og líta syfjulega út.
— Ó, Davíð . . . hvað er
klukkan? Hún geispaði og
héit áfram: — Er hún ekki
voðalega margt . . . ertu bú-
inn ag vinna?
— Elísabet.
Hún settist upp, þegar hún
heyrði æsinguna í rödd hans.
— Elísabet, hlustaðu á mig.
Hann greip um axlir henni.
— Það hefur einhver komið
inn í húsið í kvöld . . . meðan
ég var að vinna.
— Hver? sagði hún og
beitti sig valdi til að vera ró-
leg.
Hann hélt enn þéttingsfast
um axlir henni og þegar hún
sá framan í hann, varð hún
í fyrsta sinn alvarlega hrædd
við hann.
— Hefurðu ekkert heyrt?
spurði hann,
— Ekki fyrr en þú komst,
sagði hún og smeygði sér und
an.
Nætur
— Kannski ég sé bara að
imynda mér þetta, sagði hann
og rétti sig upp. — Eg gæti
samt svarið, að ég heyrði
dyrum skellt um leið og ég
rennd iupp að húsinu.
— Pórstu eitthvað? sagði
hún spyrjandi.
Hann gekk nokkur skref
frá rúminu. — Eg fékk mér
smá ökutúr — fékk mér frískt
loft.
Hann hafði snúið sér frá
henni og hún sá aðeins vanga
svipinn. Grunaði hann hana?
Hún svaraði eins rólega og
henni framast var unnt: —
Davíð, ég er dauðþreytt og
þú ert það lika. En ef ein-
hver hefði komið inn í húsið
á undan þér hlyti ég að hafa
heyrt það. Eg sef svo laust
og hrekk upp við minnsta
hljóð.
Hún kúrði sig niður til þess
að gefa honum til kynna, áð
málið væri útrætt. En hún
var glaðvakandi og aldrei
hafði hún þrág eins heiit að
vita leyndarmál hans.
Hún heyrði hann tauta
eitthvað fyrir munni sér á
leið til dyranna.
Um leið og hann var kom
inn inn í skrifstofu sína,
þeytti hún af sér sænginni og
reis upp. Hún læddist á tán-
um fram í forstofuna. Dyrn-
ar að herbergi hans stóðu í
hálfa gátt og hún heyrði
hann bauka við lykla.
Hún gægðist gegnum rif-
una og sá að Davíð athugaði,
hvort allar skúffur væru
læstar. Hún hélt niðri í sér
andanum þegar hún sá hann
bogra yfir skrifborðinu með
lyklakippu í hendinni. Leyni
hólf i veggnum hrökk upp
og hann smeygði lyklunum
inn og hólfið lokaðist aftur.
Svo að þarna geymdi hann
lyklana. Það var ekki von að
hún hefði fundið þá.
Elísabet var ekki nema
augnablik inn í svefnherberg
13.
ið og þegar Davíð kom nokkru
síðar lézt hún sofa.
Klukkan var langt gengin
í þrjú, þegar Elísabet festi að
lokum blund.
12. kafli.
Elísabet stóð út í garðinum
næsta morgun þegar dreng-
urinn kom með blöðin. Um
leið og hún fletti fyrsta blað-
inu, kom Davið út til hennar.
— Nokkuð nýtt? spurði
hann.
— Ekkert sérstakt, svaraði
Elísabet. — En ég býst við
að frú Raoul sé ánægð núna.
Tryggingarfélagið er búið að
greiða henni andviröi stolnu
demantanna.
Hún leit spyrjandi á mann
sinn. — Hvag gerist næst?
— Mjög einfalt mál, sagði
hann og brosti. — Eg fæ
skammir.
— Af hverju?
— Af því að mér hefur ekki
tekizt að hafa upp á þjófun-
um.
Elísabet leit fast á hann. —
Hefurðu alls engan grun um
hvar þeirra er að leita?
Hann hló. — Auðvitað hef
ég grun. Undirheimár Algeirs
borgar eru enn skuggalegri en
í Lundú'".,.ri Hér morar allt
í þjófum og glæpamönnum,
smyglurum og morðingjum.
Þeir halda fast saman. Og
það er erfitt .að klófesta þá.
Hann andvarpaði og hélt
— Þeir vitab
áfram: — Þeir vita allt um
alla, — og þeir gæta sín vel.
En Elísabet hlustaði ekki á
hann. Hún sá fyrir sér gim-
steinana i skápnum og mál-
verkið. Það rifjaðist upp fyr
ir henni hvað Davíð hafði
sagt um Andrew Soames:
„Allir hafa heyrt Andrew
Soames getið — gimsteina-
þjófur og sérfræðingur á sínu
sviði.
Hún hrökk upp við að hann
hló hátt. — Elskan, eigum
við nokkurn morgunverð að
fá í dag?
, Hann tók undir handlegg
hennar og leiddi hana heini
að húsinu.
Klukkan níu fór Davíð til
borgarinnar og Elísabet var
aftur ein. Hún gekk hægum
skrefum inn í forstofuna.
Dyrnar að herbergi Davíðs
drógu hana til sín eins og
segull. Hún tók í húninn. Auð
vitað voru dymar læstar.
Þá datt henni nokkuð í
hug. Hún tók lykilinn úr eld
húsdyrunum og reyndi hann
í lásnum. En hann gekk ekki
að. Síðan reyndi hún lykil-
inn að svefnherberginu. Það
var árangurslaust. Fálmandi
höndum greip hún stofulyk-
ilinn og stakk honum í, lás-
inn. Hann gekk að. Hún sneri
honum og ýtti upp dyrunum.
Elísabet reyndi að hugsa
skipulega. Hún opnaði leyni-
hólfið, tók lyklakippuna og
lauk upp ölum skúffum. Ekk
ert markvert virtist vera þar.
Þega rhún opnaði neðstu og
stærstu skúffuna kom hún
auga á lila bók í skinnbandi.
Hún fletti henni og fann
hvernig hún nötraði í hönd-
um hennar. Hún þurfti ekki
að lesa lengi. Þetta var dag-
bók Andrew Soames.
Dagbókin var skrifuð með
rithönd Davíðs — eiginmanns'
hennar.
Elísabetu hitnaði og kóln-
aði á víxl. Á hverri síðu var
getið um rán eða smygl. Hann
lýsti nákvæmlega, hvemig
aðferðir hann notaði. Það var
engu líkara en hann væri
stoltur af sjálfum sér. Hann
hafði skipulagt gimsteina-
þjófnaði og smygl í öllum
heimsálfum. Og hann lýsti
öllu út í yztu æsar.
Elísabet kom að síðustu síð
unum. Hún gekk ag stól og
settist þyngslalega áður en
hún hóf að iesa:
„Var sleppt mánudaginn 7.
maí. Hafði þegar samband við
Arrhie á Norður-írlandi. Út-
litið slæmt. Sjö ár í fangelsi
er langur tími. Eg þekktist
hvar sem ég kom. Allir tor-
tryggja mig. Erfitt að byrja
á nokkru fyrir alvöru. Eg hef
hugsaö mér að fara frá Lund
únum. Áætlunin er þessi. Segi
öllum, að ég ætli að byrja
nýtt líf í Gambia. Fæ mér
far með Continental World
Airways, sem kemur við i
Algeirsborg. Flugvélin spring
ur í loft upp og 6g er talinn
hafa farizt með. Leiðinlegt,
að aðrir verða að deyja.“
Svo var ný dagsetning —
daginn fyrir hinn örlagarika
dag. „Eg hef komiö sprengj-
unni fyrir rétt hjá lyfjaköss
unum, sem íingmaöurinn
Bill Seaton fer með til Gam-
bia .Stillti á sprengingu kl.
fimm mínútur yfir sex. —
Andrew Soames deyr og ann
ar kemur í hans stað.
Eitt veldur mér áhyggjum.
Flugþernan. Mér leiðist að
drepa kvenfólk. Annar kven-
maður fer af ásamt manni
sínum i Algeirsborg. Einn
kvenmaður enn, sem ætlar til
Gambia. Verða að reyna að
telja hana á að vera eftir í
Algeirsborg nokkra daga. Sjö
manns verða að deyja — það
er leiðinlegt, en ég verð að
binda endi á þetta taugastríð.
Lögreglan hefur fylgzt með
hverri hreyfingu minni“
Þetta var dagbók Andrew
Soames!
8.00 Morgunútvarp.
8.30 Fréttir.
10.10 Veðuriregnir.
12.00 Hádegisúbvarp.
12.25 Fréttir og tilkynningar.
12.50 Óskalög sjúklinga (Bryndís
Sigurjónsdóttir).
14.00 Laugardagslögin.
16.30 Veðurfregnir.
19.00 Tómstundatiáttur bzarna og
umglinga (Jón Pálsson).
19.25 Veðurfregnir.
19.30 Tilkynningar.
20.00 Fréttir.
20.30 íslenzkt tónlistarikvöld: Ámi
Thorsteinson níræður. — Elsa
Sigfúss og Sigurður Bjöms-
son syngja lög eftir Árna og
lesið verður úr minningabók
tónskáldsins. —
21.25 Leikrit: „Scnmpolo" eftir Da-
rio Niccodemi, í þýðingu
Bjöms Franzsonar. — Leik-
stjóri: Rúrik Haraldsson.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Danslög.
24,00 Dagskrárlok.
í Algeirsborg
Eftir George Alexander
EíRÍKUR
VÍÐFÖRLl
og
FÓRN
SVÍÞJÓÐS
41
Pum-Pum hefur opnað skakkar
dyr. Sörli stendur yfir honum og
segir brosandi: — Þakka þér fyrir,
stúfur. Ekki datt mér í hug að þú
myndir koma að fr'elsa mig.
— Vektu ekki kónginn, hann
sefur svo vært hér í næsta kofa!
Sörli tekur reipi og bindur dverg-
inn, fer út og lokar á eftir sér.
Hann er ekki í vafa um hvert
fara skuli — yfir til Hrólfs. Hann
lítur inn og sér að hann kemur of
seint. Hrólfur er horfinn.
Hann snýr sér snarlega við,
heyi'ir fótatak, skimar eftir vopni,
en stendur svo skyndilega aug-
liti til auglitis við Ragnar.