Tíminn - 06.12.1960, Side 2
2
TÍMINN, þriðjudaglnn 6. desexnber 1960,
Brjostmynd af H. C. Hansen
Nýlega var afhjúpuð brjóstmynd af hinum látna forsætisráðherra Dana,
H. C. Hansen, í danska þinghúsinu. Brjóstmyndin er úr eir og gerð af
myndhöggvaranum Svend Lindharts og kostuð af Jafnaffiarmannaflokki
Danmerkur. Kampmann forsætisráðherra afhjúpaði minisvarðann og
er myndln af því tækifæri.
Malinovsky í ónáð?
Hefur ekki komið fram opinberlega síðan á
byltingarafmælinu
London — Ef dæma má
eftir stottri tilkynningo í
Moskvuútvarpinu fýrir s. I.
helgi er ekki ólíkíegt, a8 Mal-
inovski, landvsrnaráðh^rra
Rússa, skuggi Krostjoffs frá
París, sé fallinn í ónáð
í hinni opinberu tilkynn-
ingu var talað um varaland-
varnarráðh. A.A. Grechko, sem
„settan landvarnarráðherra",
i
en vegur Grechos hefur farið
mjög vaxandi að undanförnu
í Rússlandi. Allt frá því að
Malinovski fylgdi Krustjoff
sem skuggi á hinum misheppn
aða fundi æðstu manna í Par
ís í vor hefur verið rætt um
ráðherrann „sem hinn sterka
mann“ Rússlands. En hann
hefur ekki komið fram opin-
berlega svo að vitað sé síðan
7. nóvember sl.
Hliðin rifnaði
úr fólksbíinum
Ökuslys á Grindavíkurvegi
Um helgina varð umferðar-
slys á Grindavíkurvegi er
fólksbíll úi- Reykjavík ók aft-
an 4 vörubíl úr Grindavík.
Farþegi fólksbi*. eiðarinnar,
sem var kona, meiddist á
höfði.
Nánari tildrög voru þau, að
fólksbíllinn, R-2696 var á leið
til Grindavíkur með einn far
þega, Bíllinn var keðjulaus. en
hálka mikil á Grindavíkurveg
inum. Þar kom, að fólksbíll-
inn náði vörubílnum G-1450,
og vildi fara fram úr honum.
Gaf hann G-1450 merki um
það. G-1450 hugðist þá hægja
á sér til þess að hleypa fólks-
bílnum fram úr.
En þegar ökumaður #fólks-
hílsins hugðist aka fram með
vörubílnum, fataðist nonum
fyrir einhverjar sakir sjórnin
með þeim afleiðingum að
hægra horn fólksbílsins rakst
á horn vörubílspallsins. og má
segja að hægri hliðin hafi ger
samleera rifnað úr fólksbíln-
um. Við áreksturinn hlaut kon
an, sem farþegi var f fólksbíln
um, högg á höfuðið Hún var
fekin í bíl, sem barna átti leið
framhjá og flutt í sjúkrahús
Tilkynning frá Frama
(Framh. af 16. síðu)
dag, sem fylgir hér með í af-
riti.
Virðingarfyllst
f.h. Bifreiðastjórafél. Frama
Bergsteinn Guðjónsson
Rcykjavfk, 30. nóvember, 1960.
Dómsmálaráðuneytið,
Reykjavik.
Það er llunnara en frá þurfi að
segja, að nokkrir bifreiðastjórar hafa
orðið uppvlsir að sölu áfengra drykkja
og er sá verknaður, að áliti þeirra
manna sem með forustu samtaka bifr,-
stjóra fara, svo og alls þess stóra hóps
bifreiðastjóra, sem aldrei hafa haft
slík viðskipti með höndum, telja slík
viðskipti mjög til álitshnekkis fyrir
stéttina f heild, og harma að félags-
menn skuli hafa gripið til slfkra við-
skipta við borgarana. En á meðan sá
háttur er á áfengismálum þjóðarinn-
sem nú er, þá er það að sjálfsögðu
mikil freisting fyrir bifreiðastjóra, að
selja eða útvega áfengi, þar sem far-
þegar þeirra leita mjög á um að fá
það, þar sem útilokað cr að fá það á
löglegan hátt eftir lokunartftpa alm.
sölubúða. En á þeim tfma, sem Áfeng
isverzlunin er opin, eru flestir við
1 vinnu sína og eiga þvi mjög óhægt
með að fara úr hcnni til áfengiskaupa
og f mörgum tilfellum hefur fólk
ekki ákveðið svo áfengiskaup eða
neyzlu þeirra fyrirfram, að hægt hafi
verið að verða sér úti um það á verzl
rrum for i sjomn
(Framhald af 16 sfðu).
á hafnarbakkanum, heyrði buslu-
ganginn og lók þegar til fótanna.
Konum tóks* að ná í hendina á
f-j Minnu, en hún var of bung
til þess að hann gæt tosað henni
upp á bryggjuna. Hann tók þv’
b;:ð ráð að hrópa af öllum kröft-
um, þangað tílVTþfítlrrtiaérktaddir
lögregluþjónar komu aðvífand. Og
náðu henni upp.
Stjarfur
Það er af hinum aldraða manni
hennar að segja, að hann /arð
síjarfur af skelfingu, og mátti sig
h -orki mæla né hræra fyrr en
sjukraliðið tók hann og setti inn
i sjúkrabíl til kerlu sinnar.
Stakkst á hausinr
Þegar um kvöldið var hafizt
handa um að biarga bílnum upp
er. þá tókst hvorki betur né 'ærr
til en svo, að einn björgunar-
mannanna steyptist á hausinn 1
höfnina, nákvæmlega á sama stað
rg frú Minnu var bjargað í iand
um daginn. — Allt hetta vakti
svo mikla athygli, að hinir „fiör-
Uiiklu" skemmtistaðir við Nýhöfn-
ira voru galtómir um kvöldið.
Kviknafti í feitispotti
Laust fyrir kl. hálf þrjú á sunnu-
dag var slökkviliðið kvatt að Haga-
mel 19. Þar hafðikviknað i feitispotti
á eldavél. Tekist hafði að slökkva eld-
inn er liðið kom á vettvang. Skemmdir
urðu nokkrar á skápum i eldhúsinu.
Slökkviliíií gabba'ð
Kl. 11,45 i gaermorgun var slökkvi.
liðið gabbað að brunaboðanum á horni
Sólvallagötu og Blómvallagötu. Hafði
brunaboðinn verið brotinn. sennilega
af krakka.-----Þess má geta að háar
sektir liggja yið því að gabba slökkvi-
liðið.
Datt á götu
1 gærdag datt kona á Vesturgötu
fyrir utan verziunina Geysi. Kvartaði
hún um þrautir ( fæti og var flutt af
sjúkrabll á slysavarðstofuna.
unartlma. Detti fólki hins vegar í hug
að hafa áfengi um hönd að hjáliðnum
verzlunartíma, þá er ekki nema um
tvennt að velja, að leita til leynivín-
sala eða setjast í citthvert veitingahús,
sem fengið hefur vínsöluleyfi og kaupa
þar vín, en í flestum tilfellum mun
fólk, sem víns ætlar að neyta, óska
fremur að neyta þess ( heimahúsum.
Nú í seinni tið hcfur löggæzlan haft
sig mjög ( frammi, um að hafa hendur
f hári þeirra manna, sem vin selja og
gengið svo langt, að bifreiðar hafa
verið eltar uppi, og farþegar verið
teknir og krafðir sagna um erindi
þeirra í bifreiðinni, og teljum vér að
mjög sé gengið á öryggi farþega leigu-
bifreiða, og vafasamt að slikt fái stað
izt, og gerum vér kröfu til þess að önn
ur aðferð verði viðhöfð í þessu efni
framvegis.
Með óbreyttu fyrirkomulagi í þess-
um málum, verður ekki annað sagt,
en að ríkisvaldið sé beinlfnis að stuðla
að leynivínsölu og gera menn að af-
brotamönnum, scm annars myndu ekki
láta sér 1 hug koma, að fremja slfk
lögbrot, hvorki gagnyart þessu eða
öðru.
Það fyrirkomulag sem ríkir í áfeng
ismálunum mun eiga að byggjast á,
að halda vlni frá fólkiinu og að það
eyði ekki fjármunum sinum til kaupa
áfengra drykkja. En það vita allir,
sem komnir eru til vits og ára, að ef
fólkið ætlar að verða sér úti um vín-
anda, þá verður það gert á einn eða
annan veg, jafnvel eiturlyf, ef ekki
tekst betur til. Ætti reynsla umliðinna
ára að geta fært mönnurn heim sann
inn um það, að fólk drekkur ef það
ætlar að drekka, og með núverandi
fyrirkomulagi eyðir það miklu meira
fjármagni til áfengiskaupa, en ef á-
fengisviðskiptin væru færð f það horf
að borgararnir gætu á lögmætan hátt
orðið sér úti um áfengi, þegar þeir
telja sig þurfa á þvi að halda.
Með tilliti til þeirrar staðreyndar,
sem að framan greinir, þá leyfum vér
oss hér með, að fara þess mjög ein-
dregið á leit við hæstvirt ráðuneyti, að
það geri nú þegar þær ráðstafanir sem
þarf til að opinber áfengissala verði
opin til kl. 23.30 alla daga vikunnar,
nerna föstudaga og laugardaga þá til
kl. 00.01, þannig að sölutíminn fylgl
þeim tíma, sem ríkisvaldið hefur leyft
öðrum að selja v(n á, og bægja á
þann hátt frá þeirri freistingu, sem að
bifreiðasjórum steðjar, svo og öðrum
borgurum, sem hafa freistazt til sölu
áfengra drykkja ( skjóli þeirrar öfug
þróunar, sem ríkir í áfengismálum
þjóðarinnar.
Með fullri vissu um, að hæstvirtu
ráðuneyti sé fyllilega ljóst, hvaða ó-
heillaástand hefur þroskast f þessum
málum meðal þjóðarinnar á umliðn-
um árum, svo sem með leynivínsölu,
smygli neyzlu eiturlyfja, bruggs og
margs annars, þá leyfum vér oss að
mega vænta þess, að ráðuneytið telji
það óhjákvæmilega nauðsyn, að gera
breytingar á áfengismálunum, sem hér
er farið fram á, og f fullu trausti þess
að svo verði gert, þá væntum við
svars hið allra fyrsta.
Virðingarfyllst
f. h. Bifreiðasjórafélagsins Frama,
Bergsteinn Guðjónsson
Fjársöfnunin
Orðsending til félagsstjórna og söfnunarstjóra
um allt land
Nú er ætlunin að ljúka fjársöfnuninni fyrir áramót. Upphaf-
lega var áformað að Ijúka henni í byrjun nóvember, en af
ýmsum ástæðum hefur orðið dráttur á uppgjöri úr ýmsum
héruðum. Nokkur héruð hafa þegar náð settu marki og gert
full skil. Þau eru þessi:
Dalasýsla
Vestur-Húnavatnssýsla
ísafjörður
Norður-f saf j arðarsýsla
'/SÉÉ ■
130%
100%
100%
100%
Norður-Þingeyjarsýsla (vestan heiðar) 100%
Annars staðar er söfnunin enn í fullum gangi, þótt mörg hér-
uð hafi þegar skilað meginhluta þeirrar upphæðar, sem þau
ætluðu sér að ná. Þau, scrp mestu hafa skilað nlutfallsleea.
eru þessi:
Vestmannaeyjar 72%
Rangárvallasýsla 66%
Eyjafjarðarsýsla 60%
Suður-Múlasýsla 60%
Siglufjörður 60%
Vestur-Barðastrandarsýsla 58%
Suður-Þingeyjarsvsla ö8%
Hafnarfjörður 58%
Skorað er á alla, sein að söfnuninni vinna, að gera nú myndar-
legt lokaátak og ná settu marki fyrir áramót.
Skrifstofa söfnunarinnar er á Lindargötu 9a. Sími 19613.
Félag Framsóknarkvenna
Félag Framsóknarkvenna heldur fund annað kvöld kl.
8,30 í Framsóknarhúsirto uppi.
Fundarefni: Umræður og jóladagskrá.
Stjórnin
„Bingóu á Selfossi
Framsóknarfélag Selfoss heldur skemmtisamkomu í
Selfossbíói föstudaginn 9. des. n.k. og hefsr hún kl. 9
s.d. Spilað verður „Bingó". Góð verðlaun.
Hljómsveit Óskars Guðmundssonar leikur tyrir dansi
Síðasta skemmtun félagsins fyrir jói. — Allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir