Tíminn - 06.12.1960, Blaðsíða 16
Þriðjudaginn 6. desember 1960.
216. btað.
Lumumba í böndum
Bill frú Minnu dreginn upp úr höfninni.
Ruglaðist í gírum
og fór í sjóinn
Setti í afturábak gír í staíinn fyrir annan
Eins og sagf hefur verið frá i fréttum var Patrlee Lumumba fluttur í bönd-
um til Leopoldville fyrir helgina. Á flugvellinum belttu hermenn Mobutos
hann vlllimannlegustu harðræðum. Myndln er tekln í þann mund er hinn
fyrrverandi forsætisráðherra var ieiddur út úr fiugvélinni.
2 íslendingar við nám í
sjóliðsforingjaskóla
Tveir yfirmenn af íslenzku
varðskipunum, þeir Garðar
Pálsson, 1. stýrimaður á varð-
skipinu Óðni. og Jónas Guð-
mundsson, 1. stýrimaður á
Ægi, stunda í vetur nám við
bandarískan sjóbðsforingja-
skóla. US coast guard officers
candidate School í Virginia-
ríki.
Stofnun þessi er með stærstu og
fullkomnustu sjóliðsforingjaskól-
um Bandaríkjamanna og í vetur
stunda þar nám 180 sjóliðsforingja
efni.
Skólinn hefur nýlega flutt starf-
semi sína frá New London til
Virginia ríkis, en þar hefur hann
til afnota stórt landsvæði undir
byggingar og hafnarmannvirki.
Skólinn hefur yfir að ráða mjög
fullkomnum kennslutækjum og
þar á meðal tveimur skólaskipum.
Eins og áður segir, stunda þarna
nám 180 sjóliðsforingjaefni. sem
rt.unu að námi loknu taka upp
störf, sem sjóliðsforingjar í am-
erísku strandgæzlunni.
Þeir Garðar Pálsson og Jonas
Guðmundsson höfðu áður lokið
bæði Farmannaprófi og Skipstjöra
p:ófi á varðskipum ríkisins, við
stýrimannaskólann í Beykjavík.
Það fór illa fyrír hennl frú
Minnu Iversen um daginn,
þegar hún var að taka bílinn
sinn af stað á Nýhafnarbryggj
unni framan við Charlotten^
borg. Hún setti í rangan gír,
og ók beint fram af brypgj-
unni.
Minna er 64 ára gömul, og hafði
ásamt 72 ára gömlum manni sín-
um verið á leiksýningu í Konung-
lega leikhúsinu. Svo ætluðu þau
að fara heim, og Minna settist
undir stýri og setti hækjuna sina
— því hún er bækluð — utanvert
við sig í bílnum.
Bíllinn stökk
Maður hennar fór ekki upp í
strax, því hann ætlaði að segja
henni til, meðar. hún bakkaði út
úr stæðinu. En svo háttar tiJ á
Volkswagenbílunum, að afturábak
gírinn er a sama stað og annar
gir, en til þess að koma honum
í afturábak, þarf að þrýsta gír-
stönginni niður Þetta láðist frú
Mjnnu að gera, og setti því bíl-
inn í annan gír. Svo sleppti hún
tengslunum, og bíllinn tók undir
s.g stökk fram af bryggjunni.
Hækjan fyrir
Frú Minna flýtti sér að opna,
cg tókst það um leið og bíllinn
skall í sjóinn. En þá var hækjan
fyrir henní, svo hún komst ekki
sÞax út. Bíllinn fylltist óðfluga,
er. rétt áður en hann sökk krafl-
aði hún sig út úr honum, og tók
nokkur sundtök til þess að sog-
ast ekki niður um leið og bíll-
ir.n.
Of þung
Ungur maður, sem var að vinna
(Framhald á 2. síðu)
Ný bók E!in-
borgar Lárusd.
Út er komin hjá bókaútgáf-
i nni Norðra ný skáldsaga
efiir Elínborgu Lárusdóttur,
Sól í hádegisstað Undirtítill
bókarinnar er Horfnar kyn-
sióðir — Saga frá 18. öld.
| Eins og nafnið bendir til er
þetta söguleg skáldsaga og
gerist á æskuslóðum höfund-
ar.
Það fer vart hjá því að sögufróð
ir menn þekki í bókinni ýmsa at
burði og per’sónur frá 18. öldinni.
Margar persónurnar eru sannsögu
legar, enda þótt nöfnum sé breytt.
Elinborg Lárusdóttir er löngu
þjóðkunnur höfundur. Fyrsta bók
hennar, Sögur, kom út 1935 og síð
an hver af annarri, alJs 22 að með
taldri þessari síðustu bók.
Spl í hádegisstað er 285 síður að
stærð, prentuð í Prentverki Odds
Björ'nssonar á Akureyri. Frágang
ur er allur til fyrirmyndar. — Sól
í hádegisstað hefur mikið menn
ingargildi og verður vafalaust vin
sæl og mikið lesin af un.gum sem
gömlum.
„Sólskinsdag-
ar á islandi”
Er öryggi farþega ógnað
með sprúttsölueftirliti?
Fréttatilkynning frá Bifreiðastjóraféiaginu
Frama
Blaðinu hefur borizt eftirfar
andi /réttatilkynning frá Bif-
reiðastjórafélaginu Frama I
Reykjavík: ‘
Að undanförnu hefur nokk
uð verið um það rætt, að kom
ið hafi fyrir að bifreiðastjór-
ar hafi orðið uppvísir að
leynivínsölu, og forustumönn-
um samtaka bifreiðastjóra.
fundið það til foráttu að
„leyfa“ slíkt innan stéttarinn
ar, en það skal hér með tekið
fram, að forusta samtakanna
hefur hvorki hvatt menn til
slíks né „leyft“ það, heldur
reynt af fremsta megni, að
koma í veg fyrir að svo væri
gert En flestir munu geta
gert sér grein fyrir því innan
bifreiðastj.stéttarinnar, sem
telur nokkur hundruð með-
limi, að einstaklingar innan
stéttarinnar freystist til ó-
leyfilegra athafna, bifreiða-
stjórastéttin er hér engin und
antekning — við erum alveg
fullvissir um, að forusta sjó-
mannasamtakanna hvorki
hvetur né leyfir meðlimum sín
um að smygla varningi til
landsins, og einnig erum við
vissir um að forusta kaupm,-
samtakanna hvetur ekki með
limi sína til sölu á varningi,
sem ekki hefur verið fenginn
á lögmætan hátt, en eins og
kunnugt er hefur verið frá
því skýrt, að fundist hafi ýmis
300 smniirn
Að undanförnu hefur Kjart
an Ó. Bjarnason kvikmynda-
maður ferðast um landið og
sýnt á um 60 stöðum. Hefur
hann sýní myndarþætti um
vetraríþróttir, m.a. frá ólymp-
iuleikum, kappreiðar og fim-
leika; auk þess þætti frá flest
um fjörðum og káupstöðum
á Austurlandi.
Síffustu sýningar hans hér á
landi aff þessu sinni verffa í Hafn
arfjai'ðarbíói á þriðjudaginn og
miðvikudaginn kl. 5, 7 og 9. Kjart
an kveður sig því miður ekki hafa
tíma til sýninga í höfuðborginni
að þessu sinni, þar sem hann er á
förum til Noregs, þar sem hann
mun sýna kvikmyndina Sólskins
dagar á íslandi, sem hann hefur
sýnt á Norðurlöndum undanfaiin
6 ár, alls rúmlega 3000 sinnum við
ágætar undirtektir. Næsta sumar
hyggst hann sýna myndina hér
heima.
varningur í verzlunum, sem
ekki hefur fengið löglega toll
meðferð.
Við munum ekki frekar leit
ast við að ræða þær aðdrótt
anir, sem beint hefur verið að
bifreiðastjórastéttinni vegna
óleyfilegra viðskipta nokkurra
meðlima hennar. En vegna
þess óheillaástands, sem þró-
ast hefur í áfengismálum þjóð
arinnar á umliðnum árum, þá
höfum við skrifað dómsmála-
ráðuneytinu bréf, með tillögu
um, að á því verði ráðin bót,
svo borgararnir geti farið með
áfengi sem frjálsir menn, úr
því áfengissala er leyfð í land
inu á annað borð.
Að öðru leyti vísast til bréfs
vors til ráðuneytisins, dags. i
(Framhald á 2. síðu).
Snjómugga
Nú á norðankaldinn að
vera horfinn, og hægviðri
komið í staðinn. Hafi ekki
komið snjómugga í nótt, er
hennar von í dag.