Tíminn - 06.12.1960, Blaðsíða 6
í
TÍMINN, þriðjudaginn 6. desember 1960.
.W. ; /
• /.
i f §
: J
Barna- og unglingabækur
Tvær nýjar Jóa-bækur:
JÓI OG SPORIN I SNJÓNUM
og JÓI ÖG TÝNDA FILMAN
Allir strákar þekkja Jóa leynilögreglumann og hinn akfeita
vin hans, Erling. Jói er cviðjafnanlegur drengux og grunn-
tónn Jóa-bókanna er, að það borgar sig aldrei að fremja
afbrot. Enda hafa Jóa bækurnar hlotið sérstök meðmæli,
presta, kennara og lögreglumanna, sem hollt og gott lestrar-
efni handa unglingum.
Jóa-bækurnar eru spennandi leynilögreglusögui og Jói og
Erlingur bráðduglegir og slyngir spæjarar.
SÆVARGULL eftir John Blaine.
Örn og Donni, strákarnir úr Örn og eldflaugin og Týnda
borgin, eru náungar, sem allir drengir kannast við. Enda
hafa víst fáar bækur orð'ð vinsælli hérler.dis en ævintýra-
sögurnar um Örn og Donna. SÆVAxtGULL er hörkuspenn-
andi, nýstárleg saga, sem gerist mestmegnis neðansjávar.
FLUGFREYJAN OG DULARFULLA HÚSIÐ
eftir Helen Wells.
Ævintýrabók um flugfreyjuna VIKU BARR, sem allar ung-
ar stúlkur kannast við. Hver er leyndardómur dularfulla
hússins? Af hverju má ekki rífa vegginn í gamla ættar-
óðalinu? Hvers vegna er allt svo dularfullt? Vika Barr hefur
einsett sér að ráða þesar gátur.
Fljúgið mót ævintýrunum með Viku Barr, hinni vinsælu
söguhetju flugfreyjubókanna.
NIELS FLUGMAÐUR NAUÐLENDIR
eftir Torstein Scheutsz.
Níels flýgur frá Afríku til Brazilíu. Tímasprengja er talln
undir bakborðshreyfli veiar hans. Hann fær vitneskju um
hinn banvæna farm aðeins 90 mínútuni áður en hin hættu-
lega sprengja á að springa. Það er ómögulegt að ná landi
á svo skömmum tíma . en Níels flugmaður verður að
sigrast á hættunni og leysa þennan mikla vanda ..
Fylgist með Níels flugmanni og vinum hans, þeim Rúlla,
Drumb og Véla-Páli, því þar sem þeir eru, þar eru spenn-
andi ævintýr.
MILLÝ MOLLÝ MANDÝ fær bréf frá íslandi
eftir J. L. Brisley.
Ný skemmtileg bók um litlu stúlkuna, sem öllum vildi
hjálpa og fór sendiferðimar fyrir pabba og mömmu, afa
og ömmur, frænda og frænkur.
Þetta er óskabók allra iítilla telpna.
PÉTUR SJÓMADUR eftir Peter Freuchen.
Saga um 12 ára dreng, sem gerist hvalveiðimaður á dönsku
skipi. Hafið og hin heillandi ævintýr þess, dugur og dreng-
skapur, þrek og þrautseigja — allt þetta og meira til, sam-
ofið ævintýralegri frásögn Peter Freuchen, verður að ógleym
anlegum töfraheimi. Enginn nema Peter Freuchen skrifar á
þennan hátt fyrir drengi, enda hefur þessi drengjabók farið
sigurför um Bandaiíki Norður-Ameríku og Norðurlönd.
SKUGGSJÁ
60 ára: Eiríkur Björnsson, Svínadal
Sextugur var í gær, 5. des-
ember, Eiríkur Björnsson,
bóndi og rafvirkjameistari í
Svínadal í Skaftártungum.
Hann er einn af hinum mörgu
Svínadalssystkinum, börnum
Björns Eiríkssonar og Vigdísar
Sæmundsdóttur, er bjuggu
sína búskapartíð í Svínadal.
Þar ólst Eiríkur upp meö ást-
rikum foreldrum og í hópi
glaðra systkina og varð
snemma athugull og laginn.
Er hann var uppkominn var
hann um nokkurt skeið hjá
Bjarna Runólfssyni í Hólmi í
Landbroti, hinum mesta hag-
leiksmanni, er setti upp fjöl-
margar rafstöðvar víðs vegar
um landið. Síðar gerðist Eirík
ur bóndi á föðurleyfð sinni,
Svínadal og hefur búið þar á
móti Sæmundi bróður sínum
undanfarna áratugi. En þó að
hann reki búskap af miklum
dugnaði, stundar hann einnig
smíðar vatnsvéla og annað
það, er að rafvirkjunum lítur,
því að alltaf öðru hvoru er
verið að biðja hann að setja
upp rafstöðvar. Er hann bú-
inn að setja upp fjölda stööva
víðs vegar um landið og hafa
þær yfirleitt reynzt ágætlega,
þar sem staðhættir eru í lagi.
Hefur Eiríkur þannig orðið til
þess að veita mörgum með-
bræðrum sínum bæði ljós og
yl og er það göfugt starf. —
Auk þessa er hann oft önnum
kafinn við ýmis konar viðgerð
ir fyrir nágranna sína, því að
margir leita á fund hans með
það, sem gera þarf við. Er það
ómetanlegt happ fyrir sveit-
unga hans að hafa hann alltaf
við hendina og geta snúið sér
til hans með hvað eina, er lag
færa þarf. Og Eiríkur gerir
yfirleitt allra bón. Hann er
bæði greiðvikinn og gestris-
inn og til hans er gott að leita.
— Að eðlisfari er hann frekar
hlédrægur og ekki fyrir að
láta bera mikið á sér. Án allrar
auglýsingar vinnur hann sín
störf með staðfestu og elju,
og hefur þegar lokið góðu ævi-
starfi. — Hann býr með mynd
arkonu, Ágústu Ágústsdóttur,
af skaftfellskum ættum og
eigaþiau þrjú efnileg börn. —
Sveitungar hans og kunningj
ar nær og fjær óska honum
allra heilla og blessunar á
sextugsafmælinu.
Valgeir Helgason.
Skíði
Skautar
Sleðar
B/íKUR OG HÖFUNDAR
Sími 13508
Kjörgarði Laugavegi 59
AustursUæti 1
Póstsendum.
Trúnaðarmál
TRÚNAÐARMÁL, smásögur eft
ir Friðjón Stefánsson, Útgefandi
ísafoldarprentsmiðja.
Friðjón Stefánsson hefur sýnt
það með fyrri bókum sínum, að
hann kann allvel til smásagnagerð
ar og hefur lagt sig fram um það
að gera sér það skáldskaparform
undirgefið. Síðasta bók hans, Fjög
ur augu, er vafalítið bezta bók
hans, og þar er að finna beztu smá
sögur, sem hann hefur skrifað.
f sumar bætti hann við nýju
smásagnasafni, Trúnaðarmálum.
Nafnið segir nokkur deili á sögu
efnum. Sögurnar bera 'margar blæ
innvirðulegra samræðna, þar sem
einn segir öðrum hug sinn og trún
aðarmál. Sumar þessara sagna —
t.d. fyrsta sagan Trúnaðarmál, er
með sterkari blæ frásögu en
smásögu. Sú saga er töluvert ólík
indaleg og með reyfarakenndri
spennu, töluvert skemmtileg af
lestrar eins og raunar flestar smá
sögur Friðjóns, en hana skortir
mjög hnitmiðun smásögunnar.
f Ijósaskiptunum er töluvert í
smeygileg saga að efnisvali og
byggingu,. raunar óvenjuleg, en
hún er nokkuð laus í reipum, mark
mið hennar þokukennt og línan
hlykkjótt. Það er eins og höfundi
hafi komið í hug snjallt söguform,
gott mótív, en ekki lagt nógu hart
að sér við a.ð finna og meitla sögu
inntakið, sögugildið sjálft. En
þetta er léttilega skrifuð saga.
Sagan Ástarsaga eftir pöntun er
kímileg gletta og sýnir góða hug
kvæmni en átakalítil.
Klara er vel gerð saga að efni
Friðjón Stefánsson
og stíl, og þar veit höfundur hvað
hann er að fara og að hvaða sögu
lokum hann stefnir þegar í fyi'stu
línum. En hún er ekki nýstárleg á
neinn hátt, og slóðir hennar troðn
ar. Hið sama má raunar segja um
söguna Við hvítu þilin, báðar bein
skeyttar og hnitmiðaðar af sál
fræðilegr'i glöggskyggni, gamal
kunnur sannleikur um flótta og
sjálfsblekkingu mannanna sýndur
skýrum dráttum án verulegs nýja
bragðs. Svarað í síma er býsna vel
gert eintal og heilsteypt saga.
Kveðjur er dálítil flækja — og á
það bæði við um efnið og gerð sög
unnar, sæmilega skýr mynd en
bregður engu nýju Ijósi yfir lífið.
Öræfabúi snýr við er mjög laglega
gerð. Jólasnjór er ömurleg saga og
óhlífin en miklu sterkar’i. Feimni
getur varla talizt meira en laglega
gerð skemmtisaga.
Þegar á allt er litið og bókinni
lokað, verður þeirri hugsun varla
varizt, að hún sé ekki eins góð
sem smásagnasafnið Fjögur augu.
Að vísu eru þessar sögur að ýmsu
Ieyti áþekkar, en í þessa bók vant
ar þær tvær eða þrjár ágætissögur,
sem finna mátti í hinu safninu. Þar
voru sumar sögurnar gerðar af
mikilli vandvir’kni og ströngum
aga, en hér eru tökin nokkru laus
ari, bókin gerð af meiri flýti. Ég
get ekki varizt þeirri hugsun, að
sumar þessara sagna séu raunar
aðeins hálfgeiðar og mundu stór
um fríkka að allri áferð og mótun,
ef höfundur hefði umritað þær
einu sinni eða tvisvar.
Að efni eru þessar sögur þó lík
lega öllu meiri skemmtilestur en
hinar fyrr'i, og þær sýna engu síð
ur en hinar fyrri smásögur Frið
jóns, að hann er töluvert snjall og
kunnáttusamur smásagnahöfundur.
— AK
Móðir okkar
Guðríður Eiríksdóttir
frá Þjórsártúni,
Inga Ólafsdóttir, Huxiey Ólafsson, Eggert Ólafsson.
Hjartans þakkir fyrir sýnda samúð og vináttu við andlát og
jarðarför mannsins míns,
Jóhanns P. Jónssonar,
skipherra.
Margrét Helgadóttir.