Tíminn - 14.02.1961, Blaðsíða 6
SJÖTUG:
Guðlaug I. Guðjónsdóttir
kennari, Keflavík
T í MIN N, þriðjudaginn 14. febrúar l9GL
Hún er fædd 14. febrúar 1891
að Stóru-Vatnsleysu á Vatnsleysu-
strönd, dóttir merkishjónanna Guð-
jóns Jónssonar skipasmiðs og Guð-
rúnar Torfadóttur.
Til Keflavíkur fluttist Guðlaug
með foreldrum sínum 10 ára göm-
ul. Nokkru síðar byggði faðir henn
ar bæ sinn norðantil á Vatnsnesi
í Keflavík og nefndi hann Eram-
nes. Þar bjuggu foreldrar hennar
til dánardægurs og þar hefur Guð-
Iaug búið síðan ásamt systur sinni,
Jónínu.
Haustið 1907 var Guðlaug ráðin
kennari við barnaskólann í Kefla-
vík í forföllum annars, aðeins 16
í^-a gömul.
Henni faefur þó sennilega fund-
izt að hún þyrfti að afla sér meiri
menntunar, áður en hún snéri sér
fyrir alvöru að kennarastarfinu.
Hætti hún því kennslu eftir þenn-
an vetur, en las það, sem hún náði
til og hún taldi, að yrði sér að
gagni við það starf, er hún hafði
ákveðið að helga sig. Námsbækur
munu þá hafa verið af skornum
skammti. Hefur Guðlaug sagt mér
það, að hún hafi gert sér það til
dundurs á þessum árum, að snúa
köflum úr fslendingasögunum á
ensku.
Haustið 1913 gerðist hún kenn-
ari í Leirunni og kenndi þar 4
vetur.
Haustið 1919 hóf hún aftur
kennslu við barnaskólann í Kefla-
vík og hefur gegnt því starfi síðan.
en mun láta af því í vor, eins og
alhr verða að gera, sem komnir
eru á hennar aldur, hvort sem
þeim líkar betur eða verr.
Guðlaug er búin flestum kostum
góðs kennar'a. Hún, er margfróð og
minnug og hefur ágæta frásagnar-
hæfileika. Skyldurækin er hún og
stjórnsöm en nærgætin og nýtur
traus'ts og virðingar nemenda
sinna og foreldr'a þeirra, svo og
samkennara sinna.
Ekki hefur Guðlaug látið sér
nægja kennarastarfið til mann.
bóta. Hún var einn af stofnendum
barnastúkunnar Nýársstjömunnar
í Keflavík ár’ið 1904, og var fyrsti
æðstitemplar þeirrar stúku- Fám
árum síðar lagðist starfsemi stúk-
unnar niður um sinn. En vorið
1919 var stúkan endurr'eist af þeim
Guðlaugu og Jónínu, Framnessystr
um- eins og þær eru oftast nefndar
af kunnugum. Hafa þær verið
gæzlumenn .stúkunnar síðan og
stjómað henni með hinni mestu
prýði í nær 42 ár.
I stúkunni hafa ætíð verið nær
öll börn í Keflavfk á skólaaldri, og
margir unglingar og nokkrir full-
orðnir telja sig enn í stúkunni og
halda sitt barnastúkuheit. Meðlim-
ir hennar munu nú vera um 550,
senmlega fjölmennasta stúka lands
ins.
Menn geta gert sér í hugarlund,
hve mikið og vandasamt starf það
er að stjórna slfkum félagsskap.
Þau em orðin æði mörg leikritin,
sem þær systur hafa sett á svið
með stúkufélögum, leikendum og
áhorfendum til hinnar mesta á-
nægju. Enn meira vúði eru þó hin
mörgu frækorn góðvildar og hóf-
semi, sem þær systur hafa sáð í
hugi og hjörtu hinna fjölmörgu
bárnai sem þær hafa leiðbéint inn-
an skóla og utan.
Eins og gefur að skilja, era þeir
orðnir margir, sem notið hafa til-
sagnar Guðlaugar á 47 ár'a kennslu
ferli hennar. Það munu því margir
hugsa til hennar með hlýju og
þökk á þessum tímamótum í lífi
hennar.
Ég árna þér, Guðlaug, allra
heiUa á afmælisdaginn og þabka
þér ánægjulegt nær 20 ára sam-
sfarf. Ég flyt þér einnig þakkir og
árnaðaróskir frá barnaskólanum í
Keflavík, frá þeim eldri og yngri
nemendum skólans, sem eiga þess
ef til vill ekki kost að tjá þér hug
sinn á þessum merkisdegi þínum.
Lifðu heil.
Hermann Eiríksson.
Útför
séra Jes A. Gíslasonar,
Hóll, Vestmannaeyium,
sem andaSist 7. þ.m., veröur ger8 frá Landarirkju í Vestmannaeyj-
um miSvikudaginn 15. þ.m. og hefst með húskveðju frá heimlll hans
kl. 14.
F.h. aðstandenda
Friðrik Jesson.
Þökkum Innilega auðsýnda samúð vlð andlát og jarðarför
Krístínar Þórarinsdcttur
og vlnáttu og heimsóknir í veikindum hennar.
Marta Gísladóttir, Guðríður Gisiadóttir,
Guðrún Elíasdóttir.
Konan mfn,
Sigríður Gísladóttir,
andaðist að Vífllsstöðum 12. febrúar.
Þorlákur Kolbeinsson.
Blaðið
sem húðin finnur
ekki fyrir
Gillette hefir gert nýja uppgötvun, sem stóreykur þægindin við raksturinn. Það
er nýtt rakblað með ótrúlegum raksturseiginleikum. Skeggið hverfur án pess að
þér vitið af. t»egar nótað er Blátt Gillette Extra rakblað má naumast trúa því
að nokkuð blað hafi verið í rakvélinni. 5 blöð aðeins Kr. 18.50.
þér verðið að
reyna það
® Gillette er skrásett vörumerki
Skíði
Skíði
Skíðagleraugu
Skíðastafir
Tyrolía skíðabindingar
Toko Jkiðaáburður
Skautar margar gerðir
Tilboð óskast
í pappírspoka
til umbúða á sementi. Útboðslýsingu má sækja í
skrifstofu Sementsverksmiðju rikisins, Hafnarhvoli,
Reykjavík.
SementsverksmiSja ríkisins.
ADALFUNDUR
Móðir okkar,
Ingibjörg Einarsdótfir,
Smiðjustig 13,
andaðist 11. þ. m. að elliheimilinu Grund.
Einar Ástráðsson og systkini.
Kjörgarði Laugavegi 59
Austurstræti 1
PÓSTSÉNDUM
Farfugladeildar Reykjavíkur verður haldmn í
Grófin 1, þriðjudaginn 28. febrúar kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN
.»X»V*V*X*%*V*V*V*V*^
v*v»v*v*v*v*v*v*v*v*v«v*v*v*v*v«v*v»v*v*v*v*v*v*v*v*v*v*v