Tíminn - 29.03.1961, Side 3
mrmrmr
Þessi mynd var tekin á
VífilsstcSum, og sýnir m. a.
dráttarvélina 15 ára gömíu.
Talið ?rá vinstri: Harris E.
Swanöerg, Hjalti Pálsson,
Björn Konráðsson, bústjóri
á VífiisstöSum, og Hermnn
S. Kohtala.
Árangurslaus leit
að Auði djúpúðgu
í gær var gerS yfirgripsmikil
leit að vb. Auði djúpúðgu, en hún
bar engan árangur. Er nú engin
von til þess. lengur að mennirnir
tveir, sem á bátnum voru, hafi
komizt af.
Tvær flugvélar tóku þátt í leit-
inni í gær, flugvél SVFÍ og Björns
Pálssonar og landhelgis'flugvélin
Rán. Flogið var með ströndum, en
hvergi sást tangur né tetur af hin-
um týnda oát. Til frekara örýggis
var einnig flogið nórður um allan
Húnaflóa, en ekki var talið líklegt
að brak úr bátnum hefði rekið á
haf út, því að vindur var norðlæg-
ur, er báturinn hefur farizt.
Einnig var gengið á fjörur, en
sú leit bar ekki árangur.
Matthías Sveins-
son sigraði í
15 km. göngu
Úrslit í 15 km. göngu í Skíða-
móti íslands á ísafirði í gær urðu
þessi: 1. Matthías Sveinsson, fsa-
firði, 72.47 mín, 2. Jón Karl Sig-
urðsson, fsafirði, 75 mín. 3. Sveinn
Sveinsson, Siglufirði, 76.52, og
4. Sigurður Jónsson, ísafirði á
78.43 mín.
f aldursflokki 17—19 ára í 15
km. göngu urðu þessi úrslit: 1.
Frímann Ásmundsson, Fljótum,
78,31. 2. Gtinnar Guðmundsson,
Siglufirði, 80,33 og 3. Hjálmar
Jóelsson, 80.40.
f 10 km. göngu (aldursflokkur
15—16 ára) urðu þessi úrslit: 1.
Kristján Rafn Guðmundsson, ísa-
firði, 51.55. 2. Stefán Steingríms-
son, Fljótum, 54.06 og 3. Sigur-
björn Þorleifsson, ísafirði 55.22.
Veður var gott, norðaustan gola
og skóf í slóðiua, en annars var
færi ágætt.
Fulltrúar frá
IH staddir hér
Fyrirtækií hefur flutt nálega 1600 dráttarvélar
hinga'ð til lands frá 1929
Hérleno'is eru nú staddir
íveir menn frá fyrirtækirlu
InternaMonal Harvester, en
svo sem kunnugt er. hafa ís
lendingar lengi átt viðskipti
við það félag og keypt þaðan
dráttarvéfar og ýmsar land-
búnaðarvétar. Menn þessir
eru Harris E. Swanoerg, vara-
forseti féiagsins, frá Chicago,
og Herman Sylvester Kohtaia
frá Finnlandi
Erindi þeirra Swanbergs og
Kohtala er að kynna sér, hvaða
vélar henta íslenzkum landbúnaði
bezt og athuga um bætta varahluta
þjónustu, en fram skal tekið að
hún hefur jafnan verið hin bezta
af hálfu félagsins.
Á gömlum merg
International Harvester á sér
langa sögu. Upphaflega var hér um
tvö félög að ræða, McCormick og
Derrick, en þessi félög mynduðu
með sér samsteypu 1904 og nefnd-
ist hún International Harvester.
International Harvester skiptir
við þvorki meira né minna en 142
lönd víðs vegar um heiminn. Rek-
ur félagið nú níu verksmiðjur í
Evrópu, auk hinna bandarísku. Fé-
lagið á sínar eigin námur, stál-
smiðjur og flest það, sem til þarf
vélaframleiðslu. Velta félagsins
s. 1. ár var hvorki meira né minna
en 1 milljarður og 300 milljónir
dollara, og má af þessu ráða stærð
fyrirtækisins. Yfir eitt hundrað
þúsund manns vinna hjá félaginu.
Fyrsta sláftuvélin
Fyrsta vélin, sem íslendingar
keyptu af International Harvester,
var fyrsta sláttuvélin, sem hingað
fluttist 1905. Árið 1929 voru flutt-
ar hingað sjö dráttarvélar, og eru
nú í landinu nálega 1600 dráttar-
vélar og 198 jarðýtur frá félaginu.
Þá hafa einnig flutzt hingað bílar
og húvélar ýmsar. Búvélaumboðið
hér hefur Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga, en bílaumboðið hefur
Öxull h.f.
í vikunni fóru þeir Swanher’g
og Kahtala, ásamt forráðamönnum
SÍS upp að Vífilsstöðum og skoð-
uðu þar m. a. 15 ára gamla Farm-
all dráttarvél. Hafði vélin staðið
ónotuð síðan í septembermánuði
s. 1. og var til þess tekið, að hún
hrökk í gang á öðrum snúningi.
Tvímenningarnir munu halda
heimleiðis innan skamms.
Stjórnarflokkarnir vilja
leggja niður út-
varpsumræður
Eldhúsdagsumræðum frá alþingi var útvarpað f gærkveldi og
fyrrakvöld. Fyrra kvöldlS töluðu af hálfu Framsóknarflokksins
Ingvar Gfslason, Halldór Sigurðsson, Jón Skaftason og Vilhjálmur
Hjálmarsson, en f gærkveldl Helgi Bergs, Sigurvln Einarsson og
Ólafur Jóhannesson.
Það var áberandi í þessum umræðum, að ræðumenn stjórnar-
fiokkanna voru á stöðugu undanhaldi og eyddu verulegum tíma
tll þess að túlka þá skoðun sína, að eiginlega ættl að leggja nlður
þessar útvarpsumræður.
Kommúnistaleið-
togar settir af
Lugu til um afkomu landbúnaíarins
Moskva 28.3. (NTB). Moskvu-
blaðið Pravda, málgagn kommún-
istaflokks Ráðbt j órnarríkj anna,
skýrði frá því í dag, að tveimur
háttsettum flokksmönnum hefði
verið vikið úr flokktium eftir að
upp hefði komizt um alvarlegt
hneyksli í sambandi við þróun
landbúnaðarmála í Sovétríkjun-
um. Segir blaðið, að í ljós hafi
komið, að menn þessir hafi falsað
tölur um framleiðslu landbúnað-
arvara allt frá árinu 1958. Hinir
brottreknu eru S.D. Flaguin og
K.V.N. Nerceew. Þriðji maðurinn,
Lenti í
spilinu
Hornafirði 27. marz. í gæimorg-
un vildi það slys til, á Horna-
fjarðarbátnum Sigurfara, þegar
skipverjar ætluðu að fara að
draga saman netin, að einn skip-
verja Lenti í spilinu og vafðist eða
snerist upp á það og slasaðist að
vonum lla. Hann handleggsbrotn-
aði, og á ýmsan annan hátt varð
hann illa úti. Skipverji þessi heit
ir Unnar Jónsson.
Björn Pálsson sjúkraflugmaður,
fór austur til Hornafjarðar þegar
um ellefu leytið í gærmorgun og
sótti manninn. Liggur hann nú í
Landsspítalanum í Reykjavik.
AA.
Stefnubreyting hjá
nægrisinnum i Laos
SagtJir fúsir til stjórnarmyudunar meí vinstri
mö'nnum. — Ágreiningur á SEATO-fundi
Bangkok 28/3 (NTB). Þessa
dagana stendur yfii í Bang-
kok, hófuðborg Thailands.
ráðherrafundur Suðaustur-
Asíu-bandalagsins (SEATO)
og er rætt um ástandið í
Laos. Fréttir frá Bangkok
herma, að nokkur ágreming-
ur sé kominn upp á ráðstefn-
unni um það atriði hversu
sterkt ■’kuli orða samkomu-
lagið um baráttu gegn áhrif-
um kommúnista ? Laos.
Aukafundur var haldinn i
dag til hess að ná samkorau-
lagi um þetta atríði en gert
er ráð ívrir að ráðstefnunni
ljúki’á morgun.
Það var franska sendinefndin á
ráðstefnunni, sem var mótfallin
því, að bandalagsríkin lýstu því yf
ir, að þau myndu grípa til beinna
hernaðaraðgerða í Laos, ef með
þyrfti til þess að stöðva sókn
vinstri manna. Haft er eftir frönsk
um heimildum, að það sé einkum
utanríkisráðherr'a Bandaríkjanna,
Dean Rusk, sem hafi viljað setja
þetta ákvæði í samkomulagið.
Frakkar segjast hins vegar vera
minnugir styrjaldarinnar í Indó-
Kína og vilji ekki binda SEATO
(Framhald á 2. síðu.)
Ramazanow, hefur verið lækkaður
í tign innan kommúnistaflokks-
ins.
Pravda segir, að á árinu 1958
hafi menn þessir gefið upp hveiti
framleiðsluna 500 þúsund lestir
umfram það, sem rétt var. Einnig
var logið til um ullar- og mjólkur-
framleiðslu, og húsdýrastofn sagð
ur mun meiri en rétt er.
Eins og kunnugt er af fyrri
fréttum hafa landbúnaðarmál ver
ið mjög til umræðu á fundum
æðsta ráðs Sovétríkjanna að und-
anförnu, og Krútsjoff, forsætis-
ráðherra hefur að undanförnu ver
ið á ferðalagi um landbúnaðar-
héruðin og kynnt sér ástandið.
Kónginumí Jemen
sýnt hanatilræði
Aden 28.3. (NTB). I dag var
E1 Islam, konungi í Jemen, sýnt
banatilræði, er hann ásamt fríðu
föruneyti heimsótti sjúkrahús í
bænum Hodeida við Rauðahaf.
Maður nokkur að nafni Alalafi
réðst að fylgdarliði konungs og
skaut allmörgum skotum. Konung
ur særðist Lítils háttar og er líð-
an hans sögð góð. Hins vegar biðu
tveir úr fylgdarliði konungs
bana og tilræðismaður notaði síð
asta skotið sjálfum sér til aldurs-
tila.
Ekki vita menn, hverjir standa
að baki þessu tilræði, en land-
stjórinn í Hodeida hefur fullviss-
að konung um, að þetta hafi að-
eins verið uppátæki tilræðismanns
ins eins. Annar maður hefur þó
verið handtekinn og frekari rann
sókn sett í gang.
Drengur
fótbrotnar
Um há!f tvöleytið í gær
varð það slys á Reykjanes-
braut, gegnt Shell, að sex ára
gamall drengur Karl Guð-
mundur Friðriksson, Máva-
hlíð 39, varð fyrir bíl og
brotnuðu báðar pípur vinstri
fótar við slysið. Karl var beg-
ar fluttur á slysavarðstofuna,
þar sem oert var að sárum
hans.