Tíminn - 29.03.1961, Page 13
I
r*Cjí;M.I N N, miðvikudaginn 29. marz 1961.
13
ÁBURDARDREIFARAR
C3
Mc Cormick dreifarinn frá Svíþjóð hefur verið
traustasti og vinsælasti áburðardreifarinn hér á
landi, enda eru hér mörg hundruð þeirra 1 notkun,
★ Dreifaranum fylgir sérstakt sigti fyrir kjarna
★ íslenzkur leiðarvísir fylgir.
★ Góð varahlutaþjónusta
Verð: 2 m dreifibreidd með kjálka kr. 7.000.—
2,5 m dreifibreidd með kjálka — 7.600 —
2,5 m dreifibreidd með beizli — 7.800.—
Pantanir óskast sendar við fyrsta tækifæri ti>
kaupfélaganna.
Samband íslenzkra samvinnufélaga
VÉLADEILD
70 ára í dag:
(Framhald af 6. síðu).
ferðir um sveitina hafði hann einnig
lengi á hendi. Það má því geta nærri
að frátafir einyrkjabónda hafi orðjð
æði margar og ódrjúg vinnan við
heimilisstörfin, er flutnings þurfti,
frá upprakstrj og slætti, kannske
oft á dag.
En öllum tók Jón með sömu ljúf-
mennskunni og mælti ekki æðru-
orð þótt tafasamt væri. Oft voru
þessar sjóferðir að vetrarlagi vot-
samar og erfiðar, og ekki sízt hlutu
þær að ganga nærri þreki og þoli
ferjubóndans, þar sem heilsa hans
var jafnan vejl og viðkvæm.
Jón bjó litlu en gagnsömu búi og
komst vel af, þrátt fyrir stóran
barnahóp og veiklað líkamsþrek ár-
um saman.
Börn þeirra hjóna eru þessi:
Kristín, kona sr. Eiríks J. Eiríksson-
ar á Þingvöilum; Jónína, gift Pétri
Sjgurjónssyni, frá Þingeyri, húsa-
smíðameistara í Reykjavík; Elín gift
Oddi Andréssyni, bónda á Hálsi í
Kjós; Ingibjörg, yfirsetukona, gift
Gísia Andréssyni hreppstjóra á
Hálsi bróður Odds; Guðmundur,
húsasmíðameistari á Flatéyr;, ‘kvong
aður Steinunni Jónsdóttur. Stulku-
barn misstu þau á 1. ári.
Fósturson þeirra hjóna, Skúla Sig
urðsson, tóku þau nýfæddan af bág-
staddri móður hans og hafa fóstrað
hann síðan, sem sitt eigið barn.
Skúli er kvæntur Ragnhild; Jóns-
dóttur prófasts í Holti í Önundar-
firði.
Ekki er hægt að minnast svo Jóns,
að ekki sé getið hans ágætu eigin-
konu, Ágústu, sem staðið hefur trú-
lega við hlið manns sins og tekjð
þátt í störfum og stjórn heimilisins,
bæði úti og inni, enda er hún hin
mætasta og merkasta kona.
Jón Ólafsson er hugsuður og
hneigður til heimspekjlegra grufl-
ana. Biblíuna og Nýal Helga Pjeturs
hefur hann marglesið og er efni
þeirra bóka honum mjög tiltækt og
hugstætt. Hann er einlægur trú-
maður, vel hagorður, en hlédrægur
á það. Jón hefur fengizt nokkuð við
uppfinningar, m. a. smíðaði hann
garðplóg, sem nokkuð var notaður,
reykofn o. fl.
Jón hefur verjð góður nágranni
og félagi, og hef ég ekki nema góðs
Sjötug:
(Framhald af 6. síðu).
nýjar hrautir eru • ruddar.
En einmitt af þessum sökum
fann maður betur hve gott
var að leita til góðra félaga,
þar sem engin fórn var eftir
talin e~i allt að mörkum lát-
ið sem hægt var. Við gróður-
settum tré við kirkjuna, rudd
um land og gerðum mörg
handtök við þennan litla
lund, sem geymir í laufskrúði
sínu minningar um fyrstu
handtök þeirra sem hlynntu
af alúð að hinum unga gróði
sem nú breiðir lim sitt yfir
þær hendur sem við hafa tek
ið. Forlögin hafa hagað því
svo að við frú Þuríður höf-
um nú báðar flutt í burtu,
þrátt fyrir sterkar rætur sem
þar hafa gróið.
Frú Þuríður valdi sér stað
við bústað Auðar Djúpúðgu í
hinum unaðsfagra og frið-
sæla dal. Þar á heimili henn
ar á ég ógleymanlegar stund
ir þar sem ylur hjartans
vermdi og rausn hinnar á-
gætu konu sátu að völdum.
Það var gaman þegar frú,
Þuríður settist við orgelið ogl
fundarkonur tóku lagið og;
sungu. Allt hið bezta hafði
verið veitt, og að síðustu var
fylgt úr hlaöi ýmist á göngu
eða hestur var tekinn, og hóp
urinn reið úr hlaði. Allt þetta
er geymt í sjóði minning-
ama síungt í gleði sinni, og
þannig er einnig myndin,
sem ég geymi af afmælisbarn
inu. Því bið ég þess að ævi-
kvöldið verði bjart og blítt
éins og hjartað hennar Þur-
íðar og langt verði til sólar-
lags.
Með beztu kveðju,
Theódóra GuSlaugs.
Lögfræðiskrífstofa
Laugavegí 19.
SKIPA OG BÁTASALA
Tómas Arnason hdl.
Vilhjálmur Árnason hdl.
Símar ?4H35 oa 1630?
eins að minnast eftir 40 ára nábýli.
Bið ég honum blessunar guðs á ævi-
kvöldi hans. Hann hefur nú dvalið
síðustu mánuðina á sjúkrahúsum í
Reykjavík.
lÁUsnnAO n i»/í'Airram
FARGJÖLD TIL
SUÐUR—EVRÓPÚ
Á tímabilinu 1. apríl til 31. maí og eftir 1. okt.
n. k. munum við bióða viðskiptavinum vorum sér-
lega hagstæð fargjöld til nokkurra staða í Suður-
Evrópu. Er hér um að ræða 25% afslátt frá gild-
andi fargjöldum (tourist class) á þessum leiðum.
Hin lágu fargjöld miðast við það, að farþegi fljúgi
fram og til baka innan eiiis mánaðar Hann getur
hafið ferðina í síðasta lagi 31. maí, sé miðað við
fyrra tímabilið.
Flugferðir þær, sem hér um ræðir, verða farnar
í samvinnu við erlend flugfélög, til og frá við-
komandi endastöðvum íslenzku flugfélaganna er-
lendis.
Hin lágu fargjöld gilda ti1 eftirtalinna staða og
eru sem hér greinir:
Reykjavík—Barcelóna—Reykjavík kr 7820.00
Reykjavík—Nizza—Reykjavík — 7468.00
Reykjavík—Palma (Mallorca)—Rvík — 8188,00
Reykjavík—Rómaborg—Reykjavík — 8354.00
Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að njóta
veðurblíðunnar í Suðurlöndmn meðan fargjöldin
eru hagstæðust.
tyw/e/aff A/a/it/saF
" ICELANOA.MR
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 11., 12. jg 13. tbl, Lögbirtinga
blaðsins 1961 á m.b Gissuri hvíta S.H 150 þingl
eign Bjarna Einarssonar og Asmundar Sigurjóns-
sonar, fer fram eftir kröfu Einars Viðar hdl og
Sparisjóðs Akraness við skipið, þar sem það er
á skipasmíðastöð Daníels Þorsteinonar & Co n.f.
við Bakkastíg, hér í bænum fímmtudaginn 6. apríi
1961, kl. 11,30 árdegis.
Borgarfógetinn ■ Reykjavik
Framsóknarvist — og gömlu dansarnir
á vegum Framsóknarfélaganna í Framsóknarhúsinu í kvöld kl. 8,30
Ávarp: Vilhjálmur Hjálmarsson, aíjjingisma^ur.
Vistinni stjórnar Markús Steíánsson.
Dansstjóri: Árni NorSfjÍH-í
Hljómsveit: Guómundui Hanssen.
Pantaíir a'Sgöngumi'Sar sækist í skrifstofu full-
trúaráís í Framsóknarhúsinu.
Símar 15564 og 12942,
i