Tíminn - 20.04.1961, Síða 1
ðilegt sumar
89. tbl. — 45. árgangur.
Hroðalega leikinn
selur á Kolbeinshaus
★
Efri myndin var tekin í flæðar-
málinu neðan við Skúlagötu (
gær, er hinum helsærða sel á
Kolbeinshaus var styttur aldur.
Skyttan er komin að dauðum
selnum og lýtur yfir hann. — Á
neðri myndinni sést, hve grimmi-
lega selurinn var leikinn af band
inu, sem var utan um hann.
Þessi niynd er þung ákæra á
hendur þeim, sem einhvern tíma
kunna að hafa leikið sér að því
að kvelja skepnur, en öllum öðr-
um viðvörun. Hér má bæta þvi
við, að það ætti að vera sjálf-
sögð uppeldjsskylda allra for-
eldra að innræta börnum sínum
velvild til dýra, bæði með orðum
og fordæmi sínu. ( Ljósmynd:
TÍMINN — GE).
★
Verkfallið fyrir
félagsdómi
Verkfall verkakvenna í Keflavík |
kom fyrir félagsdóm í gær. For-i
maður Vinnuveitendafélags Suður
nesja, Karvel Ögmundsson, og for
maður verkakvennafélagsins, Vil-
borg Auðunsdóttir, gáfu aðila
skýrsiur f málinu.
Málflutningur í máli þessu mun
væntanlega fara fram fyrir félags-
dómi í vikulokin og er dómur
væntanlegur í næstu viku.
Sjóstangaveiðð
í Faxaflóa
Fyrir nokkru var stofnað
hér í bæ hlutafélag undir
nafninu Sjóstangaveiðin h.f.
Félagið hefur látið smíða vél-
bát, sem að öllu leyti er sér-
staklega útbúinn fyrir þessa
tegund veiða. Verður hann
Kona skerst
í andliti
Fagurhólsmýri, 19. apríl. — í
gær lagði jeppi af stað frá Höfn
í Hornafirði og var för hans heit-
ið til Reykjavíkur. Stýrði honum
Einar Gíslason, og voru tveir
menn með honum í bílnum. —
Jökulvötnin eru nú svo lítil, að
Jökulsá á Breiðamerkursandi nær
ekki einu sinni til sjávar, og óku
Homfirðingar yfir farveg hennar
þurran á fjörum. Þeir félagar
munu hafa komizt vestur í Fljóts-
hverfi í gær, og í kvöld er ætlun
þeirra að ná til Reykjavíkur.
S.A.
itekinn í notkun einhvern
næstu daga, en reynsluferðir
hafa staðið yfir um tíma. Bát-
urinn, sem hlotið hefur nafnið
Nói, er 8 tonna, 35 feta langur
og 9,2 fet á breidd, en knú-
inn er hann 54 ha Lister dísil-
vél, gangur hans er 10 mílur.
Báturinn er teiknaður af Þor-
bergi Ólafssyni, forstj. Báta-
lóns h.f. í Hafnarfirði, en þar
er hann smíðaður.
Báturinn er hinn vandaðasti að
allri gerð og smiði. Er fremri
hluti hans yfirbyggður. í yfirbygg
ingunni eru sæti og borð fyrir um
10 manns, auk vandaðs salernis
og snyrtiklefa. Innréttingar eru úr
j harðviði. Aftan við yfirbygging-
, una er svo opið athafnasvæði fyrir
j veiðimennina, þar eru 7 stólar,
jsérstaklega gerðir veiðimannastól-
ar, sem snúa má í hring. Báturinn
er með öllum siglinga- og öryggis-
j tækjum.
1 Sjóstangaveiðin h.f. hyggst gera
Nóa út frá Reykjavík aðallega á
iFaxaflóamið og er búizt við einni
til tveimur veiðiferðum daglega
þegar viðrar. Munu þær verða um
8 klst. hver veiðiferð. Skipstjóri
á bátnum verður Sigurður Teits-
son. Þátttökugjaldið fyrir hverja
ferð mun verða um kr. 650,00
fyrir manninn, en í því verði eru
innifalin not af veiðarfærum öll-
(Fi'amhald á 2. síðu.'
Nokkru eftir hádegið í gær
varð vart víð sel við eystri
hafnargarðinn í Reykjavík.
Skreið hann upp á Kolbeins-
haus, sker, sem er þar spöl-
korn undan landi framan við
Skúlagötuna, og sáu menn í
skrifstofum útvarpsins þá
glögglega, að hann bar svöðu-
sár þvert um belginn aftan
við framhreyfana. Lögregl-
unni var gert viðvart, og at-
hugaði hún selinn í sjónauka.
Leyndi sér ekki, að hann var
dauðvona, og fékk hún þá
góða skyttu, Bjarna Guð-
mundsson, son eins lögreglu-
þjónsins, til þess að deyða
hann.
Vöruflutningar land-
leiðina til Öræfa
Kirkjubæjarklaustur, Fag-
jurhólsmýri og Vík í Mýrdal,
19. apríl. — í fyrradag lögðu
fjórir flutningabílar af stað
frá Vík í Mýrdal austur yfir
sanda og vötn til Öræfa, en á
hverju vori er í um það bil
tvær vikur sæmilega fært
stórum bílum yfir vötnin, rétt
áður en leysingar hefjast.
Kaupfélag Skaftfellinga hefur
í nokkur ár sent bílalestir til
Öræfa á hverju vori meðan
minnst er í vötnunum og er
svo einnig nú.
Þetta eru fyrstu flutuingarnir
yfir sandana á þessu vori. Til far-
arinnar völdust þeir Jón Guðlaugs
son, Sigþór Jónsson, Sigurður Odd
geirsson og Árni Sigurjónsson,
sem er gamalreyndur bílstjóri á
þessari leið milli Víkur og Öræfa.
Þeir félagar voru á fjórum trukk-
um, sem fyrr segir, og áttu að
sögn skotveg austur. Voru þeir
ekki nema 12 tíma á leiðinni, enda
gekk ferðin alveg tálmunarlaust.
Morguninn eftir lögðu þeir síðan
af stað til baka og var von á þeim
til Víkur seint í gærkvöldi.
Það er til mikils hagræðis fyrir
Öræfinga, að hægt skuli vera að
komast til þeirra landleiðina, þó
ekki sé nema þessar tvær vikur
á vorin. Á þessum tíma er flutt
austur öll þungavara, sem Öræf-
ingar þarfnast yfir árið, svo sem
(Framiiald á 2. síöu.j
Auðvelt reyndist að skjóta sel-
inn með útfallinu, en þegar að
honum var komið, blagíi við
hryllileg sjón: Utan um hana var
gúmmíteygja úr bílslöngu, svo
sem sentimetri á breidd, og hafði
hún skorizt djúpt inn í skrokkinn
— á kviðnum allt inn að innyfl-
um.
Það er talið, að þessi selur hafi
verið tæplega ársgamall, og hefur
hann áreiðanlega verið búinn að
vera með teyjuna utan um sig í
marga mánuði — sumir gizka
jafnvel á síðan í fyrrasumar. Ef
til vill er ekki með öllu óhugs-
(Framhald á 2. siðu.)
Samningar
um handritin
Kaupmannahöfn, 18. aprQ
einkaskeyti til TÍMANS.
Blaðið Information skýrir frá
þvl í dag, að örlög íslenzku
liandritanna í Kaupmannahöfn
verði ráðin næstu daga. Við-
ræður eru hafnar um uppá-
stungu dönsku ríkisstjórnarinn
ar í utanríkisráðimeytinu í
Höfn, og taka danskir og ís-
lenzkir ráðherrar þátt í þeim.
f viðræðum, sem fram fóru
í gær, tóku þátt af hálfu Dana
Kampmann forsætisráðherra,
Jörgensen menntamálaráð-
herra og Bombolt félagsmála-
ráðherra af hálfu Dana, en
Gylfi Þ. Gíslason menntamála-
ráðherra og Gunnar Thorodd-
sen fjármálaráðlierra, auk Stef
áns Jóhanns Stefánssonar sendi
herra, af fslands hálfu.
Engin tilkynning var birt
um þessar viðræður, en við því
er búizt, að íslenzku ráðherr-
arnir verði enn nokkra daga í
Kaupmannahöfn og muni þá
séð til fullnustu, hversu þessu
máli lyktar. Aðils.
.........
1. blað
Fimmtudagur 20. aprQ 1961.