Tíminn - 06.05.1961, Qupperneq 2
T í MIN N laugardaginn 6. maí T9G1
KristnibotSar
(Framhald af 1. síðu).
ár hafa þau hjón dvalizt erlendis
við nám, fyrst í biblíuskóla norska
kristniboðssambandsins, og síðan
við málanám í London.
Kristniboðsvígsla á upp-
stigningardag
Ákveðið hefur verið, að kristni-
boðavígsla þeirra hjóna fari fram
á upstigningardag, og fer athöfn-
in fram í Hallgrímskirkju. Áður
hafa 10 íslendingar tekið kristni-
boðavígslu, og eru þau hjón því
hin 11. og 12. í röðinni.
Hinn 7. júní leggur fjölskyldan
síðan upp í ferðalagið, og er ráð-
gert, að þau komi til Addis Abeba
14. júní.
Flestir heiðingjar
íbúarnir í Konsó eru flestir
heiðnir í okkar skilningi. Töfra-
mennimir eru þeirra prestar. Ótti
og óvissa ríkir varðandi framhalds
lífið, enda þótt landsmenn geri sér
óljósar hugmyndir um það.
Kristniboðsstöðin íslenzka i
Konsó hefur nú verið rekin frá
1953. Þar voru Felix Ólafsson og
kona hans, Kristín Guðlaugsdóttir,
br'autryðjendur, en um rekstur og
starfsemi stöðvarinnar sjá nú þau
Benedikt Jasonarson og Margrét
Hróbjartsdóttir. Þá er Ingunn
Gísladóttir, hjúkrunarkona, sem
starfað hefur í Konsó í fimm ár,
í árs leyfi hér heima, en ráðgert
er að hún fari aftur til Konsó
næsta haúst. Færeysk hjúkrunar-
kona, Elsa Jacobsen, er nú starf-
andi í Konsó og standa vonir til,
að hún verði þar áfram eftir að
Ingun kemur aftur.
.700 manna samkomur
Á kristniboðsstöðinni í Konsó er
rekinn skóli og sjúkraskýli. Inn-
fæddir menn taka nú orðið þátt í
skólastarfinu. Kennsla er í þremur
bekkjum, og eru nemendur 60—70
talsins. Er kennslan að mestu fólg-
in í lesfcri, skrift, reikningi og
kristnum fræðum.
Eins og nærri má geta, er ann-
ríki mikið á kristniboðsstöðinni.
Rúmlega 60 innfæddir hafa verið
skírðir, 28 bíða nú eftir skírn, og
á' samkomum hafa að öllu jöfnu
verið um 700 samkomugestir í
hvert sinn. Til sjúkraskýlisins
koma árlega hátt á annað hundrað
þúsund manns að leita sér lækn-
inga, og fer þeim stöðugt fjölg-
andi, sem þangað leita. f því sam-
bandi má geta þess, að Jóhannes
Ólafsson, læknir, sem fór til Etíó-
píu, ásalmt fjölskyldu sinni, sl.
sumar, mun starfa við norska
kristniboðsstöð skammt frá Konsó,
og er ætlunin að hann komi í
sjúkravitjanir til Konsó, svo oft
sem þörf krefur.
250 bókstafir í stafrófinu
Ríkismál Etíópíu er amharíska.
Ekki verður sagt, að auðvelt sé að
nema það, enda hvorki meira né
minna en um 250 bókstafir í staf-
rófinu, og leturgeiðin ólík því,
sem er á Vesturlöndum. Eigi að
síður er það skylda, að prédikanir
og skólastarf allt, fari fram á am-
harísku, en kristniboðarnir verða
fyrst í stað að mæla á ensku og
notast við túlk. Undir venjulegum
kringumstæðum sækja kristniboð-
arnir málanámskeið í Addis Ab-
eba, og vonást þau Gísli og Katrín
til þess, að þau geti dvalizt í Addis
Abeba í tvo til þrjá mánuði í því
skyni.
Tilhlökkun
í viðtali í gær sagði Gísli, að
þeim hjónum væri væntanleg dvöl
og starf í Konsó mikið tilhlökk-
unarefni. Reyndar hafði hugur
Katrínar hneigzt að kristniboðs
starfi, áður en leiðir þeirra Gísla
lágu saman. Munu þau hjón bæði
taka virkan þátt í starfinu í Konsó,
og likt og aðrir kristniboðar, ann-
Aðalfundur Kaupfélags Borg-
firðinga í nýju verzlunarhúsnæði
Aðalfundur Kaupfélags
Borgfirðinga var haldinn í
gær og í fyrradag í Borgar-
nesi. Hagur vélagsins er mjög
góour, en það seldi afurðir
bænda fyi’ir 52,2 mjlljónir
króna á liðnu ári. Lokið er
byggingu á stóru og glæsiV
legu verzlunarhúsi í Borgar-
nesi. Á fundinum urðu mikl-
ar umræður og gerðar ýmsar
ályktanir.
Aðalfundurinn hófst árdegis
fimmtudaginn 4. maí í fundarsal
í hinu nýja verzlunarhúsi félags-
ins i Borgarnesi. Á fundinum voru
mættir 61 fultrúi frá ölum deild-
um félagsins og auk þeirí'a félags-
stjórn, kaupfélagsstjóri og endur-
skoðendur. Fundarstjóri var Sig-
urður Snorrason á Gilsbakka.
Formaður félagsins, Sverrir
Gíslason í Hvammi, flutti fyrst
skýrslu stjórnarinnar. Fagnaði
hann því, að nú væri fyrst hald-
inn aðalfundur kaupfélagsins íj
eigin húsakynnum, og að nú væri j
þeim áfanga náð, að fullbyggt væri
stórt og glæsilegt verzlunarhús.
Þá lagði kaupfélagsstjóri, Þórð-
ur Pálmason, fram reikninga fyr-
ir árið 1960 og flutti ýtarlega
skýrslu um rekstur félagsins á ár-
inu. Skýrfði hann frá því, að bygg
ingarkostnaður nýja verzlunarhúss
ins næmi 11 milljónum króna.
Árið 1960 seldi Kaupfélag Borg
firðinga vörur í sölubúðum og
króna. Auk þess nam sala í kjöt-
bú ð félagsins 3,3 miljónum, 1
brauðbúð 1,2 miljónum, í frysti-
húsi 1,3 milljónum, á bifreiðastöð
4,3 milljónum. Félagið seldi á ár-
inu afurðir bænda fyrir alls.52,2
milljónir króna. Lokaverð á mjólk
til bænda á félagssvæðinu reynd-
ist 3,97 krónur á lítra. Félagið
greiddi í opinber gjöld um hálfa
milljón króna og sjö milljónir í
vinnulaun.
Allmiklar umræður urðu á fund-
inum um málefni félagsins og ým-
is hagsmunamál héraðsbúa. Meðal
annars kom fram nokkur átti við
hina nýuppkomnu mæðiveiki í
Uölum. Var rætt um, hvernig við
skyldi brugðizt og samþykt álykt-
un þar að lútandi.
Skipun Rússa og Breta:
Vopnahlésnefndin
strax til Laos
Vientíane, 5. maí (NTB). ■—
Ríkisstjórnir Bretlands og Sovét-
ríkjanna gáfu í dag út skipun
þess efnis, að vopnahlésnefndin í
Laosmálinu, sem nú dvelur í Nýju
Delhí hverfi þegar í stað til Laos.
Þá var og tilkynnt, að alþjóðleg
ráðstefna um framtíð Laos muni
koma saman í Genf n.k. föstudag.
NoríSurlandafertJ
(Framhald af 3. síðu).
um ferðaskrifstofum, sem Sunna
hefur samvinnu við. Heimförin er
ekki bundin við neinn sérstakan
dag, innan 30 daga tímabils frá
brottfarardegi. Ferðakostnaður,
miðað við tveggja vikna dvöl í
Kaupmannahöfn, flugferðir, gist-
ingu og uppihald er 10.400 krónur
— en nokkru dýrara miðað við
jafnlanga dvöl í Hamborg.
Páll í Varmahlfö
(Framli.ilfi ií! 16 síðui
Varmahlíð. Það hefur lengi verið
i mikið áhugamál sveitunga hér að
i koma upp skóla hér, enda er að-
j staða öll hin bezta. Eru uppi radd
, ir um að reyna að koma upp fé
lagsheimili, sem seinna mætt
stækka og breyta í skóla. F.J
ast öll venjuleg prestsverk, gift-
ingar, skírnir og greftranir.
Að lokum bað Gísli Arnkelsson
fyrir þakklætiskveðjur til kristni-
boðsvina um land allt, sem sýnt
hefðu fórnarhug sinn í verki. Á
sl. ári hefðu safnazt yfir 600 þús-
und krónur, og hefði þetta fé gert
það kleift, að halda heimastarf-
inu og starfinu í Konsó gangandi.
! „Þó vil ég umfram allt þakka fyr-
j irbænir," sagði Gísli, „því án fyrir-
,bæna hefði starfið aldrei borið
þann árangur, sem raun ber vitni.“
TÍMINN vill að lokum óska fjöl-
skyldunni góðrar ferðar og giftu-
ríks starfs í Konsó.
Tilkynning ríkisstjórna Bret-
lands og Sovétríkjanna, var birt
opinberlega í Nýju Delhi, síðdegis
í dag.
Eins og kunnugt er, er þessi
vopnahlésnefnd skipuð fulltrúum
þriggja landa.
Enn fremur var tilkynnt, að tíu
manna sáttanefndin, sem nú er í
Nýju Delhí, muni koma saman í
Luan Prabang innan skamms. Ráð-
gert er, að þingið í Laos komi
saman hinn 11. maí n.k.
Stjórnin í Laos hefur sent frá
sér yfirlýsingu, sem einkum er
beint til vinstri manna í landinu,
þar sem skorað er á fulltrúa að
ræða um málefni Laos í fullri ein-
lægni og með ábyrgðartilfinningu.
Seint í gær var svo tilkynnt, að
enn hefði ekki náðst til vinstri
manna, vegna ágreinings um fund-
arstað.
Efdur í
þvottahúsi
Laust fyrir klukkan hálf-
fimm í gær var slökkviliðið
kvatt inn á Réttarholtsveg, en
þar hafði komið upp eldur í
þvottahúsi, sem er eign Ástu
Guðjónsdóttur.
Hús þetta er ein hæð og lágt
ris. í norðurherbergi eru vélar
þvottahússins, þar á meðal þurrk-
ari. Hafði þurrkarinn sprungið, og
varð herbergið þegar alelda.
Komst eldurinn í tróð í risinu, og
varð að rjúfa hluta þaksins til
þess að komasfc fyrir hann. Slökkvi
starfið tók nálega eina klukku-
stund. Skemmdir urðu furðulitlar
á þvottahúsinu.
Samþykkt var að koma upp úti-
búi í efri hluta Borgarness til
hagræðis fyrir íbúana þar. Einnig
var samþykkt að koma á fót ein-
hverjum iðnrekstri í gömlu verzl-
unarhúsunum, sem nú eru ónotuð.
Samþykkt var áskorun á Skógrækt
ríkisins að hætta ekki skógrækt-
inni í Norðtunguskógi, sem ráð-
gert er. Fundinum lauk um hálf-
átta leytið í gærkveldi.
Að kvöldi fyrra fundardags var
fundarmönnum og gestum boðið
til skemtunar. Guðmundur Jóns-
son óperusöngvari söng og sýndar
voru kvikmyndir eftir Oswald
Knudsen. Guðmundur Sveinsson,
skólastjóri á Bibröst, flutti ræðu.
Félagar í Kaupfélagi Borgfirð-
inga voru í árslok 1142, og má
geta þess til gamans, að íbúar á
félagssvæðinu eru alls 3116. í
stjórn félagsins eru nú Sverrir
Gíslason í Hvammi, sem er for-
maður, Jóhann Guðjónsson á
Leirulæk, Daníel Kristjánsson á
Hreðavatni, Jón Guðmundsson á
Hvítárbakka og Ingimundur Ás-
geirsson á Hæli.
Bandaríski geimfarinn
(Framhald af 1. síðu).
sínu, klæddur geimfarabúningn-
um.
Klukkan nákvæmlega 14,34 þaut
svo eldflaugin lóðrétt upp í him-
inhvolfið með 2500 km hraða á
klukkustund og hvarf von bráðar
sýnum. Síðan var ferðin aukin í
5280 km á klgt., áður en hámarks-
hraða, 7200 km á klst., var náð.
Öll vegalengdin, sem geimfarið
fór, var 470 kílómetrar. Þegar
eftir að eldflaugin var farin af
stað, sendi Shepard boð gegnum
talstöðina um, að allt væri í lagi
og fyrstu orð hans úti í geimnum
voru um það, hve útsýn væri
fögur.
Kennedy spenntur
Kennedy, Bandaríkjaforseti, sem
aflýst hafði öllum viðtölum þenn-
an dag, fylgdist spenntur með und
irbúningnum, geimskotinu, ferð-
inni og lendingunni í sjónvarpi
Hvíta hússins, og svo gerðu og
milljónir manna um gervöll
Bandaríkin.
Lyndon Johnson, varaforseti,
sat hjá forsetanum, og tvær síma-
línur voru í beinu sambandi við
Canaveralhöfða, svo að þeir gætu
haft sem nákvæmastar fregnir af
ferðalagi Shepards. Þegar geim-
íkrðinnJ lauk, hringdi Kennedy
persónulega til Shepards um borð
í skipið og óskaði honum til ham-
ingju, samtímis því, að hann gaf
út opinbera tilkynningu um, að
geimferðin hefði tekizt. Þá var
það og tilkynnt, að von væri á
Shepard til Washington á mánu-
daginn, og mun hann þá hitta for-
setann.
Jafnskjótt og fréttin um geim-
ferðina barst til Lundúna, sendi
Harold Macmillan, forsætisráð-
herra Bretlands, heillaóskaskeyti
til Kennedys forseta og sagði, að
hér hefði mikið vísindaafrek verið
unnið.
Mikið afrek
Með þessari ferð er Alan Shep-
ard, sjóliðsforingi, orðinn annar
geimfari mannkynssögunnar, en
eins og kunnugt er, sendu Rússar
mannað geimfar kringum jörðu,
þann 12. apríl s. 1., og geimfarinn
Juri Gagarin er nú sovézk hetja.
í orðsendin\i Kennedys forseta,
í tilefni þessa afreks bandarískra
vísindamanna, segir m.a., að þessi
geimferð eigi að verða öllum þeim,
sem við geimvisindi fást, hvatn-
ing til nýrra og stærri átaka.
Þetta væri aðeins spor í áttina til
enn víðtækari rannsókna á dular-
mögnum himingeimsins.
RÚSSAR FÁLÁTIR
Heillaóskaskeyti í tilefni geim-
skots Bandaríkjamanna streymdu
til Hvíta hússins í gær. Hins veg-
ar vakti það nokkra furðu, að
Moskvuútvarpið hafði enga frá-
sögn um ferðalag Alans Shepards,
en í hinum venjulega fréttatíma
var lítillega minnst á geimskotið
og nokkurra vísindalegra atriða
getið, en um leið voru yfirburðir
Rússa í geimvísindum vandlega
undirstrikaðir.
Fyrstu eiginlegu fréttirnar um
viðbrögð manna í Rússlandi vegna
þessa atburðar bárust, þegar tals
maður sovézka sendiráðsins í Lund
únum sagði í yfirlýsingu, að þessu
stigi geimrannsókna hefðu Rúss-
ar náð fyrir mörgum árum. Eg
hef ekkert sérstakt að segja um
þetta atvik, sagði talsmaðurinh.
Edmond Marco, fréttamaður í
Maskvu, sagði, að M&skyubúar
tækju fréttinni með fálæti eða
nokkurs konar samblandi af með-
aumkvun og umburðarlyndi, eins
og hann orðar það. f augum hins
almenna sovézka borgara væri
þetta geimskot Bandaríkjamanna
aðeins ein sönnunin fyrir yfir-
burðum Sovétríkjanna í geimvís-
indum. Ljómi þessa atburðar félli
alveg í skugga fyrsta geimskots
Rússa.
VÍSINDAMENN ÁNÆGÐIR
Vísindamenn og tæknifræðingar
í rannsóknarstöðinni á Canaveral
höfða sögðu eftir ferðalag Shep-
ards, að þetta væri hið fullkomn
asta geimskot, sem þeir vissu um
til þessa tíma. Shepard sjálfur
hefði kunnað góð skil á hlutverki
sínu og yfirstigið alla erfiðleika
í sambandi við duttlunga þyngd-
arlögmáls á meistaralegan hátt,
og ekki hefði hin 66 feta langa
eldflaug heldur brugðist, er á
reyndi.
Shepard hefði allan tímann haft
fulla stjórn á eldflauginni og gef-
ið rólegur og ákveðinn upplýs-
ingar í gegnum talstöðina. Aðeins
einu sinni mátti heyra raddbrigði
í talstöðinni, en það var þegar
hann hrópaði um fegurð útsýn-
is og sagðist sjá alla austurströnd
Bandaríkjanna greinilega.
Nokkrum sekúndum síðar hélt
hann áfram að senda vísindalegar
upplýsingar, og þetta eina orð
OK, hljómaði án afláts í talstöð-
inni. Þegar þyngdarlögmálsins
gætti ekki lengur, vissi hann upp
á hár, hvernig hann átti að haga
sér.
Þegar geimfarið nálgaðist jörð-
ina á nýjan leik, og þyngdarlög-
málsins tók aftur að gæta, varð
Shepard að þola þrýsting, sem
var 11 sinnum meiri en þyngd
hans sjálfs. Þegar geimfarið nálg
aðist jörðina kom eftirfarandi
sending frá Shepard: „Nú siglum
við inn í gufuhvolfið“, og fáein-
um sekúndum siðar tilkynnti
hann, að geimfarið væri í 40 þús-
feta hæð.
UMSAGNIR SHEPARDS
„Eg veit, að það er hægt að
framkvæma þetta, og það er mik-
ilvægt, að þetta geimskot heppn-
ist. Eg vil vera fyrsti bandaríski
geimfarinn,“ sagði Alan Shepard
í viðtali við stórblaðið Life, eftir
að hann hafði verið valinn til
fyrstu geimferðar Bandaríkja-
manna úr hópi sjö útvalinna.
Og honum hefur nú orðið að
ósk sinni. Þegar Shepard var
spurður að því, hvernig honum
hefði orðið við, þegar hann var
valinn til fyrstu geimferðarinnar,
sagði hann: „Eg var ekki í nein-
um vandræðum með að taka á-
kvörðun. Eg er fæddur í þennan
heim til þess að gera skyldu mína,
og þjóna þjóð minni og fóstur-
jörð. Ef maður reynir ekki að
miðla öðrum gf reynslu sinni, er
lífið lítils virði, maður væri að
svíkja sjálfan sig.“