Tíminn - 06.05.1961, Síða 12
12
TlMlNN langardagjnn 6, maf Mtt.
ftvrAfÍvr ^
RITSTJORI: HALLUR SIMONARSON
Sex af tólf tímavörðum
með landsdómararéttindi
Ragnar Vignir, yfirtímavörður á sundmóti KR, sem fram fór
á miðvikudagskvöld, bað síðuna fyrir eftirfarandi atbugasemd
vegna greinar, sem birtist hér í gær um tímatöku á sundmót-
um. Þar var sagt, að þjálfarar þriggja sundfélaga í Reykjavík
hefðu fengið betri tíma, en gefin var upp í sumum sundunum.
Ragnar gat þess, að mjög vel hefði verið skipað í stöðum
tímavarða á þessu móti og að minnsta kosti sex af 12 tímavörð-
um mótsins hefðu landsdómararéttindi sem tímaverðir. Þrír
menn tóku tíma á Guðmundi Gíslasyni í 50 m. skriðsundinu, og
fékk enginn þeirra tímann 2G.1 eins og sagt var. Tímaverðir
voru Garðar Sigurðsson, þjálfari í Hafnarfirði, og var með
26.3 sek. Ottó Tynes, fyrrum þjálfari KR, fékk sama tíma, en
Einar Hjartarsson, Á, sem er landsdómari i sundi 26.4 sek.
Garðar og Einar voru á tímavarðarpallinum, þegar rásmerkið
var gefið, en á sundlaugarbarminum í lok sundsins. Þá gat
Ragnar þess einnig, að klukkur þær, sem notaðar væru á sund-
mótum, séu eign Sundráðs Reykjavíkur. Þær eru jafnan yfir-
farnar minnst einu sinni á ári af úrsmið og stilltar.
Fjörugt íþróttalíf á
Akranesi síðastl. ár
KR-ingar sóttu oft mjög, en Víkingar vörðust af kappl. Þórólfur Beck skallar hér knöttinn, en yfir markið. Til
hægri eru Elletr Schram, KR, og Björn Kristjánsson, Víking. Ljósmyndir: Tíminn, GE.
Stórtíðindi á knattspyrnusviðinu:
16. ársþing fþróttabandalags
Akraness, var haldið dagana 29.
marz og 5. apríl s.L í íþróttahúsinu
á Akranesi. Formaður ÍA Guð-
mundur Sveinbjörnsson setti þing
ið og bauð fulltrúa og gest þings
ins, Benedikt G. Waage, velkomna
til þings. Formaður minntist
Valtýs Benediktssonar vélstjóra,
er lézt nýlega, en hann var einn
af beztu starfskröftum íþrótta-
hreyfingarinnar, af eldri kynslóð-
inni.
Benedikt G. Waage, forseti ÍSÍ
sæmdi Guðmund Sveinbjörnsson
þjónustumerki ÍSÍ í tilefni 50 ára
afmælis Guðmundar í marz s.l. og
þakkaði honum gott starf í þágu
íþróttahreyfingarinnar.
Á þinginu voru samþykktar
margar tillögur og skal hér getið
nokkurra:
16. ársþing IA samþykkir að
íela væntanlegri stjórn IA að
taka afstöðu um þátttöku banda-
lagsins íslysatryggingarsjóði ÍSÍ.
16. ársþing IA beinir þeirri á-
skorun til H.S.Í. að ágóði af ís-
landsmótinu innanhúss, verði
skipt milli þeirra félaga er þátt
taka í mótum, á sama hátt og
gert er í íslandsmóti I. og II. deild
ar í knattspyrnu.
16. ársþing IA haldið 29. marz
1961, samþykkir að skora á Al-
þingi að fella fram komið frum-
varp um bruggun og sölu á sterk
um bjór. Þingið telur, að ef nefnt
frumvarp yrði samþykkt, myndi
það auka drykkuskap stórelga.
Einnig samþykkti þingið laga-
breytingar, sem hafa þag í för
með sér, að tekin er upp deildar-
skifting og verða fjögur sirráð
fjárráða, en það eru: Knattspyrnu
ráð, Sundráð, Handknattleiksráð
oi Frjálsíþróttaráð.
Hér á eftir fer það helzta úr
starfi IA á s.l. ári:
KNATTSPYRNA
IA tók þátt í landsmótum
f jögurra flokka og sigruðu í tveim
flokkum, II. flokki og I. deild og
þar með sæmdartitilinn „Bezta
knattspyrnufélag íslands 1960“. —
Einnig lék meistarafl. IA gegn
þýzka landsliðinu og Red Boys.
LA sendi tvö lið í bikarkeppni
KSÍ og voru þau bæði slegin út.
Þá komu á vegum IA þrír enskir
atvinnumenn og léku með félag-1
inu. Yngri flokkarnir fóru í marg
ar keppnisferðir út um land og
fengu alls staðar hinar beztu mót
tökur. Á árinu unnu 8 drengir til
bronzmerkja í knattþrautum KSÍ.
Fjórir Akurnesingar léku með
landsliðinu á s.l. ári og var einn I
þeirra, Sveinn Teitsson jafnframt
fyrirliði landsliðsins, en hann hef
ur nú alls leikið 19 leiki með
landsliðinu og Helgi Daníelsson
hefur einnig leikið 19 leiki. Þjálf
arar hinna ýmsu flokka voru á
árnu, Ríkarður Jónsson og Guðjón
Finnbogason með m.fl. og Georg
Elíasson og Helgi Daníelsson með
yngri flokkana. Alls léku flokk-
ar LA í landsmótum 24 leiki, unnu
14, töpuðu 4 og gerðu 6 jafntefli,
markatalan er 64 gegn 31. Aðrir
leikir urðu 33, af þeim unnust 13,
en 14 töpuðust og 6 jafntefli,
markatalan 68 gegn 52.
,
HANDKNATTLEIKUR
Handknattleikur á miklu og vax
andi fylgi að fagna og er nú iðkað
ur í öllum flokkum karla og
kvenna, en sakir kostnaðar var
ekki hægt að sækja landsmót
nema fyrir m.fi. og varð lið IA
nr. 2 í II. deild. IA efndi til hrað
keppni á Akranesi með þátttöku
m.fl. liða utan Reykjavíkur og
þetta í annað sinn sem slíkt mót
er haldið hér. FH vann keppnina
og vann í annað sinn bikar gef-
inn af Sturlaugi H. Böðvarssyni.
Þjálfarar voru Jón Leósson og
Kjartan Sigurðsson.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
Eftir margra ára hlé skapaðist
hér aðstaða til frjálsíþróttaiðkun
ar og var ráðinn þjálfari, Guð-
mundur Þórarinsson, sem vann
frábært slarf við þjálfun frjálsra
íþrótta. í byrjun maí var haldið
námskeið og sóttu það 189 ung-
lingar á aldrinum 7—16 ára, en
alls voru haldin 19 mót á tíma-
bilinu 30. maí til 18. sept. og sótt
voru 3 mót annars staðar. Sex
stúlkur sóttu íslandsmeistaramót-
ið í Reykjavík með góðum ár-
angri. Akranes var lang stiga-
hæsti kaupstaðurinn í keppninni
Reykjavíkurmeistarar KR
■J • rn jmmntcnlR• r \T A \ * /"k
biou osigur iyrir Viking 1-0
. Þau stórtíðindf gerðust á
Melavellinum í fyrrakvöld í
þriðja leik Reykjavíkurmóts-
in«, að Víkingur sigraði
Reykjavíkurmeistara KR með
1—0 í hörkuspennandi leik,
þar sem meginhluti áhorfenda
fagnaði Víkingum sem hetj-
um eftir leikinn, en dugnaður
Víkinga og baráttuviiji var
einkennandi fyrir allan leik-
inn. Fyrr hefðu leikmenn
dottið niður af þreytu en að
gefa erftir. Eftir þeim frétt-
um, sem farið hafa af æfing-
um KR í vor var talið, að KR
myndi sigroð með nokkrum
markamun í leiknum, en hér
sannaðist enn einu sinni, að
allt getur skeð í knattspyrnu.
Víkingur vann sinn stærsta sig-
ur í knattspyrnu um árabil í
leiknum með því að sigra KR
1—0. í liði Víkings eni margir
bráðefnilegir leikmenn og virðast
þeir vera í góðri æfingu, það er
að segja, hafa gott úthald. Þeir
eru harðir í horn að taka og berj
ast til hins ýtrasta. Það kom ekki
fyrir, að leikmenn Víkings stæðu
og góndu út í loftið, eins og leik
menn annarra félagav hafa gert
í vor, nei, þeir voru allir með
og börðust gégn ofureflinu og
höfðu betur.
Leikurinn var hraður og spenn
á íþróttaviku F.R.Í. með 160 stig
Seinnihluta ágústmánaðar gekkst
FÍA fvrir dómaranámsjceiði undii
stjórn Guðmundar Þórarinssonar
og voru þátttakendur ellefu og j
náðu allir prófi og hlutu „Héraðs I
(Framhald á 15. síðu).
andi, KR var I stöðugri sókn og
mark Víkings alloft í hættu, en
á 27. mínútu ná Vfkingar mjög
góðu upphlaupi og fyrir herfi-
leg mistök í vörn KR, tókst Jó-
hanni Gunnlaugssyni, (en hann
er bróðir þeirra kunnu knatt-
spyrnumanna, Kristins og Högna)
að skora þetta eina örlagaríka
mark leiksins. KR-ingar voru allt
af meira í sókn og í lokin voru
um 20 leikmenn inni í vítateigi
Víkings. Þó voru það Víkingar
sem voru nær að skora annað
mark, er Bergsteinn Pálsson fyrir
opnu marki á hörkuskot í þverslá.
Þegar dómarinn, Hannes Sigurðs-
son, flautaði leikinn af skömmu
síðar, fögnuðu áhorfendur ákaft
þessum efnilegu leikmönnum Vík
ings, og gamlir Víkingar, sem
fyrir löngu eru búnir að sætta
sig við ófarir félags síns á leik-
velli, ljómuðu af ánægju.
Dómarinn, Hannes Sigurðsson,
dæmdi ágætlega. Ó.K.
Þarna var hættulegt augnablik, en rnarkmanni Víkings tókst að slá knött-
inn frá Ellerth Schram.