Tíminn - 13.05.1961, Qupperneq 13
T;f,M I N N, laugardaginn 13. maí 1961.
Valur hlaut góðar
gjafir á afmælinu
Á uppstigningardag kom fjöldi
manns að Hlíðarenda, félagsheim
ili Vals, og árnaði félaginu heilla
á 50 ára afmælisdaginn og þakk-!
aði margvísleg störf félagsins í
Iþróttasýn-
ing Armans
Glímufélagið Ármann gengst
fyrir íþróttasýningu sunnudaginn
14 maí kl. 2.30 að Hálogalandi.
Þar sem nú er a@ ljúka vetrar-
starfi félagsins, vill félagið gefa
almenningi köst á að kynnast
starfi félagsins og efnir í því til-
efni til þessarar sýningar.
Munu þarna koma fram hinir
ýmsu flokkar félagsins og sýna
meðal annars, fimleika, handknatt j'
leik, körfuknattleik, glímu og
júdó. Sýningin hefst með júdó,
en sú grein innan félagsins er
mjög ung og hefur aðeins verið
æfð um stuttan tíma hér. Munu
þar koma fram flokkar pilta og
stúlkna, undir stjórn Sigurðar Jó-
hannessonar.
Það má geta þess að fimleika-
flokkur sá, er þarna kemur fram,
er nýkominn úr sýningaför til
ísafjarðar, og sýndi þar fyrir fullu
húsi o" við mikil fagnaðarlæti
áhorfenda.
Aðgangur að sýningunni er öll-
um heimill og ókeypis, >e ief*t
þágu íslenzkrar æsku í fimmtíu
ár. Bárust félaginu í tilefni dags-
ins margar góðar gjafir.
Gunnar Vagnsson, varaformað-
ur Vals, bauð gesti velkomna, en
meðal þeirra voru níu af stofendí
um Vals, séra Bjarni Jónsson,
vígslubiskup, formaður KFUM, og
ýmsir forustumenn íþróttahreyf-
ingarinnar, og eldri og yngri Vals-
menji.
Séra Bjarni Jónsson tók fyrstur
til máls, og hélt afburðasnjalla
ræðu og þakkaði Valsmönnum
starfið í 50 ár, en hann hefur
fylgzt með félaginu af miklum
áhuga öll þessi ár. Þegar Valur
var stofnaður var séra Bjarni
einnig formaður KFUM. Sveinn
Zoega, formaður Vals, færði
séra Bjarna gjöf til KFUM — en
eins og kunnugt er þá er Valur
ein deild í KFUM.
Þá talaði Sigurður Magnússon,
kaupmaður, fyrrverandi framkv,-
'stjóri ÍBR, og færði hann félag-
inu gjöf til minningar um Ólaf
Sigurðsson, hinn nýlátna forustu-
manns Vals, og var það fögur
fundarklukka. Reidar Sörensen,
sem þjálfaði Val hér fyrr á árum,
kom frá Noregi til þess að vera
viðstaddur á afmælisdaginn, og
færði hann Val að gjöf víkinga-
skip úr silfri, en siðar sæmdi
Benedikt G. Waage Sörensen þjón-
ustumerki ÍSÍ fyrir dyggilega unn
in störf í þágu íslenzkra íþrótta.
Sigfús Halldórsson tónskáld,
færði Val að gjöf málverk af
frægasta knattspyrnukappa Vals,
Albert Guðmundssyni, sem hann
hafði málað. Var málverkinu kom
ið fyrir á einum vegg félagsheim
ilisins og vakti mikla athygli
gesta, enda ágætt 'listaverk.
Af hálfu stofnenda Vals talaði
Guðbjörn Guðmundsson, prentari,
sem hvatti Valsmenn til frekaril
dáða. Hann færði Val frá stofn-1
endunum fagra klukku og 14 raug
ar rósir — eina frá hverjum í
stofnanda.
Gísli Halldórsson, formaður
íþróttabandalags Reykjavíkur, af-
henti Val styrkveitingu frá banda
laginu, hundrað þúsund krónur,
sem er langhæsta styrkveiting til
eins félags hér, og er það vegna
hinna miklu byggingafram-
kvæmda, sem Valur hefur staðið
í undanfarin ár._ Guðjón Einars-
son, varaforseti ÍSÍ, flutti heilla-
óskir frá íþróttanefnd ríkisins og
færði Val styrk frá nefndinni, en
upphæð'ina nefndi hann ekki, en
sagði að hún væri mun hærri en
nefndarmenn gætu verið þekktir
fyrir að veita. Að lokum talaði
Benedikt G. Waage, forseti ÍSÍ, og
árnaði Val heilla, en ÍSÍ hafði
áður fært Val gjöf í tilefni afmæl-
isins.
Sveinn Zoega þakkaði hinar
góðu gjafir og heillaóskir og bauð
síðan gestum, að sjá íþróttahús
Vals, og framkvæmdir á íþrótta-
svæðinu. Þetla afmælshóf Vals
var einkar skemmtilegt, og gest-
um til mikillar ánægju. Rikmann
legar veitinga'r voru fram bornar
af Valskonum.
Sigfús Halldórsson, tónskáld og málari og Valsmaður, var meðal þeirra,
sem færðu Val gjöf í tilefni af 50 ára afmaeli félagsins — og vaktl gjöf
hans mikla athygli. Það var málverk af frægasta knattspyrnumanni Vals,
Albert Guðmundssyni, sem hengt var upp í félagsheimilinu. Sigfús (til
hægri) og Albert siást hér hjá málverkinu. Ljósmynd: Tíminn, GE.
rV.X.-V.
Söluskattur
Dráttarvextir falla á söluskatt fyrir 1. ársfjórðung
1961, svo og vangreiddan söluskatt og útflutnings-
sjóðsgjald eldri ára, hafi gjöld þessi ekki verið
greidd í síðasta lagi hinn 15. þ. m.
Að þeim degi liðnum verður stöðvaður án frekari
aðvörunar atvinnurekstur þeirra, sem eigi hafa þá
skilað gjöldunum.
Reykjavík, 10. maí 1961.
Tollstjóraskrifstofan
Arnarhvoli.
k.*X*V*V‘%«X»'V»X«X»X‘V‘V»V*V»X»X‘X*V'X»V«V»V*X*V»X.»'V«V*Xr\.*
Aðstoðarmaður og ritari
óskast í Veðurstofuna í Reykjavík. — Aðstoðar-
maðurinn þarf að vera á aldrinum 20—30 ára,
hafa gagnfræðapróf, eða hliðstæða menntun, vera!
heilsuhraustur og reglusamur.
Ritarinn þarf, auk vélritunar, að annast síma-
vörzlu. N
Laun samkvæmt launalögum.
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf, send-
ist skrifstofu Veðurstofunnar, Sjómannaskólanum,
fyrir 1. júní n. k.
Veðurstofa íslands
Sveít
10 ára drengur vanur
sveitastörfum, óskar eftir
að komast á gott sveita-(
heimili. — Uppl. í síma
35539.
JÖRÐ
í Borgarfirði er til leigu nú þegar eða í næstu far-
dögum. Upplýsingar gefur Þórarinn Þórarinsson,
ritstjóri. Símar 18300 og 12186.
Félag austfirzkra
kvenna
heldur sína árlegu skemmti
samkomu fyrir austfirzkar
konur í Breiðfirðingaheim-
ilinu, Skólavörðustíg 6a,
mánudaginn 15. þ. m. kl.
8 stundvíslega. Allar aust-
firzkar konur sem búsettar
eru í bænum og sótt hafa
þessa árlegu skemmtun fé-
lagsins eru velkomnar.
Einnig austfirzkar konur
sem staddar eru í bænum.
Félagskonur, fjölmennið og
fagnið gestum ykkar.
Stjórnin
//. id
an
•V*-VV-VN.V.X V
Smám saman hallaði undan fæti
fyrir einkaspæjurum eftir því sem
ríkislögreglunni óx fiskur um
hrygg. Mörgum árum eftir dauða
Viktoríu efldust þeir aftur að
styrk vegna þess að flóðbylgja
hjónaskilnaða gekk um Bretland.
Þegar neyðin er stærst
En þó að öryggisstofnanir ríkis-
ins og hin opinbera lögregla hafi
yfirleitt horn í síðu einkaleynilög-
reglunnar, þá hefur ríkið alltaf
haft lag á að notfæra sér starfs-
krafta þehTa á hættustundum.
í báðum heimsstyrjöldunum
voru leynilögreglumenn teknir í
njósnaþjónustu hersins og unnu
þar mörg frábær afrek sem leiddu
tli þess að þeir voru heiðraðir á
ýmsan hátt.
Þannig var því m. a. vaiið um
Stephen Haynes sem hafði byrjað
feril sinn sem einkaspæjari í
Glasgow einmitt á árinu 1939.
Hann var tekinn í njósnadeild
brezka hersins og árið 1942 var
hann sendur í fallhlíf niður í
miðju Þýzkalandi sjálfu. Verkefni
hans var að ná í nokkur leyniskjöl
sem voru geymd á aðalbækistöðv-
um einhvers s-taðar nálægt Köln.
í því skyni lét Haynes taka sig
fastan af Gestapo. Þjóðveijar
höfðu þó engan sérlegan áhuga á
að eyða miklum tíma í hann þar
sem hann virtist hreint ekki mikil
væg ppr ' og að auki þóttist
hann hálfp..: iinn sturlaður. Hann
var þess v,;ni $ettur í það að
hreinge;^ gólfið i aðalbækistöðv-
um_ Gestapo.
Á þann hátt tókst honum að kom
ast að raun um hvar leyniskjölin
voru geymd með því að hafa aug-
un opin. Hann brauzt inn á skrif-
stofu, braut upp peningaskáp en
komst aðeins að iaun um að skjöl-
in höfðu verið send til Frankfurt
og voru ’w í CTæzlu sérstaks varð-
r. ...,ns,
Haynes heppnaðist þó að
finna varðmanninn, en þar varð
hann þess vísari að skjölin voru
komin enn á nýjan stað. Haynes
| var handtekinn er hann reyndi
[að grafa upp hvert skjölin voru
| k- n og hann ;at í fangelsi Þjóð-
\ eija til stríðsloka.