Tíminn - 14.05.1961, Page 1
108. tbl. — 45. árgsngur.
Skrifa'ð og
skrafað — bls. 7
Sunnudagui' 14. mai 1961.
Gústaf Adólf, konungur Svía,
var í herför í Póllandi 1682, er
honum bárust þau tíðindi, að hið
nýja og mikla herskip, Vasa,
hefði oltið á hliðina og sokkið í
fyrstu ferð sinni, ré'tt utan við
Stokkhóim. Sjálfur hafði konung
ur lagt á ráðin um það, hversu
hinar íburðarmiklu vistarverur í
skutbyggingu skipsins skyldu úr
garði gerðar, því að þar hafði
hann ætlað sjálfum sér að búa>
En Gústaf Adólf steig aldrei fæti
sínum á þilfar hins mikla skips.
Það var fyrst nú í síðastliðinni
viku, að 333 árum liðnum, að
konungur Svía steig á þetta skip,
eftir að það var dregið á þurrt
á dögunum. Hann kom einn
morgun á vettvang í gúmmístíg-
vélum og regnkápu og með blikk
hjálm á höfði til þess að skoða
konungsskipið.
Vildi brjóta
múrvegg
í fyrrinótt bárst lögreglunni ’
r kvörtun úr íbúðarhúsi við Ránar
götu. Hafð'i dauðadrukkinn biað-
ur verig þar á ferli fyrir utan og
brotið fjórar rúður í húsinu. Er
lögreglan kom á vettvang, var
maðurinn kominn niður á Brœðra
borgarstíg, búinn að brjóta þar
eina rúðu og var að lemja utan
.(Framhald á 15 síðuj
Skozkir bænd-
ur í kynnisför
Erindi þeirra er aS kynna sér sauðfjárbúskap
Islendinga
25. maí koma hingað til
lands tuttugu Skotar, aðallega
bændur úr Hálöndunum, en í
för með þeim verða þó tveir
blaðamenn og einn dýra-
læknir, Lyle Steward, sem var
fyrir nokkrum árum á vegum
matvælastofnunar Sameinuðu
þjóðanna. v
Erindi þessara ferðamanna er
að kynnast sauðfjárbúskap íslend-
inga, og er ferðin skipulögð af
ensku viðskiptafyrirtæki, sem
verzlar með fóðurbæti.
Með aukinni ræktun og bættri
fóðrun hefur tekizt að auka hér
afurðagetu sauðfjár, svo að veru-
legu nemur, þar sem framfarirnar
eru mestar. Á Hálöndum Skot-
lands gengur féð úti á vetrum, en
nú leikur bændum þar hugur á,
hvort þeir geti aukið arðinn af
, sauðfénu með fóðrun að vetrinum.
iÞess vegna munu þeir kynna sér
j hér fóðrun sauðfjár, gerð fjárhúsa
| og hversu hér eru notaðar grindur
í fjárhúsum, sem og heygeymslur
og heyverkun hér á landi. Munu
Skotarnir ferðast um Borgarfjörð,
Snæfellsmes og Norðurland, allt
austur í Mývatnssveit. Heimleiðis
munu þeir svo fara 1. júní.
út og suður
í fyrrinótt voru tveir ungir
sjómenn í landlegu að skemmta
sér eins og gengur og gerist.
Lentu þeir á einhverju ráfi og
voru orðnir nokkuð ölvaðir.
Þeir urðu þreyttir á göngunni
og ákváðu að létta sér ferða-
lagið. Voru þeir þá staddir á
Bóklilöðustignum. Urðu þar á
vegi þeirra tvö reiðhjól, sem
þeir stálu. Ekki höfðu þeir
farið langan veg, er lögreglan
varð vör ferða þeirra og þótti
reiðmennskan ekki sem venju-
legust, en kapparnir stýrðu út
og suður. Ilöfðu lögreglumenn-
irnir tal af piltunum, og með-
gengu þeir, að hjólunum hefði
verið stolið. Höfnuðu lijólreiða
menn í kjallaranum, og fóru
þeir svo í gærmorgun, lieldur
þungir í göngulaginu, frá rann
sóknarlögreglunni, enda báru
þeir þunga sekt á bakinu.
Magnús sýknaður af
morðbréfaákærunni
Einn af fréttamönnum blaðs-
ins raks't á þetta unga fólk á
götuhorni hér á dögunum. Þaö
bar snotur spjöld, þar sem aug-
lýst var útsala — afslátturinn
10% og 20—30%. En þegar spurt
var, hvar útsalan væri, varð
stærri stúlkan fyrir svörum. Og
upp úr kafinu kom, að þetta var
bara fyrlr börn, en ekki for-
vitna fréttamenn. (Ljóm.: H.H.).
Seint á föstudaginn kvað. hæsti-
réttur upp dóm í máli Magnúsar
Guðmundssonar, fynverandi lög-
regluþjóns. Sýknaði rétturinn
Magnús af því kæruatriði, sem lýt-
ur að morðhótunarbréfunum, sem
lögreglustjóra vora send á sínum
tíma. Hins vegar dæmdi rétturinn
Magnús í fjögurra mánaða óskil-
oi'ðsbundið fangelsi fyrir að hafa
borið starfsfélaga sína í lögregl-
unni, svo og lögreglustjóra sjálfan,
röngum sökum varðandi áfengis-
neyzlu, en fyrir sakadómi var
Magnús dæmdur í þriggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi.
Maður deyr af
völdum höggs
Laugardaginn 6. maí lézt á
Landsspítalanum maður að
nafni Míkael Sigfússon, 48
ára, af völdum áverka, sem
hann hlaut í átökum við spila-
félaga 23. apríl s. I., og hefur
spilafélaginn nú verið úrskurð
aður í gæzluvarðhald.
Nánari atvik eru þau, að 23.1
apríl voru nokkrir kunningjar
Mikaels heima hjá honum að Lang
holtsvegi 44. Spiluðu þeir og
neyttu áfengis.’ Fór svo að lokum,
að stælur hófust með Míkael og
einum kunningjanna út af spilum,
óg er þær ágerðust, fóru hinir
kunningjarnir á brott.
Dæturnar vöknuðu
Hávaði talsverður varð af deil-
um Míkaels og kunningjans, og
vöknuðu dætur Míkaels tvær. Fóru
þær að hyggja að, hvað hér væri
um að vera, og sáu þá, að gest-
urinn sló Míkael, svo að hann féll
á gólfið og lenti með höfuðið á
(Framhaid á 15. sí3u).
Leiðin milli Akureyrar
og Reykjavíkur opnuð
í dag verður ieiðin milli Ak
ureyrar og Reykjavíkur opnuð
til umferðar, en hún hefur
verið lokuð í næstum hálfan
mánuð.
Blaðið hafði tal af vegamála-
stjóra í gærmorgun, og sagði
hann, að vegurinn norður til
Akureyri væri nú að batna, og,
vonast væri til, að innan tíðar!
mætti opna veginn fyrir öllum \
bifreiðum. Nú fyrst um sinn verð
ur umferðin takmörkuð við bif-
reiðar með minni öxulþyngd en
6 lestir.
Klaki er enn ekki farinn úr
vegum á þessari leið ,og aur-
bleyta er nokkur. I gær fóru
jeppabifreiðar leiðina og gekk
vel.
Verstur hluti leiðarinnar hefur
verið um neðri hluta Öxnadals-
ins, en sá kafli var algjörlega
ófær um tíma, en stórvirk tæki
hafa unnið þar af kappi við lag-
(Framhald á 15. síðu).