Tíminn - 27.05.1961, Qupperneq 6
F 6
TÍMINN, laugardaginn 27. mal 1961.
70 ára:
Sigríður Jónsdóttir
fyrrverandi póst- og símamálastjóri
. Frk. Sigríður Jónsdóttir fyrrv.
póst- og símstöðvarstjóri er fædd
að Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði
26. maí 1891. Foreldrar hennar
Jón Bergsson óg Margrét Péturs
dóttir, bjuggu þar þá stórbúi.
Munu hafa verið þar í heimili
milli 30 og 40 manns auk gesta
og gangandi sem þeim stað hefur
að jafnaði fylgt svo miðlínis sem
hann liggur á Héraði. Sigríður
ólst upp í hópi systkina, fóstur-
systkina og annarra unglinga sem
alltaf fylgdu stórheimilum í þá
daga.
I fjölskyldunni á Egilsstöðum
voru þá tvær aldraðar konur, hin
hógværa, ástúðlega Rósa Bergs-
dóttir frá Vallanesi, systir hús-
bóndans, og hin valinkunna sæmd-
arkona, Ólöf Bjarnadóttir, ekkja
Péturs Sveinssonar bónda í Vest-
dal í Seyðisfirði, móðir húsfreyju.
Þessar konur munu hafa átt mik
inn og happadrjúgan þátt í upp-
eldi barnanna þar sem húsmóðirin
hafði svo annasömu og stóru heim-
ili að stjórna og margvíslegar
kröfur voru gjörðar til hinnar
glæsilegu húsmóður. Jafnframt
búskapnum var rekin verzlun á
staðnum og húsbóndinn tók þátt í
ýmsum opinberum málum sem
Héraðinu horfðu til frama.
Börnin voru snemma vanin á að
taka þátt í hinum fjölbreyttu dag-
legu störfum, bæði við búskapinn
og verzlunina. Heimiliskennari var
hafður á hverjum vetri til að ann-
ast hina almennu uppfræðslu barn
anna, en um skóla var þá lítið,
urðu unglingar því að auka við
þekkingu sjna með lestri góðra
bóka og hefur mörgum reynzt sú
sjálfsmenntun happadrjúgt vega-
nesti í lífinu.
Árið 1906 kom síminn í Egils-
staði. Jón Bergsson gerðist þá
póst- og símstjóri, Sigríður, sem
þá var 15 ára, gekk þá föður sín-
um alveg á hönd og tók að sér
póst og síma með honum. Þessu
starfi hefur hún gegnt samfellt
síðan að undanteknum tveim vetr-
um. 1910 dvaldi hún í Reykjavík
við nám og 1912 í Kaupmannahöfn
líka við nám.
Jón Bergsson varð fyrir því ó-
láni að tapa sjón á miðjum aldri
en naut jafnframt þess láns að
sjá börn sín taka við starfsgrein-
unum hvert á sínu sviði.
Föður sinn missti Sigríður 1924.
Var henni þá veitt póst- og sím-
BAZAR
Bazar og kaffisölu heldur kvenfélagið Esja að Klé-
bergi, Kjalarnesi 28. þ.m. Hefst kl. 2 e.h.
Bazarnefndin
ALLT A SAMA STAÐ
I RAFKERFIÐ
KVEIKJULOK
PLATÍNUR
HÁSPENNUKEFLI
HAMRAR
STEFNULJÓS
AFTURLJÓS
Laugavegi 118, sími 22240
Egiil Vilhláimsson h.f.
Sendum
gegn kröfu
Aðalfundur
Nemendasambands Samvinnuskólans
verður haldinn á 3. Nemendamótinu í Bifröst,
sunnudaginn 4. júní n. k. kl. 13,00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Ferð á mótið verður frá Sambandshúsinu kl.
13,30 á laugardag. Þátttaka tilkynnist sem allra
fyrst til Magneu Sigurðardóttur, Starfsmannahaldi
SÍS.
stjóraembættið á Egilsstöðum,
hefur hún gegnt þessu starfi þar
1 til á síðast liðnu ári eða í 54 ár.
1 Mun það ærið langur embættis-;
jstarfsaldur (minnist ég þó ekki að
hafa séð þessa getið í sunnanblöð- j
i um).
Heima í Héraði var Sigríði hald-!
i ið veglegt samsæti að starfslokum
og kom það skýrt í Ijós að menn
;dáðu hana fyrir ábyrgðarmikið og
ágætt starf, vel og alúðlega af
hendi leyst í alla staði, reglusemi
og prúðmennska í viðskiptum.
Af öðrum opinberum störfum
má nefna að Sigríður var gjald-
keri Sambands austfirzkra kvenna
um 20 ára skeið og í skólaráði
Húsmæðraskólans á Hallormsstað
frá árinu 1944 og fram á þennan ,
dag og má segja að þessum mál-
um hafi hún sinnt með sömu alúð,
áhuga og tryggð og öllu öðru sem
hún hefur haft á hendi um dag-
ana.
Eftir lát föðurins hélt Sigríður
heimili með móður sinni þar til!
hún lézt 1944. Það kom í hlut Sig-,
fíðar að annast föðursysturina,
móðurina og ömmuna, sem allar |
létust á þessum árum, má með;
sanni segja að hún umvafði þær 1
með ástúð og hlýju til hinztu I
stundar.
! Enn hefur Sigríður sitt' eigið
; heimili. Ef til vill dettur einhverj-
um í hug að þar sé hljótt og ein-
manalegt, þar sem hún hefur
hvorki eignazt bónda né börn, en
því fer fjarri, bræðrabörnin og
bræðrabarnabörnin hafa alltaf
flykkzt í kringum hana, elska hana
og virða. „Sigga frænka“ eins og
fþau kalla hana, vill vera þeim öll-
um til hjálpar á hverju sem
gengur. Heima hjá henni er aldrei
neitt bannað, má vera að eftirlætið
sé yfrið mikið.
Tómstundastörf hefur Sigríður
alltaf haft af ýmsu tagi, í æsku
vann hún töluvert að fínni tó-
vinnu. Hún klippir líka, það er að
segja alla herra- og drengjakolla
!í fjölskyldunni og marga fleiri og
til dæmis um, hve fín hún er í
þeirri iðn, vil ég aðeins geta þess,
að það ber ekki svo sjaldan við,
að höfðingjar úr öðrum sveitum
| koma til að fá hana til að klippa
! sig og snyrta, þegar mikið á að
I hófa.
Sigríður hefur alltaf haft mesta
yndi af hestum og átti jafnan gæð-
inga, fór orð af þvi hve mikil reið-
kona hún var og þótti sitja hesta
i sem valkyrja. Var hún þá eigi eftir
| bátur bræðra sinna, er á skeið-
; völl var komið. Mun henni vel
falla að taka undir með skáldinu. !
„Veit ég yndi annað betra,
eigi vera á landi frera
en um haustkvöld hesti traustum
hleypa vel um slétta mela.“
Eitt er það af störfum Sigríðar
á Egilsstöðum, sem enn er ótalið
og sem hún þó öðiu fremur mun
unna, en það er skrúðgarðurinn.
Fyrir suðvestan húsið. sem for-
eldrar hennar byggðu skömmu
eftir aldamót, voru gerð drög að
trjágarði um 1910. Þennan garð
hefur Sigríður ræktað og stækkað
jöfnum höndum ár frá ári, gróður '
sett margs konar tré og fjölbreyti-
,legustu blóm, jurtir og runna
Tómstundir hennar undanfarin ár
1 á vorin í gróandanum hafa gengið
! í það að prýða og hlúa að þessum
ifagra reit. Það er þetta lífræna
! starf í tengslum við moldina sem
aldrei deyr aðeins hvílist.
Það er áreiðanlegt, að Sigríður
telur það ekki „lítinn“ heldur
„Dýrðlegan yndisarð að annast
blómgaðan jurtagarð."
Lifðu heil um langa framtíð.
Sigríður Fanney Jónsdóttir
Aðalfundur
Reykjavíkurdeildar Rauða
Kross íslands verður hald-
inn í Tjarnarkaffi, uppi,
mánud. 29. maí kl. 5 síðd.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Tveir bræður
10 og 14 ára, annar alvanur,
óska eftir að komast á gott
sveitaheimili í sumar. Upp-
lýsingar í síma 15561.
BÍLASALINN við Vitatorg
Bílarnir eru hjá okkur.
Kaupin gerast hjá okkur.
BÍLASALINN viS Vitatorg
Sími 12 500
Dugleg telpa
I2V2 árs óskar eftir að kom- 13 ára drengur
ast á gott sveitaheimili til
snúninga eða gæta barna.
Helzt í nágrenni Reykja-
víkur. Upplýsingar í síma
36308,
óskar eftir að komast á gott
sveitaheimili nú í sumar.
Upplýsingar í síma 15112.
Svo fljótt
og auðvelt
að þvo úr
."V, • ■V • "V ■
n auðungaruppboð
annað og síðasta, á hluta í húseigninni nr. 18 við
Eskihlíð, hér í bænum, eign dánarbús Sigurðar
Jóns Ólafssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtu-
daginn 1. júní 1961, kl. 3 síðdegis;
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Magnús Magnússon,
Álfhólum,
sem sndsöist 18 þ. m„ verSur jarSsunginn þri'Sjudaginn 30. maí
aS VoðmúlastöSum, kl. 2 síSdegis
Vandamenn.
. / \
/