Tíminn - 30.05.1961, Page 1
llffc tbL — 45. árgangur.
Heimsókn til
Buchenwald,
bls. 8.
Þri'ðjudagur 30. ínaí 1961.
VERKFÖLL 700« MANNA HAFIN
Drukkinn ökumaður
veginum á miðri Hellisheiði. Vait bíllinn í hrauninu og stórskemmdist eins
og myndin sýnir, en fjórir piltar, sem í honum voru, sluppu með skrámur. Ökumaðurinn reyndist vera drukk-
inn. Piltarnir fjórir, sem allir eru um tvítugt, höfðu ekið Þingvallahringinn, og voru á leið til Reykjavíkur.
Einn þeirra var ódrukkinn, og ók hann mestan hluta leiðarinnar, en skömmu áður en bíllinn fór útaf, hafði eig-
andinn setzt undir stýri með fyrrgreindum afleiðingum. Lögreglan á Selfossi kom á staðinn innan tiðár og flutti
piltana tll Reykjavíkur og Kópavogs, og gekk málið síðan til lögreglunnar f Kópavogi. Játaði ökumaðurinn þeg-
ar brot sitt. Bíllinn var fluttur með kranabíl til byggða. (Ljósmynd: Þorst. Kristj.)
Úr reikningum frystihúsanna 1960:
Vaxtahækkunin jafn-
gilti 12-15% kauphækkun
Upplýsingar, sem Tíminn hef-
ur aflað sér, benda eindregið til |
þess, a'ð vaxtahækkunin, sem var j
ákveðin á síðastl. ári, hafi svarað:
til 12—15% kauphækkunar.
Tíminn hefur fengið um þetta
atriði upplýsingar frá tveimur
frystihúsum og eru þær á þessa
leið:
Frystihús A:
Hjá þessu frystihúsi námu all
ar kaupgreiðslur á árinu 1960 kr
3.125.294,00. Vaxtagreiðslur á ár
inu námu kr. 1.208.051.52. Hækk
un sú, sem varð á vöxtum í sam
bandi við „viðreisnina“ og gilti
10 seinustu mánuði ársins, svar-
aði til þess að kaupgreiðslur
hússins
11,36%.
liefðu hækkað um
Frystihús B:
Hjá þessu frystihúsi námu
kaupgreiðslur á árinu 1960 kr.
2.782.528,00. Vaxtagreiðslur á
árinu námu kr. 1.178.143,30.
Hækkun sú, sem varð á vöxtum
í sambandi við „viðreisnina" og
gilti 10 seinustu mánuði ársins,1
svaraði til þess, að kaupgreíðsl- j
ur hússins hefðu hækkað um
12,44%.
Þá er Tímanum kunnugt um
fyrirtæki, þar sem vaxtahækkun-
in hefur svarað til allt að 15%
kauphækkunar. >
Þessar upplýsingar sýna það,
að það myndi stórbæta aðstöðu
atvinnuveganna til að standa
undir auknum kaupgreiðslum, ef
vextárnir væru færðir aftur í
sama horf og þeir voru fyrir
„viðreisnina“. Þrátt fyrir það
væru vextirnir hér samt mun
hærri en í flestum eða öllum ná-
grannalöndum okkar, nema Dan-
mörku, t. d. mun hærri en í
Noregi og Vestur-Þýzkalandi.
Slík vaxtalækkun ætti að geta
nægt til að brúa bilið, sem nú
er milli atvinnurekenda og verka
nianna.
Kíkisstjórnin ber því vissulega
ábyrgð á verkföllunum meðan
hún lækkar ekki vcxtina.
Ríkisstjórnin hefur ekkert
gert til að greiða fyrir
lausn deilunnar
í gær hófust verkföll átta
verkalýðsfélaga með samtals
um 7000 félagsmenn, þar sem
ekki hafði áður tekizt að ná
samkomulagi um nýja kjara-
samninga.
Félög þau, sem gert hafa verk-
fall eru þessi:
Verkamannafélagið Dagsbrún í
Reykjavík, Hlíf í Hafnarfirði, Fé
lag verksmiðju- og skrifstofufólks
á Akureyri, eVrkakvennafélagið
Von, Húsavík, Verkamannafélag
Húsavíkur, Verkakvennafélagið
Eining á Akureyri, Verkamanna-
félag Akureyrarkaupstaðar, Iðja
félag verksmiðjufólks á Akureyri
og Bílstjórafélag Akureyrar. í
þessum félögi^i eru 6870 félags-
menn.
Sáttasemjari ríkisins, Torfi
Hjartarson hefur undanfarið unn
ið að því, ásamt Jónatan Hall-
varðssyni hæstaréttardómara, að
koma á samkomulagi milli at-
vinnurekenda annars vegar og
Dagsbrúnar í Reykjavík og Hlíf-
ar í Hafnarfirði hins vegar. Við-
ræðufundir voru haldnir flesta
daga seinustu viku og sá seinasti
fyrir verkfallið í fyrrakvöld. Þess
ar sáttaumleitanir báru ekki
neinn árangur.
Af hálfu atvinnurekenda hef-
ur ekki verið lagt fram neitt
formlegt tilboð. f fyrstu héldu
þeir fram, að Vinnumálasam-
bandi samvinnumanna undan-
skildu, að enginn kauphækkun
gæti komið til greina, en upp á
síðkastið munu þeir hafa hreyft
því óformlega ,að þeir gætu fall
izt á 3% kauphækkun strax 3%
kauhpækkun á árinu 1962 og
3% kauphækkun á árinu 1963.
Þessu hafa fulltrúar verkamanna
eindregið hafnað.
Atvinnurekendur munu ekki
hafa viljað ganga lengra að sinni,
þar sem þeir bíða eftir vitneskju
um, hvort ríkisstjórnin ætlar að
fallast á lækkun vaxta og aðrar
slíkar ráðstafanir, er gætu stuðlað
að hagkvæmari lausn deilunnar
fyrir alla aðila.
Á fundinum í fyrrakvöld mun
sáttanefndin hafa látið skína í
það, að hún myndi fljótlega reyna
að koma málinu á nýja hreyf-
ingu, og varð það helzt skilið
þannig, að hún myndi annað hvort
leggja sjálf fram miðlunartillögu
eða fá aðilanna til að gera það.
Viðræðufundur hafði ekki verið
boðaður þegar blaðið frétti sein-
ast í gær.
Verkföll um næstu helgi
Eins og áður hefur verið skýrt
frá, hafa allmörg félög boðað
verkföll um næstu helgi, ef ekki
hafa náðst samningar mí'Hi þeirra
og atvinnurekenda fyrir þann
tíma. Þessi félög eru:
3. júní: Félag bifvélavirkja,
Félag járniðnaðarmanna, Félag
blikksmiða, Sveinafélag skipa-
smiða og Félag íslenzkra raf-
virkja, en þau telja 1060 félags-
menn. — 4. júní bætast Sveina-
félag járniðnaðarmanna á Akur
eyri við og 5. júní: Múrarafélag
Reykjavíkur, Málarafélag Reykja-
víkur, Sveinafélag pípulagningar-
manna og Trésmiðafélag Reykja-
(Framhald á 2. síðu)
12,5% kauphækk-
un boðin á Húsavík
Eins og kunnugt er, hafa
undanfarið staðið yfir samn-
ingar milli atvinnurekenda á
Húsavík annars vegar og
verkamannafélagsins og verka
kvennafélagsins þar hins veg-
ar.
í viðræðum þessara aðila í
f. rradag, lögðu atvinnurekendur
fram tilboð þess efnis, að kaup
verkamanna hækkaði um 12% í
öllum launaflokkum nema þeim
lægsta, en hann félli alveg niður
og hefði það þýtt nær 15% kaup
hækkun fyrir þá, sem þar voru.
Kaup kvenna skyldi hækka um
sömu krónutölu og kaup karla
og hefði það minnkað verulega
bilið, sem nú er á kaupi karla og
kvenna. Gert var ráð fyrir að
tilboð þetta gilti til tveggja
mánaða..
Af hálfu verkamanna var fall-
ist á tilboðið, að því er snerti
karlakaupið. Verkakonur höfnuðu
hins vegar tilboðinu. Samningar
náðust því ekki og hófst verkfall
þar í gær.
Ríkisstjórnin ber ábyrgð á verkföllunum — bls. 5
rrsmekaczKaafówsiJfcr ^ &s&
■T'WTWMI III^ I '■ |H,:Tfrt,-aTWhíTr'^7lrffrffr