Tíminn - 09.06.1961, Qupperneq 1
4 Áburði hellt úr pokunum i flugvélina uppi i
Sandskeiði, áður en hún hefur sig til flugs og sáldr-
ar yfir landið næringarefnum, sem fjaliaiurtirnar
hafa ekki hingað til fengið i svo ríkulegum og auð-
nýttum skömmtum. (Ljósm.: TÍMINN — G.E.).
ABURDAR-
DREIFING
— hin fyrsta úr flugvél á úthaga
hér vestan HellisheitJar
í gær var glaðasólskin í Reykjavík, en
hellirigning á HellisheiSi. ÞaS kom sér þó
miSur, því aS talsvert var um aS vera uppi
á SandskeiSi. ÞaS var sem sé veriS aS dreifa
tilbúnum áburSi úr flugvél á úthaga, og er
þaS í fyrsta skipti sem þaS er gert hér
vestan heiSar, ef undan er skiliS, aS fræi
og tilbúnum áburSi var dreift á SandskeiSiS
eitt áriS.
Marklaus-
ir útreikn-
ingar
Ef mönnum væri hlátur í
huga um þessar mundir, mundu
menn brosa að ríkisstjórninni
og öllum vitlausu útreikningun-
um hennar.
Hún kvaðst fyrst hafa reikn-
að „viðreisnar“dæmið og allt
átti að vera slétt og fellt fyrir
atvinnuvegina.
Fijótt kom í ljós að okurvext-
irnir höfðu verið ákveðnir eftir
að dæmið var sett upp fyrir at-
vinnuvegina og þegar spurt var
hvernig slíkt fengi staðizt voru
svörin þau: það yrðu atvinnu-
vegirnir að taka á sig. i
Þá kom í Ijós, að 8% sölu-
skattur á innfluttar vörur (180
milljónir) hafði gleymst úr
dæminu og þá var enn sagt:
Það yrðu menn að taka á sig.
Ekki er að kynja þótt útkom-
an verði skrítin, enda hefur
ekkert staðizt.
Nú er ríkisstjórnin búin að
„reikna“, að „efnahagskerfið“
þoli 6% kauphækkun og þá
jafnframt að 10% kauphækkun
valdi dunandi verðbólgu og
grafi undan þjóðskipulaginu.
Menn kíma bara að þessum
fullyrðingum og minnast fyrri
útreikninga. Menn vita að ríkis-
stjórninni er í lófa lagið að
breyta stefnu sinni þannig með
vaxtnlækkun og öðrum hlið-
stæðum ráðstöfunum, að at-
vinnureksturinn geti staðið
undir hinu nýja kaupgjaldi.
Allt tal um óhjákvæmilega
gengislækkun í því sambandi
er ósvífin og ástæðulaus hótun
Bg ekkert annað. '
Mikil fiskigengd á
óvenjulegum tíma
Mjög mikil fiskigengd virð-
ist nú vera við Suðurland og
Austurland. Fyrir sömmu var
skýrt frá því, að þorsktorfur
væðu á Reyðarfirði, og sums
staðar á Austfjörðum hefur
verið mokafli á köflum í vor.
Togbátar frá Vestmannaeyjum
koma að landi með hlaðafla,
líkt og þegar vel fiskast á ver-
tíð.
Atvinna er nú svo mikil í Vest-
mannaeyjum um þessar mundir,
að unnið er í öllum fiskvinnslu-
Unnií) frá morgni til miSnættis í öllum fisk-
vinnsIustö'Övum í Eyjum
stöðvum frá klukkan rúm-lega sjö
á morgnana til miðnættjs. ísvar-
inn fiskur er fluttur jafnóðum til
erlendra hafna, og eru sjö eða
átta bátar í slíkum siglingum.
Mokafli í Eyjum
Afli togbátanna í Eyjum er oft
tuttugu og þrjátíu lestir í róðri,
og Gullborgin, sem Benóný Friðr
iksson er skipstjóri á, hefur feng
ið áttatíu lestir í þremur róðrum.
Handhafar gullrúbln-
anna ófundnir —
— en lögreglan komin á sporiÖ og veit um pilt,
er bau<$ fé<$ til kaups
Fólkið, sem hafði til sölu
rússnesku gullrúblurnar frá
aldamótum, og sagt var frá í
Tímanum í fyrradag, er enn
ófundið. Rannsóknarlögreglan
hefur nú komizt á snoðir um,
hvaða piltur það er, sem eink-
um hafði þennan fjársjóð
undir höndum, en hefur ekki
enn náð tangarhaldi á honum.
Eins og menn rekur minni til,
hafði piltur þessi boðið til sölu í
gullsmíðastofum bæjaiins tugþús-
unda virði af gullrúblum frá 1903
og 1904, og þótti tilkoma þessarar
gullrúblnamergðar ákaflega undar-
leg.
Piltsins er stöðugt leitað, og
standa vonir til, að hann finnist í
dag.
Eru sífellt fleiri og fleiri bátar
að fara á togveiðar. Humarbátar
í Eyjum hafa einnig aflað sæmi-
lega.
Dragnótaveiðar byrja nú um
miðjan mánuð1, og verður aflinn
fluttur út ísvarinn og aðallega til
Danmerkur. Búizt er við að færri
bátar en venjulega fari á síldveið
ar frá Eyjum.
Tregt hjá Hornfirðingum
Þrátt fyrir þessa fiskigengd fyr
ir sunnan land og austan, hafa
bátar frá Hornafirði fengið treg
an afla. Þetta eru aðallega færa-
bátar, en þó er einn bátur á tog-
veiðum, en afli hjá honum hefur
einnig verið tregur. Dálítið hefur
veiðzt af humar, en fer nú minnk
andi.
Það voru alls um sex smálestir
sem dreift var í gær á tvö svæði.
Annað svæðið var svonefndur
Breiðdalur, sem er suðvestur af
Helgafelli, 'norþan við Lönguhlíð-
ar, skammt frá Krýsmvíkurvegiij.-
um. Hitt svæðið er við Lyklafell,
aðallega norðan þess og austan,
en einnig'nokkuð sunnan við fell-
ið. Blasir það svæði við af vegin-
um austur yfir Hellisheiði, og
munu vegfarendur því geta séð í
sumar, hvaða áhrif áburðardreif-
ingin hefur þarna.
Þetta verk er unnið af Búnaðar-
sambandi Kjalarnesþings. Var
samþykkt á síðasta aðalfundi þess
að gera slíka tilraun, svo að menn
ættu þess kost að sjá, hvemig
þetta tekst og dæmt um, hvort
vert sé að leggja fram meira fé
til áburðardreifingar á landsvæði
þau, sem sauðfé úr byggðarlögum
hér vestan Hellisheiðar gengur á
á sumrin. Er líklegt, að öll sveit-
arfélögin á þessu svæði taki hönd
um saman um stórfelldari áburð-
ardreifingu, ef þessi tilraun þykir
heppnast vel.
Það munu vera um tíu þúsund
krónur, sem búnaðarsambandið
leggur fram til þessarar áburðar-
dreifingar, gegn framlagi frá
sandgræðslu ríkisins.
Vestmannaeyjaleiöin
Sú stefna, scm tckin var við lausn kaupgjaldsmálanna á Norð-
urlandi, var hin sama og mótuð var af atvinnurekendum í Vest-
mannaeyjum í vetur. Þar stóðu mest að Sjálfstæðismenn. Það
liefur ekki sézt ennþá neitt um það í Mbl., að þeir hafi unnið
með því pólitískt skemmdarverk eða gert þetta „til þess að
Framsóknarmenn kæmust í stjórn“, eins og svo gáfulega var
ályktað, þegar norðlenzkir samvinnumenn fóru eins að, til þess
að firra samtök sín og byggðarlög stórtjóni og koma sanngjarn-
lega til móts við Iægst launaða fólkið í landinu.
Það er ekki hægt að flokka æsingaskrif stjórnarblaðanna uni
þessi efni undir annað en hrein skrípalæti.
.V*X*V*V*V‘V»X*V»V*>.»X.‘V‘X*V»V»‘V*N,*X*‘V‘V*V‘V*V'V'V'V'V