Tíminn - 09.06.1961, Blaðsíða 11
•M I N N, föstudaginn 9. júni iíttfl.
M
Málið er komið
fyrir réttinn
Breving fær HfstíSarfangelsi, ef glæpirnir
sannastá hann
PASSID YKKUR
A SÚLINNI!
Eins og lesendur þessarar
síðu rekur ef til vill minni
til, röktum við ekki alls
fyrir löngu atvik í máli því,
sem rekið er af hálfu danska
ríkisins gegn hinum 35 ára
gamla skipasmið Erik Brev-
ing. Hann var leiddur í rétt-
arsalinn á mánudaginn var,
og nú fer að líða að því, að
dómur falli í máli hans, —
líkast til dómur upp á lífs-
tíðarfangelsi.
☆
Hann er kærður fyrir fer-
falt morð, íkveikju, trygginga-
svik og þjófnað. Málið er síðan
í ágústmánuði s. 1., en þá var
einn þjálfaðasti rannsóknarlög-
reglumaður Dana, G. Mártens-
son, í heimsókn á geðveikra-
hæli fyrir þá, sem komizt höfðu
í kast við lögregluna, og átti
tal við annan' fanga þar. Þá
sagði fanginn allt í einu:
— Það eru ekki allir eins
séðir og Breving, að geta drepið
fjórar manneskjur án þess að
vekja nokkurn grun. Það vita
margir hérna í þessu húsi, að
hann skipulagði þetta allt, þegar
hann var hérna síðast. Þá sagði
Breving, að hann ætlaði að drífa
í því að gifta sig, þótt svo að
sú eina sem vildi hann væri
krypplingur eða geðsjúklingur.
Svo ætlaði hann að líftryggja
hana fyrir háa upphæð, og síðan
að búa til slys. Eg er sjálfur leik
inn sundmaður. sagði hann.
Skrifaði sjálfur bréfið
Þótt sá, sem þetta sagði, væri
mjög hugmyndaríkur geðsjúkling
ur, varð hann samt orsök til
þess. að málið var tekið upp og
komst á rekspöl. Síðan hefur
rannsóknarlögreglan danska rað-
aiS knhhunum saman og safnað
þannig glóðum elds að höfði
Brevings. Sjálfur hefur hann ekk
ert meðgengið annað en að hann
hafi sjálfur skrifað. bréfið, sem
eftir slysið á Litlabelti, þegar
kona hans, sonur hennar og tveir
aðrir biðu bana, en hann sjálf-
ur bjargaði sér á sundi, fannst
í skáp konunnar og með hennar
undirskrift, en samkvæmt þessu
bréfi bar honum að fá eftir hana
tryggingabætur, sem námu 30
þús. krónum dönskum.
Fjögur atriði
Þessi fjögur, sem hann er
kærður fyrir að hafa myrt, eru
kona hans, frú Inger Toft Brev-
ing, 26 ára, þriggja ára sonur
hennar, Johnny, Torben Bebe.
skipasmiður frá Óðinsvéum, 23
ára, og Svend Bang Hansen,
' skipasmíðastöðvareigandi, Midd
elfart, 39 ára. Og hér á eftir er
greint trá fjórum helztu atrið-
um málsins, sem kviðdómurinn
á að glöggva sig á og taka af-
stöðu til:
1. Hvernig stóð á, að tveir
jafn sjóvanir menn og Torben
Bebe og Svend Bang Hansen
skyldu drakkna? Þeir voru báðir
afburða góðir supdmenn og það
er ólíklegt, að þeir gengju af
göflunum, þótt eldur kæmi upp
í bátnum.
2. Hvers vegna var björgunar-
belti frú Inger Toft Breving
bundið á hana með rembihnút
á bakinu, og hvers vegna var
hún í skónum, þar sem rann-
sóknir hafa leitt í ljós, að drukkn
andi manneskjur missa alltaf
skófatnaðinn?
3. Hvers vegna lézt Johnny
litli, úr þvi að stjúpfaðir hans
stökk með hann í fanginu fyrir
borð og sleppti honum ekki fyrr
en um borð í tollbátnum, sem
bjargaði þeim?
4. Hvers vegna bað Erik Brev-
ing kunningja sinn um að vera
viðstaddan þegar hann opnaði
skápinn, þar sem bréf konu hans
fannst, úr því að hann hefði ekki
hugmynd um, að hún hefði skilið
neitt skriflegt eftir sig?
Rannsóknarlögreglan hefur
fyrir löngu myndað sér skoðanir
um það. hvernig svara skuli
þessum spurningum, og hvað sé
rétt og satt í málinu. Og á kom-
andi dögum mun það koma í Ijós,
ef Breving fæst til þess að segja
eitthvað, þegar hann heyrir hvað
fyrir liggur af sönnunargögnum.
Eitur í líkunum
Einnig er þess beðið með
miklum spenningi, hvað efna-
greining á líkúm fjórmenning-
anna hefur leitt í ljós. Meðal
þeirra 60 vitna, sem eiga að
koma fyrir réttinn, er prófessor
í efnafræði að nafni Knud O
Möller. Það er vitað, að i lík-
um frú Breving og Svend Bang
Hansen fannst eitur af svonefnd
um bladan-flokki.
Það verður fróðlegt að fylgj
ast með. hvernig þetta fer.
Það er algengt, úr því
komið er fram á sumar, að
sjá fólk á götunum, sem
manni virðist að hafi orðið
fyrir slæmri árás blessaðrar
sólarinnar, og altíða að
heyra fólk kvarta undan því,
hvað það sé meinlega sól-
brunnið. Því var það, að þeg-
ar við rákumst á grein í
dönsku blaði um það, hvern-
ig hægt væri að komast hjá
sólbruna eða hvað væri hægt
að gera við honum, væri
hann kominn, tókum við feg-
ins hendi við henni og ætl-
um okkur nú að mennta ís-
lenzka lesendur með þess-
um fróðleik. Og það er
danskur húðsjúkdómafræð-
ingur, dr. med. P. H. Nex-
mand, sem hefur orðið:
Hydrocortison smyrsl geta
hjálpað til að draga úr sólbruna.
Sá sem notar þannig smyrsl, losn
ar venjulega við óþægindin á
skömmum tíma. En þessi smyrsl
fást aðeins eftir lyfseðli. Hvort
þau séu dýr? Nei, ekki í saman-
burði við fegurðarlyfin með
fínu nöfnunum.
B-vítamín lítið að segja
Að mínu viti er það ímyndun,
að B-vítamín geri nokkurt gagn
við sólbruna. B-vítamín hefur því
aðeins áhrif, að sá sem þeirra
neytir, fái ekki nægilega fjöl-
breytta fæðu. En það er ekki sá
hópur marina, sem í mestu óhófi
nýtur sólarinnar, þar sem B-víta-
mínskort er oftast að finna hjá
fólki, sem komið er á ellilaun
og krónískum alkóhólistum, sem
ekki fá nóga næringu vegna alkó-
hólnautnar sinnar.
Til að fyrirbyggja sólbruna
Til þess að fyrirbyggjá sól-
bruna er bezt að nota Lucosil
smyrsl, sem vernda gegn ljós-
geislunum, en það er eins með
þessi smyrsl og Hydrocortison,
að þau fást ekki nema út á lyf-
seðla. En nú spyrjið þið ef til
vill: — En það hlýtur að vera
hægt að fá einhver góð meðul,
sem ekki þarf lyfseðla fyrir? Og
því get ég aðeins svarað þannig,
að á hverju ári fá húðsjúkdóma-
lækmarniir mikinn fjölda sjúk-
linga, sem hafa fengið ofnæmi
fyrir hinum ýmsu sólbrunasmyrsl
um, sem þeir hafa smurt á sig
yfir sumartímann.
Exem og húðormar
Húðin verður rauð og fær
smáblöðrur með vessa í og það
stafar af því, að líkaminn hefur
smám saman myndað sér mót-
eitur gegn þessum efnum, svo
að notkun þeirra myndar exem.
Sum-smyrslanna eða olíutegund-
anna framkalla þar að auki húð-
orma, en engin þessara meðala
draga nægilega úr áhrifum sól-
argeislanna.
Olívu- eða jarðhnetuolía
Það, sem bezt væri fyrir al-
menning að nota,. er ólívuolía eða
jarðhnetuolía. Þessar olíur
vernda húðina ekki gegn geisl-
um sólar, en hafa m.a. þann kost,
að þær gera húðina fallega og
mjúka, og innihalda ekki efni,
sem geta framleitt exem, ems
og raunin er um alls konar feg-
urðarlyf og olíur.
Hrukkur og blárauðar
kinnar
Að öðru leyti ættu sóldýrkend
ur að hafa það hugfast, að sólin
gerir fleira en að mynda brúnan
húðlit. T.d. gerir hún hornlag
húðarinnar þykkara, og ef kon-
urnar gerðu sér ljóst, hvað það
hefur að segja með. tilliti til
hrukkumyndunar, þegar fram
(Framhald á 15. síðu).
11. síðan