Tíminn - 09.06.1961, Page 13
rÍMI N.N, fostudaginn 9. jmii 1361,.
13
Uppetdbmálaþing
(Framhald aí 7. síðu).
að láta þegar í sumar seuija
frumvarp til laga um samnings
rétt opinberra starfsmanna og
vinna að því að fá pað flutt
á næsta reglulega Alþingi.
2. Uppeldismálaþing S.Í.B. og
L.S.FJK. ítrekar fyrri kröfur
samtakanna um stúdentsrétt-
indi kennara og þar með rétt-
indi til háskólanáms.
Enn fremur skorar þingið á
nefnd þá, sem nú undirbýr laga
frumvarp um menntun kenn-
ara að hraða störfum eftir
megni.
3. Uppeldismálaþingið skorar á
íslenzk stjómarvöld að vinna
nú þegar að því, að ísland
verði aðili að Menningar- og
vísindastofnun Sameinuðu þjóð
anna, UNESCO.
4. Þingið skorar á menntamála-
ráðherra að beita sér fyrir af-
námi tolla af innfluttum
kennslutækjum.
í sambandi við þingið var opn
uð sýning þýtzkra kennslutækja
í Hagaskólanum. Á sýningunni,
sem er opin almenningi, er
margt vandaðra kennslutækja,
sem mikill ávinningur væri fyrir
íslenzka skóla að eignast.
Eins og fyrr segir var þingið
mjög fjölsótt. Gengu þingstörf
greiðlega, og einhugur og sam-
staða ríkti um afgreiðslu mála.
ASalfundur KEA
(Eramhaio ai 9. síðu.)
tveggja ára. Sigurður Stefánsson,
vígslubiskup, var endurkjörinn í
Menningarsjóð KEA til 3ja áxa.
Þessir voru kjörnir aðalmenn á
aðaifund SÍS: Jónas Kristjánsson,
Jakob Erímannsson, Ingimundur
Ámason, Jón Jónsson, Brynjólfur
Sveinsson, Helgi Símonarson,
Bernh. Stefánsson, Björn Jóhanns-
son, Eiður Guðmundsson, Ketill
Guðjónsson, Torfi Guðlaugsson,
Angantýr Jóhannsson, Hólmgeir
* Þorsteinsson og Halldór Ásgeirs-
son.
Merkilegur sjóíur
Menningarsjóður KEA var stofn
aður 1934. Tekjur voru 25% af
hagnaði af verzlun við utanfélags-
menn. Á aðalfundi 1959 var sam-
þykkt að allur ágóði af Efnagerð-
inni Flóru skyldi renna til sjóðs-
ins. Síðasta ár nam sú upphæð
137.332.17 kr.
Þessi sjóður hefur lagt 400 þús.
krónur til menningarmála í hérað-
inu. Það mun fágætt að nokkur
félagssamtök ákveði slíkan tekju-
stofn til menmngarmála af eigin
fé og er þetta eyfirzkum samvinnu
ruönnum til mikils sóma. E.D.
í tilefni af 75 ára afmæli félags-
ins, samþykkti fundurinn að veita
50 þús. kr. til Zontaklúbbs Ak.
vegna viðgerðar og lagfæringar á
Nonnahúsi; til skíðaskálans í Hlíð-
arfjalli 50 þús. króna og kr. 100
þús. til Byggðasafns Eyjafjarðar.
Ennfremur voru veittar úr Menn-
ingarsjóði félagsins þessar fjár-
hæðir: Til heimavistarbamaskóla
að Laugalandi í Glæsibæjarhreppi
30 þús. kr., Kvenfélagsins Hlífar
á Akureyri, vegna bamaheimilis
10 þús. kr., Ungmennasambands
Eyjafjarðar 10 þús. kr., Flugbjörg-
unarsveitar Akureyrar 10 þús. kr.,
K. F. U. M., Akureyri, 10 þús. kr.
og Tónlistarskóla Akureyrar 10
þúsund krónur.
Vorþing umdæmisstúkunn-
ar mótmælir Ijdsmyndum af
nvju brennivínsmiðunum
Á VÍÐAVANGI ..
(Framhald af 7. síðu).
meg hverjum degi, sem verkföll
in standa og hún reynir ekkert
til að leysa þau, en lætur í þess
stað blöð sín ausa svívirðingum
yfir þá, sem vinna að skynsam-
legri lausn þeirra og reyna að
forða þjóðarheildinni frá stór-
felldu tjóni. -
Vorþing Umdæmisstúkunnar nr.l
1 var haldið í Reykjavík 27. maL
1961. Kjörbréf bárust frá 3 þing-
stúkum, 6 barnastúkum og 1 ung-[
mennastúku, með 83 fulltrúa, en
þingið sátu 68 fulltrúar.
Umdæmistemplar lagði fram á
þinginu fjölritaða skýrslu um starf1
semina á s. 1. ári, ásamt reikning-|
um Umdæmisstúkunnar og barna-
heimilisins að Skálatúni.
Á i'ekstri barnaheimilisins að
Skálatúni hefur orðið sú breyting,
að samstarf hefur tekizt milli Um-
dæmisstúkunnar nr. 1 og styrktar-
félags vangefinna um rekstur
barnaheimilisins. Hafa þegar haf-
izt þar byggingar yfir starfsfólk,
og vonir standa til að bygging nýs
vistheimilis geti risið upp innan
ekki mjög langs tíma.
Á síðast liðnu sumri gekkst Um-
dæmisstúkan fyrir móti bindindis-
jmanna í Húsafellsskógi um verzl-
unarmannahelgina. Þangað komu
menn víðs vegar að af landinu og
mótið mjög fjölsótt og þótti tak-
ast með ágætum. Ákveðið er að
hafa slíkt mót aftur á þessu sumri.
Á þinginu voru rædd ýms hags-
munamál Umdæmisstúkunnar og
Góðtemplarareglunnar í heild. Sam
þykktar voru eftirfarandi tillögur:
1. Umdæmisstúkan nr. 1 vottar
alþingismönnum þakkir fyrir að
þeir veittu ekki stuðning sinn
frumvarpi Péturs alþm. Sigurðs-
sonar um sterkan bjór. Einnig
þakkar Umdæmisstúkan sérstak-
lega þeim alþingismönnum, er
beittu sér móti frumvarpinu í um-
ræðum á alþingi, svo og öllum
þeim, er með blaðaskrifum og um-
ræðum lögðust á móti því að þess-
um vágesti væri sleppt lausum í
landinu, til viðbótar því áfengi,
sem fyrir er lögleifð sala á.
2. Umdæmisstúkan nr. 1 lýsir
ánægju sinni yfir því, live lögregl-
an hefur gengið skelegglega fram
í því að koma upp um leynivínsölu
atvinnubílstjóra, og væntir þess að
því verði ,fram haldið með fyllstu
árvekni.
3. Umdæmisstúkan skorar á
stjórn Reykjavíkurbæjar og ríkis-
stjórn að leggja niður áfengisveit-
ingar í opinberum veizlum. Það
fordæmi er af því skapast mundi
verða þungt á metunum í barátt-
unni gegn áfengistízkunni.
4. Umdæmisstúkan nr. 1 beinir
því til menntamálaráðherra eða
viðkomandi stjórnarvalda, að gera
strangar kröfur um bindindissemi
til kennara og nemenda í þeim
skólum, er hafa það hlutverk að
undirbúa og útskrifa kennara og
uppalendur fyrir æskuna.
Umdæmisstúkan nr. 1 lítur svo
á, að ríkisvaldið ætti að gera
kröfu um fullkomna bindindissemi
til þeirra, sem falið er að sjá um
menntun æskunnar af hálfu ríkis-
ins.
5. Umdæmisstúkan nr. 1 gcrir
þá kröfu til viðkomandi stjórnar-
valda að þau samkomuhús verði
umsvifalaust svipt veitingaleyfi,
er verða sönn að sök um að brjóta
ákvæði áfengisiaganna.
6. Með tilliti til þess ákvæðis
áfengislaganna í 5. kafla 16. grein,
sem bannar áfengisauglýsingar, til
þess að koma í veg fyrir óheilla-
vænlegan áróður fyrir áfengis-
neyzlu, átelur Umdæmisþingið, að
gefnu tilefni, allan slíkan áróður
í blöðum og útvarpi, svo sem þeg-
ar blöðin birtu nýíega frásagnir
með myndum, jafnvel á forsíðu, af
hinum nýju flöskumiðum áfengis-
verzlunarinnar, ræddu um hina
gömlu með sárum söknuði, eða
hengdu myndir af hinum nýju,
sem auglýsingar, upp á blaðsölu-
stöðum í Reykjavík o. e. t. v. víðar.
7. Til þess að reyna að bæta
úr því ófremdarástandi, sem nú i
rikir í áfengismálum þjóðarinnar
telur Umdæmisþingið óhjákvæmi-
legt að afnema með öllu áfengis-
veitingaleyfi til einstakra félags-'
samtaka, eða stjórna þeirra, sem
nú eru heimilir samkvæmt 20. gr.
áfengislaganna.
Framkvæmdanefnd Umdæmis-
stúkunnar var öll endur'kosin, en
hana skipa: Umdæmistemplar:
Hreiðar Jónsson, Umdæmiskanzl-
ari: Kjartan Ólafsson, Umdæmis-
varatemplar: Margrét Sigmunds-
dóttir, Umdæmisritari: Sigurður
Guðmundsson, Umdæmisgjaldkeri:
Páll Kolbeins, Umdæmisgæzlumað-
ur unglingastarfs: Hilmar Jónsson,
Umdæmisgæzlumaður Löggjafar-
starfs: Karl Karlsson, Umdæmis-
fræðslustjóri: Jón Hjörtur Jóns-
son, •Umdæmiskapelán: Kristjana
Benediktsdóttir, Umdæmis fregn-
ritari: Guðmundur Þórarinsson,
Fyrrum Umdæmistemplar: Þórður
Steindórsson.
640 bls. fyrir aöeins 65 kr.
er kostaboð okkar þegar þér gerizt áskrifandi aS
heimilisblaðinu SAMTÍÐIN
sem flytur:
★ Bráðfyndnar skopsögur.
★ Spennandi smásögur og framhaldssögur.
★ Hina fjölbreyttu kvennaþætti Freyju.
★ Skákþætti GuSmundar Arnlaugssonar.
★ Bridgeþátt Árna M Jónssonar
★ Afmælisspádóma og draumaráSningar.
★ Úrvalsgreinar frumsamdar og þýddar.
Svo að fátt eitt sé nefnt af hinu vmsæla efni blaðsins.
10 blöð á ári fyrir, aðeins 65 kr.
og nýir áskrifendur fé einn árgana i kaupbæt' ef ár-
gjaldið 1961 fylgir pöntun Pöstsendið i das eftirfarandi
pöntunarseðil:
Ég undirnt óska að eerast áskrifand) að SAMTÍÐ
INNl og sendi hér með árgialdið 1961 65 kr. (Vinsam-
legast sendíð bað i ábvrsðarbrét) eða póstívisunl
Nafn .........................................
Heimili ......................................
Utanáskrift okkar er SAMTÍÐIN Pósthólt 47i?. Rvík
Lögfræðiskrifstofa
Laugaveg) 19
SKIPA OG BÁTASALA
Tómas Arnason hdl
VilhjáliT>u» Arnason nd)
Simar 74635 oa 16307
Bíla- & búvélasalan
Símar 2-31-36 & 15-0-14.
Til sölu
Willys Station ’53 í mjög
góðu ástandi. Skipti á Rússa
Jeppa í góðu ásigkomulagi,
helzt með húsi, koma til
"reina
BÍLA & BÚVÉLASALAN
Ingólfsstræti 11.
Laxveiðitíminn
er byrjaður
Höfum fyrirliggjandi mikið
og gott úrval af hvers konar
laxveiðitækjum s. s.:
9 feta kasfsfengur úr holb,
amerískum glasfíber, frá
kr. 902.00. Ársábyrgð.
Flugustengur 9—13 feta.
Fluguhjól og kasthjól.
Gladding kastlínur.
Bretton spinnhjól á kúlu-
legum. Kosta aðeins kr.
494.00.
Veiðitækjakassar.
Spúna- og flugubox.
Vöðlur.
Háfar frá kr. 85.00.
Laxaflugur og spúnar 1
úrvali.
PÓSTSENDUM.
Sími 13508
Kjörgarði, Laugavegi 59
Austurstræti 1.
BlaÖið
sem
iiúðin
finnur
ekki
fyrir
Raksturinn
sannar það
Clllette er skrásett vörumerkl