Tíminn - 09.06.1961, Blaðsíða 16
Föstudaginn 9. júní 1961.
128. blatf.
-!-
Tónskáld í upp-
streymi yfir
Sandskeiðinu
Frá því um miðjan maí hafa
staðið yfir á Sandskeiðinu
stöðug svifflugnámskeið og
mun svo verða fram í sept-
ember. Námskeiðin, sem
standa í hálfan mánuð hvert,
eru ætluð byrjendum í svif-
flugíþróttinni. Flugkennslan
fer fram í tveggja sæta nýrri
og fullkominni kennsiuflugu
af Rhönlerche-gerð sem Svif-
flugfélagið keypti frá Þýzka-
landi í vor. Þessi tegund mun
vera sú fullkomnasta sem nú
er notuð til kennslu nýliða.
Kennslan hefur gengið mjög
vel enda hefur veður verið
hagstætt til svifflugiðkana.
Nemendur af fyrsta námskeiS-
inu sem hófst 15. maí eru sem óð-
ast að ljúka prófum, en um og
eftir næstu helgi má reikna með
að margir þeirra, sem eru á nám-
skciði því sem hófst um mánaða-
mótin síðustu, taki próf.
Þegar hafa verið flogin um 450
flug á þessum tveim fyrstu nám-
skeiðum, nokkrir hafa lokið C
prófi, einn hefur nýlega flogið í 5
klukkustundir og lokið þar með
einum þætti hins eftirsótta Silfur-
C prófs.
Þá hafa allmargir hinna eldri
meðlima Svifflugfélagsins æft hita-
uppstreymisflug, hafa skilyrði til
Ensk ljóð eftir
dóttur Einars
Benediktssonar
Erla Benediktsdóttir, dóttir Ein
ars Benediktssonar, hefur dvalizt
erlendis um langt árabil. Nú hef-
ur útgáfufyrirtæki í Englandi,
Arthur H. Stockwell, gefið út
bækling með átján Ijóðum á ensku
eftir Erfu.
FURTSÉVA í
ÞJÓÐLEIKHÚS-
INU í KVÖLD
í kvöld verður menntamálaráö-
herra Sovétrikjanna, Ekaterina Fúrt-
séva, gestur í þjéðleikhúslnu. Fyrir
nokkru voru pantaðlr 35 miðar á
Sígaunabaróninn fyrir ráðherrann,
föruneyti hans og gesti. Þetta verð-
ur níunda sýningin á Sigaunabarón-
inum, og hefur verið uppselt á allar
sýningar. Óperettan er nú sýnd fjór-
um sinnum í viku, og verður því
haldið áfram allan þennan mánuð,
en þá lýkur leikári þjóðleikhússins.
Myndfn er af Sigurveigu Hjaltested
f hfútverkl sínu í Sfgaunabarónlnum.
þess verið ágæt í sólskininu sem
verið hefur upp á síðkastið.
Þessi tvö fyrstu námskeið félags-
ins hafa verið fúllskipuð og mun
langt komið að fylla þriðja nám-
skeiðið sem hefjast mun strax eftir
helgina næstu, 12. júní. Kennslan
á þessu næsta námskeiði mun fara
fram eftir vinnutíma á hverju
kvöldi.
í júlí hefjast svo dagnámskeið
sem aðallega eru ætluð fólki sem
nota vill sumarfrí sitt til svifflug-
náms og iðkana. Þeir sem þátt taka
í þeim munu geta búið í svefnskál-
um Svifflugfélagsins og rekið
verður mötuneyti í sambandi við
þau námskeið. Þó mun verða tekið
á móti nemendum sem óska að búa
í bænum, en koma til æfinga á
morgnana, er þessi möguleiki hafð
ur opinn vegna fjölskyldu fólks
sem dvelja vill á heimilum sínum
um nætur. Dagnámskeiðin munu
að líkindum verða 4—5 þannig að
alls verða 7—8 kvöld- og dagnám-
skeið á vegum Svifflugfélags ís-
lands í sumar!
Upplýsingar um svifflugnámið
eru veittar í Tómstundabúðinni í
Austurstræti 8, og á Sandskeiði,
en þar geta menn einnig fengið sér
hringflug í svifflugum fyrir lágt
gjald um helgar, er það tilvalið
fyrir þá sem kynnast vilja svifflugi
áður en þeir taka ákvörðun um
þátttöku í námskeiði.
Svifflug er stundað af fólki á
öllum aldri, bæði konum og körl-
um. Á yfirstandandi námskeiði eru
t d. ein flugfreyja, þekkt tónskáld,
skrifstofustjóri opinbers fyrirtæk-
is, blaðamaður, skólafólk og iðnað-
armenn,
Snögg veðrabrigði > Minningargjöf i sjóð
Síðastliðinn sunnudag gerði ógurlegt þrumuveður i Danmörku
og fylgdi því steypiregn — raunar skýfall. Hafði verið tuttugu og
sjö stiga hiti, áður en þessi snöggu veðrabrigði urðu.
Úrkoman varð svo gífurleg, að æðar fylltust og götur og vegir
flutu í vatni. í Glostrup stöðvaðist bílaumferð sökum vatnsflóðs,
og þar rann inn í fjölda húsa, svo að börnin gátu látið báta sigla á
stofugólfunum.
Myndirnar hér að ofan eru svipmyndir frá þessum degi. Hin efri
er af veitingastað i Glostrup. Gestirnir eru allir flúnir, enda ökla-
vatn á gólfinu, en veitlngamaðurinn hefur farið úr skóm og sokk-
um og styttir sér stundir við bllljardborðið sitt, Neðrl myndin var
tekln meðan sólin skein — ung stúlka liggur á ströndinni og bakar
sig þennan sólheita dag — áður en gáttir himinsins opnuðust.
lamaðra og fatlaðra
Fyrir nokkru, afhenti frú Hélga ;
Jónsdóttir gjöf til Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra að upphæð
2000 krónur.
Gjöf þessi er til minningar um
frú Ingijörgu Bjömsdðttur frá
Bæ í Borgarfirði frá nokkrum
gömlum nemendum og kunningj-
um hennar. Frú Ingibjörg lézt 7.
september 1945, en mundi þann
dag hafa orðið áttræð, hefði hún
lifað.
Kynsjúkdómafaraldur með-
al ungra stiílkna í Kaupm.höfn
í vikuriti danskra lækna er
skýrt frá því, að kynsjúkdóm-
ar séu mjög magnaðir meðal
ungs fólks í Kaupmannahöfn
og sex til sjö sinnum tíðari en
annars staðar í Danmörku.
1 Segir þar, að hætta sé á, að
kynsjúkdómarnir verði bein-
línis að faraldri.
Síðastliðið ár hefur hraðfjölgað
þeim stúlkunum í Kaupmannahöfn,
fimmtán til nítján ára gömlum, er
sýkjast af kynsjúkdómum, og er
nú talið, að í Danmörku séu sýktar
um 3500 stúlkur á þessum aldri.
Segja læknarnir, að þetta sé svo
mikil útbreiðsla, að tala megi um
faraldur í þessum aldursflokki,
að minnsta kosti í Kaupmanna-
höfn, þar sem hlutfallstalan er
hæst. Meðal pilta á þessum aldri
eru aftur á móti mun minni brögð
að kynsjúkdómunum.
Allt fram að þessu hefur stúlk-
um, sem sýkjast, farið fjölgandi,
og læknar telja hættu á, að sjúk-
dómarnir breiðist út meðal eldra
fólks.
Hér er þess og ,að geta, að nú
er ekki lengur jafnauðvelt að ráða
niðurlögum lekanda og var fyrir
nokkrum árum. Sýklarnir þola
penisillín miklu betur en þeir
gerðu í upphafi, og nú eiu til
sýklastofnar, er þurfa tvítugfaldan
skammt af því, miðað við það, sem
dugði fyrir sextán árum, þegar
notkun penisillíns hófst í Dan-
mörku.
Þótt enn heppnist að lækna
þorra sjúklinga, eru ávallt nokkrir,
sem ekki læknast, og frá þeim
breiðist út stofn sýkla með sí-
|auknu mótstöðuafli gegn penisill-
, íni.
Rannsóknir í Finnlandi, þar sem
jvið svipað vandamál er að stríða,
hafa leitt í ljós, að þorri þeirra
unglinga, sem fær kynsjúkdóma
þar í landi, sýkist í sambandi við
Iferðir á skemmtistaði úti á landi.
Happdrætti F.U.F.
F.U.F.-félagar. Dregið í happdrættinu á morgun. Hverjir verða hin-
ir heppnu? Munum að margar hendur vinna létt verk. Komið —
gerið skil — vinnið.
Leggið greiðslu inn á hlaupareikning félagsins i Samvinnuspari-
sjóðnum, hann er opinn daglega kl. 10—12,30, 14—16 og 18—19.
Einnig verður skrifstofa félagsins opin í Framsóknarhúsinu til mið-
nættis, sími 12942.