Tíminn - 12.10.1961, Qupperneq 12
12
T f MIN N, fimmtudaginn 12. október 1961. /
JJyrotí&t
RITSTIORl HALLUR SlMONARSON
ÍVEikii starfsemi Hand-
knattleikssambandsins
Ársþing Handknattleikssam-
bands íslands var háS á laugar-
daginn í íþróttahúsi KR vitf Kapla
skjólsveg. Um 30 fulltrúar sátu
þingið. ingforsetar voru Hafsteinn
Guðmundsson, Keflavík og Magn-
ús Jónsson, Reykjavík, en þingrit
ari Haukur Bjarnason. Umræður
á þinginu urðu hinar fjörugustu
og stóðu fram 'á kvöld.
Ásbjörn Sigurjónsson, formaður
handknattleikssámbandsms flutti
skýrslu stjórnarinnar og kom þar
fram, að mikið hefur verið starfað
á árinu, og góður árangur náðst.
Samskipti við útlönd
Einn kafli ársskýrslunnar fjall-
aði um samskipti við útlönd, utan-
farir landsliða. ísland tók þátt í
heimsmeistarakeppninni í Þýzka-
landi með mjög góðum árangri
og komst í úrslit keppninnar.
Vakti þetta að vonum mikla at-
hygli, þar sem lið milljónaþjóða
komust ekki svo langt, Og einnig
var mikið skrifað um það í erlend
blöð að ísland hefði átt bezta
handknattleiksmanninn í keppn-
inni.
Til gamans skal það rifjað upp,
hvernig eins-takir leikir íslenzka
liðsins fóru í keppninni.
ísland—Danmörk 13—24
ísland—Sviss 14—12
ísland—Tókkóslóvakía 15—15
ísland—Svíþjóð 10—18
ísland—Frakkland 20—13
fsland—Ðanmörk 13—14
Ásbjörn Sigurjónsson endurkjörinn formaSur
Af þessum tölum sést hve mikil
framför íslenzka liðsins hefur
verið í keppninni. Fyrsti leikurinn
við Dani tapaðist með 11 marka
mun, en hinn síðasti með eins
marks mun. Glæsilegast var þó
jafnteflið við Tékka, sem urðu í
öðru sæti í keppninni.
Vegna þessa góða árangurs er
ísland nú hátt skrifað í hand-
knattleiksheiminum, og hafa Hand
knattleikssambandi íslands boðizt
ýmislegt vegna þess og má þar
nefna landsleik við Sviss og keppn
isför til Balkanlandanna, auk
möguleika á þátttöku á Ólympíu-
lekiunum í Japan 1964.
Þá fóru nokkur félagslið er-
lendis á árinu og náðu ágætum
árangri. M þar nefna hina vel
heppnuðu Norðurlandaför meist-
araflokks Víkings í kvennaflokki.
Erfiður fjárhagur
Valgeir Ársælsson, gjaldkeri
sambandsins, flutti skýrslu um
fjrmálin og kom þar fram, að fjár-
hagur þess er eins og áður fremur
erfiður. Reksturshagnaður er að
vísu nokkur, en þau verkefni,
sem leyst hafa verið hafa verið
fjárfrek, auk þess, sem reynt hefur
verið að grynna nokkuð á skuld-
um sambandsins.
Forseti ÍSÍ, Benedikt G. Waage,
sat ársþingið. Hann flutti kveðju
frá íþróttasambandinu og þakkir
fyrir frábær störf og góðan ár-
angur.
Ásbjörn Sigurjónsson var end-
urkjörinn formaður HSÍ, en aðrir
í stjórn eru Axel Einarsson, Vík-
ing, Valgeir Ársælsson, Val, Axel
Sigurðsson, Fram, og Valgarð
Thoroddsen, FH, en hann er nýr
í stjórninni.
Danska knatt-
spyrnan
Aðeins fjórir leikir eru nú eftir
í dönsku deildakeppninni og er
keppni mjög hörð í 1. deild milli
Esbjerg og KB. Bæði liðin hafa
hlotið 27 stig, en markahlutfall
Esbjerg er miklu betra. Esbjerg
sigraði ATA á sunnudaginn 5—0 í
Árósum, en KB vann Óðinsvéaliðið
; B1913 í Kaupmannahöfn með 3—0.
B1913 leikur í Evrópubikarkeppn-
inni fyrir Danmerkur hönd, var í
|efsta sæti í deildinni í vor þegar
■keppnin var hálfnuð. ATA er nær
I örugglega fallið úr deildinni með
átta sig. Næst neðst eru OB og
i Vejle með 12 stig, en Fredriks-
havn — lið Haraldar Nielsen —
hefur 14 stig, og ekki unnjð leik
siðan Haraidur fór til Ítalíu. Liísíð
er nú talið i mestri fallhættu, auk
ATA, tapaði fyrir Vejle á sunnu-
daginn með 4—1.
Gunnlaugur Hjálmarsson, ÍR, — var af mörgum sérfrasðingum talinn bezti
handknattleiksmaðurinn í heimsmeistarakeppninni.
Afrekaskrá kvenna í frjálsum íþróítum 1961
Jóhannes Sölvason, form. FRI, tók saman
Mikill áhugi var meSal ís-
lenzkra stúlkna fyrir frjálsum
íþróttum í sumar — og marg-
ar náðu ágætum árangri, þótt
þar beri hæst íslandsmet Sig-
rúnar Jóhannsdóttur, Akra-
nesi, í hástökki, en hún stökk
1,50 metra, og er það eitt
bezta kvennametið. Jóhannes
Sölvason, formaður Frjáls-
íþróttasambands íslands, hef-
ur tekið saman afrekaskrá
kvenna i sumar og fer hún
hér á eftir:
100 m. hlaup:
Guðlaug Steingrímsd. USAH 13,0
Helga ívarsdóttir, HSK, 13,3
Björk Ingimundard. UMSB 13,3
Rannveig Laxdal, ÍR 13,4
Sigrún Jóhannsdóttir, ÍA 13,5
Guðrún Ólafsdóttir, HSK, 13,6
Inga Helen, ÍBK 13,6
Margrét Hafsteinsd., USAH. 13,6
Svandís Hallsdóttir, HSH, 13,6
Hlín Daníelsdóttir, ÍA 13,7
Helga Guðmundsdóttir. USAH 13,8
Ester Bergmann, UMSK, 13,8
Oddrún Guðmúndsd UMSS, 13,8
Engibjörg Sveinsdóttir, HSK, 14,0
Ragnheiður Stefánsd., HSK 14,0
Helga Sveinbjörnsd., HSH, 14,0
Ásta Karlsdóttir, USAH, 14,0
Gígja Hermanmsdóttir, HSV, 14,1
Elísabet Hallsdóttir, HSH, 14,1
María Daníelsdóttir ,UMSE, 14,1
200 m. hlaup:
Rannveig Laxdal, ÍR, 28,3
Guðlaug Steingrímsd. USAH, 28,5
Helga ívarsdóttir, HSK, 29,4
Oddrúm Guðtoundsd., UMSS 29,7
Mikkalína Pálmadóttir, HSV 29,9
Gígja Hermannsdóttir HSV 30,1
Anna Guðmundsdóttir UMSS 30,4
Margrét Hafsteind.. USAH. 30,4
Guðrún Ólafsdóttir, HSK, 30,9
Guðrún Jónasdóttir. UMSE 31,1
María Daníelsdóttir. UMSE. 31,2
Margrét Sveinbergsd.. USAH 31,3
Ragnheiður Stefánsd., HSK 31,6
Ásta Karlsdóttir, USAH, 32,0
Kristín Lúðvíksdóttir, USAH 32,1
Helga Guðmundsd., USAH 32,2
Bergdís Sigmarsdótir USAH 33,2
Guðrún Róbertsdóttir, ÍR 33,7
80 m. grindahlaup:
Rannveig Laxdal, ÍR 14,6
Ingibjörg Sveinsdóttir HSK 15,4
Ásta Karlsdóttir, USAH 17,0
Guðrún Róbertsdótir, ÍR 18,6
Langstökk:
Kristín Einarsdóttir, UÍA, 4,92
Guðlaug Steingríms'd. USAH 4,90
Helga ívarsdóttir, HSK, 4,75
Oddrún Guðmundsd., UMSS, 4,72
Kristín Harðardóttir, UMSK, 4,58
Guðrún Ólafsdóttir, HSK, 4,56
Sigrún Jóhammsdóttir, ÍA 4,56
Ingibjörg Sveinsdótir, HSK. 4,54
Björk Ingimundard., UMSB 4,54
Elísabet Sveinbjörnsd., HSH, 4,51
Heflga Sveimbjömsdóttir HSH 4,51
Rakel Inigvarsdóttir, HSH 4,50
Ásta Karlsdóttir, USAH, 4,50
Mikkalína Pálmadóttir, HSV. 4,47
Guðrún Jóhannsdóttir, HSÞ. 4,47
Guðrún Gestsdóttir, UMSB. 4,46
Hlín Daníelsdóttir, ÍA, 4,46
Raunveig Laxdal, ÍR 4,44
Þorgerður Guðmundsd. UMSE 4,44
Sigríður Sigurðard., UMSK, 4,43
Ilástökk:
Sigrún Jóhannsdóttir, ÍA, 1,50
Sigrún Sæmundsdóttir, HSÞ. 1,42
Jórnína Hlíðar, UMSB, 1,40
Helga ívarsdóttir, HSK, 1,40
Kristín Guðmundsdóttir, HSK 1,39
Svala Lárusdóttir. HSH, 1,37
Gígja Hermanmsdóttir, HSV 1,35
Björk Ingimundard., UMSB 1,35
Guðrún Jóhannsdóttir, HSÞ 1,35
Helga Sveinbjörnsdóttir, HSH 1,35
Anna Magnúsdóttir, HSS, 1,32
Móeiður Sigurðardóttir, HSK 1,30
María Daníelsdóttir, UMSE, 1,30
Kristín Einarsdóttir, UÍA, 1,30
Sigriður Karisdóttir, UMSB 1,30
Rannveig Laxdal, ÍR 1,29
Ester Bergmann, UMSK, 1,27
Katrín Guðtoundsdóttir, HSK 1,25
Ragnheiður Pálmadótir, HSK, 1,25
Jónína Ingólfsdóttir, HSV 1,25
Kúluvarp:
Oddrún Guðmundsd., UMSS, 11,04
Erla Óskarsdóttir HSÞ 9,79
Brymdís Hólm, UÍA, 9,69
Ragnheiður Pálsdóttir, HSK 9,29
Kristín Tómasdóttir, ÍA, 9,23
Móheiður Sigurðard., HSK, 8,96
Ester Jóhannsdóttir, ÍA 8,88
Guðflaug Steingrímsd., USAH 8,79
Halla Sigurðardóttir, UMSE 8,78
Ásta Karlsdóttir, USAH 8,61
Helga Hallgrímsdóttir, HSÞ 8,59
Sigríður Sæland, HSK, 8,41
Kristím Guðmundsd., HSK 8,39
Björg Dagbjartsdóttir, HSÞ 8,37
Anna Magnúsdóttir,_ HSS. 8,35
Ester Pálsdóttir, UÍA, 8,29
Hlín Daníelsdóttir. ÍA. 8,29
Rannveig Laxdal, ÍR, 8,23
Katrín Guðmundsdóttir, HSK, 8,20
Þórdís Kristjánsdóttir, HSK, 8,16
Kringlukast:
Ragnheiður Páisdóttir, HSK, 35,80
Sigríður Karlsdóttir IJMSB 28,60
Erla Óskarsdóttir, HSÞ, 28,05
Kristín Tómasdóttir, ÍA 27,69
Oddrún Guðmundsd., UMSS, 27,47
Guðbjörg Lárenzíusd., HSH 26,95
Kristjana Jónsdóttir, HSÞ, Í6,79
Hrafnh. Valgeirsd., USAH 26,73
Sólrún Ingvarsdóttir, ÍA, 26,51
Súsanna Möller, ÍBA, 26,08
Dröfn Guðtoundsd., UMSK 25,25
María Hannesdóttir, HSÞ 25,18
Imgibjörg Sveinsdóttir HSK 24,67
Þuríður Einarsdóttir, UMSE 24,63
Ólöf Bjömsdóttir, UMSB, 24,35
Sigríður Jónasdóttir, HSK, 23,62
María Daníelsdóttir UMSE 23,61
Margrét Ásmundsd UMSB 22,56
Sigríður Sæland, HSK, 22.55
Ingibjörg Aradóttir, USAH 22,48
Spjótkast:
Kristín Harðardóttir UMSK 26.G1
Arndis Björnsdóttir UMSK 26.46
Mjöll Hólm, ÍR. 26.07
Sigríður Sigurðard UMSK 72 62
Ingibjörg Sveinsdótir HS’ o !5
Hlím Dar.íelsdóttir. ÍA, 8 31
Svala Hólm. ÍR, 16 83
Ester Jóhannsdóttir, ÍA. 14.C3
Fleiri hafa ekki keppt.