Tíminn - 11.11.1961, Blaðsíða 3

Tíminn - 11.11.1961, Blaðsíða 3
Tjf MlfjUS, laugardaginn 11. nóvember 1961- 3 Dreg mig í hlé ef lausn fæst — sagði De Gauile í Marseille NTB—Marseille, 10. nóv. De Gauile sagSi á fundi með þingmönnum Marseillekjör- dæmisins í dag, að liann hygð- ist draga sig í hlé undir eins og Alsírmálið er úr sögunni. Hann kvað hafa sagt þing- mönnunum, að honum fyndist hann nú vera kominn á leiðar- DEGAULLE enda og áliti hlutverki sínu í frönskum stjórnmálum lokið með lausn Alsírmálsins. Að lokinni fyrirhugaðri þjóðar- atkvæðagreiðslu um sjálfsákvörð- unarrétt Alsírbúa fara fram nýjar kosningar í Frakklandi, og í sam- tali við þingmennina sagði De Gaulle, að verið gæti, að þær yrðu haldnar í vor. Illa tekið í Marseille Þegar De Gaulle kom til Mar- seille í morgun, var honum tekið með hrópum og blístri og fjand- samlegum slagorðum um hærri láun og frið í Alsír að því er Reutersfréltastofan skýrir frá. Það voru hafnarverkamenn, sem höfðu sig mjög í frammi, en í Marseille hefur De Gaulle fengið fyrstu fjandsamlegu móttökurnar síðan hann lagði af stað í ferðalag sitt um Suður-Frakkland. Hafnarverka- menn lögðu niður vinnu í klukku- stund, er forsetinn heimsótti hafn- arhverfið. Blaðamenn fá aldrei að- gang að fundum forsetans og þing- manna, en fréttir sínar hafa þeir eftir þingmönnum, sem viðstaddir voru. Heilbrigð skynsemi Frakka mun sigra í ræðu, sem flutt var við mót- tökuathöfn í ráðhúsinu í Marseille, var þess krafizt, að franska stjórn- in stofnaði til öruggra og róttækra aðgerða gegn leynisamtökum öfga- manna til hægri, OAS, sem einnig láta nú á sér kræla í Frakklandi, allir flokkar ættu að standa eins fjarri þeim samtökum og unnt væri. — I svari sínu sagði forset- inn, að franska þjóðin fordæmdi nú ákafar og ákafar hryðjuverk OAS undir stjórn hinna afdönkuðu hershöfðingja, og fullyrti, að hin heilbrigða skynsemi Frakka mundi sigra í þessu máli. Það væri satt, að þessir menn beittu öllum með- ulum og glæpum til að skapa vand- ræði og erfiðleika, en hann hefði ekki trú á, að það tækist. „Það verður að fordæma verk þeirra og draga þá fyrir rétt,“ sagði de Gaulle. Nýjar bækur frá Isafold ísafoldarprentsmiðja hefur um langt skeið verið stórvirk í bókaútgáfu, og gefið út bæk- ur margra vinsælustu rithöf- unda þjóðarinnar, að fornu og nýju. Meðal þeirra nýju bóka, sem komnar eru á bókamarkaðinn frá ísafold, eru Saga bóndans á Hrauni eftir Guðmund L. Friðfinnsson. Næturgestir, skáldsaga eftir Sig- urð A. Magnússon og Börn eru bezta fólk eftir Stefán Jónsson. Saga bóndans á Hrauni er ævi- saga Jónasar Jónssonar, er um langa ævi hefur búið á hinum sögu fræga bæ, Hrauni í Öxnadal. Höf- undurinn, Guðmundur L. Frið- finnsson, er kunnur rithöfundur fyrir fyrri bækur sínar, en með þessari bók fer höfundurinn inn á nýtt svið, ævisagnaritun. Sigurður A. Magnússon er kunn ur sem rithöfundur. Hann hefur gefið út ijóð, ferðaþætti, en Næt- urgestir er hans fyrsta stóra skáld saga. Stefán Jónsson, kennara, þarf ekki að kynna íslenzkum lesend- um. Má hiklaust telja hann einn vinsælasta núlifandi barnabókahöf und okkar, og heitir hin nýja bók hans: Börn eru bezta fólk. Enn má hér geta þriggja bóka tii viðbótar. Er þar fyrst að nefna ferðabók eftir Einar Ásmundsson lögfræðing, Frá Grænlandi til Rómar. í þessari bók eru þrettán ferða- þættir. Segir þar fyrst af ferðalagi til Grænlands árið 1956, en loka- þátturinn er um útför Píusar páfa tólfta haustið 1958. Ástir Dostóévskýs heitir ævi- saga hins rússneska stórskálds eft- ir Mark Slonim, þýdd af Hersteini Pálssyni. Einkum snýst bókin þó um ástalíf skáldsins, og er sagt, að hún byggist á vandlega könnuð- um heimildum á því sviði. Þriðja bókin er eftir Jack Lond- on, í suðurhöfum, þýdd af Sverri Kristjánssyni. Þetta er áttunda bók in eftir Jack London, sem ísafold- arprentsmiðja gefur út, og má af nafninu ráða, að hér segir frá æv intýrum meðal brúnna manna á Kyrrahafseyjum. Nýjar tillögur í Berlínarmálinu Misstu N- Katanga NTB—Leopoldville, Elizabethville, 10. nóv. Fulltrúi S.Þ., Mahmoud Khiari, sneri á fimmtudags- kvöld heim til Leopoldville frá Stanleyville eftir árangurs- lausar tilraunir til að fá Ant- oine Gizenga aðstoðarforsætis- ráðherra til að taka aftur sæti sitt í miðstjórninni. Áreiðanlegar heimildir S. Þ. herma, að Khiari hafi farið til Stanleyville að undirlagi miðstjórn arinnar, sem talin er mjög áhyggju full vegna hinnar löngu fjarveru Gizenga, sem nú gengur næst Ad- oula forsætisráðherra að völdum, en miðstjórnin telur, að æskilegt sé að hafa hann i Leopoldville, eins og nú er ástatt í Kongó. Giz- enga var fyrrum æðsti maður Ori- entalehéraðsins, en það er staða, sem hann tók við eftir lát Patrice Lumumba. — Gizenga hefur dval- izt í Stanleyville síðan í október- byrjun, en þá fór hann frá Leopold ville af persónulegum ástæðum. Síðast liðinn föstudag fékk hann orðsendingu frá miðstjórninni um að snúa heim. Sveitir úr Kongóher brutust á fimmtudagskvöld inn í Albert- ville við Tanganyika-vatn í Norð- ur-Katanga að því, er áreiðanlegar heimildir í Eliztbethville herma. í óstaðfestum fregnum segir, að ÍFramhald á 7 síðu) NTB—Moskva, Bonn, London, 10. nóvember. Talið er að Sovétríkin hafi nú í undirbúningi nýjar tillög- ur um lausn Berlínarmálsins, sem kunni að ieiða til heilla- vænlegs samkomulags. Enn hafa þær þó ekki verið sendar Vesturveldunum formlega, og í London, Bonn, París og Washington hafa stjórnmála- menn tekið þeim með hæfileg- um fyrirvara. Þetta er haft eftir vestrænum stjórnmálafréttariturum í Moskvu, en þeir telja, að um mikla stefnu- breytingu sé að ræða af hálfu Sovétstjórnarinnar. Hafi hún nú ákveðið að fresta kröfunni um, að Vesturveldin viðurkenni stjórn Austur-Þýzkalands, en fallizt á að fyrsta viðfangsefnið í samninga- viðræðum verði staða Vestur- Berlínar. í f jórunr liðum í nánum heimildum er talið, að tillögur Sovétríkjanna verði í fjórum eftirfarandi liðum, ef þeir verða staðfesrtir: 1. Hernámsveldin fjögur í Ber- lín skulu ganga þannig frá réttar- stöðu V.-Berlínar, að frelsi Vestur- Berlínarbúa og frjálsar samgöng- ur til borgarinnar sé tryggt. 2. Sovétstjórnin mun gera samn- ing við Austur-Þýzkaland, þar sem austur-þýzka stjórnin viðurkennir stöðu V.-Berlínar og heitir því að virða þau réttindi, sem henni fylgja. 3. Vesturveldin að V.-Þýzkalandi meðtöldu s'kulu fyrir sitt leyti heita því að viðurkenna Austur- Þýzkaland sem sjálfstætt ríki. 4. Sovétríkin munu ekki undir- rita friðarsamning við Austur- Þýzkaland, fyrr en eining hefur náðst um fyrri atriðin þrjú og samningur um þau verið undirrit- aður. Stjórnmálamenn efagjarnir Brezki, franski, bandaríski og vestur-þýzki ambassadorinn í Moskvu áttu í dag með sér fund til að ræða hinar nýju tillögur í Berlíiiar- og Þýzkalandsmálinu, samkvæmt diplómatískum heim- ildum. Talsmaður vestur-þýzka ut- anríkisráðuneytisins sagði jafn- framt, að vestur-þýzku stjórninni hefði ekki borizt nein opinber til- kynning um breytta stefnu Sovét- ríkjanna í þessum málum. Hann kvað Krústjoff ekki hafa rætt þetta á fundinum með Kroll, amb- assador V.-Þjóðverja í Moskvu í gær. Talsmaður brezka utanríkis- ráðuneytisins sagðist heldur ekki vita neitt enn. í París og Wash- ington hefur fréttunum um vænt- anlega stefnubreytingu verið tekið með nokkrum efa um, að þær bendi á nýjar leiðir. Hið sama segja stjórnmálamenn í Bonn og London. Hins vegar verði öllum nýjum tillögum tekið með gleði og þær rannsakaðar vandlega. j.'iýla BÓörtf f)b inlv Nýjar Leifturbækur M.a. nýja skáldsögu eftir Guðrúnu frá Lundi Jakie og Jahrawal Nehru heimsótti Kennedy f Hvíta húsið um daginn. Þessi mynd er tekin af honum og Jackie, konu Kennedy, á gðngu i garðinum umhverfls Hvíta hús- ið. Vtrðist fara hið bezta á með Prentsmiðjan Leiftur hefur ný- lega sent á bókamarkaðinn all- margar nýjar bækur, flestar fyrir unglinga. Eru sumar þeirra í vin- sælum bókaflokkum, sem allir unglingar kannast við af fyrri bók- um um söguhetjurnar. Ný bók um Stinu nefnist: Stína flugfreyja. Þá er Konnabók er heitir Konni cr kaldur snáði, og er ætluð þeim, sem gaman hafa af sjómennsku og svaðilförum. Handa íþróttaunn- endum er bókin Baldur og boð- lilaupssveitin og vegna kapphlaups- ihs um að komast til annarra hnatta, er drengjabók er nefnist Með eldflaug til annarra hnatta. Fyrir yngri lesendur eru bæk- urnar Marianna og vinstúlkur hennar, Heiðbjört og Dansi, dansi dúkkan mín, allar prýddar mynd- um. Pílagrímsför til lækningalindar-; innar í Lourdes nefnist bók eftir! Guðrúnu Jacobsen, og ritar Jóhann j es Gunnarsson biskup kaþólsku' kirkjunnar formála fyrir bókinni,' sem er með mörgum myndum frá þessum fræga lækningastað. Á öræfum heitir bók eftir hinn kunna ferðagarp. Hallgrím Jónas- son, kennara, sem þekktur er fyrir i hina skemmtilegu ferðaþætti í út- varpi og blöðum, að sjálfsögðu með mörgum snjöllum stökum um það, sem fyrir augað ber á ferð- um um fögur öræfi. Loks er ný skáldsaga eftir Guð- rúnu frá Lundi, sem er einhver mest lesni höfundur á íslandi und- anfarin ár. Heitir þessi nýja saga Stýfðar fjaðrir, og gerist eins og aðrar sögur hennar í íslenzkri sveit og lýsir fjölbreyttum viðburðum í hinu „fábreytta sveitalífi". Fram- an við söguna ritar séra Helgi Konráðsson, um ævi og ritstörf skáldkonunnar. þeim. Nú hefur bandarfska utan- ríkisráðuneytið tilkynnt, að Jackie Kennedy fari í opinbera helmsókn til Indlands hinn 20. þessa mánaðar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.