Tíminn - 11.11.1961, Blaðsíða 14

Tíminn - 11.11.1961, Blaðsíða 14
14 TÍMINN, Iaugardaginn 11. nóvembcr 1961. lífið, fram til sigurs, eða þá dauða að öðrum kosti. Hann fleygði frá sér miðan um og kallaði á prestinn og bað hann að annast líkið, en hljóp sjálfur inn í höllina. Þegar hann kom þangað var hér um bil helmingur af fólk inu kominn til sjálfs sín eftir svefninn, en hinir sem Ali hafði veitt vínið í hlöðunni, komu reikandi inn með sljó augu og náfölir í framan og héldu ýmist um höfuð eða brjóst. f raun og veru voru þeir svo veikir og utan við sig, að erfitt var að gera þeim skiljanlegt hvað skeð hafði, og þegar þeir urðu þess vísir, gátu þeir aðeins and- varpað. Sumir voru þó það hraustir, að þeir lögðu af stað, og komust, þrátt fyrir myrkur og snjódrífu, til Stan- gate, næstu húsa, er öll voru nokkuð fjarri, já, alla leið til Southminster, til þess að biðja alla vopnfæra menn að taka vopn sín og veita ræn- ingunum eftirför. Gramur yfir hugsunarleysi sínu kall- aði nú Wulf prestinn frá lík- inu og skipaði honum að flýta sér upp í kirkjuturninn og tendra bálið, sem væri þar undirbúið, svo skjótt sem unnt væri. Tæpum tíu mínútum síðar kastaði bálið óviðfelldnum bjarma yfir þakið á Steaple- kirkju, og gerði öllum ná- grönnum aðvart að aðstoðar þeirra væri þörf. Svo vopnuðu sig allir vopnfærir menn á Steaple, söðluðu alla þá hesta er þeir höfðu og þar á meðal þá þrjá er kaupmaö- urinn Georgios hafði skilið eftir, og allir sem gátu, fyrir timburmönnum og öðrum drykkjueftirköstum, söfnuð- ust saman í garðinum. En flýtir þeirra gagnaði ekki neitt, því nú var tunglið gengið undir, og nóttin svo niðdimm að varla sást handa skil og þar á ofan féll snjór inn með ákafa. Menn urðu því að bíða birtunnar, fullir sorgar og gremju, og böðuðu brennheit ennin meö snjó og ís. Loks ljómaði dagur, og við hina fyrstu skímu sást fjöldi fólks ríðandi og gangandi brjótast áfram gegnum snjó- inn. Menn hrópuðu hver til annars til þess að fá fregnir af hinum hræðilega atburði er gerzt hafði á Steaple. Það barst brátt mann frá manni fregnin um það, að Sir Andrev hefði verið drep- 1 inn af heiðingjum, er rænt j hefðu Rósamundu, meðan J allir sem tekið höfðu þátt i I veizlunni hefðu legið meðvit- I undarlausir af svæfandi víni, er maður einn í kaupmanns- gervi hafði veitt þeim. ! Óðar en leitarbjart var orð ið lögðu hér um bil 30 manns af stað, þótt enginn vissi hvert halda skyldi, því að fennt hafði í spor óvinanna. — Eitt er víst, sagði God- vin, — að sjóleiðina hafa þeir komið. — Já, og lent hér í nánd, Wulf með djúpri rödd. — Það er bútur af gullsaumuðu slæð unni sem ég gaf Rósamundu í jólagjöf. Hún hefur rifið það af og skilið það hér eftir til þess að vísa okkur leið. Höld um til altaris St. Péturs! Til St. Péturs — segi ég, þar hlýt ur báturinn eða skipið að fara fram hjá, og verið getur, að þeir séu ekki komnir út á rúm sjó vegna dimmunnar. Þeir sneru svo við og þeir, sem voru ríðandi riðu gegn- um Steaple, St. Lawrence og Bradwell, en þeir sem voru H. RIDER HAGGARD BRÆÐURNIR SAGA FRÁ KROSSFERÐATÍMUNUM anzaöi Wulf. — Því hefðu þeir þurft langt að ganga, hefðu þeir tekið hestana með sér, og sömuleiðis átt á hættu að villast í dimmunni. Niður að lendingunni!. Við skulum athuga lendinguna hjá Ste- aple! Þeir riðu síðan þvert yfir akrana niður að víkinni er lá þar skammt frá. Fyrst gátu þeir ekkert fundið athuga- vert, því landgöngubryggjan var þakin snjó, en allt í einu kom maður með þá fregn, að búið væri að brjóta upp skrána á húsi því er bræð- uxnir geymdu bátinn sinn í, og búið væri að taka bátinn. — Hann var allt of lítill, hann rúmaði ekki nema sex menn, hrópaði þá einhver. — Svo stór hópur gat ekki haft rúm í honum. — Heimskinginn þinn, svar aði hinn, — þeir gátu haft fleiri báta. Þeir rannsökuðu nú jarð- veginn á ný og fundu þá und ir hríminu !rák eftir fxam- stefni á bát, og skammt frá holu eftir hæl, sem hann hafði verið bundinn við, það virtist því augljóst, hvert þau hefðu haldið, en svo fundu þeir nokkuð, sem tók af allan efa. Wulf sá í dimm- unni eitthvað glitra í snjón- um, og tók einn leitarmann- anna það upp og rétti honum. — Þetta sýndist mér, sagði fótgangandi rannsökuðu strandlengjuna og fjöruna. Riddaraskarinn, með Godvin og Wulf í broddi fylkingar, jókst óðum, því allir, er séð höfðu bálið á Steaple kirkju eða heyrt fregnina af munni sendimanna, komu, og voru þar saman komnir riddarar, skjaldsveinar og bændur, já, jafnvel munkarnir í Stan- gate-klaustri og kaupmenn frá Southminster slógust í för ina. Þeir riðu svo hratt sem hægt var, en það vai*‘ séin- farið vegna fannfergjunnar, og vegurinn langur. Það var því liðin heil stund, er þeir höfðu Bradwell að baki sér og þó var hálf míla enn til altaris St. Péturs. Það hætti nú allt í einu að fenna, en veður tók að hvessa af norðri og greiddi þá dálítið úr þok- nnni. Þeir flýttu nú ferðinni eftir föngum, unz þeir komu að gamla turninum, þar stönz uðu þeir og stigu af hestum sinum og biðu þess að birti. — Hvað er þetta? sagði Godvin skyndilega og benti á eitthvað dökkleitt, er hann grillti í þokunni út á sjón- um. Um leið og hann sagði þetta, sópaði snörp vindhviða þokunni burt, svo hin rauða sólkringla, er reis við hafs- brún, gat varpað geislum sín um á þá, en jafnframt sáu þeir svo sem í hundrað skrefa fjarlægð siglutré á stórri galeiðu (Mjög algeng tegund skipa við Miðjarðarhafið á þeim tíma), er hélt undan landi. Meðan þeir stóðu þarna forviða, þandi vindurinn segl ið, er undið var upp á stór- siglunni, en skellihlátur skip- verja gaf þeim til kynna, að þeim hefði verið veitt eftir- tekt. Þeir sveifluðu sverðun- um í árangurslausum ákafa, því þeir vissu, hverjir mundu vera á skipinu, því á fram- siglu þess blakti hinn guli fáni Saladíns, er glóði sem gull í geislum morgunsólar- innar. Þó var ekki allt búið með þessu, því á hinu háa aftur- þilfari galeiðunnar stóð hin tígulega Rósamunda, og við hlið hennar Hassan Emír í öllum herklæðum með vefjar hött á höfði, hinn sami er þeir höfðu áður kynnzt sem kaupmanninum Georgios, en við hina hlið hennar stóð hár maður, sömuleiðis herklædd- ur, er tilsýndar líktist kristn um riddara. Rósamunda rétti að þeim báðar hendur, svo hljóp hún áfram, eins og hún ætlaði að kasta sér í sjóinn, hinn maðurinn varði henni öldustokkinn. Trylltur af reiði og örvingl un knúði Wulf hest sinn út í sjóinn, þangað til bárum- ar skullu á mitti hans, og þeg ar hann komst ekki lengra, sveiflaði hann sverðinu og hrópaði hátt: — Óttastu ekki, við komum á eftir þér! og jíað með slikri þrumurödd, að þrátt fyrir storminn og fjar- lægðina, hlutu orð hans að ná skipinu. Að minnsta kosti virtist Rósamunda hafa heyrt það, því að hún rétti upp höndina eins og til merkis. En Hassan lagði aðra hönd ina á hjartastað, en hina á ennið og hneigði sig þrisvar í kveðjuskyni. Vindurinn þandi seglið, svo árarnar voru dregnar inn og fleyið sveif af stað með mikl um hraða yfir danzandi bylgjurnar unz það hvarf, og loks sást aðeins hinn gullni fáni Saladíns er glóði í sól- skininu. vm. Masonda. Það voru liðnir margir mán uðiir frá vetrarmorgni þeim, er bræðurnir sátu á hestum sínum hjá altari St. Péturs við minni Blackwater-fljóts- ins, og horfðu á galeiðu Sala- díns, er sigldi suður með ströndinni með hina herteknu frænku þeirra, Rósamundu. En vegna þess að þeir höfðu ekkert skip til að elta þá á — enda hefði það nú verið um seinan að ætla sér að ná gal- eiðunni, — þökkuðu þeir nú þeim, er komið höfðu til hjálp ar, og héldu heim til Steaple, enda höfðu þeir þar nógu að ráðstafa. Á leiðinni heyrðu þeir margt, er skýrði fyrir þeim árásina, eins og hún var. Þannig fréttu þeir, að gal- eiðan, sem þeir héldu að væri verzlunarskip, hefði af frjáls um vilja siglt upp í Crouch- fljótið, undir því yfirskini, að stýrið hefði bilað, en á að- fangadag jóla sigldi hún af stað þaðan og varpaði akker- um í Blackwater-fljótinu, hér uim bil þrjár mílúr frá mynni þess. Síðan var stórum bát sem þeir höfðu í eftirdragi, og síðar fannst, tróið inn í Steaple-víkina í rökkrinu, og Laugardagur 11. nóvember: 8.00 Morgunútvarp. 8.30 Fréttir. 9.10 Veðurfregnir. 12.00 Hádegisútvarþ. 12.25 Fréttir og tiLkynningar. 12.55 Oskalög sjukiinga (Bryndís Sigurjónsdóttir). 14.30 Laugardagslögin. 15.00 Fréttir og tilkynningar. 15.20 Skákþáttur (Sveinn Kristins- son). 16.00 Veðurfregnir. — Bridgeþáttur (Hallur Símonarson). 16.30 Danskennsla (Heiðar Ástvalds- son). 17.00 Vikan framundan: Kynning á dagskrárefni útvarpsins. 18.00 Útvarpssaga bairnanna: „Á leið til Agra” eftir Aimée Sommerfelt; VII. (Sigurlaug Björnsdóttir), 18.20 Veðurfregnir. 18.30 Tómstundaþáttur barna og unglinga (Jón Pálsson). 18.55 Söngvar í léttum tón. 19.10 Tilkynningar. 19.30 Fréttir. 20.00 Frá danslagakvöldi í Berlín: Horst Jankowski-kórinn syngur og danshljómsveit Beriínarút- varpsins leikur undir stjórn Rolands Kovac. 20.30 Deikrit: „Parísarhjólið” eftir Soya, í þýðingu Áslaugar Árnadóttur. — Leikstjóri: Bal’dvin Halldórsson. Leikend- ur: Guðbjörg Þorbjarnardótt- ir, Róbert Arnfinnsson, Þor- grímur Einarsson, Brynja Benediktsdóttir, Flosi Ólafs- son, Jóhanna Norðfjörð og .Indriði Waage. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Danslög. 24.00 Dagskrárlok. EIRÍKUR VÍÐFÖRLI Úlfurinn og Fálkinn — Uss, það er einhver að koma, hvíslaði Eiríkur, Bústaðalénsmað- urinn lyfti Sveini upp á öxl hon- um. — Við verðum að fara yfir lækinn, svo að þeir týni slóðinni, sagði Sveinn. Þeir fóru upp læk- inn, sem smám saman breikkaði, en þeir tóku ekki eftir, að bakk- ainir urðu brattari. — Þarna get- um við ekki klifrað Upp, og við getum ekki snúið við, þá lendum við beint í flasið á» óvinunum. Förutn upp fyrir fossihn, sagði Bústaðalénsmaðurinn, þar sjá þeir okkur ekki. En um leið og þeir voru komnir í felur, byrjaði Sveirtn að æpa og kalla í óráði. — Bíðum! hrópaði einn hermann- anna, ég heyrði eithvað hljóð hér rétt hjá.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.