Tíminn - 13.03.1962, Blaðsíða 1
60. tbl. — ÞriSjudagur 13. marz 1962 — 46. árg.
í dag birtum viS óvenju
mikiS af innlendum frétta-
myndum. Þær eru allar af
atburSum, sem gerSust nú
um helgina, þegar menn
anda yfirleitt rólega og
hvíla sig. Á baksíSu er
mynd af skipinu, sem ílutti
hingað koparmengað salt
saltfiskframleiðendum til
mikilla vandræða. Það var
hér að landa kolum. Þá er
mynd af brezkum sjóliða að
fara frá borði meS vonda
hálsbólgu. Hann kom hing-
að á sunnudaginn og lagð-
ist í sjúkrahús, on enn frem
ur er mynd af öðru varð-
skipinu, sem búið er að af-
vopna. Á fjórðu síðu eru
myndir úr hléi og eftir
frumsýningu á My fair
Lady og hér á síðunni eru
tvær myndir af Sæbjörgu
að draga bát á hvolfi. Allar
þessar myndir ték Guðjón
Einarsson, Ijósmyndari
blaðsins á Leica-vél sem er
hið sívakanrh auga blaðsins
mitt i atburðarás daganna.
Okkur þykir hlýða, eftir
svo annssama helgi að birta
mynd af G.E. og vélinni
hans. N.B.: í dag sefjum við
fjölda frumsýningarmynda
í glugganum í Bankastræti.
SamábyrgS íslands á orSið ffyrir jafnmiklu tjóni
fiskiskipum hefur aldrei vegna skipsskaða og sjó
siysa á jafnskömmum
tíma og mánuðina desem
ber, janúar og febrúar sl.
„Þetta er harðasti tjóna-
veturinn sem ég man
eftir“ sagði Páll Sigurðs-
son forstjóri, í viðtali við
Tímann í gær, en hann
hóf störf hjá Samábyrgð
1947.
Þó að ekki hafi öll skipin, sem
eitthvað hefur hlekkzt á orðið ónýt,
nemur tjónið milljónum króna,
enda verða skip sífellt dýrari með
öllum þeim tækjum, sem þeim
fylgja, og má geta þess, að 40
tonna bátur með öllum fullkomn-
ustu tækjum, sem völ er á, kostar
nú upp undir 2 milljónir króna.
• •
Tíminn frétti í gær, að fyrir
þrír menn lægju nú á
sjúkrahúsi, alvariega veik
ir af eftirköstum innflúens
unnar, sem geisar hér.
Blaðið vill því brýna það geta verið mjög alvarlegir
mönnum, hve nauð
synlegt það er, að þeir,
sem veikina hafa fengið,
fari vel með sig og gæti
sín fyrir fylgikvillum, sem
Sú gróusaga flaug um bæinn
1 gær, að piltar tveir, annar úr
Sjómannaskólanum en hinn úr
gagnfræðaskóla hér í bænum,
hefðu látizt af eftirköstum inn-
flúensunnar. Blaðið bar þessa
fregn undir Jón Sigurðsson borg
arlækni, og kvaðst hann ekki
vita til þess.
Hins vegar tjáði hann blaðinu
að þrir menn hefðu verið lagðir
inn á sjúkrahús, alvarlega veik
ir, og mætti rekja rætur veikinda
þeirra til þess, að þeir hefðu
ekki farið nógu vel með sig eftir
að þeim batnaði innflúensan.
Bað hann blaðið að brýna það
vel fyrir almenningi. hve nauð-
synlegt það er að gæta sín vel
iFramnai’n 3 i.n <iðu
10 hátar ónýtir síðan í
september
Síðan í september hafa 10 bátar
orðið ónýtir með einhverjum hætti,
sokkið, strandað eða brunnið, þar
af 7 fyrir s.l. áramót. Helgi og
Sleipnir sukku í september, Karm-
oy sökk í október, Skiði og Böðvar
strönduðu í nóvember og idesem-
ber, og Sæfari brann, en var dreg-
inn til hafnar ónýtur í desember.
Viktoría strandaði i Grindavík í
janúar. Henni var bjargað, en ekki
voru Samábyrgðarmenn fyrr búnir
að taka saman björgunartækin en
Auðbjörg strandaði í febrúarbyrj-
un. ! febrúar sökk Skarðsvík, en
Hafþór og Faxi strönduðu. Einnig
sökk Freyja við bryggju á ísafirði,
en náðist upp Allir hafa þessir
bátar orðið til, nema Viktoría, sem
var bjargaö af strandstað og Faxi,
sem einnig tókst að bjarga og er
nú í slipp hér í Reykjavík. Onnur
skip, sem farizt hafa eða hlekkzt
á á þessu tímabili heyrá ekki beint
'Framhalrt a iö siðu
SKIPÁ
HVOLFI
Á laugardagskvöldið lagði Sæ-
björg af stað frá Þorlíkshöfn
með v.b. Faxa í togl áleiðis til
Reykjavíkur, en Björgun h.f.
hafði þá tekizt að ná bátnum út,
Hann slitnaði upp og rak á lartd
í Þorlákshöfn ekki alls fyrir
löngu. í fjörunni var báturinn
þéttur og m. a. tekin úr honum
vélin, svo að hann var dreginn
til Reykjavikur vélarlaus og eltt-
hvað lekur. Landhelgisgæzlan
sendi Sæbjörgu austur, en skip-
stjóri var Þröstur Sigtryggsson.
Framan af gekk allt vel, en um
klt 9 á sunnudagsmorgun var
kominn svo miklll sjór í Faxa, að
hann lagðist alveg á hliðlna, en
Sæbjörg var þá komin með hann
nokkuð inn fyrir Gróttu. Síðan
var haldið með bátinn inn hjá
Vatnagörðum, og um kl. 21,30 á
sunnudagskvöld var búið að koma
honum að slippsleðanum í Báta-
naustum, þar sem gert verður
við hann. Faxi er einn þeirra
þriggja báta, sem Samábyrgð hef
ur teklzt að láta bjarga, eins og
getið er um I frétt annars stað-
ar á síðunni. Myndirnar tók Guð-
jón Einarsson, Ijósmyndari Tím-
ans, þegar Sæbjörg kom með
Faxa inn á Reykjavíkurhöfn á
sunnudaginn. Á stærri myndinni
sést Faxi, þar sem hann marar i
kafi á hvolfi, en á þeirri uppi í
horninu til vinstri sést Sæbjörg
með bátinn í togi.
TVð VARDSKIP AFVOPNUÐ - BAKSÍÐA
Afgreiósla, auglýs-
ingar og gjaldkeri
Tímans er í
Bankasfræfi 7
Rifstjórnarskrif-
stofur Tímans eru
í Edduhúsinu við
Lindargöfu