Tíminn - 13.03.1962, Síða 3
13 farþegar léto Iífi8 og yflr 100 særðust á fimmtudaginn var, þegar 700 manna hraSlest þaut meS þrefalt melri
hraSa en leyfllegt er yfir brautarsamskeyti og út af telnunum. Lestln veltist í þrjár áttir, einn hlutinn lenti á
húsi og klesstist gjörsamlega. Myndin er tekin rétt er slysiS var nýskeS.
Áætlanir Rap-
acki og Undens
verða ræddar
NTB—Stokkhólmur og
Geneve, 12. marz.
Allar líkur benda til þess,
að bæði Svíþjóð og Pólland
muni bera fram á afvopnunar-
ráðstefnunni í Geneve tillögur
utanríkisráðherra sinna um
hlutlaust og kjarnorkuvopna-
laust svæði í Evrópu. Unden
frá Svíþjóð mun þá bera fram
tillögu sína um svokallaðan
„kjarnorkuvopnalausanklúbb"
og Rapacki frá Póllandi með
hina gömlu tillögu sína um
hlutlaust belti í Evrópu frá
norðri til suðurs.
Rapacki, utanríkisráðherra Pól-
lands, kom í dag til Geneve og lét
við komuna í Ijós góðar vonir um
árangur afvopnunarráðstefnunnar.
Hann sagði, að sér þætti ánægju-
legt, hversu vel Vesturveldin væru
farin að taka áætlun sinni um hlut
lausa beltið í Evrópu.
Unden fer til Geneve
f Svíþjóð var í dag tilkynnt, að
Östen Unden, utanríkisráðherra,
muni fara í broddi sænsku sendi-
nefndarinnar til Geneve á fimmtu
daginn kemur, en ráðstefnan hefst
á miðvikudaginn. Talið er víst, að
Unden muni þá fylgja sjálfur til-
lögu sinni úr Maði á ráðstefnunni
með langri greinargerð. Svíþjóð
tekur þátt í ráðstefnunni sem hlut
laust ríki og er eina Norðurlandið,
sem þar á sæti.
Þreyttir menn í Evian
eftir langdregna fundi
NTB—Evian og Algeirsborg,
12. marz.
Hryðjuverkin héldu áfram í
Alsír í dag og franska stjórnin
jók enn varúðarráðstafanir
sínar gegn hugsanlegum ör-
þrifaráðum OAS-manna, á
meðan friðarsamningarnir
héldu áfram í dag. Ekkert
varð af næturfundinum, sem
hafði verið ráðgerður, af því
að fulltrúarnir voru orðnir
dauðþreyttir. Þeir höfðu þing-
að í þrjá tíma í rfíorgun og
fimm tíma síðdegis.
Próðir menn í Evian telja, að
erfiðleikarnir á síðasta spöl við-
ræðnanna stafi af kröfu Serkja
um, að Frakkar samþykki skoð-
anir sínar á allmörgum málum.
Markmið Serkja er að fá Prakka
til að gefa eftir í ýmsum smáatr
iðum, sem enn eru ekki full-
rædd, til þess að endanlega sam
komulagið nái meiri vinsældum
meðal Serkja heima fyrir.
Þegar ákveðið var að halda
næturfund í nótt, óttuðust sum
ir, að viðræðurnar væri að reka
í strand, en sá ótti hvarf, þegar
hætt var við að halda þann
fund.
Fundirnir hófust í dag með
öllum meðlimum sendinefnd-
anna sameiginlega, en síðan var
þeim skipt í tvennt. Annar hóp-
urinn ræddi hernaðarleg vanda-
mál í sambandi við vopnahléð,
en hinn ræddi ýmis smáatriði
í sambandi við stjórnmálalega
samninginn.
í dag birtl franska stjórnin
fyrstu tilskipanir til embættis-
manna í lykilstöðum í Alsír um
' (Framhalo 8 (5 siðu ■
Sænskt bréf til U Thant
Sænska utanrlkisráðuneytið hef-
ur fyrir nokkru sent U Thant,
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna, bi'éf, þar sem gerð er
grein fyrir tillögu Undens um
kjarnorkuvopnalausan klúbb í
miðri Evrópu frá norðri til suðurs,
og U Thant beðinn um að kanna
jarðveginn fyrir tillögu þessari.
U Thant hefur siðan skrifað ýms
um ríkisstjórnum bréf óg skýxt frá
þessu máli. Hann hefur fengið svar
frá Finnlandi og Póllandi, sem
bæði taka mjög vel í tillögu Und-
ens. Hins vegar hefur Halvard^
Lange, utanríkisráðherra Noregs,
opinberlega hafnað tillögunni al-
gerlega af hálfu Noregs.
í svari pólsku stjórnarinnar
sagði, að hún væri fús að taka skil
yrðislaust þátt í slíkri áætlun. Hún
benti einnig á, að áætlun Undens
væri að mörgu leyti svipuð Rap-
(Framhald á l& síðu>
Það ríkti samt engin svartsýni
í Evian, þótt viðræðurnar hafi
dregizt nokkuð á langinn og lít-
ið hafi gengið á sunnudagsfund
unum. Menn telja eðlilegt, að
sendinefndirnar taki harða af-
stöðu, þegar líða fer að enda við
ræðnanna.
Um kvöldið töldu menn jafn-
vel sennilegast, að vopnahlés-
samningur yrði undirritaður á
þriðjudaginn, og hafi viðræðurn
ar í dag rekið endahnútinn á
þráteflið um helgina.
De Gaulle semur nú viS Serki um
sjálfstœSI Alsír, sem er I raun-
inni á valdl OAS, en hefur neitaS
aS taka þátt I afvopnunarviSrœS-
unum 1 Geneve, þar sem bann
við kjarnorkutllraunum verSur of
arlega á dagskrá,
„Ef þér færðuð yður yfir
að okkar borði, de Gaulle
hershöfðingi, þá munduð
þér alla vega geta samið
um hluti, sem þór eigið
raunverulega."
NTB—Geneve, 12. marz.
Kvartanir Vesturveldanna
yfir tilraunum Sovétríkjanna
til að spilla flugumferð þeirra
á flugleiðunum til Vestur-
Berlínar hafa valdið því, að
bjartsýnisvotturinn, sem hef-
ur látið á sér bera, hefur
minnkað í dag, tveimur dög-
um áður en afvopnunarráð-
stefna 17-veldanna hefst í
Geneve.
Utanríkisráðherrar stórveldanna
tveggja, Dean Rusk og Andrei
Gromyko, sátu saman í þrjá tíma
síðdcgis í dag. Rusk endurtók að-
varanirnar, sem hann og brezki ut-
anríkisáðherrann, Iiome lávarður,
komu með á sunnudaginn um, að
Vesturveldiri litu alvarlegum aug-
um á framferði Sovétríkjanna á
flugleiðunum til V-Berlínar og
krefðust þess, að tafarlaust yrði
hætt að trufla flug þar.
Samtök utanríkisráðherranna
(Framhald á 15 siðu)
gggrajffigö
■ • • • •• • -
[tÚttUsrttíNC#;
■
-.-_• ............ r l
öiacíiiai
EaHSi
) ii
t ,#!
* ■ i>'i'
fi ’! iii
3
T í M I N N, þriðjudagur 13. marz 1963