Tíminn - 13.03.1962, Side 6
ViS 1. umr. í neðri deild í
gær um frumvarp ríkisstjóm
arinnar um aflatryggringasjóð
sjávarútvegsins, lýsti Emil
Jónsson, sjávarútvegsmálaráð
herra, því yfir, að ríkisstjórn
in hefði ekki neinar tillögur
á prjónunum um að sú leið
verði farin til að bæta úr
erfiðleikum togaraútgerðar-
innar að hleypa íslenzkum
togurum inn i landhelgina
umfram þær undanþágur, sem
' þeir nú hafa.
Eysteinn Jónsson sagðist
skilja þetta þannig, að líta
mætti þannig á, að rikisstjórn
Ríkisstjórnin virðist nú hafa hafnað þeirri
leið að hleypa togurunum inn í landhelgina!
in hafi nú algerlega hafnað
að reyna að leysa vanda tog-
aranna með því að veita þeim
aukinn rétt til veiða í land
helginni. Sagði Eysteinn, að
sér þætti það vel farið.
í þessu sambandi er rétt
'að minna á, að fyrir áramót-
in var cins og Bjami Bene-
diktsson væri að prófa hvern
ig undirtektir það fengi, að
erfiðleikar togaranna yrðu
Ieystir með því, að hleypa
þeim til veiða í landhelginni
og lét í það skína, að ríkis-
stjómin væri að velta fyrir
sér málinu. Þessi ummæli
Bjama, sem höfð voru eftir
honum í útvarpsfréttum,
vöktu mikla athygli og mót
mælum rigndi yfir rikisstjórn
ina frá flestum sjávarplássum
úti um land ekki síður frá
stjórnarstuðningsmönnum en
andstæðingum. Eysteinn Jóns
son varaði alvarlega við á Al-
þingi í tilefni af þessum um-
mælum Bjarna, að þessi Ieið
yrði farin, því að hún myndi
verða til óbætanlegs tjóns fyr
ir bátaútveginn og þjóðina í
heild, en draga skammt til
að bæta úr fyrir togaraútgerð
inni. — Á þessu máli sést,
hvemig árvökul og skelegg
stjómarandstaða getur orðið
vegvísir ríkisstjórnar og þing
meirihluta, þegar aðvaranir
hennar og tillögur til úrbóta
finna sterkan hljómgrunn.
TOGARANNA VELT
YFIR Á BÁTAÚTVEGINN
Emil Jónsson
fylgdi úr hlaði
frumvarpinu um
aflatryggingasjóð
sjávarútvegsins.
Sagði hann frum-
varp þetta flutt
vegna erfiðleika
útgerðarinnar.
Togaraútgerðin
hefur stundum
verið burð-
Fundir voru í báðum deildum
Alþingis í gær. í efri deild var
aðeins tekið fyrir eitt mál, frv.
um komrækt, sem þeir flytja
Ásgeir Bjarnason og Páll Þor-
steinsson. Var það til 2. umr.
Bjartmar Guðmundsson mælti
fyrir áliti meiribl. landbúnaðar-
nefndar, en Ásgeir Bjarnason
fyrir minnihl. Umræðna er get
ið hér á siðunni. — í neðri
deild var fromv. um að heimila
ríkisstjórninni að kaupa skulda
bréf S. Þ. fyrir 80 þús. dollara
samþykkt sem lög frá Alþingi.
Til máls tóku þeir Gunnar Thor
oddsen og Eysteinn Jónsson. —
Frumv. um kii'kjubyggingasjóð
var til 2. umr. Meirihl. mennta-
málan. mælti með samþ. fromv.
Minnihl., Einar Olgeirsson,
lagði til að málinu yrði frest-
að. Til máls tóku við umræð-
una þeir Matthías Á. Matthiesen.
Einar Olgeirsson, Bjarni Bene-
diktsson, Karl Kristjánsson.
Halldór E. Sigurðsson og Jó-
hann Hafstein. Afgreiðslu á
frumv. um landshöfn í Keflav.
og Njarðvíkum var frestað. Em
il Jónsson fylgdi úr hlaði frv.
ur aflatryggingasjóð og töluðu
auk hans Eysteinn Jónsson og
Lúðvík Jósepsson og var mál-
inu vísað til 2. umr. og sjávar-
útvegsnefndar að umræðunni
lokinni.
arásinn í íslenzku efnahagslífi
en nú er orðin breyting á til
hins verra. Togararnir hafa ver
ið hraktir frá veiðisvæðum sín-
um með útfærslu landhelginnar.
Áætlað væri að heildaraflamagn
togaranna hefði aðeins orðið um
70 þúsund lestir á síðasta ári,
en 1958 var það tæpar 200 þús.,
en 1958 var eitt bezta togaraút-
gerðarár, sem komið hefur.
Frumvarpið kvæði á um að
Steypa saman hlutafrygginga-
sjóði bátaútvegsins, taka togar-
ana þar með og veita þeim fé-
bætur, ef áfli þeírra verður
minna en 85% af meðalafla und
anfarinna ára, en ákvæðin um
bætur vegna aflabrests verða al
menn og ná til flestra greina
útvegsins.
Eysteinn Jónsson sagði. að tog
araútgerð ætti mjög í vök að
verjast nú og þar sem togararn
ir hefðu búið stundum við lægra
fiskverð en aðrar greinar útgerð
ar, vegna þess, að þá var talið
að þeir þyldu það fjárhagslega.
veitti togaraútgerðinni siðferði-
legan rétt til þess að þjóðfélagið
komi nú til hjálpar. — Hins veg-
ar mætti ekki leggja byrðar á
bátaútveginn til að leysa erfið-
leika togaranna. Bátaútvegurinn
ætti nóg með sig, og ætti að létta
byrðum af togaráútgerðinni með
stuðningi af hálfu hins opinbera
og almannafé, en í frumv. væri
ætlazt til að byrðunum verði í
verulegum mæli velt yfir á báta
útveginn. en það er ókleift og
ranglátt eins og nú er ástatt.
Taldi Eysteinn affarsælast að
halda fjárhag hverrar deildar
sjóðsins sér, en síðan kæmi til
almannafé til að bæta ur þar
sem þörfin væri brýnust. Sagði
hann, að aðalfundur útvegs
manna sjálfra hefði einnig mjög
mælt með, að slikur háttur yrði
á hafður. — Ef ríkisstjórnin
hyggðist halda fast við fjárupp-
tökuna af gengismun sjávarút-
vegsins, væri ekki fjarri lægi að
hún verði fénu til að aðstoða tog
arana og kvaðst sannfærður um
að auðvelt yrði að leysa vanda
togaranna án þess að iþyngja
bátaflotanum. — Þetta frumv
ber þann blæ á sér að augljóst
virðist, að ríkisstjórnin sé að
reyna að dulbúa það uppbóta
kerfi. sem í þessu fælist. Er
þetta vegna þess, að núverandi
stjórn hefur fordæmt slíkar upp
bætur, en auðvitað skiptir ekki
máli, hvaða nafni slíkar uppbæt
ih: eru kallaðar. Þá taldi Ey-
steinn nauðsynlegt að endur-
skoða löggjöfina um hlutatrygg
ingasjóð og gera á henni nauð-
synlegar endurbætur, þar sem
um breytingar á lögunum um
hlutatryggingasjóð er að ræða.
Lúðvík Jósepsson taldi, að
stuðningi við togaraútgerðina
væri hér blandað saman við allt
annað og óskylt mál, sem væri
hlutatryggingasjóður bátaútvegs
ins. Þá taldi Lúðvík nauðsynlegt
að niðurstöður nefndar þeirrar,
sem. skipuð hefði yerið til að
rannsaka afkomu togaraútgefð
arinnar. yrðu lagðar fram svo
að þingmenn gætu áttað sig á
þeim erfiðleikum, sem við væri
að glíma. Lúðvík taldi, að orsak
ir á hinum minnkandi afla síð-
ustu tvö ár, væri ekki eingöngu
vegna aflabrests, heldui einnig
vegna þess, að togararnir hefðu
siglt með aflann og hluti þeirra
legið i höfn mánuðum saman.
AIl miklar umræður urðu í neðri deild í gær um stjórnarfrum-
varp um að hækka framlag ríkissjóðs til kirkjubyggingasjóðs.
Einar Olgeirsson taldi rétt að fresta málinu. Taldi frumv. stinga
í stúf við stefnu ríkisstjórnarinnar í byggingamálum einkum þar
sem ákvæð! væri í frumvarpinu um að framlagið skyldi hækka
með hækkun byggingarvísitölu. Ríkisstjórnin hefði hins vegar
fordæmt allar vísitöluhækkanir og taldi Einar að geistlegir hefðu
hér snúið á hina veraldlegu. Bjarni Ben. þakkajJi Einari fyrir
að bcnda á hættuna á víxlverkanir vísitöluskrúfunnar og taldi
rétt að athuga málið nánar. Einar sagði, að nær væri að auka
framlag til barnaheimila en kirkna, sem væro alltaf tómar nema
á stórhátíðum. Halldór E. Sigurðsson taldi frumv. aðeins stað-
festingu á aðgerðum fjárveitingarvaldsins undanfarin ár og
sagði marga söfnuðl hafa lyft grettistaki á þessu sviði og sjálf-
sagt að ríkisvaldið kæmi til móts við það framtak.
AFSTAÐA STJÖRNARLIÐSINS T9L LANDBÚNAÐARINS:
Visuiu frumv. um stuBn-
ing viS kornrækt frá!
ÁSGEIR
Frumvarp þeirra Ásgeirs
Bjarnasonar og Páls Þorsteins
sonar um stuðning við korn
raekt var til 2. umr. i efri d. í
gær. Landbúnaðarnefnd hafði
klofnað um afgreiðslu máls
ins og mælti meirihlutinn
með því, að málinu yrði vísað
frá — vísað ti! ríkisstjórnar
iriViar.
Bjarfmar Guðmundsson
mælti fyrir áliti meirihlutans
og sagði, að þar scm verið
væri að endurskoða tollskrána
og þar sem vænta mætti að
tollar yrðu lækkaðir á land-
búnaðartækjum og hann viss'
enn fremur að landbúnaðar
rá'ðherra hefði áhuga á korn
ræktarmálum. þá teldi hanr
rétt að málinu yrði vísað tii
ríkisstjórnarinnar, því a>‘
reynsla undanfarinna tveggjn
hinga sannaði, að málið fen;i
ist eliki samþykkt í neðri
deild. en efri deild hefur sam
þyklct þetta frumv. tvisvar en
það dagaði upp í efri deild.
Ásgeir Bjarnason sagðist
telja þetta mál mjög þýðing
armikið og taldi að flutnings
menn hefðu reynt að leggja
það fyrir þannig, að samstaða
gæti um það myndazt, þar
sem ekki væri um verulegan
hagga fyrir rikisstjómina að
ræða, en myndi hins vegar
án efa hafa í för með sér
verulegan sparnað á gjaldeyri
vegna fóðurbætiskaupa vegna
eflingar kornræktar í Iand
inu. Á sl. sumri voru ræktaðar
(5 þús. tunnur af korni. Til-
raunastjórinn Klemenz á Sáms
itöðum, sem hefur haft 'með
höndum tilraunir í kornyrkju
39 ár, telur 16 sumur ágæt
en aðeins 7 sumur slæm, jafn
el á þessum 7 verstr árum
'efur kornið verið mjög vel
nothæft. En vísindunum fleyg
;r mjög fram á þcssu sviði og
ekki er fjarstæða að ætla að
kornyrkja verði i framtíðinni
mun arðvænlegri en hún hef
ur verið til þessa. Þeim pen
ingum, sem til kornyrkju verð
ur varið, verður ekki á glæ
kastað hvorki af einstakling
um eða ríkisvaldinu og þvi
höfum við flutningsm. lagt til
að styrkur verði veittur til
vélakaupa og framlag til
vinnslu landsins og leggjum
til að frumvarpið verði sam
þykkt og enn einu sinni freist
að að vita, hvort ekki hafa
orðið sinnaskipti í vetur i n.d.
og þar muni nú verða fyrir
vilji fyrir að afgreiða þetta
mál, eins og verið hefur hér í
efri deild á undanförnum þing
um,
Frávísunartillaga 'stjórnar
iðsins var samþykkt með 10
atkvæðum gegn 7 að viðhöfðu
nafnakalli. Þrír bingmenn
voru fjarstaddir.
6
T f M I N N, þriðjudagur ?3. marz 1962.