Tíminn - 13.03.1962, Side 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson fáb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
G Þorsteinssori Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Auglýs
ingastjóri: Egil) Bjarnason Ritstjórnarskrifstofur í Edduhúsinu.
afgreiðsla. auglýsingar og aðrar skrifstofur í Bankastræti 7
Símar: 18300—18305 Auglýsingasími 19523 Afgreiðslusími
12323 Áskriftargj kr 55 á mán. 'innanl. í lauáasölu kr. 3 eint
— Prentsmiðjan Edda h.f. —
Stefna Framsóknar-
manna í sjónvarps-
málinu
Af hálfu stjórnarflokkanna er reynt að halda því fram,
að sáralítill eða enginn munur sé á ieyfi því til stækkunar
á sjónvarpsstöð varnarliðsins, sem ríkisstjórnin hefur
veitt nýlega, og því bráðabirgðaleyfi, sem var veitt á
árinu 1955.
Þetta er algerlega rangt, eins og sést bezt á eftir-
greindum samanburði:
í fyrsta lagi verður sú sjónvarpsstöð, sem nú hefur
verið leyfð, fimm sinnum sterkari en sú, sem var leyfð
1955.
í öðru lagi fylgdu leyfinu 1955 ákveðin skilyrði um
ýmsar tálmanir, sem torvelduðu að sjónvarp sæist að
gagni utan Keflavíkurvallar. Nú eru ekki nein slík skil-
yrði sett.
í þriðja lagi var sett það meginskilyrði 1955, að
leyfið yrði afturkallað, ef áðurnefndum tálmunum yrði
ekki fullnægt eða ef þær reyndust ekki fullnægjandi.
Því var skýrt tekið fram, að hér væri að ræða um
bráðabirgðaleyfi, veitf í tilraunaskyni. Nú er ekki
minnzt á neitt slíkt.
Munurinn er því ekki minni en sá, að 1955 var veitt
bráðabirgðaleyfi til sjónvarpsreksturs, sem var strang-
lega bundið við umráðasvæði varnarliðsins, en nú fær
það ótakmarkað leyfi til sjónvarps, sem nær til meiri-
hluta íslenzku þjóðarinnar.
Þegar bráðabirgðaleyfið var veitt 1955, iýstu forvígis-
menn varnarliðsins yfir því, að vei væri hægt að binda
sjónvarp þeirra við Keflavíkurvöll einan. Þetta liggur skrif
lega fyrir. Af tæknilegum ástæðum er þetta enn auð-
veldara nú en 1955. Lokað sjónvarp eða þráðbundið sjón-
varp tíðkast nú víða erlendis. Það er því mjög vel fram-
kvæmanlegt að binda sjónvarp varnarliðsmanna við
Keflavíkurvöll einan.
Framsóknarmenn hafa lagt fram tillögu á Alþingi þess
efnis, að sjónvarpsleyfið til varnarliðsmanna verði bundið
sömu skilyrðum og sett voru 1954 og 1955, þ. e, að sjón-
varp þetta verði bundið við umráöasvæði þeirra. Fram-
sóknarmenn vilja ekki amast við því, að varnarliðsmenn
hafi sitt eigið sjónvarp, ef þessum skilyrðum er fylgt.
Fjölmargir aðilar hafa tekið undir þessa tillögu Fram-
sóknarmanna. Margar samþykktir hafa borizt frá skóla-
fólki, ungum menntamönnum og rithöfundum. Það er
ánægjulegt að sjá, að það er ekki sizt æskan, sem er hér
á verði.
Jafnframt því að leggja þannig til, að vallarsjónvarpið
verði innilokað, leggja Framsóknarmenn það til í tillögu
sinni að hraðað verði undirbúningi að íslenzku sjónvarpi,
er rekið verði á menningarlegan hátt. Þennan undirbún-
ing þarf vitanlega að vanda vel og fara ekki of geyst i
fyrstu, það þarf jöfnum höndum að gæta vandaðs efnis-
vals og hóflegs kostnaðar.
Tillaga Framsóknarmanna mun senn kóma til af-
greiðslu á Alþingi. Þar mun fást úr því skorið, hvort ríkis-
stjórnin og flokkar hennar fást til að halda fram íslenzku
sjónarmiði í þessu máli, en af því má vel ráða um afstöðu
þeirra til utanríkismála almennt.
® ÍM I N N, þriðjudagur 13, marz 1962
Walter Lippmann ritar um alþjóðamál:. ..'s™aw***a
Litlar vonir um samkomulag
í Genf um kjarnorkumálin
Bandaríkjamenn og Rússar siefna hvorir um sig aS vfirhurSum
SÍÐAN um miðjan áratuginn
sem leið, höfum við öll — þar
á meðal Sovétríkin — álitið, að
auðveldasta og einfaldasta leið-
in til betii sambúðar þjóða
vœri samningur um bann gegn
kjarnorkutilraunum. Nú er
þetta ekki lengur rétt. Nú má
aftur á móti segja, að umræður
um tilraunabann séu í fullkom-
inni sjálfheldu og til þess að
þær verði aftur mögulegar þarf
eitthvað sérstakt að koma til,
annaðhvort vísindalegs eða
stjórnmálalegs eðiis.
ÞAÐ ER erfitt að þurfa að
játa þessari niðurstöðu. En
deilan er komin á það stig, að
samningur er því aðeins mögu-
legur, að annar aðilinn vilji
játa yfirburði hins í kjarnorku-
málum og sætta sig við eigin
vanmátt í þeim efnum. Ef
Sovétríkin samþykktu þann
samning, sem við krefjumst,
yrðu þau að sætta sig við varan
lega yfirburði Bandaríkjanna
í kjarnorkumálunum, tryggða
með eftirliti. Sovétríkin yrðu
að gefast upp við að reyna að
ná fram úr okkur.
Ef við ættum að þiggja þann
samning, sem Sovétríkin leggja
til, yrðum við að eiga á hættu
að þau gætu á laun búið sig
undir að fara fram úr okkur,
en við gætum ekki unnið að
því að halda forustunni.
Sjálfheldan stafar af þeirri
staðreynd, að hvorug ríkis-
stjórnin trúir hinni fyrir yfir-
burðum í kjarnorkumálum. —
Hvorug stjórnin telur sig ör-
ugga nema hún hafi þessa yfir-
burði. Samkomulagshorfur eiu
engar vegna þess, að hvor
stjórnin um sig gerir til hinnar
þær kröfur, sem henni er ó-
mögulegt að sætta sig við.
ÞAR SEM það er ómögulegt
fyrir báða aðila að hafa yfir-
burði, væri því aðeins hægt að
ræða samninga, að um væri að
ræða jafnræði, sem báðir tryðu
að væri raunverulegt og varan
legt. Við erum staddir allfjarri
þeim fræðilega möguleika.
Kjarnorkuvísindin eru ung og
ný, og framvindan er ekki ein-
ungis óséð, heldur ófyr'irsjáan-
leg.
Þetta er meginorsök þess, að
Sovétríkin hafa ekki aðeins
framkvæmt sínar tilraunir eina
eftir aðra, heldur vísa alveg frá
hugmyndinni um þá samninga,
sem við óskum eftir. Sovétríkin
geta ekki vænzt þess, að fara
fram úr Bandaríkjunum nema
með tilraunum, en með þvi
kynni þeim að takast að ná
sýndarforustu, að minnsta kosti
um stundar sakir.
Við viljum aftur á móti ekki
eiga það á hættu ,að fram úr
okkur verði farið, og við förum
fram á samninga, sem myndu
í raun og veru stöðva framþró
un kjarnorkuvísindanna, þar
sem hún er í dag. Við förum
fram á, að Sovétríkin geri ekki
tilraunir meðan við crum á und
an, og jafnframt, að þau geti
ekki búið sig undir tilraunir i
framtíðinni. Sovétríkin fara
fram á það, fyrir sitt leyti, að
við gerum ekki tilraunir fram
ar, og enn fremur, að við leyf-
um vísindamönnum okkar og
tæknifræðingum að vinna, án
þess að þeim sé heimilt að
reyna árangur vinnu sinnar
með tilraununum.
í KJARNORKUKAPPHLAUP
INU er keppt um svo háan
vinning, að hvor aðilinn um
sig er sannfærður um að hann
verði að vinna. Verið getur, að
1958 hafi um stund staðið svo
á, — við vitum það þó ekki
fyrir víst — að Krustjoff hafi
staðið svo vel að vígi í stjórn-
málunum heima fyrir, að hann
hefði getað gengið inn á samn
inga um eitthvað eftirlit, sem
hefði í veruleikanum viður-
kennt forustu Bandarikjanna.
Hafi þetta tækifæri verið nokk
urn tíma fyrir hendi, þá slapp
það fram hjá.
Síðan vorið 1960, að U-2 komy
upp um hina öruggu vitneskjú
okkar um allar höfuðstöðvar
Sovétríkjanna, hafa þau ekki
viljað ganga inn á neina samn
inga. Þau hafa einbeitt sér að
því, að búa sig undir að ná af
okkur forustunni í kjarnorku-
málunum.
Ákvörðun forsetans um að
taka aftur upp tilraunir, er
gerð til þess að fyrirbyggja að
Sovétríkin nái forustunni. Hún
er byggð á þeirri sannfæringu
— sem einnig er sannfæring
Sovétríkjanna — að ekki geti
verið um að ræða neitt öryggi
án yfirburða. Meðan þessi sann
færing er ríkjandi getur ekkert
samkomulag náðst um bann
gegn kjarnorkutilraunum.
KAPPHLAUPIÐ heldur' því
áfram og við spyrjum sjálfa okk
ur, hvoi't það muni nokkurn
tírna taka enda. Leitin að svari
við þeirri spurningu beinir okk
ur inn á svið hugleiðinganna.
Ef við segjum sem svo, að
kapphlaupið taki enda þegar
fullt jafnræði er í kjarnorku-
málunum, sem báðir aðilar geti
sætt sig við, þá gæti þetta á-
stand orðið, ef báðir aðilar
fyndu upp eða uppgötvuðu ör-
uggar skotvarnir. Það er ríkj-
andi skoðun meðal vísinda-
manna, að þetta sé ólíklegt, ef
ekki ómögulegt, og það væri
auðvitað óvæntur, einstæður ár
angur.
Raunverulegt jafnræði gæti
cinnig komizt á, ef hvor aðilinn
um sig gæti komið upp óvinn-
andi skemmdarverkakerfi, eða
gagnárásarsveit, sem ekki yrði
með nokkru móti brotið á bak
aftur fyrirfram.
Þá er það einnig hugsanlegt,
að sá árangur næðist í stjóm-
málunum einhvern tíma í fram
líðinni, að full kyrrð kæmist á
í Þýzkalandi og Evrópu allri,
allt austur til Úralfjalla og jafn
vel lengra. í dag eru ekki sjáan
legar neinar líkur á slíku, en
það væri þó rangt að telja það
óhugsanlegt Við þekkjum það
af sögunni, að hugsjóna- og
trúarbragðastríð enda ekki að
jafnaði í sigri og ósigri. heldu.
í jafntefii, þegar móðurinn dvín
ar og víman rennur af. Þetta
gæti gerzt einu sinni enn.
I