Tíminn - 13.03.1962, Qupperneq 12
J. Evandt sigraði
- setti heimsmet
RITSTJORI HALLUR SIMONARSON
„Það er annað að keppa hér
en heima og hin mikla stemmn
ing hjá áhorfendum átti mest-
an þátt i hve góður árangur
náðist," sagði Johan Chr. Ev-
andt frá Noregi eftir keppnina
á laugardaginn, þegar hann
setti nýtt heimsmet í lang
stökki án atrennu. Evandt er
mjög snjall stökkvari, sterkur
og snöggur, og hann sigraði
okkar beztu menn í öllum at-
rennulausu stökkunum, þar á
meðal þrístökki, sem hann
hafði þó ekki keppt í áður.
Heimsókn Evandt hingað var
mjög ánægjuleg, því auk þess
sem hann sýndi mikla hæfni sem
íþróttamaður, lagði hann sig
einnig fram við að kenna hin-
um íslenzku keppinautum sín-
um. Og einn þeirra sagði á eftir.
„Eg trúi ekki öðru, en við stór-
bætum árangur okkar, því að
við lærðum svo margt nýtt hjá
Evandt."
Setti heimsmet
A laugardaglnn var keppt I
langstökki án afrennu og þegar
í fyrsta stökki setti Norðmaður-
inn nýtt heimsmet í geysi kröft-
ugu stökki. Stökkið mældist
3.65m., — en eldra heimsmetið,
sem Evandt átti sjálfur, var
3.57 m. Honum tókst ekki að
bæta þennan árangur frekar, en
stökk hans voru öll mjög góð.
Vilhjálmur Einarsson var rétt
við met sitt í greininni, stökk
3.31 m. og skorti því aðeins einn
sentimetra á metið. Óskar Al-
freðsson, sem vakti svo mikla at
hygli á unglingamótinu á Bif-
röst, bætti enn árangur sinn og
stökk nú 3.27 metra. Jón Ölafs-
son var fjórði með 3.24 m.
Reyndi við heimsmet
Þeim Vilhjálmi og Jóni tókst
ekki að veita Evandt jafn harða
keppni í hástökki án atrennu og
búizt hafði verið við. Norðmað-
urinn var einnig öruggur sig-
urvegari þar, og fór vel yfir 1.74
og lét síðan hækka í 1.77, sem
er aðeins betra en heimsmet
hans. Þá hæð tókst honum þó
ekki að stökkva að þessu sinni.
Jón Ólafsson varð annar, stökk
1.71 m., en tókst ekki að stökkva
1.74 m. Vilhjálmur stökk 1.65 og
sömu hæð stökk Halldór Ingva-
son.
Þá var einnig keppt í hástökki
án atrennu og þar stökk Jón Ól-
afsson 2.01 m., sem er nýtt inn-
anhússmet í þessari grein.
Árangur var ekki eins góður í
keppninni á sunnudag. Evandt
og Vilhjálmur reyndu þá við
l. 77 m. í hástökki án atrennu —
og var Norðmaðurinn nærri að
fara yfir, en tilraunirnar voru
ekki eins góðar hjá Vilhjálmi,
en hann ásamt Jóni Ólafssyni
stökk 1.66 ni. — en sleppti 1.72
m. Jón féll úr á þeirri hæð.
Þá var keppt í þrístökki án
atrennu og þó að Evandt sé
byrjandi í þeirri grein, tókst hon
um samt að sigra, stökk 10.03
metra, sem er nýtt, norskt met.
Ekki er vafi á því, að hann get
ur bætt þann árangur mjög.
Vilhjálmur stóð sig prýðilega og
var jafnastur keppenda Hann
stökk Iengst 10.02 m. og átti
einnig 10.01 m., og skorti því
nokkra scntimetra á Islandsmet
Jóns Péturssonar. Jón Ólafsson
stökk 9.58 og Óskar setti drengja
met, 9.41 m.
Hinn nýi skíðaskáli ÍR
Glæsilegur skíðaskáli ÍU
var vígður á laugardaginn
Skíðaskáli Iþróttafélags
Reykjavíkur í Hamragili, í
Skarðsmýrarfjalli, skammt ut-
an við Kolviðarhól, var vígður
s.l. laugardag. Skólinn er um
250 m2 að stærð og allur hinn
vistlegasti. Auk aðalhæðarinn-
ar eru rúmgóð svefnloft fyrir
næturgesti. Allt svipmót bygg-
ingarinnai er mjög nýtízku-
legt og bjart yfir skálanum í
heild. Hörður Björnsson, bygg-
ingafræðingur, teiknaði skál-
ann í sjálfboðavinnu.
Stórátak áhugamanna.
Kostnaður við bygginguna nem
ur kr. 1.3 millj. eins og málin
standa í dag, en enn þá er ým-
islegt smávegis ógert. Sjálfboða
liðar hafa unnið yfir 20 þúsund
vinnustundir, eða fyrir samtals
552 þús. kr. Aðkeypt vinna hefur
nmið ca. 4% af heildarkostnaöi.
Þá hafa íR-ingar lagt veg alla
leið upp á hlað skálans, sem er
Evandt í hástökki án atrennu. — Ljósmynd: Biarnleifur.
8—................................ . 1 : > ..-ft
UnniS að byggingu skíðaskála ÍR. Fremst á myndinni er Þórir Lárusson,
formaður skíðadeildar félagsins.
auðvelt að aka.
Vígsluhátíð í fögru veðri.
Veður var bjart og fagurt á
laugardaginn, þegar skálinn var
vígður. Fjöldi gesta var viðstadd
ur vígsluna. Gizkuðu menn á 2—
300 manns.
Albert Guðmundsson, fyrrver.
formaður ÍR, stjórnaði vígsluat-
höfninni, en aðalræðuna flutti
formaður ÍR, Sigurjón Þórðar-
son.
Margir forvígismenn íþrótta-
mála voru viðstaddir og fluttu
ræður, þ.á.m. Þorsteinn Einars-
son, íþróttafulltrúi ríkisins og
Benedikt G. Waage, forseti ÍSÍ.
Vígsluhátíðin fór vel fram og
var ÍR til hins mesta sóma. Voru
rausnarlegar veitingar fram
bornar og allir í hátíðaskapi.
Það, sem mesta athygli vakti,
var það, að tiltölulega fáir korn
ungir menn hafa eytt öllum fri-
stundum sínum undanfarin 2—
3 ár við byggingu skálans. Er
það gleðilegur vottur þess, að
áhugamannaöldin er ekki alveg
liðin hjá.
Tíminn sendir ÍR-ingum heilla
óskir í tilefni þessa merka
áfanga, sem þeir hafa nú náð,
með byggingu þessa glæsilega
skíðaskála.
St. Mirren komið
í undanúrslitin
Fjórða umferð skozku bikar-
keppnirnnar fór fram á laugar-
daginn og lék St.Mirren þá
heima gegn bikarmeisturunum,
Dunfermline, og sigraði með
eina markinu í leiknum, sem Mc
Lean skoraði. Skozku blöðin bár
ust ekki í gær, svo að frásögn
af leiknum verður birt síðar I
öðrum leikjum í umferðinni urðu
úrslit þau, að Motherwell vann
Stirling með 6—0, Rangers vann
Kilmarnock á útivelli 4—2 og
Glasgow-liðin Celtic og Partick
Thistle gerðu jafntefli 4—4 og
verða því að leika að nýju.
í gær var dregið um það hvaða
lið ieika saman í undanúrslitum
og varð niðurstaðan þessi. St,-
Mirren leikur gegn Celtic eða
Partick, en Rangers leikur við
Motherwell. Báðir leikirnir fara
fram í Glasgow. st.Mirren leik-
ur á leikvelli Rangers, Ibrox en
Rangers—Motherwell verður á
Hampden Park.
Sjötta umferð í ensku bikar-
(Framh. á 13. síðu.)
12
TÍMINN, þriðjudagur 13. marz 1962.