Tíminn - 13.03.1962, Side 13
T f M I N N, þriðjudagur 13. marz 1962
Bréf ii! póstmeistarans
Framhald af 8. síðu.
b?e, séu tekin úr kössunum á aug-
lýstum tímum?
f þriðja lagi vil ég spyrja póst-
meistara hvort hægt sé að treysta
þvíj.að bréf sem eiga að fara flug-
leiðis til utlanda og sett eru inn
í pósthús fyrir kl. átta að kvöldi,
muni verða send með flugvél
næsta dag, ef annars er flogið
þann dag?
Ég hef undanfarið ár alloft póst-
lagt bréf á þennan hátt, þegar aug-
lýst hefur verið, að flogið yrði
næsta dag. í svarbréfum hef ég
æðioft orðið þess var, að óeðlilega
langur tími hefur liðið þar til við-
takandi hefur fengið bréfið. Svo ég
hef orðið að grípa til þess ráðs,
að senda bréfin „express", þótt
kostað hafi átta krónum meira, ef
mér hefur verið í mun að bréfin
væru komin til viðtakanda fyrir
ákveðinn tíma, enda virðast slík
bréf sæta fljótri fyrirgreiðslu í
Danmörku — og meira að segja
öruggri fyrirgreiðslu. Svo mun og
einnig hér vera.
Ekki ber póstmeistara að skilja
þetta opna bréf á þann veg, að ég
sé að ráðast á hann persónulega út
af þeim atriðum, sem hér hefur
verið minnzt á, að öðru leyti en
því, að hann muni ekki gæta þess
sem skyldi, að undirsátar hans
ræki störf sín sæmilega og rétti-
lega af hendi.
Ég vil að lokum taka það fram,
að ég hygg að öll póstþjónusta
landsins muni vera í betra lagi nú
en hún var fyrir áratugum síðan.
Skal ég í þvi sambandi minnast á
atriði, sem átti sér stað fyrir 21
ári. — Þá sendi ég nokkur bréf
til nákominna ættingja minna úti
á landi. Á einu pósthúsi landsins
höfðu bréfin verið lögð í kommóðu
eða álíka húsgagn í póststofunni.
Nú líða rösk þrjú ár. Enn eru bréf-
in ókomin fram. Þá vill svo til að
hreingerning fer fram í herbergi
viðkomandi pósthúss. Þá finnast
bréfin loks á bak við hið áður-
nefnda húsgagn. Viðkomandi póst-
afgreiðslumanni þótti þetta svo
leitt og skömm fyrir afgreiðsluna,
að hann var kominn á fremsta
hlunn með að brenna bréfin og
láta þau þar með hverfa að fullu.
En þjónustustúlka, sem var við
störf hjá póstafgreiðslumanninum
lagðist algerlega á móti slíkri af-
greiðslu bréfanna, ekki sízt vegna
þess, að hún þekkti vel viðtakend-
ur bréfanna. Þau voru því send
áfram. Ég ætla ekki hér að láta
uppi nafn viðkomandi póstaf-
greiðslumanns, enda hefur hann
nú látið af störfum, en sumir af
viðtakendum bréfanna þegar horfn-
ir af þessum heimi.
Að þessu sinni koma bréfin, sem
ég póstlagði fyrir kl. átta að
morgni 10. þ.m. sennilega til skila
á þriðja degi. — Þó mun ég fylgj-
ast með hvort svo verður.
Ef ég á í framtíðinni að mæta
slíkri afgreiðslu hjá pósthúsinu í
Reykjavík, sem raun hefur á orðið
nú og fyrr, mun ég taka til at-
hugunar framvegis hvort ekki
muni heppilegra að leigja sérstak-
an mann til að annast útburð
þeirra bréfa, sem ég þarf að koma
é framfæri (þar á meðal jólabréfa,
sem undanfarin ár hafa venjulega
verið 90—100). Það mundi ekki
kosta mjög miklu meira en frí-
merki á bréfin, en rrkissjóður
íntmdi þá bíða tjón vegna minnk-
andi frímerkjasölu.
Ég óska eftir að fá svar póst-
meistara á prenti en ekki í símtali.
Að þessu sinni mun ég ekki
draga fleirl dæmi fram í dagsljós-
ið. Vil fyrst bíða og sjá hvernig
svar póstmeistara verður við þess-
um línum.
Virðingarfyllst
Jón Þórðarson
prentari,
Framnesv. 20A.
Víðavangur
Nýjung
Rafmagnssmergel til sölu,
sem tengja má við 12 volta
rafgeymi. Tilboð sendist
blaðinu merkt „Nýjung“.
Á bifreiðaverkstæði lög-
reglunnar við Síðumúla er
til sýms og sölu yfirbyggð-
ur Dodge, árgerð 1955.
Tilboð óskast. Upplýsingar
gefur Skúli Sveinsson.
(Framhaid af 2. síðu)
feigan, manna, sem skilja ekki
eðli landbúnaðarstarfsemi og
geta ekki gert sér grein fyrir
því við hvaða erfiðleika er að
etja. Aðrar framleið’slugreinar
gefa skjótari arð en landbúuað-
urinn og geta afskrifað fram-
leiðslutækin fljótt. Bóndi, sem
tekur fé að láni til jarðabóta
og Iandnámsstarfsemi fær ekki
skjótan arð af framkvæmdum
sinum. Hann sker ekki upp full
laun erfiðis síns. Það fellur í
hlut síðári kynslóða. Það má
því telja eðlilegt, að þjóðin i
heild styðji hann nokkuð í land
námsstarfsemi hans. Sú ríkis-
stjórn, sem ætlar að þrengja
kosti landbúnaðarins í þjóðfé-
laginu skilur ekki hlutverk sitt.
Sú ríkisstjórn fær slæm eftir-
mæli.
íþróttir
Framhald af bls. 12.
keppninni var einnig háð á laug
ardaginn. Tottenham vann As-
ton Villa 2—0, Burnley vann
Sheff.Utd. 1—0. en jafntefli
gerðu Fulham og Blackburn, og
Preston og Manch. Utd. Þessi
lið leika að nýju á morgun.
Einnig var dregið í Enélandi
um undanúrslitin. Tottenham
leikur gegn Preston eða Manch.
Utd. og verður leikurinn í Shef-
field. Burnley leikur gegn sigur
vegaranum úr leiknum Fulham
—Blackburn, en staður er ekki
ákveðinn. Enska útvarpið rseddi
um það í gær, að úrslitaleikirnir
gætu orðið „draumaleikir" milli
Rangers og Celtic í Skotlandi og
Tottenham og Burnley í Eng-
landi.
FERGUSON í FARARBRODDI
Af hverjum fjórum dráttarvélum sem fluttar
voru til landsins sl. ár, voru 3 af Ferguson
og Massey-Ferguson gerð.
TE-F-20 notuð, — viSgerð í Þýzkalandi:
Þessar vinsælu 27 ha. diesel-dráttarvélar getum vér útvegað
viðgerðar af árgerðunum 1955—1956. Vélarnar seljast með
þrítengibeizli og öllum vökvalyftuútbúnaði, dekkjum 4.00x19
og 10.00x28.
Verð um kr. 62.000.00 með sölusk.
MF-25 ný.
Þessi nýjasta gerð dráttarvéla frá Massey-Ferguson verk-
smiðjunum hefur 25 ha. dieselvél, tvö aflúrtök og lokaðar
vatnsþéttar diskabremsur á afturöxlum.
Verð frá kr. 91.000 með sölusk.
FE-35 notuS.
Vér höfum möguleika á að útvega takmarkað magn af þess-
um 37 ha. diesel dráttarvélum, óviðgerðum, en í góðu standi.
Þær hafa allan hinn velþekkta útbún^ð Massey-Ferguson
dráttarvélanna, sem nú tíðkast, dekk 10 eða 11x28 og 6.00x16.
Verð kr. 64—66.000.00.
MF-35 ný.
Þetta er sú heimilisdráttarvélin, sem mest hefur selzt hér á
landi undanfarin ár. Hefur 37 ha. Perkins dieselmótor, þrí-
tengibeizli, vökvadælukerfi með sjálfvirkri átaksstillingu og
fáanleg með vinnustundamæli, mismunadrifslás, sæti með
hryggpúða o. s. fiv. — Með dekkjum 6.00x16 og 10x28.
Verð frá kr. 104.000.00 með sölusk.
MF-65 ný.
Þessi 56% ha. dieseldráttarvél er sem kjörin til jarðræktar-
starfa og annarrar erfiðari vinnu. Hefur alla sömu kosti og
MF-35 vélin auk nægs vélarafls og margvíslegan aukaútbún-
að, s.s. power-stýri, mismunadrifslás o fl.
Verð frá kr. 123.500.00 með sölusk.
FRAMTÍÐIN ER FERGUSON.
TEF-20
MF-35
MF-25
MF-65
DRATTARVELAR H.F.
Sambandshúsinu — Iteykjavík — Sími 17080.
Jeppaeigendur
Vatnsþétt kveikja í jeppa til
sölu, með innbyggðu 6 volta
háspennukerfi. Einnig ódýr-
ir dýnamóar í jeppa og
aðra bíla, 6 oð 12 volta, 40
ampera.
Tilboð sendist blaðinu
merkt „Jeppaeigendur“.
Nauðungaruppboð
verður haldíð í Tollskýlinu á hafnarbakkanum hér
í bænum, eftir kröfu Hafþórs Guðmundssonar hdl.
o. fl. fimmtudaginn 15. marz n.k. kl. 1.30 e.h. Seld
verða alls konar húsgögn, skrifstofuáhöld, ísskáp-
ar, þvottavélar, saumavélar o. fl.
Enn fremur ýmsar vörur tiiheyrandi Verzluninni
Selás h.f. þb. svo og vörur til lúkningar aðflutn-
ingsgjöldum eftir kröfu tollstiórans í Reykjavík.
Borgarfógetinn f Reykjavík.