Tíminn - 13.03.1962, Blaðsíða 15
Banaslys í gær
Klukkan 15.30 á sunnudag varð
maður fyrir bíl á Reykjanesbraut
milli húsann?. nr. 42 og 44. Maður-
inn, Jónas Sigurðsson frá Suður-
eyri í Súgandafirði, kastaðist út
fyrir veginn og út í grjót, og lézt
hann af meiðslum nokkru eftir
klukkan 16.
Jónas, sem var starfsmaður hjá
Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli,
var á göngu á Reykjanesbraut, þeg
ar á móti honum kom bifreiðin
Afvopnunarráðsfefna
Framhald af 3. siðu.
um Berlín standa ekki í neinu sam-
hengi við afvopnunarráðstefnuna,
en fróðir menn benda á, að þau
hafa haft greinileg áhrif á and-
rúmsloftið á ráðstefnunni.
Þeir Gromyko og Rusk eru taldir
hafa látið skarplega í Ijós skoðanir
sínar á Berlínardeilunni á fundi
sínum í dag. Gromyko sagði eftir
fundinn, þegar hann var spurður
um, hvort hann hafi leitt til meiri
bjartsýni um árangur afvopnunar-
ráðstefnunnar: — Það mundi ég
ekki segja.
Rusk og Gromyko hittast aftur á
morgun, þriðjudag. Gromyko hef-
ur ekki enn rætt við Home lávarð,
en mun sennilega einnig eiga við
ræður við hann á morgun.
Schröder ræðir við
hina „sfóru"
Utanríkisráðherra Vestur-Þýzka-
lands, Gerhard Schröder, borðaði í
dag kvöldverð með Home lávarði.
Hann hafði fyrr í dag talað við
Rusk og Segni, utanríkisráðherra
ítalíu. Á morgun hyggst hann
ræða við Gromyko, en snýr síðan
aftur heim til Bonn. Vestur-Þjóð-
verjar hafa mikilla hagsmuna að
gæta í sambandi' við útkomu af-
vopnunarráðstefnunnar.
í
Sovézkt bréf til U Thant
TASS birti í dag bréf frá Grom-
yko til U Thant, framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna. Þar
segir m. a., að Sovétríkin séu fús
til að lofa að afhenda ekki öðrum
löndum kjarnorkuvopn, ef Banda-
ríkin, Bretland og Frakkland geri
slíkt hið sama. Hann lýsti jafn-
framt yfir stuðningi sínum við þær
tillögur, sem miði að því, að viss
svæði jarðar afsali sér kjarnorku-
vopnum, og nefndi þá Mið-Evrópu,
Afríku og Austur-Asíu með Kyrra-
hafi, Suðvestur-Asíu og Balkan-
skaga.
URden og Bapacki
(Framhald af 3. síðu)
acki-áætluninni um hlutlaust belti
í Mið-Evrópu.
„Klúbburinn" þýðingar-
mikill
Finnska stjórnin svaraði U
Thant og sagði, að hlutleysisstefna
Finnlands hindri, að kjarnorku-
vopn eða önnur erlend hernaðar-
tæki verði geymd í Finnlandi. Hún
sé fús til að taka þátt í samningi
um algera afvopnun og bann við
kjarnorkutilraunum. Myndun
kjarnorkuvopnlauss svæðis sé án
efa mjög þýðingarmikið fyrir betra
samkomulag í alþjóðamálum, seg-
ir í svarinu.
Tillaga Undens va'r send U
Thant 16. febrúar síðast liðinn og
svör Póllands og Finnlands bárust
í síðast iiðinni viku.
Féiag framsokRarkvenna
Skemmtifundur verður í félags-
heimilinu aS Tjarnargötu 26 fimmtu
daginn 15. þessa mánaðar. Félags-
konur mega hafa meS sér gesti.
Skemmtinefndin.
G-174. Bifreiðin var á leið frá
Keflavík inn í Ytri-Njarðvík. I
henni voru auk bílstjórans tvær
unglingsstúlkur. Bifreiðarstjórinn
ber, að hann hafi séð til manns-
ins úr um 150 metra fjarlægð, og
var hann þá á vegarkantinum og
kom á móti bifreiðinni. Skyndilega
ætlaði hann yfir veginn, en varð
þá fyrir bílnum, þar eð hann var
kominn mjög nálægt. Bílstjórinn
hafði snarhemlað, en það nægði
ekki til, en förin eftir bifreiðina
hafa verið mæld, og reyndust þau
vera 6 metrar.
Bifreiðaeftirlitið skoðaði bifreið-
ina og kom í ljós, að handhemill
er óvirkur, og sömuleiðis var hr'aða
mælir ekki í lagi, en annar örygg-
isútbúnaður var í lagi. Enn stend-
ur yfir rannsókn í málinu.
Jónas Sigurðsson var fæddur 16.
júní árið 1903.
Alsírstyrjöldin
Framhald ai 3. síðu.
að halda allri opinberri starfsemi
gangandi í 24.tíma verkfallinu,
sem OAS hefur boðaö til, þegar
lýst verður votnahléi í landinu.
Gilda tilskipanirnar fyrst og
fremst um starfsmenn við út-
varp, gasstöðvar, rafmagnsstöðv
ar og vatnsveitur. 5000—6000 rík
isstarfsmenn í Alsír hafa fengið
sérstaka skiþun um að starfa
daginn, sem OAS-verkfallið skell
ur á.
21 hryðjuverk var framið í A1
sír í dag. Létust 12 menn í þeim.
OAS-menn stálu sjónvarpssendi
Oran, sama sendi og þeir lokuðu,
þegar de Gaulle hélt síðustu sjón
varpsræðu sína um Alsír.
Allt flug nema áætlunar-
flug bannað
Þar sem franska stjórnin hef-
ur fyrirskipað auknar öryggis-
ráðstafanir við Aunoy-höll, þar
sem Ben Bella og fleiri SéiFkja-
leiðtogar sitja fangar, er talið,
að þeir verði látnir lausir mjög
bráðlega. Einn liður í öryggis-
ráðstöfununum var að banna
allt einkaflug og farþegaflug
annað en áætlunarflug í land-
inu.
Almenningsálitið mjög
gegn OAS
Hálftíma mótmælaverkfall
gegn OAS lamaði neðanjarðar-
járnbrautina og strætisvagna
Parísar síðdegis í dag og stöðv-
aði vinnu á hundruðum verk-
smiðja og skrifstofa. Öll verka-
lýðsfélögin studdu verkfallið.
Sprenging OAS-manna í úthverf
inu Issy-les-Moleineaux hefur
valdið því, að almenningsálitlð
í Frakklandi gegn OAS hefur
blossað upp.
lilljéna sjótjón
(Framhald af 1 síðu)
undir Samábyrgðina eða eru
tryggð hjá öðrum félögum.
Þó að þetta tjón, sem um er að
ræða, skiptist að formi niður á tvö
ár, hafa mánuðirnir þrír, sem fyrr
var getið, verið óvenjuharðir, hvað
tjónið snertir. Tjónið er vitanlega
mismikið í hvert skipti og fer eftir
stærð og öllum útbúnaði skipsins,
en öll tæki fara sífellt hækkandi,
og nemur tjónið milljónum. Ef til
vill má að nokkru rekja orsakir
hins mikla tjóns til þess, að veðr-
átta var ill og óstöðug á þessu tíma-
bili og úthald bátanna lengist alit-
af, svo að nú má t. d. segja, að síld-
veiði sé stunduð einlivers staðar
hér við land allan ársins hring og
vertíðir nái saman.
Þrír mjög velkir
(Framhald af 1. síðu).
fyrir veikinni. í fyrsta lagi fyrir
því að fá ekki innflúensuna, en
ef ekki yrði sloppið við hana,
,að fara ekki of snemma á fætur
og ekki út, ofreyna sig ekki eða
ofþreyta. Það er betra að vera
nokkrum dögum lengur við ból-
ið, þótt menn telji sig ekki svo
sjúka að þess þurfi, heldur en
eiga fylgikvilla flensunnar á
hættu, sem eru margir og sumir
lífshættulegir.
Eldur á Geldingalæk
(Framhald al lB. síðu)
og kviknaði eldurinn út frá hon-
um.
Heimilisfólkið tók eftir því
snemma í gærmorgun, að reyk
iagði upp úr kjallara, og komst
það niður og gat slökkt eldinn.
Tjón varð aðallega af völdum
reyks, og er það metið á 93 þúsund
krónur. Húsið var tryggt.
Eigandi Geldingalæks er Skúli
Thorarensen, útgerðarmaður í
Reykjavík, en bóndinn, sem þarna
býr, heitir Ole Seeher, danskur
maður, en kona hans er íslenzk og
heitir Stella Jensen Seeher. Auk
þeirra hjóna eru til heimilis að
Geldingalæk 3 ung börn þeirra
hjóna og einn vetrarmaður.
Laus staða
Ljósmóðurstarfið í Neskaupstað er laust til um-
sóknar. Veitist frá 1. júní 1962. Umsóknarfrestur
til 1. maí 1962. Nánari upplýsingar gefur undirrit-
aður.
Bæjarstjórinn í Neskaupstað, 8. marz 1962,
Bjarni ÞórSarson.
Jörð til sölu
Jörðin Gerði í Innri-Akraneshreppi er til sölu, með
eða án áhafnar. Laus til ábúðar í næstu fardögum
eða fyrr.
Skipti á húseign í Reykjavík koma til greina. Nán-
ari upplýsingar hjá Böðvari Bjarnasyni, Framnes-
vegi 38, Reykjavík.
BAMFORD
ber af
© Tilraun, framkvæmd af Verkfæra-
nefnd ríkisins sýndi að Bamford
múgavél með vírhjólum rakar betur
en nokkur önnur vél.
• Bamford múgar me’S ótrúlegum af-
köstum og vandvirkni. »+
Bamford rifjar einnig í 2 garða.
O Bamford múgavélin er sterk og vel
byggð, létt í drætti, auðveld í notk-
un og hana má tengja við hvaða
dráttarvél sem er, jeppa eða önnur
ökutæki.
© Bamford er ódýrasta 6 hjóla múga-
vélin á markaðnum. Berið saman
verð við aðrar tegundir.
•m* Bamford rifjar í sex rifgarða.
• Breyting á vinnslustöðu vélar úr
múgun í snúning eða öfugt tekur
um 1 mínútu fyrir 1 mann.
© Lesið skýrslu Verkfæranefndar ríkisins og kynnið yður sérstaklega umsögn hennar
um múgavélar.
® Varahlutir jafnan fyrir hendi.
• Kaupfélögin um land allt gefa nánari upplýsingar og taka við pöntunum.
SAMBAND ÍSL. SAMVIN N U FÉLAGA
VÉLADEILD
T f M I N N, þriftjudagur 13. marz 1962
15