Tíminn - 23.08.1962, Side 9
Engum, sem kemur til Húsa-
víkur, getUr blandazt um það
hugur, að þar er bær í örum
vexti. Um allan bæinn eru hús
í smíðum, ýmist langt komin
eða stutt. Slíkt er ólyginn
mælikvarði á ástand í byggð-
arlögum.
Hvað er það, sem veldur stækk-
un Húsavíkur? Enginn flytti þang-
að ef þar væri doði yfir atvinnu-
lífi, ef atvinnuleysið væri það eina
sem upp á væri að bjóða, ef þar
væri dauður bær.
Nei, þá væri víst ekki verið að
byggja á Húsavík, heldur væri þá
hin hliðin uppi á teningnum, þá
flyttist fólkið frá en ekki til Húsa-
víkur.
Það, sem veldur, er að á Húsa-
vík er nú atvinnulíf með miklum
blóma. Annað er og ekki ómerki-
legra, ef það er haft í huga, að
maðurinn lifir ekki á brauði einu
saman, sem sé það, að hér er ekki
andlegu hliðinni gleymt.
Sem sagt, Húsvíkingar vinna,
syngja, leika og kasta stökum, svo
eitthvað sé nefnt af því, sem ein-
kennir bæjarlífið í þessum bæ,
sem upp hefur risið, þar sem áður
stóð skáli Garðars Svavarssonar.
-----------★
VIÐ HÖFUM náð hér tali
af Ingimundi Jónssyni, kennara
við Gagnfræðaskólann, en hann er
einn af þremur bæjarfulltrúum
Framsóknarflokksins á Húsavík,
aðeins 26 ára að aldri, yngsti bæj-
arfulltrúi flokksins í kaupstöðum
landsins.
Ingimundur er Húsvíkingur í
húð og hár, fædur hér og uppal-
inn. Stundaði nám í skólanum, sem
hann nú kennir við, en síðan í
Kennaraskólanum og lauk þaðan
-• prófi vorið 1957.
í félagsmálum Húsvíkinga hef-
ur Ingimundur.þegar tekið mikinn
þátt, þótt ungur sé, og er meðal
annars formaður Leikfélags Húsa-
víkur um þessar mundir. Kvæntur
er hann Amheiði Eggertsdóttur,
bekkjasystur sinni úr Kennara-
skólanum, og eiga þau tvö börn.
En hlustum nú á hvað þessi
ungi bæjarfulltrúi hefur að segja:
— Er ekki margt að frétta af
bæjarmálefnum Húsavíkur þessa
stundina?
— Jú, það stendur margt til.
Þetta er mjög ört vaxandi bær,
mikil vinna og mörg hús í smíð-
um.
— Og bæjarfélagið sjálft, hvað
hefur það helzt á prjónunum?
— Það er með ýmislegt á döf-
inni, til dæmis er verið að byggja
hús fyrir skrifstofur, slökkvistöð,
verkfærageymslur og annað, sem
bænum tilheyrir.
— Eins konar ráðhús?
— Já, það má segja það.
— Fleira?
— Nú, svo voru veittar á árinu
500.000 krónur til félagsheimilis,
sem ætlunin er að byrja á i haust.
Þetta verður mikil bygging, og
verða þar tveir stórir salir, auk
aðstöðu fyrir félögin í bænum.
Að byggingu félagsheimilisins
standa flest félög bæjarins, auk
bæjarfélagsins sjálfs.
Allt setið
— hvergi smuga.
— Þú sagðir að íbúum bæjar-
ins færi ört fjölghndi.
— Já, það er rétt, síðan árið
1959 hefur fjölgunin numið upp
undir 100 manns á ári og er nú
íbúatala Húsavíkur komin yfir
1600. Efalaust væri hún orðin enn
hærri, ef húsnæðisskortur hindr-
aSi ekki, en hann er mikill hér.
Margar fjölskyldur búa í íbúðum,
sem eru í þannig ástandi að ekki
væri í þeim búið nema af því að
skorturinn er svo mikill. Annars
er hér mjög mikið af góðum íbúð-
um, og mörg hús í byggingu.
— Er starfandi hér Byggingar-
félag verkamanna?
— Já, og það er að byggja rað-
hús. í því eru 6 íbúðir. Það byggði
og annað raðhús fyrir tveimur ár-
INGIMUNDUR JÓNSSON
um. Byggingarfélag verkamanna
byggði hér einu sinni, með mjög
myndarlegu átaki eiginlega þrjár
götur. Annars er rétt að geta þess
að í fyrrahaust var talið að hér
vantaði um 40 íbúðir.
ÞaS er fiskurinn
í sjónum, sem veldur.
— Og hvað er það, sem veldur
þessari miklu íbúafjölgun?
— Það er fyrst og fremst sjávar-
aflinn, sem hefur aukizt mjög,
siðan landhelgin var færð út. Hús-
víkingar gera nú út milli 70 og 80
báta, stærri og smærri. Þar af eru
7 gerðir út á sildarvertíð. Yfir
sumarið róa héðan 60— 70 smá-
bátar, trillur og handfærabátar,
bæði á línu og handfæraveiðar.
Það stendur hins vegar útveg-
inum hér mjög fyrir þrifum, að
aðstaðan í landi er orðin öldung-
is ófullnægjandi. Það er meira að
segja svo komið, að takmarka hef-
ur þurft róðra. Þegar á næsta ári
er fyrirhuguð mikil stækkun og
aukning fiksvinnsluaðstöðunnar
hér, og þá verður vonandi sú
reyndin á, að það verði fiskurinn
i. sjónum og veiðisæld sjómann-
anna, sem ræður hvað á land
berst, en ekki mótttökuskilyrðin.
— Hvað þurfa bátar ykkar að
sækja langt?
— Minni bátar fara þetta frá
hálftíma upp í tveggja tíma sigl-
ingu, en þilfarsbátarnir oft tölu-
vert lengra.
, Heitt og kalt
vatn í bæjarjaðrinum.
— Þú varst áðan að spyrja u_m
framtíðaráætlanir bæjarins. Ég
vildi gjarnan bæta þar nokkru við.
Vegna hinnar miklu útþenslu
kaupstaðarins hefur óeðlilega mik-
ill hluti af fé bæjarfélagsins farið
í gatnagerð og holræsagerð. Hvað
neyzluvatn snertir, þá höfum við
það hér mjög gott, og þurfum ekki
að leggja það nema nokkur hundr-
uð metra til bæjarins.
— Mig minnir ég hafa heyrt
talað um, að þið lumuðuð einhvers
staðar á heitu vatni?
— Já, það gerum við örugglega.
Það er nefnilega löngu vitað að
það rennur undan Húsavíkurhöfð-
anum til sjávar. Þetta vatn er
meira að segja notað nú þegar til
að hita upp l.já okkur sundlaug-
ina, en þangað er því dælt úr fjör-
unni, þar sem það rennur fram
undan Höfðanum.
— En hefur ykkur ekki dottið
í hug hitaveita?
— Jú, okkur hefur meira en
dottið hún í hug, og efalaust á hún
eftir að verða að veruleika hjá
okkur innan tíðar.
—Hefur mikið verið borað?
— Nei, orð er nú varla á því ger
andi. Það var jú hér fyrir eina
tíð gerð tilraun með það, en bor-
inn, sem notaður var var lélegur
og árangurinn eftir því. Við er-
um að vona að við fáum Norður-
landsborinn í haust, en hann mun
þó að öllum líkindum fara til Ól-
afsfjarðar og ef til vill í Mývatns-
sveitina líka. Til dæmis um, að
undir Höfðanum sé meir en lítill
ylur, er það, að sums staðar á hon
um festir ekki snjó 4 vetrum.
Skólum fjölgar,
en vantar fleiri skólahús.
— Það má sjá að þið hafið byggt
hér reisulegt skólahús.
— Já, hér var fyrir nokkrum ár-
um byggt skólahús, ætlað barna-
skólanum einum, nema hvað að-
staða til íþrótta og handavinnu
skal vera sameiginleg með Gagn-
fræðaskólanum. Nú hefur hins veg
ar Gagnfræðaskólinn orðið að
vera þar til húsa, og svo er komið
að alltof þröngt er þarna orðið fyr
it; þá báða og farið að athuga með
væntanlega byggingu fyrir Gagn-
fræðaskólann.
Auk þessara tveggja skóla, sem
hér hefur verið minnzt á, starfa
hér bæði iðnskóli og tónlistar-
skóli, og er sá síðarnefndi stofn-
aður að tilhlutan Húsavíkurbæj-
ar. Hann starfaði í fyrsta skipti í
fyrra vetur, og var kennari Ingi-
björg Steingrímsdóttir píanóleik-
ari frá Akureyri. Þótti þessi fyrsta
ganga skólans lofa mjög góðu og
komust færri að, en vildu. Því er
það sem ráðgert að bæta nú svo
aðstöðu að skólinn geti fært út
kvíarnar á næsta skólaári.
Og svo við minnumst á fleira,
þá stendur fyrir dyrum stækkun á
sjúkrahúsi, en það tekur nú 14
sjúklinga. Meiningin er að auka
sjúkrarúmafjöldann upp í 30 til
40. Bygging dagheimilis fyrir börn
mun hefjast í haust og á döfinni
er bygging mikils íþróttaleikvangs,
sem á að standa á svonefndu Húsa
víkurtúni utan til í kaupstaðnum
— Það er ekki hægt að segja
að þið séuð aðgerðarlausir Húsvík
ingar.
— Við megum til að fram-
kvæma hlutina, og fólksfjölgunin
er svo ör ,að við þurfum að gera
ráð fyrir mikilli stækkun. En auð-
Húsavíkurkirkja er sérkennileg
og fögur.
vitað er þetta erfitt, ennþá svarar
ekki ibúafjöldinn þeirri geysi-
legu fjárfestingarþörf, sem hinn
vaxandi bær ófrávíkjanlega krefst.
Annars gleymdi ég víst að minn-
ast þess, að Síldarverksmiðjur rík-
isins juku vinnsluafköst verk-
smiðju sinnar hér á staðnum upp
í 2000 mál fyrir yfirstandandi síld
arvertíð og hefur það orðið til
mikilla hagsbóta fyrir söltunar-
stöðvarnar hér, en þær eru þrjár.
í samabndi við hafnarmálin má
og geta þess, að unnið er að bætt-
um hafnarskilyrðum. Væntanleg
kisilgúrverksmiðja við Mývatn er
m. a. höfð í huga við þær áætlan-
ir,x því Húsavík mun verða út-
flutningshöfn hennar, ef til kem-
ur.
íþróttlr
og leikir.
— Hvað um félagslíf hér í bæn-
um?
— Hér starfa alls konar menn-
ingarfélög af misjöfnum dugnaði
þó, því menningarfélög eiga oft
erfitt uppdráttar, þegar atvinna
er mikil.
— íþróttastarfsemín?
— íþróttastarfsemin er mikil,
sérstaklega þó inniíþróttir, enda
aðstaða til þeirra góð. Badminton
er iðkað af miklum móði og sömu-
leiðis handknattleikur. Það er far-
ið að örla á árangri í handknatt-
lelknum. Hingað komu s. 1. vetur
íslandsmeistararnir í 3. flokki, ÍR-
ingar, og léku við jafnaldra sína
hér úr Völsungum. Fóru svo leik-
ar að heimapiltar unnu.
Nú, þá hefur Leikfélag Húsavík-
ur starfað um áratuga skeið með
miklum blóma, og hefur tekið fyr-
ir viðfangsefni, allt frá þessum
klassísku íslenzku stykkjum, upp
í Tehús ágústmánans, Júpiter hlær
og Alt Heidelberg, svo eitthvað
sé nefnt.
Þeir kennararnir Sigurður Hall-
marsson og Njáll Bjarnason hafa
báðir sett upp leiki og leikið mik-
ið. Einnig hafa verið fengnir leik-
stjórar að.
Valdamenn ekki
hrifnir af hringsviði.
— Hvernig er aðstaða til leik-
sýninga hér?
— Hún er mjög ófullkomin,
leikið er í gömlu samkomuhúsi.
Aðalbaráttumál Leikfélags Húsa-
víkur þessa stundina er, að í hinu
væntanlega félagsheimili verði
góð aðstaða til leikstarfsemi og
möguleikar á hringsviði, en það
virðist vera við ramman reip að
draga um síðastnefnda atriðið, þeg
ar kemur til kasta þeirra, sem völd
in hafa.
„Þetta er
ekki þögull bær“.
— Hvað um sönglífið?
— Sönglíf er með töluverðum
blóma. Karlakórinn Þrymur hef-
ur starfað hér lengi og árið 1960
fór hann meðal annars söngferð
til Suð-Vesturlandsins, söng þá
meðal annars í Reykjavík, Hafnar-
firði og Keflavík. Séra Friðrik A.
Friðriksson hefur lengst af verið
stjórnandi kórsins, þar til Sig-
urður Sigurjónsson tók við stjórn
hans fyrir nokkrum árum.
Þá er hér að sjálfsögðu kirkju-
kór, sem auk söngs við hinar
kirkjulegu athafnir heldur flest
ar opinberar söngskemmtanir. Nú,
þá starfar hér og lúðrasveit undir
stjórn Sigurðar kennara Hallmars
sonar.
— Það virðist ekki vera nein
lognmolla í þessum máluni hér á
staðnum.
— Bíddu aðeins við. Við getum
ekki hætt svo að ræða um félags-
mál Húsavíkur, að við ekki minn-
umst á slysavarnadeildir og kven-
félög staðarins, sem margt hafa
unnið til almannaheilla, eða held-
ur Skógræktarfélags Húsavíkur,
sem hefur á liðnum árum unnið
mikið og gott starf.
Þeir yrkja
á Húsavík.
Ekki getum við svo hætt þessu
spjalli um Húsavík, að við minn-
umst ekki á ferskeytluna, en hún
mun Iengi hafa lifað hér góðu
lífi.
— Já, margir hafa gert ferskeytl
ur, sem eru á hvers manns vörum
á Húsavík. í þeim hópi eru til
dæmis menn eins og Egill Jónas-
son, Helgi lyfsali Hálfdánarson,
sem einnig er mikilvirkur Shake-
speareþýðandi, Karl Kristjánsson
alþingismaður, Karl Sigtryggsson,
Valdimar Hólm Hallstað og ekki
má gleyma bæjarpóstinum.
HÚSAVÍK
T í MIN N, fimmtudaginn 23. ágúst 1962
9