Tíminn - 08.11.1962, Blaðsíða 8

Tíminn - 08.11.1962, Blaðsíða 8
Hermann Pálsson háskólakennari Orðið er frjálst EITURLYF OG HEIMSGLÆPIR Undanfarnar vikur hafa birzt í blöðunum válegar fregnir utan úr löndum af svefnlyfi einu, sem er svo eitrað, að börn fæðast af- skræmd og vansköpuð, ef mæður þeirra neyta lyfsins um meðgöngu tímann. Hér er um mikla harm- sögu að ræða. Alsaklaust fólk verð ur að þola hryllilegar þjáningar fyrir þá sök, að lyfið var ^ett á markaðinn, áður en það var full- reynt og afleiðingar þess kunnar til hlítar. Fólk keypti sér þetta svefnlyf í þeirri trú, að það væri ósaknæmt, en þungaðar konur í ýmsum löndum vita nú, að slík- ur lyfseðill felur í sér algerð'an eða hálfgerðan dauðadóm yfir óbornu jéði. Þannig verða fjölmargir ein- staklingar að gjalda aldýru verði bann siðferðilega glæp, sem fram leiðendur og seljendur lyfsins hafa framið. Dagblöðin hér í Reykjavík hafa réttilega fordæmt þau mistök, sem valdið hafa svo miklu böli með fjölskyldum austan hafs og vestan. Og blöðin hafa einnig rakið í dálk- um sínum, hve viðbragðsskjót heilbrigðisvöldin úti í löndum urðu, þegar vitað var um áhrif lyfsins. Nú er engin hætta á, að lyf þetta verði fleirum að tjóni en orð ið hefur, því að eiturverkanir þess eru öllum kunnar og engri lyfjagerð verður lengur þolað að framleiða og selja á sama hátt og verið hefur. Þannig nema menn stöðugt af fyrri mistökum og láta sér víti annarra að varnaði verða. Um það leyti, sem saga eitur- lyfsins var rakin einna ýtarlegast í blöðunum, barst hingað önnur vá- frétt utan úr heimi, og virtist henni þó mun minni gaumur gef- inn. FÝrir nokkru hófu Rússar stórfelldar kjarnorkusprengingar, en áhrif þeirra á ókomnar kyn- slóðir verða ef til vill enn hrylli- legri en afleiðingar eiturlyfsins. Vísindamenn hafa sýnt fram á, hve hættuleg geislaverkun getur orðið, en þó eru afleiðingar af kjarnorkusprengjum ófyrirsjáan- legar og ómælanlegar að því leyti, að enginn veit fyrirfram, hverjir einstaklingar munu þola hinar hryllilegustu kvalir af þessum sökum. Kjarnorkutilraunum Rússa er ekki bemt gegn einstökum mæðrum og börnum þeirra, held- ur má svo að orði komast, að þeim sé beitt gegn öllu mannkyninu. Enginn veit, hvar óskytjaör geigar, og enginn getur séð fyrir, hvar helrykið frá kjarnorkusprengjum kemur niður. Með hverri einustu kjarnorkusprengju, sem leyst er úr læðingi, er verið að blanda loft ið Iævi og byrla eitur ókomnum kynslóðum um allan heim. Allir siðmenntaðir menn hljóta að hafa hinn mesta viðbjóð á þessum til- tektum Rússa. Það er heilög skylda hvers einasta manns að andmæla slíkum ódæðisverkum og innræta komandi kynslóðum andstyggð á þeim. Rússar eru ekki einir um þenn- an stórglæp gagnvart mannkyn- inu. Hér eru einnig aðrar þjóðir sekar, og má þar einkum nefna hernaðarþjóðirnar Bandaríkja- menn, Breta og Frakka, sem allar hafa stundað eiturgerð og stráð geislavirku helryki um gufuhvolf- ið. Skerfur Bandaríkjamanna er þó einna stærstur. Þeir eru eina herveldið, sem beint hefur kjarn- orkusprengjum gegn tilteknum mæðrum og börnum, og ásamt með Rússum hafa þeir eitrað gufu hvolfið mest allra manna. Það er einmitt táknrænt fyrir eðli kjarn- orkuvopna, að bandarískir forvíg- ismenn í síðustu heimstyrjöld létu ekki varpa sprengjum á jap- anskar hernaðarstöðvar, heldur á þéttbýlar borgir, þar sem konur og börn voru tíltölulega fleiri en vígir karlar. Þannig gáfu kjarn- orkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki nokkurn forboða um, hvernig vopni þessu yrði beitt með mestum áhrifum, ef til at- omstyrjaldar kæmi. f japönsku borgunum tveim létu þúsundir barna og kvenna lífið, og aðrar þúsundir urðu að lifa við örkuml og hryllilegar kvalir. Og enginn veit, hver áhrif geisla verkunin kann að hafa á afkomendur þess fólks, sem bandarískir herstjórar völdu að tilraunadýrum árið 1945. Helryk frá bandarískum kjarn- orkusprengjum er ekki hóti betra en fr'á hinum rússnesku, því að afleiðingarnar verða hinar sömu. Vér getum vel gert ráð fyrir því, að bandarísk börn í framtíðinni verði að þola mikið böl af banda- rískum kjarnorkutilraunum, á sama hátt og rússnesk börn verða að sæta ómælanlegum kvölum af tilraunum Rússa, og fólk um all- an heim verður að gjalda þessara glæpa um ókomnar aldir. Forráða- menn kjarnorkuveldanna verða tvímælalaust taldir til stórglæpa-1 manna sögunnar, þegar fram líða stundir, svo framarlega sem heim inum verður langlífis auðið. Eins og ég drap á hér að fram- an, virðast dagblöðin hér vera miklum mun tómlátari um heims- glæpi Rússa og Bandaríkjamanna en um eitraða svefnlyfið. Þetta er ef til vill skiljanlegt, þegar haft er í huga, að stórveldin hafa markvisst unnið að því að venja heiminn við hin nýju og geigvæn- legu morðtól og fá þjóðir og ein- staklinga- til að sætta sig við sprengingarnar og afleiðingar þeirra. Rússar og Bandaríkjamenn hafa jafnvel ekki kinokað sér við að koma fram með siðferðilegar réttlætingar. Þeir virðast sem sé telja sér þörf á að smíða og reyna kjarnorkuvopnin í því skyni, að þeir geti þá með hægara móti varðveitt eitthvað o,g verndað, sem sé mannkyninu dýrmætara en sjálft lífið. Þannig kveðast Rússar þurfa á vopnum þessum að halda, svo að þeir geti varið sósíalismann eg Bandaríkjam. eru á sama hátt reiðubúnir ti! ag beita kjarnorku- vopnum til að verja vestræna menningu og lýðræði, ef nauðsýn krefst. Það er engu líkara en að hinir ábyrgðarlitlu stjórnendur Rússlands og Bandaríkjanna séu þeirrar skoðunar, að sósíalismi og vestræn menning geti þrifizt á þessum hnetti, þótt öllu lífi á jörð i inni sé stefnt í voða. En tómlæti íslenzkra blaða á sér þó sennilega aðra skýringu. í rauninni erum vér samsekir kjarnorkuveidunum, af því 'að vér höfum látið undir höfuð leggjast að beita öllum tækilegum ráðum til ag mótmæla kjarnorkusprengj- um, hverrar þjóðar sem þær kunna að vera, og brýna fyrir þjóðinni sýknt og heilagt, að vér viljum engan þátt eiga í slíkum stórglæp gagnvart mannkyninu. íslenzka stjórnin glaptist á sínum tíma til að lenda í hernaðarbandalagi við kjarnorkuveldi, og því munu for- mælendur stjórnarinnar vera deig sri við að andmæla atomsprenging um þeirra en ella hefði orðið. En i þessu höfuðmáli verða allir að taka afstöðu, hvar í heiminum sem þeir eiga heima. Annaðhvort fylgja menn Rússum og Bandaríkjamönn um að málum og viðurkenna rétt þessara stórvelda til að gera heim- inn óbyggilegan öllum þjóðum ella eru menn þeirrar skoðunar, að all- ar kjarnorkusptengjur eigi að banna. Skopleikur Rússa og Banda ríkjamanna á afvopnunarfundum ætti engan ag ginna, því að það hefur ávallt verið eitt aðal her- velda hve hægt þau eiga með áð leika tveim skjöldum, og í því hafa stórveidin engir eftirbátar verið á þingum undanfarinna miss era um afvopnun og bann á kjarn- orkusprengjum. Á undanförnum árum hafa lín- urnar milli tveggja heimsskoðana sífellt verið að skýrast. Annars vegar eru formælendur helryks- ins, leiðtogar Rússa, Bandaríkja- manna, Breta og Frakka, og með þeim eru trúir fylgifiskar þeirra víðs vegar um heim. f hinum flokknum eru friðarsinnar, leiðtog ar hlutlausra þjóða á borð við Indverja ,og fjölmargir siðferði- lega ábyrgir einstaklingar í hin- um ýmsu þjóðlöndum heims. Hvar vetna fer þeim mönnum fjölgandi, sem skipa sér undir merki friðar- ins og andstaðan gegn siðleysi Rússa og Bandaríkjamanna harðn- ar með hverju ári sem líður. Þegar Ijóst var orðið, hverjar afleiðingar lyfið Thalidomide hef ! ur í för með sér, þótti sjálfsagt að stemma stigu við notkun þess. Þannig fær mannkynið að njóta þeirrar hryllilegu reynslu, sem notendur lyfsins verða að þola. Tvær japanskar borgir voru fyrir seytján árum lagðar í rústir, og síðan hafa vísindamenn fengið yfrin færi til að kanna, hvern slóða atómsprengingar draga. En fórnir þessara ógæfusömu borga virðast hafa verið færðar til einsk is. Leiðtogar stórveldanna virðast vera furðu tregir að nema lærdóm af þeirri reynslu, sem Hirosihima og Nagasaki urðu fyrir, og þó hafa vísindamenn sannað, að enn er ekki séð fyrir um áhrifin frá geislaverkuninni. Böl hinna jap- önsku fórnardýra mun erfast til ókominna kynslóða. Oft er kvartað yfir því, hve á- hrifalitlar smáþjóðirnar eru, og þó hefur vegur þeirra aldrei verið jafn mikill og nú. Með Sameinuðu þióðunum skapaðist nýtt viðhorf í alþjóðamálum, smáþjóðum var nú tryggður miklu meiri réttur en áður. Nú geta smáþjóðir haft geysimikil áhrif á gang ýmissa mála. Rödd þessara þjóða heyr- ist jafnskýrt á þingi Sameinuðu þjóðanna og raddir voldugri þjóða, og atkvæðisréttur smáþjóðanna er þeim ómetanlegur. En öllum rétt- ir.dum fylgja einnig skyldur og ábyrgð. Smáþjóðin verður að bera nokkurn hluta af starfi Samein- uðu þjóðanna. Vér íslendihgar er- um engin undantekning, og und- an ábyrgð vorri megum vér ekki skorast. Vér verðum að beita öll- um áhrifum vorum til góðs, og vér megum aldrei slaka á kröfum vorum til sjálfra vor né til ann- arra þjóða. í átökum stórveld- anna um kjarnorkuvopn er ekki t.il nema eins konar viðhorf, sem ísienzkt geti talizt. Vér hljótum að fordæma allar kjarnorku- sprengjur. Á sömu lund eigum vér að vinna að því öllum árum, að komandi kynslóðir á landi voru hafi óbeit á vopnum og hernaði, enda er hernaðarleysið einhver dýrmætasti menningararfur þjóð- arinnar. ATHUGASEMD RITSTJÓRA: Það er misskilningur hjá grein- arhöfundi, að þátttöku íslands í NATO fylgi einhver ábyrgð á notkun kjamorkuvopna, enda hafa allir flokkar á Alþingi samþykkt einróma mótmæli 'gegn öllum kjarnorkusprengingum, og fsland stutt tillögur á þingi SÞ um að öllum tilraunum með kjamorku- vopn skuli hætt. Þrjú ríki önnur í NATO hafa sömu afstöðu — Dan mörk, Noregur og Kanada. FIMMTUGUR: Sigurður Gunnarsson fyrrc; skólastióri á Húsavík Eg hef komizt ,að því, að einn af vinum mínum, Sigurður Gunn- arsson, sem var sk jlastjóri á Húsavík um langt skeið, hefur stigið svo hljóðlega yfir fimmtugt 10. f.m., að engin dagblöð hafa orðið þess vör. Ég man svo illa eftir afmælum, að ævitugaskiptin fóru auðveld- lega fram hjá mér. Hins vegar hefur minnugur maður vakið at- bygli mína á, áð hinum hæverska manni, Sigurði Gunnarssyni, hafi laglega tekizt að komast hjá því að fá á sig sviðljósið á þessum merku tímamótum ævinnar. Sigurður, sem telur sig vafa- laust, þegar hér er komið, slopp- inn við allt afmælistal og fimm- tugsdóma um sig, skal samt ekki hrósa fullum sigri í þeim efnum. Það skal fyrst upplýst til kynn- ingar, að Sigurður Gunnarsson er Þingeyingur, þó að hann sé svona yfirlætislaus á hálfrar aldar af- mæli sínu. Hann fæddist 10. okt. 1912, að Skógum í Axarfirði. — Foreldrar hans voru: Gunnar, bóndi þar, Árnason, bónda á Bakka í Kelduhverfi, — og kona hans, Kristveig Björnsdóttir bónda að Skógum, Gunnlaugssonar. Sigurður ólst upp á heimili for eldra sinna, sem var mikið mynd ai'heimili. Þar gekk hann að venjulegum sveitastörfum og þótti snemma verkmaður góður. Hann fór i skóla og lauk gagn fræðaprófi við Menntaskólann á Akureyri 1931 og kennaraprófi við Kennaraskólann í Reykjavík 1936. Gerðist kennari við barna- skólann í Borgarnesi það ár og starfaði við hann í tvö ár. Þá réðst hann til barnaskólans á Seyðisfirði og kenndi við hann árin 1938—1940. Á Seyðisfirði kynntist Sigurð- ur glæsilegri stúlku, Guðrúnu. dóttur skólastjórans þar. Karls Finnbogasonar Giftust þau 1941 Til Húsavíkur fluttist Sigurð- ur haustið 1940 og tók við stjórn barnaskólans þar. Þeim skóla stýrði hann í—20 ár eða þar til 1960. Enn fremur var hann skóla stjóri Unglingaskóla Húsavíkur frá 1940—1945, en það ár var s’á skóli gerður að gagnfræðaskóla og um leið til hans ráðinn sérstakur skólastjóri. Á H.-savík á Sigurður mjög merka starfssögu. Hann reyndist framúrskarandi áhugasamur skóla stjóri. Var óþreytandi að vinna fyrir skóla sinn. Skemmtilega og fallega óeigingjarn í skiptum sín- um við skólann. Fylgdist af alhug með nýjungum í skóla- og kennslu málum innan lands og utan. Fór utanfarir. hvað eftir annað, til þess að kynna sér milliliðalaust kennsluhætti og starfsaðferðir í barnaskólum í Danmörku, Noregi Svíþjóð og Bretlandi. Sigurður beitti sér fyrir því, áð- ur en hann fór frá Húsavík, að byggt var þar skólahús mikið og vandað. Er mál manna, að hús þetta sé eitt fullkomnasta barna- skólahús á landinu, um leið og þar er einnig afbragðs aðstaða í íþróttasal fyrir eldri sem yngri Húsvíkinga til íþróttaæfinga. Mun húsið lengi minna á at- orku Sigurðar Gunnarssonar og stórhug hans í skólamálum. Meðan Sigurður var á Húsavík tók hann mikinn þátt í félags- málastörfum, fyrst og fremst að því er uppeldismál varðaði, en auk þess á öðrum sviðum. Hann var formaður Kennarafélags Suð ur-Þing. öll árin. Formaður Kenn avasambands Norðurlands 1944— 1946 og 1950—1952. Forustumað- ur í bindindissamtökum. í stjórn um barnaverndarfélags, skátafé- lags og skógræktarfélags. Þátttak andi í Karlaukórnum „Þrym“ og kirkjukór Húsavíkur. Formaður sóknarnefndar Húsavíkur frá 1956. Formaður Sjúkrasamlags Húsavík ur frá 1943. Kosinn fulltrúi á Kirkjuþing 1956, fyrir Þingeyjar og Eyjafjarðarsýslur. Formaður Húsavíkurdeildar Norræna félags ins frá 1957. í yfirskattanefnd, formaður kjörstjórnar, — og er þó alls ekki allt talið. Sigurður spurði aldrei um það á Húsavík, hvað hann fengi greitt fvrir félagsmálastörf sín. Honum var aðalatriði, að verkin væru vel og rækilega af hendi leyst. Sigurður er árrisull maður og hefur oft lokið vænu verki „aðrir þegar stóðu á fætur“. Á morgn- ana vinnur hann löngum að rit- störfum. Hann hefur þýtt úr er- lendum málum 26 bækur fyrir börn og unglinga. Auk þess hefur hann þýtt fjölda ritgerða um upp eldis- og skólamál. Frarnhald á 13 síðu T í M I N N, "'omtudagur 8. nóvember 1962, 8

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.