Tíminn - 10.11.1962, Blaðsíða 8

Tíminn - 10.11.1962, Blaðsíða 8
Verjandi í vandræðum Asmundur Eiríksson, forstjóri Hvítasunnumanna, kallar varnar- grein sína i Tímanum 31. okt. „Prestur gerist vandlætingasam- ur“. Mér er ekki ljóst, hvers vegna hann velur þá fyrirsögn. Varð hann forviða á, að nokkur prestur skyldi andmæla opinber'lega ein- hverju, sem honum þætti víta- vert? Þá „sneið“ tek ég ekki til mín, var farinn að' andmæla æði mörgu vítaVerðu löngu áður en Ásmundur kom fram á sjónar- sviðið og hef aldrei hætt því alveg síðan, þótt mér hafi oft fundizt, að trúvörn stæði nær mér yngri áhugamönnum síðustu árin. Vera má, að þetta sé ekki annað en „vin- samlegt" olnbogaskot til presta- stéttarinnar í þakkarskyni fyrir ýmsa tilhliðrunarsemi við Hvíta- sunnumenn og afskiptaleysi voru gagnvart sérskoðunum þeirra. Hr. Ásmundur ætti ag útskýra þetta betur í næstu „varnargrein". En svo er það greinin sjálf. Eg skil það vel, að verjandi sé í vandræðum, þegar hann er sjálf- ur alveg sammála aðalatriðinu í sókn sækjanda, enda ber grein hans þess glögg merki. Hann und- irstrikar það, sem ég hafg; áð- ur sagt, að honum hafi mislíkað orðið „kristniboðsstöð“ hjá Þór- arni Magnússyni, sem aldrei hefur verig kristniboði, þótt hann ætlaði sér það einu sinni. En svo fer Ás- mundur að afsaka þetta með því, að Þórarinn sé svo einhæfur Krists trúarmaður, að hann vilji ekki sleppa þessu rangnefni. Ef leiðtog- ar trúarflokks hans trúa þessu í alvöru — ég efast sem sé um það — þá er mér spurn: Hví í ósköp- unum voru þeir að refsa Þórarni með því að vísa margnefndri „stöð“ hans í Grænlandi úr sínu samfélagi? Og hvers vegna kall- að'i Þ. M. fyrra trúboð sitt í Stokk- hólmi ekki ,.kristniþoð“? Hitt er vonlaust verk ag reyna að telja fólki trú um, að Þ. M. hafi verið hálfhræddur um, að trúboð hans á Grænlandi yrð'i kennt við „Búddha, Múhameð eða Jehóva- vitni,“ ef hann sleppti kristniboðs nafninu. Það er auðvelt að koma í veg fyrir það með því ag kenna „stöðina" við Hvítasunnumenn. Það var réttnefni, en ekki eins vænlegt til fjáröflunar meðal landa hans, sem flestir voru og eru ó- kunnugir kirkjusögu Grænlands. Eftir lestur „varnargreinarinnar", er ég enn sannfærðari en áður um, að rangnefnið „kristniboð" er að- eins notað í fjáröflunarskyni hjá Þ. M. , Þá er það alveg út í hött ag gefa ’í skyn, að mér farist ekki að finna að dugnaði Þ. M. við' fjársöfn- unina, því að ég hafi sjálfur skrif- að í blöðin fyrir 40 árum til að hvetja menn til að styðja stofnun elliheimilis í Reykjavík. Það er sem sé sá mikli munur á þeirri fjársöfnun, að ég og starfsbræð- ur mínir notuðum aldrei nein villandi orð í fjáröflunarskyni, en sögðum blátt áfram, „vér ætlum að stofna elliheimili“ — datt ekki í hug að kalla heimilið „kristni- boðsstöð" eða neitt annað, sem gæti villt mönnum sýn, viðvíkj- andi fyrirætlunum vorum. Leyfi ég mér að skora á Ásmund Ei- ríksson að sanna meg réttum til- vitnunum úr blaðagreinum mfn- um, frá 1922, að hér sé ekki rétt skýrt frá, eða stinga sneiðinni í Benedikt Kröyer sjálfs síns vasa að öðrum kosti. Svipað má segja um fjársöfnun Kristniboðssambandsins til kristni boðsstöðvarinnar í Konsó. Hún hef ur aldrei farið fram undir „fölsku flaggi", sanni hr. Ásmundur hið gagnstæða, ef hann getur. Ann- ar ser engu líkara en hann hafi ekki lesið' lokaor'ðin í grein minni í Tím anum 23. okt. Líklega öruggast að endurtaka þau. Þau voru: „Eg átel engan, þótt hann styrki trú- boðsstöð þessa predikara Hvíta- sunnumanna, því að enn er hann ! talinn þeirra maður, ef gefanda er ljóst, að þarr.a er ekkert kristni boð, af því að Grænland var krist- ið land, löngu áður en Þórarinn ! kom þangað." Mér finnst, að þessi orð geri1 fyrrgreinda hjiðarárás Ásmundarr alveg ómerka og ástæð'ulausa. Verjandi eignar mér þau um- mæli, „að danskir prestar séu ekki hrifnir af starfi Þórarins," og finnst það ekki skipta máli. Bein- ast liggur við ag skilja þetta svo, að ég hafi verið þarna að tala um „danska presta“ á Grænlandi, því ag aðrir „danskir prestar" munu fátt vita um þetta „starf“. En þarna er sá „smágalli" væntan- lega af fljótfærni að ég hef ekk- ert um þetta sagt, enda alveg ó- kunnugt um álit presta á Græn- landi á „starfi“ Þórarins. Orð mín sýndu greinilega, að ég var ekki að tala um presta Grænlands og heldur ekki um annað en „kristni- boð'sskrafið“. sem væntanlega ei ekki aðalstarf Þárarins. Eg sagði, að danskir prestar, sem frétt hafa um' „kristniboðsskraf" Þórarins, hafi orðið „forviða og gramir vegna starfsbræðra sinna þar vestra.“ Mig furðar á, að nokkur skuli geta misskfilið þessi orð. Erlendur predikari, sem sezt ag í kristnu landi til þess að boða þar sérkenningar sínar, gerir starfi sínu lítinn greiða með því að gefa í skyn, að nú sé hann farinn að boða heiðingjum kristna trú. — Um það hef ég greinilega frá Grikklandi. Sahnast þar sem Ás- mundur segir: „Miklum áhuga- mönnum getur farið þannig, að ,,kostgæfni“ þeirra verður ekki allt af með skynsemd". Eg er alveg ókunnugur „kostgæfni" Þórarins nema við stórmiklar bréfasending- ar, sem ekki voru allar með skyn- semd, og prestum Grænlands hefi ég aldrej kynnzt nema af blaða- skrifum. En þegar ég las í Lesbók Morgunblaðsins 28. okt. ferðasögu sr. Svends Rasmussens, prófasts í Godtháb, þá hugsaði ég: „Þórar- inn Magnússon á skilið að fá góða gjöf, ef sannar fregnir berast um, að hann hafi farig í 14 daga ferða- lag með hundasleða til þess að flytja sakramentið til tveggja safn aðarbarna sinna.“ Lokaorð mín eru þessi: Getur Asmundur Eiríksson frætt aðstoð- armenn Þórarins og aðra um, hvað Þórarinn kallar „stöð“ sína í fjár- heiðnum til þessara átta annarra landa en íslands, sem hann nefn- ir í skýrslu sinni í Tímanum 4. okt.? Kennir hann hana við trú- hoð meðal heiðiingja („kristni- hoð“) eða við trúbræður sína? Það atriði er sérsiaklega mikilsvert, ef rneginatriði allra þessara Græn- landsgreina verða birtar f er- iendu dagblaði, sem vel getur kom ið fyrir. Sigurbjörn Á. Gíslason Benedikt Kröyer, fyrr bóndi á Stóra-Bakka í Hróarstungu, and- aðist í Landspítalanum hinn 1. nóv. þ. á. Hann var fæddur á Hvanná í Jökuldal 31 janúar 1881, sonur Kristjáns Kröyer, stórbónda og smiðs á Hvanná. Jóhann Kaspar Kröyer var á ungum aldri sendur upp á Siglufjörð til verzlunar- starfa. Hefur það verið á síðustu dögum kóingsverzlunarinnar síð- ustu, er féll úr sögu með verzlun- arfrelsinu 1787. Talið var, að hann hefði verið alinn upp á föðurleys- ingjaheimili i Kaupmannahöfn og hefði vel getað verið sonur kóngs- ins. Jóhann fór ekki síðan af Siglufirði. Ilann varð þar verzl- unarstjóri, náði eignarhaldi á höf- uðbólinu Höfn í Siglufirði, var þar stórbóndi og hreppstjóri, stór vel metinn maður. Hann átti bónda cióttur, Rakel Halldórsdóssur frá Skógum í Reykjahverfi, og voru þeirra synir Jörgen prestur. f. 1801, á Helgastöðum, Halldór er sýslumaður var í Þingeyjarþingi um 1834, en missti heilsu og lifði lengi vig hörmungar, og Jóhann, sem bjó í Eyjafirði, en dó fremur ungur. Sonur hans var Kristján, sem ólst upp á Helgastöðum með séra Jörgen, lærði trésmíði og var svo á vegum Þorgríms prests Arn- órssonar á llúsavík og kom með honum í Hofieig 1848. Nokkrum ár um síðar gekk Kristján að eiga Margréti, dóttur sr. Þorgríms, og reistu þau bú á !HlWfWi‘tá.111Kfcfí&1 Þorgríms prests var'GuðPfðS^Péth ursdóttir frá Engey,' öuáníunds- sonar, en móðir Þorgríms prests var Margrét Björnsdóttir prests í Bólstaðarhlíð hins kynsæla, Jóns- sonar. Arnór faðir séra Þorgríms var prestur á Bergsstöðum og son- ur Árna biskups á Hólum Þórar- inssonar. Þau Kristján og Margrét bjuggu stórbúi á Hvanná, og var Kristján um skeið talinn ríkasti bóndi á Héraði. Keypti hann Hvanná af kirkjujarðasióði og margar fleiri jarðir. einkum í Tunguhreppi. Kristján var afburða verkmaður og kappsfullur, heyskaparmaður með afbrigðum og lét hvert járn bíta í slættinum. Slapp honum aldrei verk úr hendi. en eigi sinnti hann gegningum á veturna. en stóð þá í smiðju og við hefil- bekkinn meg sínu kappi og út- haldi. Kristján. og Margrét áttu nokkur börn og var Benedikt nokkru yngstur. Á þeim dögum var búskapurinn mestur á Hvanná sem víða á Jökulsdalsjörðum, þótt I nú væri illa ært í landi, og ólst Benedikt þar upp við frábæran ! myndarskap, utan bæjar og innan. ! Líktist hann föður sínum um1 verklegan áhuga og lærði, eins og hann, trésmíði og sló ekki slöku | við í verkbrögðunum, frekar en Kristján. Benedikt var um tvítugt er Kristján lét að mestu jörð og bú í hendur tengdasyni sínum. Jóni, síðar alþingismanni Jóns- syni, og dvaldi Benedikt að Hvann- á. en fór að smíða innan sveitar og utan. Kristián eignaðist nokkr- ar jarðir. er liggja þvert yfir Tunguhrepp milli Jökulsár og Lagarfljóts. framarlega í sveit- ir.ni. Var ein þeirra stórbýlið Stóri- Bakki, er liggur við Jökulsá, með fegurstu jörðum á Héraði. Það ^ höfðu dóttir Kristjáns og tengda 1 sonur hafið búskap um aldamót ; in, en þau dóu bæði um lR04--’05 Árið 1906 fór Benedikt að búa á Stóra-Bakka og kvæntist 23. júlí j sama ár heitmey sinni, Antoníu I Petru Jónsdóttur, bónda á Svína- bökkum, Jónssonar, af Vopnfirsk- um ættum, systur Páls, föður Björns flugmanns. Voru þetta bæði gervileg og gæfuleg ung hjón. Þau hófu þegar myndarlegan bú- skap á Stóra-Bakka, bar hitt þó af, hversu mikill þrifnaður var á búi þeirra. Benedikt húsaði mynd arlega og varð þar drjúgt úr sjálfs sins verkum. Því segja mátti það sama um hann, eins og Kristján, nföður hans, ag honum féll aldrei verk úr hendi. Var Stóra-Bakka- heimilið eitt efnaðasta og rrtyndar- legasta heimili á Héraði á fyrsta þriðjungi þessarar aldar. Benedikt hafði hvers manns traust, sem lionum kynntust Hann var stór- vel gefinn maður, en svo hlédræg- ur, ag fáir vissu, hvað hann var djúphygginn Hann gegndi ýmsum opinberum störfum í sveit sinni, og fórst það allt samvizkusamlega úr hendi, enda mátti hann ekki vamm sitt vjta um nokkurn hlut. Hvar sem hann sást, var hann kurteis og hóglátur, og lét hvern áiykta það. sem honum sýndist, en það gat komið fyrir. að hann kimdi létt, ef honum leizt, að óþarflega væri grunnt vaðið. Svt mikill skapdeildarmaður var Ben« dikt, að fáir eða engir vissu til að hann skipti skapi, og líkað'i um þó eins og öðrum misjafnlega, hversu margt horfði við. Aldrei kom blótsyrði yfir hans varir, i hæsta lagi sagði hann „anzans“. T’ar það frægt, að ungum, greind- um, kappsfullum manni á heimili hans mæltist í frekara lagi við hann um lítinn hlut, að þá sagði Benedikt: „Anzans munnur er á þessum manni.“ Áttust hér líka vig menn, sem mátu hver annan mikils og voru vinir. Af þessum og öðrum íiáttum var Benedikt iofsæll maður, og ævi hans leið í hógværð og ið'jusemi á fallegu heimili, sem sífellt stóð undir end- urbótum hinna starfandi hagleiks- handa. Reisti Benedikt þar steinhús, snemma á sihni búskapartíð, og öll var húsagerg á Stóra-Bakka með miklum myndarbrag, og efni góð. Voru þau hjón góð heim að sækja, Antonía hagmælt og skemmtin, en Benedikt svo prúður í orðum og athöfn,-að þarna leið öllum vel. Þau hjónin eignuðust fimm syni og önduð'ust tveir í æ-sku, en Kristján og Hafsteinn urðu bændur á Stópa-Bakka en Ásgeir flutti til Reykjavíkur og starfar þar á póststofunni. Eru þeir allir traustir drengir og miklir starfsmenn Þau hjónin létu jörð- :na í hendur þeim sonum sínum, Kristjáni og Hafsteini árið 1948 og fluttu til Reykjavikur. Þar starfaði Benedikt enn að smíðum og ýmsu er til féll og varð honum margt fvrir sínum verkfúsu hönd- um og entust starfskraftar fram á síðasta ár. er hann var orðinn átt- ræður að aldri. Antonía lifir mann sinn og þau áttu heimili á Skálafelli við Breiðholtsveg og héldu þar rausn og háttum í sam- ræmi vig síra sögu í stórbúskap : miðju Héraði. Um Hérað allt er Benedikt kvaddur með þakklæti og virðingu og fólki hans sendar samúðarkveðjur Benedikt Gíslason frá Hofteigi Áthugasemd við frétta- tilkynningu — frá stjórn Læknafélags Reykjavíkur Þann 3. nóv. s.l. birti ríkisstjórn in tölulegt yfirlit yfir launagreiðsl ur úr íkissjóði til fastráðinna sjúkrahúslækna. Eftirfarandi at- riði fréttatilkynningar þessarar þurfa einkum athugunar við: a Gersamlega skortir allar upp- lýsingar um vinnutíma lækn- anna. h Engin sundurliðun er á greiðsl unum. c Ekki er þess getið, hverjar mánaðartekjur viðkomandi lækna þurfi að vera til þess að þeir njóti svipaðra ævitekna og aðrar stéttir. d Minnzt er á praxis læknanna en þess er eigi getið, hverni^ hann hefur breytzt og mef hvaða hætti hann er nú. e Ekki er getið um tilboð Lækni félags Reykjavíkur, sem ræti var fram til 13. apríl 1962, o| ekki minnzt á þau rök, serr það tilboð byggðist á. f Mikill munur er á launagreiðs; um til lækna í samsvarand: stöðum. Engar fulltxægjand skýringar eru á þessum mun. Fratnh S 15. sfðn T í M I N N, laugardagur 10. nóvtmber 8

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.