Tíminn - 10.11.1962, Page 13

Tíminn - 10.11.1962, Page 13
Myndin Framhald af 9. siðu kunni ferðalangur Vigfús Guð- mundsson til að kaupa Þing- vallakortið og senda það vinum sínum í Ástralíu og víðar á hnettinum, og hann á víst kunn ingja í öllum heimshornum. Og líka eru það ýmsir,' sem gefa kortið innrammað í jóla- gjöf og innrömmun tekur tíma. — Þið getið víst verið á- nægð með kortin ykkar, þegar prentun þeirra er borin sam- an við það sem gerist erlendis. — Eg skal segja ykkur það, að í september tók ég sumar- fríið og skrapp til Lundúna til þess að sjá syni mína tvo, sem þar eru búsettir. Þá notaði ég tímann til að skoða söfnin, og ekki gerði ég mér sízt far um að skoða listaverkakortin, sem þar voru til sölu. í einu stærsta safnniu var farið að selja jóla- kortin. Þar sá ég t.d. eitt með mynd etfir franska málarann Claude Monet, og málverkið sjálft sá ég líka í safninu, þótti myndin sérlega falleg og frísk. En kortið fannst mér aftur á móti eitthvað grámuskulegt. Þá varð mér hugsað til þeirra, sem gert hafa litkortin fyrir Ás- grímssafn, þau eru mun betur prentuð en kortin í hinu stóra fræga safni, að því er mér fannst. Við eigum orðið ákaf- lega vel færa menn í þessari grein. Það er rétt, sem kunnur borgari sagði vig mig nýlega, þegar hann sá Þingvallakortið, og hann hefur vit á slíkum hlutum: „Það er alveg lygileg framför, sem hér hefur orðið á þessu sviði síðustu 3—4 ár- in.“ — Er sérstök ástæða fyrir því, að þig völduð þessa mynd til að prenta eftir nú? %— Þetta er í fyrsta lagi ákaf lega falleg mynd, það fannst listamanninum sjálfum, eins og sjá má á sögu, sem skal segja ykkur um þessa vatnslitamynd. Hún á nefnilega sína sögu. Ás- grímur Jónsson málaði mynd- ina síðla hausts og nefndi hana Haust á Þingvöllum. Honum þótti haustið fegursti árstím- inn á Þingvöllum, og hann fór þangað austur dag eftir dag, þegar heilsan leyfði og veður var gott. Haustlitirnir voru Ás- grími óþrjótandi viðfangsefni, og hann hafði einna mestar mætur á landslaginu í nágrenni Arnafells, hjá Vellankötlu og gjánum, enda þykir öllum þarna undurfagurt og sérkenni legt landslag. En svo skeði það skömmu eftir að Ásgrímur mál aði þessa mynd, að hann lét hana frá sér fara, og dauðsá svo eftir henni og gat ekki um annað hugsað en myndina. Og það atvikaðist þannig: — Ein var sú stétt, sem Ás- grímur Jónsson hafði sérlega miklar mætur á, enda má segja, að hann hafi verið í hennar um sjá að mestu síðustu árin, sem hann lifði, og það var hjúkrun arkvennastéttin. Stundum kom það fyrir, að stúlkurnar báðu hann ag selja sér mynd, og varð hann venjulega við þeirri bón, þótt hann væri svo að segja steinhættur að selja myndir. En eitt sinn var hann of fljótur á sér, — seldi Haust á Þlngvöllum. Oft heyrði ég hann segja: „En að ég skyldi láta hana“. Hann tók sér þetta svo nærri, að loks var talað við stúlkuna og hún spurð, hvort hún væri fáanleg til að skila myndinni aftur, og yrði henni þá bættur skaðinn. Hún sam- þykkti þetta á stundinni, og hún fékk í staðinn stóra undur fagra olíumynd. Þá varð Ás- grímur glaður. Honum fannst hann hafa himin höndum tekið, þegar hann fékk aftur þessa Þingvallamynd. — Og nú er líka von á nýrri Ásgrímsbók fyrir þessi jól. — Já, það er von á henni á hverri stundu. Ragnar Jónsson forstjóri gefur hana út. Fyrir tveim árum fór hann þess á leit, að Ásgrímssafn léði hop-, um nokkrar myndir til prentiln ar í nýja bók, en sú fyrri, sem var fyrsta stórlistaverkabókin, sem Ragnar gaf út, er uppseld fyrir nokkrum árum. En mynd ir hefur hann annars fengið léðar víða að í bókina. Ragnar lét þess getið, að bókin ætti að verða sú fegursta, sem prentuð hefur verið á íslandi. Eg fæ ekki betur séð.en það séu orð að sönnu. Með þessari nýju Ás- grímsbók hefur Ragnar Jónsson reist vini sínum, Ásgrími Jóns- syni, hinn fegursta minnis- varða. G.B. NáKu ercgri Framhaid af 16. siðu gífurleg og snjóhengjur allt í kring. Leitarmenn voiu þrjá daga í íerðinni og fundu 124 kindur á heimaverðum afréttinum, í Sölva- hrauni, Valafelli og á Ferjufit við Hald. Þetta fé hafði sloppið úr fieimahögum inn á afréttinn. Það sannaðist áþeifanlega, að slíkar ferðir á ekki að fara nema a beltavélum. Á göngu sukku leit- armenn í mjóalegg og miðjan kálfa, og ef vind hefði hreyft mundu þeir ekki hafa komið bíl- unum fram. Nehru varar víð (Framhald af 3. síðu) versku og indversku þjóðinni í dýr. En hvað sem kann að ger^ ast, verðum við að trúa því að friður komist á, þ.e.a.s. friður, sem við fáum með heiðri, og hef- ur það í för með sér, að við höld- um landsvæðum okkar. Eg vona að við verðum ekki stríðsbrjáluð, sagði Nehru að lokum. Fréttastoian í Pakistan sagði í dag, að enn væru um það bil 80% indverskra hermanna staðsettir við landamæri Indlands og Paki- stan, og væri framkoma herjanna nokkuð ógnandi. Chen Yi utanríkisráðherra Kína, sagði í ræðu, sem hann hélt í dag, að sáttatillögur Kínverja væru mjög sanngjarnar. Þar er m. a. stung|ð upp á því, að báðir aðilar flytji sig til þeirra staða, sem eru í 18 km fjarlægð frá landamær- unum frá 1959, en þau landamæri hafa verið undir „faktisk“ eftir- liti beggja, en síðan skuli Nehru og Chou En-Lai hefja viðræður. Indverjar hafa á hinn bóginn sagt, að þeir geri sér ekki fulla grein fyrir þvi, hvað Kínverjar meini með „faktisk“ eftirliti og hafa krafizt þess að Kínverjar hverfi til þeirra staða, er þeir höfðu yfir að ráða 8. sept. sl. Krishna Menon, sem fyrr;í vik- unni sagði af sér, sagði í bréfi til Nehru í dag, að hann hefði farið úr stjórn landsins til þess að leggja lítinn skerf af mörkum til einingar þjóðarinnar, en hann hefði með sársauka gert sér grein fyrir því að ekki var borig traust til hans lengur. Allt virðist með kyrrum kjörum á landamærunum, en þó hefur sézt til kínver^kra skriðdreka á ferð í Ladakhhéraðinu. / Stjórnin í Portúgal hefur komi'ð því til leiðar, að lierstöðvar á Az- oreyjum verði ekki notaðar til við- komu, á leið flugvéla eða skipa, sem flytja vopn til Indlands. f Lissabon er talið, að hér sé átt við flugstöðvar Bandaríkjanna á eyjunum, en nafn* stöðvanna hef- ur ekki verið gefið uppi. í tilkynn ingu Portúgalsstjórnar segir, að stjórnin geti ekki gleymt árásum índverja á Goa. Happdræffið Framhald af 16. síðu ir fyrir áhuga og dugnað við sölu bæði nú og fyrr. Ef umboðsmenn almcnnt seldu 20—25% fleiri miða en þeim hafa verið sendir mundi allt seljast upp og árangur verða frábær. Keppum að því marki. Munið að vinningar í happ- drætti okkar eru frábærir og miðarnir ódýrir. Aðalskrifstofan er í Tjarnar- götu 26, Rvík, sími 12942. Furða sig... Framhald af 3. síðu. anna á Kúbu, lieldur hefðu Bandaríkin átt a® lyfta af hafnbanninu á eyjunni, fara á brott frá kúbönsku landi og hætta að rjúfa loftlielgi Kúbu. Valtýr opnar sýningu í dag VALTÝR Pétursson listmálari opnar málverkasýningu í Lista- mánnaskálanum í dag kl. 2 e. h. Þetta er með stærstu sýningum, sem Valtýr hefur haldið, 54 olíu- og vatnslitamyndir, aliar gerðar síðan Valtýr hélt sýningu síðast og talsverð breyting hefur orðið á liststíl hans á þessum tíma. Þó er skemmra milli þessara sýninga en annarra, sem málarinn hefur haldið, því að yfirleitt hafa liðið fjögur ár milli sýninga hans. Val- týr hefur sýnt oft á sérsýningum í París og enn fleiri samsýningum þar og í öðrum löndum, síðast á Louisiana-sýningunni í Danmörku s. I. vetur og seldi þar tvær mynd- ir, málverk og mósaikmynd. — Sýning hans að þessu sinni verð- ur opin daglega kl. 2—10 e. h. til 25. nóvember. Stúlka óskast til að gæta barna 4—5 tíma á dag. Fæði og herbergi getur fylgt ef óskað er. Upplýsingar í síma 36509 eftir kl. 2. Kanpum málma hæsta verði.. Arinbjörn Jónsson, Sölvhólsgötu 2 Sími 11360 VÉLADEILD - SAIVIBANDSHIJSINU - SÍMI 170SO ffmmskiptum gírkassa, frískipfy drifi, miSsfö®, forhifara, dempurum, stefnuijósi, vökva- lyffu, 5 hjólbörðum — 9.00x20-12 strigal., og 2 hjólböröum 8.25x20-10 strigal. Leitið upplýsinga — kynnið yður hin hagstæðu kjör. BEDFORD J6LC5 burðarjiol 7V2 tonn, kostar aðeins kr. 225.000,00 með 107 ha. dieselvél, T í M I N N, laugardagur þO. nóvember 1962. 13 t

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.