Tíminn - 03.01.1963, Blaðsíða 1
ttlMA
ERUÓSGJAFlt
1. tbl. — Fimmtudagui» 3if janúar jjffóct--- 47. árg.
NÆRRI
SOKKIÐ
UNDAN
SlLDINNI
MB—Reykjavík, 2. jan.
Minnstu munaði, að illa færi
fyrir einum Vestmannaeyja-
bátinum í lok gamla ársins.
Bá*urinn Kristbjörg var að
sfdveiðum undan Reykjanesi
að morgni gamlársdags. Veð-
ur var fremur gott, en einhver
ylgia mun hafa verið. Skip-
veriar höfðu aflað vel og voru
komnir með rúmlega fimmtán
hundruð tunnur.
Voru þeir að ljúka við að háfa
og ætluðu að fara að halda heim
á leið, er þeir tóku eftir því, að
skipið var íarið að siga mikið að
aftan. Sneru þeir þá við blaðinu
ug opnuðu iensportin til þess að
skila Ægi gamla nokkru af því,
sem þeir höíðu heimt úr greipum
bans. Jafnframt tók skipstjóri það
til ráðs að keyra upp í báruna,
en ekkert dugði, skipið hélt áfram
að síga að aftan. Var nú skipinu
snúið og siglt lens. Jafnframt var
beðið um aðstoð og björgunarbát-
urinn hafður tilbúinn. Var sjór þá
kominn langleiðina upp á báta-
dekk. Sem betur fór þurfti ekki
á aðstoð að halda, því eftir að bátn
itm var snúið tók hann að lyfta
skut að nýju.
Komst báturinn heilu og höldnu
Framhald á 15. síðu.
Síldin verði ekki flutt
á dekki í öryggisskyni
MB-Reykjavík, 2. jan.
Skipaskoðunarstjóri,
Hjálmar R. Bárðarson, hef-
ur sent nokkrum aðilum til
lögur, sem óskað er álits á,
til að draga úr sjóslysahætt
unni á vetrarsíldveiðunum.
Er þar m.a. lagt til að hætt
verði að flytja síld á dekki
og gætt verði mikillar var-
úðar í notkun hillna í lest-
um.
Mörgum hefur orðið tíðrætt
um hina miklu hleðslu síldar-
skipa, enda er vitað að stöð-
ugleiki skipanna minnkar
mjög ört við mikla dekk-
hleðslu. Skipaskoðunarstjórinn
hefur nú sent ýmsum aðilum,
bar á meðal LÍÚ og sjómanna
samtökum, tillögur, sem hann
leitar álits á, um það meðal
annars að takmarka eða af-
nema alveg þilfarshleðslu fiski
skipa á vetrarsíldveiðum. Enn
fremur telur skipaskoðunar-
stjórinn, að notkun hillna í
Franihald á 15. síðu.
UNGIIt SEM GAMLIR kvöddu árið' 1962 með virktum, og kannski öllu innilegar en oft áður. Bálkestir
loguðu glatt víða um Reykjavík, og hinir ungu létu ekki á sér standa að mæta á þeim stöðum, þar sem
gamalt ár hvarf í eldslogum upp í næturhúmið. Þelr eldri skoluðu því hins vegar niður í ýmsum drykk
— og nokkuð harkalega sumir hverjir, eins og dæmin sanna í fréttum annars staðar í blaðinu. Þessi
mynd er tekin við Valsheimilið, er leið að miðnætti. (Ljósm.: TÍMINN-RE).
SK-Vestmannaeyjum, 2. jan.
Eldur kom upp um fimm-leytið
í dag í húsakynnum Smiðs h.f. hér
í Vestmannaeyjum. Fyrirtækið ér
til húsa í stórhýsi við Strandveg
og kviknaði í efstu hæð hússins.
Þar er efnisgeymsla íyrirtækisins
og þar geymdar lakkvörur og máln
ing. Var lán, að allstór sending af
þessum vörum var rétt ókomin.
Hæðin varð alelda á svipstundu,
rúður sprungu og logarnir stóðu
út um gluggana. Slökkviliðið kom
fljótlega á vettvang og tókst á
stuttum tíma að ráða niðurlögum
eldsins, en miklar skemmdir urðu
á hæðinni og eyðilagðist talsvert
af spóni og harðviði. Einnig má
búast við að einhverjar skemmd-
ir hafi orðið af völdum vatns á
neðri hæðunum, þótt loftið sé
steinsteypt.
Ekki urðu slys á mönnum. Elds-
upptök eru ókunn.
(. i' .
í norður með segulband um úlnliðinn
Segularmböndin rjúka
út jaf nótt og þau koma
JK-Reykjavík, 2. janúar.
Eins og endranær voru tveir
síðustu mánu'ðir ársins góð
vertíð hjá kaupmönnum lands
ins. Ein vara hefur þó skarað
fram úr og hefur jafnan selzt
upp á svipstundu, þegar send-
ingar af henni hafa komið til
landsins. Þetta eru segularm-
böndin frægu, sem sögð eru
lækna flest líkamsmein, sem
tjáir að nefna.
Nú um áramótin var innflytjandi
þessara japönsku armbanda að fá
nýja sendingu með 600—700 arm-
böndum, og verða þau seld þessa
dagana. Armbönd þessi eru gyllt
og meinleysisleg að sjá en eru seg
ulmögnuð, og í því er lækninga-
mátturinn fólginn, að sögn fram-
leiðenda. Þeir segja þau lækna of
háan og of lágan blóðþrýsting,;
andarteppu, iungnakvef, ýmsar teg i
undir gigtar, þar á meðal liðagigt, I
og marga aðra sjúkdóma, jafnvel !
svefnleysi.
í kaffiboðum jólavikunnar hefur
frægð þessara armbanda verið
mjög umtöluð og ýmsar aldraðar !
konur eiga varla til orð yfir á-
.gæti þeirra. M. a. er talið öruggt
ráð við svefnleysi að sofna með
þessi armbönd, þannig að höfuð
manns snúi í átt til norðursegul-
skautsins
Síðustu þrjá áratugina fyrir alda
mótin var mikið blómaskeið fyrir
undralyf. Þá voru m. a. svonefndir
voltakrossar mjög í tízku hér, en
þeir voru þá taldir hafa svipuð
seguláhrif og sagt er um armbönd-
in núna. í tímaritum þeirra tíma
er mikið um auglýsingar, þar sem
fólk vitnaði um undramátt þess-
ara krossa. Framhald á 15. síðu
Aðils—Kaupmannahöfn, 2. jan.
Allmiklir skaðar og eldsvoðar
urðu í Danmörku um áramótin.
Tveir menn létu lífið og ellefu
íullorðnir og 18 börn urðu heim-
Framh. á 15. síðu
Landa nú síldinni á
bryggjuna í Eyjum
KB-Reykjavík, 2. jan. I Aflahæstir þessara báta voru I Síðustu nótt voru ekki mjög
' e._..._* . I margir bátar á sjó, en voru flest-
Síldveiði hefur verið góð Stapafell með 1400 tunnur, ir komnir út j dag og farnir að
síðasta sólarhring. Til Reykja- Halldór Jónsson með 1250 og kasta síðdegis, bæði suður í Mið-
víkur komu í dag ellefu bátar Helgi Flóventsson og Steinunn nessj° og á Jökuldjúpi. Um afla-
með samtals 10.150 tunnur.l með 1200 hvor bátur. (Framhald á 15. síðu).