Tíminn - 23.03.1963, Side 3
Fyrir skömmu brauzt út taugaveiki í svissneska skíSabænum Zermatt, en þar var þá mikill fjöldi
manna staddur við iðkun vetraríþró'tta. Hefur veikin nokkuð breiðzt út síðan, þótt reynt sé eftir
megni að einangra þá sem hafa sýkzt eða grunur leikur á, að geti borið veikina. Þegar fregnaðist
að taugaveiki væri komin upp í bænum sló að von um miklum óhug á menn, sem þar voru staddir, og
margir komu sér á brott þaðan eins fljótt og auðið var. — Myndin hér að neðan er tekin á járnbrautar
stöðinni í Zermatt og sést þar ös fólks, sem ferða hugur var kominn í vegna veikinnar. (UPI).
Skjdta sér á bak
við skipulagsleysi
Á fundi borgarstjórnar Reykja-'
vikur í fyrrakvöld var til umræðu j
eftirfarandi fyrirspurn fá Birni
GuSmundssyni, borgarfuiltrúa
Famsóknarflokksins:
1. Hvenær er fyrirhugað að full-!
gera Lækjargötuna í sömu
breidd r.orðan Bankastrætis,
eins og hún er sunnan strætis-
ins?
2. Liggur fyrir áætlun um kostnað í
við framkvæmd þcssa verks, og
ef hún hefur verið gerð, hver
er hann þá áætlaður?
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri
svaraði þessum fyrirspurnum á þá
lund, að þetta yrði gert starx og
skipulag er ákveð'ið í miðbænum,
en hann kvaðst vona, að það yrði
á þessu sumri. Kostnaðaráætlun
væri af þessum sökum ekki heldur
fyirr hendi. Ekki væri unnt að
vinna þetta verk, fyrr en gatnamót
og breidd götunnar á þessu svæði
hefði verið ákveðin.
Björn Guðmundsson þakkaði
svörin en kvað þau þó vera í allra
fátækasta lagi. Borgaryfirvöldin
væru nú búin að tvístíga í þrettán
ár yfir skipulagi miðbæjarins og
Lækjargötunnar, en fr'amhald
hennar hlaut þó að vera ráðið í
höfuðdráttum, þegar gatan sunn-
an Bankastrætis var gerð.
Björn minnti á’þessa allmyndar
iegu gatnagerð fyrir þrettán árum,
sem vakti töluverða athygli og
umræður á sínum tíma og var lang
dýr&sti vegarspotti, sem gerður
hafði verið á íslandi, og mætti til
gamans rifja það upp, að verkstjór-
ar við þessa gatnagerð hefðu ver-
ið 13.
Framhald á 15. síðu.
VINKONA RADHERRA
• •
FER NU HULDU HOFÐl
NTB—London 22. marz.
Brezka kvikmyndastjarnan Vale-
Christine Keeler
rie Hobson sat ein síns liSs á áheyr
endapöllum neðrl málstofu brezka
þingsins, og hlustaðl á eiginmann
slnn, hermálaráðherrann John Pro-
fumo, lýsa þvf yfir, að hann hefði
verið góðkunningi ungrar rauðhærðr
ar Ijósmyndafyrirsætu, sem nú um
skeið hefur verið gufuð upp.
Fyrirsætan Christine Keeler,
ólst upp í fátækrahverfi utan við
London, vann um hríð við þjón-
ustu á næturklúbbum og gerðist
síðan vinsæl partídama. f síðustu
viku varð hún allt í einu forsíðu-
efni blaðanna, en þá var maður
einn frá Vestur-Indíum, sagður
elskhugi hennar, dæmdur í sjö ára
fangelsi fyrir að hafa hleypt af
skammbyssu í anddyri íbúðar einn
ar í London. Christine var stefnt
fyrir réttinn sem vitni, en lét ekki
sjá sig og hefur verið týnd síðan
þá.
Að undainförnu hefur gengið
þrálátur 'orðrómur um, að hún
hafi staðið í sambandi við hátt-
setta menn, líklegast ráðherra. Og
Neytendasamtökin
Framhald af 16 síðu.
ingsmálum vegna fatahreinsunar.
Ellefu efnalaugar eiga aðild að
nefndinni, en það er bindandi um
að hlíta umsögn nefndarinnar.
Neytendasamtökunum berast að
meðaltali 1000 kvartanir árlega.
Starfsmaður samtakanna, Birgir
Ásgeirsson, lögfræðingur, ber hit-
an og þungan af starfinu, sem þar
af leiðir.
í dag lýsti Profumo yfir því, að
hann hefði þekkt stúlkuna, en full
yrt að ekkert óviðurkvæmilegt
hefði farið þeim á milli og hann
myndi stefna hverjum þeún, sem
reyndi að koma bletti á mannorð
hans í þessu samabndi. Hann sagð-
ist ekki hafa séð Christine síðan
í desember árið 1961 og ekki hafa
neina hugmynd um, hvar hún væri
niður komin nú. Það væri alger
staðleysa ag halda að hann hefði
átt einhvern þátt í, að hún kom
ekki til réttarhaldanna.
Profumo, sem er 48 ára að aldri
og kominn af ítalskri aðalsætt,
sem lengi hefur verið búsett í
Bretlandi, sagði að hann hefði
fyrst hitt Christine hjá vini sín-
um, lækni ag nafni Ward, og
hefði kona sín verið með sér. Við
það tækifæri hafði starfsmaður
sendiráðs Sovétríkjanna, Ivanov,
höfuðsmaður, einnig verið við-
staddur. Alls kvaðst hann hafa
hitt hana sex sinnum á síðara miss
eri ársins 1961.
Ward læknir skýrði frá því í
blaðaviðtali síðasta sunnudag, að
brezka leyniþjónustan hefði spurt
hann um kunningsskap hans við
Christine Keeler og vináttu hans
við Ivanov, rússneska sendiráðs-
manninn og hefðu yfirvöldin tek-
ið svör hans sem góða og gilda
vöru.
BÓ-Reykjavík, 22. marz.
Kári Eiríksson opnar mál-
verkasýningu í Listamanna-
skálanum á laugardaginn kl.
2. Þetta er önnur málverka-
sýning Kára hér á landi, hann
sýndi áður í Listamannaskál-
anum 1959.
Kári sýmr að þessu sinni 58
>ærk. Síðasta málverkasýning
Kára var í Gallería Babuinetta í
Róm, en honum var boðið að sýna
þar. Kári var þá við listnám í
boði Ítalíustjórnar, en samtals hef
ur hann numið á Ítalíu í þrjú ár.
Kári hefur einnig stundað listnám
hér heima og á Norðurlöndum.
Mikið manntjón í
eldgosi á Bali
NTB—Djakarta, 22. marz.
1100 manns eru talin hafa látið
lífið af völdum eldgoss á eyjunni
Bali í Indónesíu, og mikill fjöldi
manna er í hættu. Þrjú þorp eru
einangruð, en reynt verður að
bjarga íbúum þeirra af sjó.
Eldfjallið Agung byrjaði að
gjósa um siðustu helgi, en það er
neilagt fjall í augum frumbyggja'
Bali og talið heimkynni goðanna.
í dag magnaðist gosið, og hraun-
flóðið, sem áður hefur runnið nið
ur suður-, vestur- og austurhlíðar
íjallsins, er nú einnig farið að
renna norður af fjjallinu. Þorp
þau, sem standa við rætur fjalls-
ins eru án vegasambands á landi
og sum orðin umkringt af hraun-
inu, en reynt verður að flytja íbú-
ana burt sjóveg.
Engin leið er að áætla, hve marg
ir hafa slasazt, en þeir eru greini-
lega mjög margir. Þá hafa þúsund-
ir manna flúið heimili sín, en ná-
kvæma töiu þeirra treysta yfir-
völdin sér heldur ekki til að á-
ætla.
í hópi þeirra sem hafa farizt
er mikið af börnum, sem hafa ekki
gætt þess að forða sér fyrr en
hraunflóðið hefur verið komið yf-
ir heimili þeirra. Flugvélar og skip
hafa haldið frá Austur-Java til að
fivtja hinum nauðstöddu vistir og
hjúkrunartæki. Sukarno forseti
Indónesíu hefur lýst yfir hörm-
a.ngarástandi á þessum hluta Bali,
og tilkynnt hefur verið að U Thant
framkvæmdastjóii Sameinuðu
þjóðanna, hafi boðið aðstoð sam-
tákanna
T ( MIN N, laugardaginn 23. marz 1963 —
3