Tíminn - 23.03.1963, Side 5
ÍÞRÓTTIRJ
:. —. jl. . ... __
iÞRQTTIR
RITSTJÓRI: HALLUR SIMONARSON
FYRSTISKURISLENZKS UDS
GEGN NOREGI í HANDBOLTA
Varla er hægt a8 segja að
útlitið hafi verið sérlega glæsi
legt fyrir íslenzka unglinga-
landsliðið í handknattleik eft-
ir fyrri hálfleikinn í fyrsta
leiknum á Norðurlandamótinu
gegn Norðmönnum í gær-
kvöldi, en þá hafði Norðmönn-
um tekizt að skora níu mörk
gegn þremur íslenzka liðsins
— og í rauninni ekki annað
fyrirsjáanlegt, en norska lið-
ið myndi auka þetta mikla for-
skot í síðari hálfleiknum, hafði
norska liðið talsverða yfir-
burði. — En hlutirnir áttu eft-
ir að breytast — og það til
mikilla muna. í síðari hálf-
leiknum tók íslenzka liðið upp
breytta leikaðferð og smásax-
aði á forskot Norðmannanna,
sem varla vissu hvaðan á sig
stóð veðrið og áttu ekkert
svar við hinum leiftursnöggu
upphlaupum íslenzka liðsins,
sem flest enduðu með rfiarki
eftir hörkuskot þeirra Sigurð-
ar Dagssonar og Viðars Símon
arsonar, sem báðir áttu af-
bragðs góðan leik.
Þegar 23 mínútur voru liðnar
af seinni hálfleiknum, hafði ís-
- Unglingalandsliðið vann Noreg með 18-16 eftir óvenju-
legan lokasprett. - Noregur ýfir í hálfleik 9-3.
Vart
hugað
líf
NTB-Los Angeles 22. marz
Dave Moore, sem í nótt
missti heimsmeistaratitilinn
í- fjaðurvigt í hnefaleikum
til Kúbubúans, Sugar Ram
os, liggur nú á sjúkrahúsi í
Los Angeles, en hann skadd
aðist svo mjög á heila i
keppninni, að tvísýnt er að
hann haldi lífi.
Moore er 29 ára gamall
Bandaríkjamaður, kvæntur
og á fimm börn. Hann var
fluttur á sjúkrahús, þegar
hann féll meðvitundarlaus
niður í búningsherberg!
sínu eftir leikinn. Keppnin
var stöðvuð í tíundu lotu,
en þá var Moore orðinn svo
máttvana, ag hann hékk
biargarlaus á reipunum.
Hann virtist þó ná sér um
skeið í búningsherberginu,
en skyndilega féll hann nið
ur og kvartaði um mikinn
höfuðverk, og andartaki síð
ar hafði hann misst meðvit-
und. Fjórir læknar hafa
stundað hann síðan hann
kom á sjúkrahúsið, en allt
er talið mjög óvisst um úr-
slitin.
,... . J.j.-j.Jjj. .X;-...-.-.J^'j.J---..jj j-. ..'. ..
Viðar Símonarson, Brynjar Bragason og Sigurður Dagsson.
um og áttu öðrum fremur þátt í sigrinum.
Þeir stóðu sig vel ( leiknum gegn Norðmönn-
iand náð tveggja marka forskoti,
16—14, eða skorað 13 mörk gegn
5 Norðmauna í síðari hálfleikn-
um. Síðustu 7 mínútur leiksins
héldust hlutföllin óbreytt —
hvort liðið skoraði tvö mörk og
lokatölur urðu 18—16 íslandi í
hag, og það voru vissulega ánægð-
ir — en þreyttir — íslenzkir pilt-
ar, sem yfirgáfu leikvöllinn, en
þetta er í fyrsta skipti, sem ís-
landi tekzt að sigra Norðmenn í
londsleik.
Norðmenn högnuðust á hörku
í fyrri hálfleiknum
Það var ekki mikið skorað af
rnörkum fyrstu 20 mínútur leiks
ins, en er liðlega 20 mínútur voru
hðnar höfðu Norðmenn skorað 3
' mörk, en íslenzka liðið 2 mörk,
i Sið'ustu tíu mínútur fyrri hálfleiks
I ms léku Norðmenn af mikilli
hörku og brutu óspart á íslenzku
leikmönnunum án þess að hinn
aanski dómari — sem dæmdi leik-
inn heldur illa — sæi nokkra á-
stæðu til að taka hart á þeim
brotum og högnuðust Noiðmenn
gífurlega á því og tókst að auka
eins marks forskot upp í sex
marka forskot fyrir hlé, en í hálf
ieik var staðan eins og áður ség-
ir 9—3.
í fyrri hálfleiknum stóðu is-
lenzku markmennirnir sig báðir
mjög vel og vörðu m. a. vítaköst
og línuskot, en íslenzka liðið mis-
notaði einn;g sín tækifæri og skor
aði ekki úr vítaköstum.
Brevff leikaðferð færði
sinurinn
Flestir munu eflcust hafa reikn
að með auðveldurr norskum sigri
eftir þessa útkomu í hálfleik —
ekki sízt hinir norsku áhorfendur,
sem mjög fjölmenntu í íþrótta-
höllina í Hamar og hvöttu sína
menn óspart. í hálfleik lagði þjálf-
ari íslenzka liðsins, Karl Bene-
diktsson, breytta leikaðferg fyrir
liðið — meiri hraða í upphlaupin
og beita eins mikilli hörku og dóm
arinn leyfði. — Og árangurinn lét |
ekki á sér standa, en með hröðum
upphlaupum og hæfilegri hörku
minnkaði forskot Norðmanna
sinám saman og þegar 20 mínút-
ur voru liðnar af síðari hálfleikn-
um voru leikar jafnir og sköinmu
síðar náði ísland tveggja marka
forskoti, sem hélzt út leikinn. Það
voru einkum þeir Sigurður Dags-
son og Viðar Símonarson, sem
hrelldu norsku vörnina, en þeir
skoruðu langflest mörkin fyrir fs-
land í leiknum.
Þetta er í fyrsta skipti, sem ís-
lenzku liði tekst að sigra Norð-
menn í handknattleik — þótt oft
hafi munað litlu — og jafnframt
er þetta fyrsti leikurinn, sem ís-
land vinnur á Norðurlandamóti
unglinga í handknattleik.
Sigur íslenzka liðsins var sann-
gjarn, sagði Jón Kristjánsson far-
arstjóri liðsins, í stuttu símtali
vig okkur í gærkvöldi. — Norð-
menn voru betri í fyrri hálfleikn-
um, en íslenzka liðinu tókst vel
upp í síðari hálfleiknum og lék
hratt og taktiskt.
Beztir í íslenzka liðinu voru:
Sigurður Dagsson og Viðar Srmon-
arsson, svo og báðir markmennirn
ir. Mörkin fyrir ísland skoruðu
Sigurður 6, Viðar 5, Auðunn Ósk-
ai'sson, Jón Karlsson og Stefán
Sandholt 2 hver og Sigurður
Hauksson 1.
Körfubolti
íslandsmótið í körfuknattleik
heldur áfram um helgina og fara
ffam tveir leikir í meistaraflokki
— auk leikja í 1. og 2. flokki. —
í kvöld fara fram tveir leikir, í
fyrri leiknum mætast í 2. flokki
ÍR a og KR a, og má reikna með
að það sé úrslitaleikur í þeim fl.
í síðari leiknum mætast í meistara
flokki^ Ármann o,g stúdentar, en
ekki Ármann og ÍR, eins og skýrt
hefur verið frá í nokkrum blöðum.
Á sunnudagskvöldið heldur mót
ið áfram og þá leika í 1. flokki
Skarphéðinn og Ármann og í meist
araflokki Ármann og ÍR, en sá
leikur getur liaft talsverða þýð-
ingu varðandi efsta sætig í mót-
inu.
Fyrsti leikur bæði kvöldiii hefst
kl. 8,15 að Hálogalandi.
Síðustu 5 mínút-
urnar örlagaríkar
Aðeins klukkutíma eftir að!
leik íslands og Noregs lauk,
mætti íslenzka liðið aftur til
leiks í íþróttahöllinni í Hamar
— og nú átti að berjast við
Dani, sem léku sinn fyrsta leik
í mótinu og mættu alsendis ó-
þreyttir til leiks. Engu að síð-
ur stóð islenzka liðið sig vel
— og það var ekki fyrr en á
5 síðustu mínútum leiksins,
að Danir trygqðu sér örugg-
lega sigur með fimm nóðum
•morkum í röð oo siqruðu með
71:15 en síðustu mínúturnar
'ór heldur lítið fyrir íslenzka
’iðinu, enda var þreytan far-
I in að segja til sín.
Fyrri hálfleikurinn var nokkuð
jafn og skiptust liðin á að sikora
— í hálfleik var staðan jöfn 10—
10. íslenzka liðig náði ekki vel
saman í síðari hálfleiknum og
komust Danir fljótlega yfir — þótt
aldrei skildu meira en tvö til þrjú
mörk á milli. Þegar u.þ.b. fimm
mínútur voru eftir var staðan 16
—14 fyrir Dani og þá virtist ís-
lenzka liðið vera búið — fimm
góð mörk Danana gerðu út um
leikinn, en íslenzka liðið skoraði
eitt mark áður en yfir lauk og
urðu lokatölur 21—15.
Danir áttu sigur skilig í leikn-
um — þeir léku betur. en vissu-
lega hafði það mikið að segja,
að íslenzku leikmenmrnir höfðu
leikið erfiðan leik klukkutíma áð-
ur en þessi leikur hófst og var
þreyta áberandi meðal þeirra.
Mörkin fyrir ísland í leiknum
skoðuðu: Viðar og Sigurður 4
hvor; Tómas 3, Auðunn 2 og Sig-
urður Dagsson 1, en ekki vitum
við hver skoraði eitt markið.
Þess má geta, ag íslenzka liðið
var óbreytt báða leikina og var
það skipað þannig: Brynjar Braga
son, Sigurður Karlsson, Hinrik
Einarsson, Tómas Tómasson, Við-
ar Símonarson, Auðunn Óskarsson,
Sigurður Dagsson, Jón Karlsson,
Stefán Sandholt, Ólafur . Friðriks-
son og Sigurður Hauksson.
Dómari í síðari leiknum var
finnskur og dæmdi hann vel.
Þess má geta. að Svíar og Finn-
ar léku í gær í mótinu og unnu
Svíar með miklum yfirbmrðum,
20—12. Dómari í þeim leik var
Magnús Pétursson og dæmdi hann
mjög vel.
T í MIN N, laugardaginn 23. marz 1963 —
5