Tíminn - 18.04.1963, Side 16
yv. -vv. v;
Á Kjördæmisþingi Framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
vestra í Húnaveri 2. sept. s.l., þar
sem mættir voru yfir 40 fulltrúar
frá öllum flokksfélögunum í kjör-
dæminu, iagði allsherjarnefnd
þingsins fram lista með 10 mönn-
um, er hún lagði til að skipuðu
framboðslista Framsóknarflokks-
ins við næstu alþingiskosningar.
Síðan var tiu manna kjörnefnd fal
ið að kynna flokksmönnum þessa
uppástungu þingsins og ganga síð
an endanlega frá framboð'inu. Nú
fyiir nokkru hefur nefndin gengið
formlega frá listanum og er hann
þannig skipaður:
1. Skúli Guðmundsson,
alþingismaður, Laugarbakka.
2. Ólafur Jóhannesson,
alþingismaður, Reykjavík.
3. Björn Pálsson,
Skúli Guðmundsson
Ólafur Jóhannesson
Björn Pálsson
Gunnar Oddsson
Bjarni M. Þorsteinsson
FYRSTA FLUGIÐ
TIL REYKHÓLA
ÞÞ-Reykhólum, 17. apríl.
Björn Pálsson kom hingað í dag
í fyrsta farþegaflugi sínu á nýju
vélinni. Var það skemmtiileg til-
vilj'un, að hann skyldi fara fyrsta
farþegaflugið h'ingað, því hingað
kom hann einnig í fyrsta sjúkra-
flugi sínu.
Hér beið margt fólk, sem komið
hafði hingað í páskaleyfi og var
teppt hér vegna ófærðar. Var haft
Whnám
Óskum að ráða sendisyein á vél-
hjóli hálfan eða allan daginn, —
Dagblaðið Tíminn, Bankastræti 7.
samband við Björn í fyrradag, en
í gær var hér ófært vegna illviðr-
is. í dag lagði hann svo upp, lenti
fyrst í Saurbænum og tók þar 5
farþega en kom síðan hingað rétt
fyrir klukkan sex og fyllti vélina,
sem tekur sextán fullorðna far-
þega.
Það var fallegt að sjá vélina
lenda, var það líkast því sem fugl
settist. Nokkur vindur var á, lík-
lega um 30 hnútar, enda þurfti
vélin aðeins um 50 metra til lend
ingar. Til flugtaks þurfti hún 50
—70 metra.
Ferðin til Reykjavíkur gekk á-
gætlega, flugtíminn var 47 mínút-
ur og ferðin hin þægilegasta í alla
staði.
alþingismaður, Ytri-Löngu-
mýri.
4. Jón Kjartansson,
forstjóri í Reykjavík
5. Magnús H. Gíslason,
bóndi, Frostastöðum.
6. Guðmundur Jónasson,
bóndi Ási.
Jón Kjartansson
7. Jóhann Salberg Guðmunds-
son, syslumaður Sauðárkróki
8. Sigurður J. Líndal,
bóndi, Lækjamóti
9. Gunnar Oddsson,
bóndi, Flatatungu.
10. Bjarni M. Þorsteinsson,
verkstjóri, Siglufirði.
Magnús H. Gíslason
GB-Reykjavík 17. apríl.
Húsið nr. 27 við Skólavörðu-
stíg var byggt fyrir meira en
hálfri öld og í áratugi kallað
,,Bús málarans", þótt ekki hafi
verið skrifuð nein bók um það,
eða íbúa þess. Málarinn, sem
byggði húsið og bjó þar til ævi-
loka, var að vísu kunnur mað-
ur á seinni tíð. En hann lézt
fyrir rúmum fjörutíu árum og
yngri Reykvíkingar kunna ekki
á honum nein skil. Hann hét
Einar Jónsson og gekk í skóla
í kóngsins Kaupinhöfn með al-
nafna sínum, sem síðar varð
frægastur myndhöggvari fs-
lands og byggði sér líka hús
við Skólavörðuholtið eins og
nafni hans. Nú hefur verið opn
uð í sýningarsalnum við Freyju
götu sýning á málverkum, sem
áttu uppruna sinn í þessu Húsi
málarans vig Skólavörðustíg.
Sýningin er haldin í tilefni
þess, að öld er liðin frá fæðingu
Einars málara Jónssonar og
standa að henni börn hans tvö,
Hjalti Einarsson málari og
Systkinin Hjalti og Ragnhildur og milli þeirra Ijósmynd af föður
þeirra, málaranum Einari Jónssyni. Á bak við er mynd hans af Geysl.
Ragnhildur (kona Bjarna verk-
stjóra í Hamri), og annað
venzlafólk. Annar sonur Einars
(nú látinn) var Gunnar vélfræð
ingur, sem kvæntist Þóru Borg
leikkonu. Eru málverkin á sýn-
ingunni flest í þeirra eigu. Ekki
Framh a Dls 15
Fimmtudagur 18. apríl 1963
88. tbl.
47. árg.
MINNINGARSÝNING Á VERKUM ÚR HÚSI MÁLARANS
Málaði með litum, sem hann tók
upp úr jörðinni kringum Geysi
FRAMBODSLISTI FRAMSÓKNARMANNA
í NORDURLANDSKJÖRDÆMI VESTRA