Tíminn - 17.08.1963, Qupperneq 16
Laugardagur17.ágúst1963
173. tbl. 47. árg.
r
LEZT AF
VÆGUM
STRAUMI
IH-Seyðisfirði, 16. ágúst
Rannsókn í sakadómi Seyðisfjarð-
ar á dauðaslysi, sem varð á söltunar
stöðinni h.f. Borgir 1. þ.m. klukkan
22,10 er lokið.
Atvik voru þau, að 16 ára piltur,
ívar ívarsson frá Raufarhöfn, beið
bana, er hann hafði tekið við raf-
magnsborvél frá öðrum manni. Sam-
starfsmaður hans rótti honum raf-
maignsborvél sem tengd var vdð raf-
magn af stigapall'i utan á bryggju-
húsinu niður á bryggju. Hinn látni
steig upp á tvær tunnur og tók vél-
ina báðum höndum, faerði hana yfir
í hægri hönd og steig niður á bryggj
una, sem var trébryggja. Sáu þá
nærstaddir að hann stirðnaði þar er
hann stóð við tunnurnar. Rafstraum
ur var rofinn mjög fljótt og féll
ívar þá niður meðvitundarlaus. Eng-
inn viðstaddur á nnnustaðnum
ikunni hjálp í viðlögum. ívar var
þegar fluttur á sjúkrahús Seyðis-
fjarðar. Lifgunartilraunir hófust þar
þegar í stað, en þá munu hafa verið
l'iðnar ca. 10 mínútur frá þvd slysið
varð; þær stóðu yfir í 4 klukku-
stundir, en báru ekki árangur. Við
rannsóíkn kom m.a. fram eftirfar-
Framh. á 15. síðu.
Myndin hér aS ofan «f tekin af síldarlöndun úr Gjafarl Sfldin flæðlr yfir allt, enda báturinn drekkhlað-
inn. Til vtnstri er svo mynd af Svelnl H jörleifssyni skipstjóra á Kristbjörgu, á brúarvæng skips síns. —
(Ljósmynd: TÍMINN—GE).
EYJASJOMENN VÍUA
FÁ SÍLDARFLUTNINGA
MB-Reykjavík, 16. ágúst.
Þeir halða áfram að moka
upp síldinni við Eyjar. Þar er
enn þá löndunarstopp og er
ekki bú’zt við, að löndun hefj-
‘ist þar aftur fyrr en undir
miðja næstu viku, þar eð útskip
un stendur þar yfir á mjöli,
samhliða viðgerðunum og
mannskapurinn vart til skipt-
anna.
Allmikillar gremju gætir
meðal sjómanna á Eyjabátun-
um yfir því, að sfldarflutninga-
skipin eru látin liggja aðgerð-
arlaus á Austfjörðum í stað
þess að auðvelda þeim að losna
við síldina, ekki sízt þar eð nú
eru aliar horfur á því, ag Iönd-
unarstopp verði einnig hér í
Reykjavík.
Hingag komu í dag a. m. k.
sex Vestmannaeyjaskip með
fullfermi. Kári kom í morgun
með 1100 tunnur, Erlingur III.
með 1000 tunnur, Gjafar, Krist
björg og Hringver með um
1500 tunnur hvert og Gulltopp-
ur með yfir 1000 tunnur. Síldin
er smá en feit eins og í gær.
Blaðig átti stutt tal vig Svein
Hjörleifsson, skipstjóra á
Kristbjörgu, er skipið kom hing
að í dag. Hann kvað síldina
veiðast á fremur litlu svæði,
einnar og hálfrar til tveggja
stunda siglingu vest-norðvestur
af Þridröngum. Þangag er um
12 dma sigling hingað til
Reykjavikur.
Sveinn kvaðst mjög óánægð-
ur með það, að ekkert skyldi
gert til þess að létta sjómönn-
um í Eyjum flutningana á síld
inni, þogar nóg veiddist, en
ekki væri unnt að landa síld-
inni annars staðar en hér í
Framh. á 15. síðu.
ff
SIGL0" KÆRIR
Blaðinu barst í (gær tflkynning
frá stjórn Niðursuðuverksmlðju
ríkisins, þar sem segir, að verk-
smiðjian hafl ákveðið að höfðta mál
gegn ritstjóra „Nýrra vikutíðinda"
fyrlr aðdróttanir «g róg um fram-
leiðslu niðurlögðu síldarinnar,
sem blrtist í grein í bliaðinu 9.
INF0RMATI0N
UM FLOTA-
STÖÐ í HVAL-
FIRÐI
Danska blaðið Informiation
birtir 8. ágúst s. 1. frétt um
flotastöð í Hvalfirðl, sem
höfð er eftir dönsku frétta-
stofunni Ritzau. Fréttln
hljóðar á þessa leið í ís-
lenzkri þýðlngu:
í Hvalfirði norður af
Reykjavík var í seinni heims
styrjöldinni mjög mikilvæg
flotastöð fyrir skipalestirn-
ar til Murmansk á norður-
strönd Sovétríkjanna. Nú er
Hval'fjörður aftur kominn
fram í sviðsljósið. Áformað
er að endurreisa stöðina,
sem frá stríðslokum hefur
Framhald é 15 síðu.
ágúst s. I. TUkynningln hljióðar á
þeissa leið:
Undir fyrirsögninni „Milljóna-
hneyksli" og með undirskriftinni
Nemo birtíst grein í Reykjavíkur-
blaðinu „Ný vikutíðindi“ 9. þ. m.
um „Sigló“-síld. í greininni eru
slíkar aðdróttanir og rógur um
framleiðslu niðurlögðu síldarinn-
ar, sem Síldarverksmiðjur ríkisins
annast í umboði stjórnar Niður-
su'ðuverksmiðju ríkisins, að stjórn
verksmiðjunnar hefur á fundi sín-
um í dag ákveðið að höfða mál
gegn ritstjóra „Nýrra vikutíðinda“
og fá ummæli blaðsins dæand
ómerk.
Greinarhöfundur heldur því m.
a. fram, að „Sigló“-síld sé alls stað
ar óseljanleg á erlendum markaði,
því að í síldina og sósuna sé bætt
rotvarnarefni, sem bannað sé að
nota „hvarvetna nema í Banda-
ríkjunum" og sé þess ekki getið
á umbúðunum. Með skrifum þess-
um er „Sigló“-síldin gerð tortryggi
leg í augum neytenda. Rotvarnar
efni það, sem notað er í „Sigló“-
síldina, er 0,1% natríumbenzoat
og er það greinilega tekið fram
á dósaumbúðunum í þeirri upp-
Framh. á 15. síðu.
FRÆGUR FIÐLU-
SNILLINGUR í
GAMLA BÍÓI
FBReykjavík, 16. ágúst.
Á mánudaginn heldur frægur þýzk
ur fiðlusnillingur, prófessor Wil-
helm Stross, hljómlelka í Gamla
bíól, og fer allur ágóði af tónleik-
unum til byggingar Landakotsspítal-
ans. Stross hóf ungur nám hjá próf
essor Bram Elderling, en hinn frægl
snillingur Adolf Busch var einnig
meðal nemenda Elderlings.
Stross hlaut aðeins tvitugur að
aldri Felix-Mendetsohn- verðlaunin,
Framh. á 15. síðu.
Vantar aðstöðu fyrir einkaflug
MB-Reykjavík, 16. ágúst I ur nýlega fest kaup á nýrri flug-
Syerrir .iónsson flugmaður, hef-1 vél af gerðinni Piper Colt og er
nú í þann veginn að hefja á henni
flugkennslu. Einkennisstafir hinn
ar nýju vélar eru TF-EVA.
Sverrir hyggst stunda alhliða
flugkennslu á hinni nýju vél sinni,
sem verður útbúin öllum nýjustu
og beztu íækjum til þeirra hluta.
Hann kennir byrjendum og allt
til atvinnuflugprófs. Piper vélarn-
ai hafa fyrir löngu áunnið sér
rnikið' traust sem kennslu- og einka
flugvélar, jafnt eins hreyfils, sem
tveggja, en „Colt“ gerð’in er til-
tölulega ný framleiðsla og EVA er
alveg splunkuný úr kassanum.
Sverrir lauk atvinnuflugmanns-
prófi í Tuisa, Oklahoma, í Banda-
nkjunum, í ársbyrjun 1946. Er
nann kom heim, stofnaði hann
ésamt öðrum manni, fiugskólann
Pegasus, og starfaði hann í fimm
ár, eða til ársins 1951. Voru um
Framliald á 15. siðu-
y ''V..
J