Tíminn - 03.10.1963, Page 6
FRANSKUR GAMANLEIKUR
SVNDURI ÞJÚDLEIKHdSI
Þann 9. okt. n.ic. verður frum-
sýning 1 ÞjóBleikhúsinu á franska
gamanleiknum „Flóninu", eftir
Marcel Achard. Þýðing leiksins
er gerð af Ernu Geirdal, en hún
þýddi „Nashyrningana" á sínum
tíma. Leikstjóri er Lárus Páls-
son. Aðalhlutverkin eru leikin af
Kristbjörgu Kjeld og Rúrik Har-
aldssyni, en aðrir leikendur eru:
Bessi Bjarnason, Ævar Kvaran,
Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Sigríð
ur Hagalín, Róbert Arnfinnsson,
Baldvin Halldórsson og fl.
Leiktjöld eru gerð af Lárusi
Ingólfssyni.
Flónið er léttur og skemmtileg
ur gamanleikur, sem fjallar um
sakamál og ástir á franska vísu,
en sem kunnugt er eru frönsk
skáld sérfræðingar í slíkum mál-
um.
„Flónið" hefur farið sigurför
á mörgum leikhúsum að undan-
förnu, auðvitað sérstaklega í
París, þar sem leikurinn gerist,
en þar var hann sýndur í nær
U þvi tvö ár. „Flónið*1 var frum-
I sýnt þann 23. sept. 1960. Einnig
B hefur leikurinn orðið mjög vin-
■ sæll á Norðurlöndum, sérstaklega
I í Svlþjóð og Danmörku.
s-----------------------------------
Höfundur leiksins, Marcel Ac-
hard er fæddur í Lyon 1899. Hann
kom ti! Parisar ungur að árum
og gerðist blaðamaður, en hætti
brátt þeirri iðju og fór að kynna
sér leikhúslífið á bak við tjöldin.
Þrjú leikrit voru sýnd eftir
hann í París árið 1923 og varð
hann frægur og þekktur um allt
Frakkland fyrir eitt þeirra
„Voulez-vous jouer avec moa“,
en þar lék hann eitt hlutverkið.
Þessi leikur er talinn sígildur
gamanleikur ásamt nokkrum öðr-
um gamanleikjum hans. Á árun-
um eftir 1930 var Marcel Achard
talinn fremsti gamanleikritahöf-
undur Frakka og mikið látið af
ýmsum nýjungum, sem hann
beitti á leiksviðinu, og síðan hafa
verið mikið notaðar. Á hátindi
frægðar sinnar hvarf Achard að
mestu frá leikritun og tók að
semja kvikmyndahandrit. Mörg
beztu kvikmyndahandrit Frakka
á þessum árum eru einmitt sam
in af honum.
Fyrir nokkru byrjaði hann svo
aftur að skrifa gamanleikrit og
náði enn sem fyrr miklum vin-
sældum. Meðal þeirra leikrita er
„Fiónið". Marcel Achard þykir
nú kominn aftur í essið sitt og
Frakkar fagna því að hafa endur
heimt á leiksviðið á ný.
Marcel Achard var kjörinn með
limur Frönsku Akademíunnar
1959. — Myndin er af höfundi.
J
Gömlu vetrar-
erfiðleikarnir
Nú hefur hann
DEFA-hreyfilhítara
DEFA-hreyfilhitari tryggir
skjóta gangsetningu.
Sjálfvirkur hitastill-
ir tryggir jafnan og
góðan hita og sparar
straum.
Hreyfilhitarar fást einnig
fyrir Volkswagen
DEFA-hreyfilhitari er nauð
synlegur.
SMIÐJUBÚÐIN
við Háteigsveg.
Sími 10033.
Tbróttir
mmP, Þwví^JUÍWHiihiAl Y$u «í
rf Mfeí Wud9§
um og föstudógum klukkan 7—8
e h. Kennari verður Arthur Ólafs-
son, en hann hefur starfað á veg
um deildarinnar síð'astliðin þrjú
ár .
Ekki hefur verið gengið enn
þá frá sérsíökum tímum fyrir ung-
linga, en það stendur til. Hins veg
ar má benda á. að fýrrgreindir
tímar stenda opnir jafnt fyrir þá
yngri. í sumar efndi frj álsíþrótta-
deild Ármanns til frjálsíþróttanám
skeiðs fyrir unglinga á íþrótta-
svæði félagsins við Sigtún og tókst
það mjög vel. Væntir deildin góðs
samstarfs við þá yngri í vetur.
Glímudeild
Æfingar eru nú að hefjast hjá
giímudeildinni, og eru ýmis ný-
mæli á döfinni.
Nýr þjálfari hefur verið ráðinn
til deildarinnar. Er það hinn góð-
kunni judomaður Sigurður Jó-
hannsson, sem verið hefur judó-
þtálfari Ármenninga undanfarin
ár Sigurður æfði íslenzka glímu
i’m árabil hjá Ármanni og var áð-
ut í skála Sigurðar Greipssonar
í Haukadal Hann er manna bezt
menntaður um glímuíþróttir og
hefur stundað nám við judoskól-
ann Budokwai í London. Vænta
giimumenr. sér góðs af hinni ágætu
þekkingu Sigurðar á glímum og
reynslu hans sem kennara.
Glímudeild Ármanns tekur upp
æfingar f tveim flokkum. Flokkur
fullorðinna æfir á fimmtudögum
k'. 9—10,30 s d. og á laugardög-
um kl. 7—9 s.d. Sigurður Jóhanns
son verður þjálfari þessa flokks.
Flokkur byrjenda og drengja
undir 15 ára aldri æfir á þriðju.
dögum kl 8—9 s.d. Kennari þess
flokks verður Hörður Gunnarsson,
sem verið hefui helzti aðstoðar-
þjálfari deildarinnar undanfarið.
Æfingar fullorðinna hefjast
fimmtudaginn 3 október, en æfing
ar yngri flokks þriðjudaglnn 8.
okt. Æít er í íþróttahúsi Jóns
Þorsteinssonar við Lindargötu.
Glímumenn, yngri sem eldri, eru
sumar nærri 40 sýningar á glímu
og fornum leikjum bæði í Reykja-
v k og utanbæjar. Glímumennirn
ir hafa vakið upp ýmsa forna og
þjóðlega leiki, svo sem hráskinns-
'eik, beltadrátt o. fl.. og sýnt þá
jafnframt glímunni. Hafa þessar
sýningar þótt takast vel og hafa
v-ikið verðsku'dað'a athygli.
Einangrunargler
Fra-nleitt einungis úr
úrvf '' gleri. — 5 ára
áby~gð.
P3n»i? timanlega
Korkiðjan h.f.
Skúiagötu 57 . Simi 23200
Til sölu
150 hestar af góðri töðu
Einnig ný jeppakerra. —
Valdimar Guðmundsson,
sími 19949.
Verkamenn
Óskum að ráða nokkra verkamenn strax.
Upplýsingar hjá verkstjóranum í síma 35974 og
á skrifstofunni í síma 11380.
VERK HF.
Laugavegi 105
Laxveiðimenn
Tilboð óskast í stangaveiðiréttindi í- Vatnsdalsá í
Húnavatnssýslu. — Tilboðin miðist við alla ána
eða einstök svæði hennar svo og eins og fleiri ára
leigusamning. Tilboðum sé skilað til Guðmundar
Jónssonar bónda í Ási fyrir 26. okt. n.k. og gefur
hann allar nánari upplýsingar um ána. Veiðifélag-
ið áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem
er, eða hafna öllum.
i
Stjórn Veiðifélags Vatnsdalsár
Hafnarfjörður
Óskum að ráða mann eða konu á umboðsskrif-
stofu vora í Hafnarfirði.
Örunabótafélag íslands
Börn óskast
Tímann vantar börn til að bera út blaðið víðs
— Nánarj upplýsipgar ^f.
greiðslu blaðsins I Bankastræfi 7. sími 12323.
Plasthandlistar
HÚSEIGENDUR ATHUGlÐ
Set á plasthandlista (úti og inni)
Útvega efni ef óskað er
Upplýsingar í síma 16193
Fjórði hver miði vinnur að meðaltali!
Hæstu vinningar 1/2 milljón krónur.
Lægstu 1000 krónur.
Dregið 5. hvers mánaðar.
6
TÍMJNN, fimmtudaqinn 3. október 1963 —
//