Tíminn - 03.10.1963, Page 9
Ályktanir sambandsþings U M FI
23. SAMBANDSÞING UMFÍ,
haldið í Reykjavík dagana 7. og
8. sept. 1963 þakkar skólum lands
ins fyrir hinn mikla skerf, sem
þeir hafa lagt fram til heil-
brigðs félagslífs æskulýðsins. —
Þingið telur að auka þurfi fél'ags
legt uppeldi í skólum landsins og
meta beri félagsstörf til launa
ekki siður en önnur störf í skól-
unum.
Þingið vekur í þessu sambandi
athygli á fyrirhugaðri stofnun
lýðháskóla í Skálholti og minnir
á skóla Sigurðar Greipssonar í
Haukadal.
Þingið telur, að ekki megi
svipta unglinga tómstundum
þeirra með of löngum vinnudegi,
enda séu þær skipulagðar með
aðstoð hins opinbera. Varast ber
og að láta börn og unglinga vinna
störf, sem eru of áhættusöm og
erfið miðað við þroska þeirra.
Þingið leggur áherzlu á, að gefa
verði þeirri staðreynd auknar
gætur, að heimilið er grundvöllur
þjóðfélagsins og að þar þurfa
börn og unglingar að eiga at-
hvarf, hvað húsakynni snertir og
ytri aðstæður, en um fram allt
að foreldrar sinni bömum sínum
sem mest.
Sambandsþingið telur rétt, að
kirkjan og æskulýðssamtök taki
höndum saman og hefji forustu-
starf fyrir ungt fólk, sem hyggur
á búskap, m. a. með útgáfu rita
um þessi efni.
Þingið telur, að ríkisútvarpið
hafi með lofsverðum hætti reynt
að stuðla að heimaveru fólks með
ýmsu góðu útvarpsefni, svo sem
vinsælum skemmtiþáttum.
Þingið beinir því til Alþingis
og annarra aðila, að aukið verði
eftirlit með fjárreiðum unglinga
og að heimilunum sé veitt aðstoð
í þessum efnum og telur lög um
skyldusparnað í rétta átt.
Þingið harmar vaxandi afbrot
unglinga og ýmiss konar uppi-
vöðslu á almannafæri og brýnir
það fyrir stjórnarvöldum um leið
og það þakkar aukna viðleitni
þeirra, að taka þessi mál föstum
tökum og gæta í hvívetna laga-
fyrirmæla um þau.
Þingið skorar á æskulýðsfé-
lagsskap, hvern sem er, að hafa
skemmtiatriði á samkomum með
menningarbrag, hvað dagskrár-
atriði snertir og ytri aðbúnað all
an. Þingið bendir á Ungmenna-
samband Borgfirðinga í því sam-
bandi, sem nýlega hefur hafizt
handa um bætt skemmtanalíf
unglinga í héraði sínu m. a. með
vegabréfaskyldu ungmenna.
Sambandsþingið fagnar þeirri
fyrirætlan menntamálaráðherra,
að koma á sérstakri löggjöf um
æskulýðsmál og tehir að stofna
beri sérstaka deild innan mennta
málaráðuneytisins, er fari með
þau mál.
Þingið telur að vinna beri að
því, að allir unglingar eigi þess
kost, að vera í hollum æskulýðs-
félagsskap, við góð starfsskilyrði
sem keppir að því að varðveita
þá frá glapstigum.
Þingið telur aðkallandi, að sér-
stökum lytmskeiðum sé komið á
fyrir æskulýðsleiðtoga og séu þau
í tengslum við Kennaraskóla ís-
iands og íþróttakennaraskólann.
Þingið telur, að skemmtanalíf
unglinga eigi að vera óháð fjár-
plógssjónarmiðum og koma eigi
í veg fyrir það, að beita þurfi
misjöfnum fjáröflunaraðferðum
til þess að standa straum af upp-
eldisstarfsemi æskulýðsfélaga,
sem ætti að styrkja eins og skóla
starf væri.
Þá telur þingið, að keppa beri
að því, að reisa æskulýðsheimili
og sumarbúðir sem víðast.
Þingið telur yfirleitt æskulegt,
að hið opinbera styrki æskulýðs-
starfsemi í landinu svo sem fram
ast má verða, en láti hin ýmsu
félagssamtök um framkvæmdir
undir hlutlausu og sjálfsögðu eft-
irliti.
Þingið lýsir ánægju sinni yfir
starfsemi UMFÍ og ÍSÍ að vel-
ferðarmálum íslenzkrar æsku og
hvetur æskuna til starfs og dáða
í þágu eigin velferðarmála, and-
legs og líkamsl'egs þroska, landi
eg þjóð til blessunar.
TILLÖGUR.
23. sambandsþing Ungmenna-
félags íslands hvetur öll héraðs-
sambönd og einstök félög innan
UMFÍ til þess að undirbúa sem
mesta og bezta þátttöku í næsta
landsmóti. Þingið telur æskilegt
að heima í héruðum séu haldin
námskeið í íþróttum og komið
á keppni í þeim þróttagreinum,
sem fyrirhugað er að taka þátt
í á landsmóíinu. Enn fremur
hvetur sambandsþingið alla þátt
takendur, íþróttamenn sem aðra,
til prúðmannlegrar framkomu og
góðrar umgengni samtökunum til
sóma.
Þingið leggur til að sem flest
héraðssambönd og ungmennafé-
lög komi með eitthvað dagskrár-
atriði til skemmtunar á mótinu í
samráði við framkvæmdanefnd
mótsins.
Þingið mælist til þess, að
stjómir héraðssambandanna gang
ist fyrir sérstökum mótum í
frjálsum íþróttum og sundi sumar
ið 1964 fyrir aldursfl'okkana 12—
13 ára og veiti þeim, sem bezt af-
rek vinnur eða stigahæst verður,
pilti og stúfku, ókeypis far til
12. landsmóts UMFÍ. Þingið vek-
ur athygli á því, að á slikum mót
um fyrir böm og unglinga séu
keppnisgreinar ekki yfir sex.
Þingið felur stjórn UMFÍ að
hlutast til um, að starfrækt verði
æfingamiðstöð hjá hverju héraðs
sambandi í viku til 12 daga í júní
mánuði 1964. Starfstíma stöðv-
anna verði þannig hagað að
sömu úrvals kennarar eða leið-
beinendur komi því vtð að starfa
á tvelm til þrem stöðvum. Fram-
kvæmd þessi verði í fullu samráði
við stjórair héraðssambandanna.
Þingið telur starfsípróttir
merkan þátt í menningarlegu
starfi ungmennafélaganna sem
leggja beri mikla rækt við. Iðk-
un þeirra efli vandvirkni, starfs-
gleði og verkmenningu unglinga
og stuðli að tæknilegum framför
um og vöruvöndun. Þingið hvet-
ur því öll ungmennafélög til þess
að gera starfsíþróttir að föstum
lið í starfsemi sinni og telur hag
kvæmt að samvinna geti orðið við
félagssamtök atvinnuveganna og
skóla landsins um vaxandi stuðn-
ing við leiðbeiningar í starfsíþrótt
um og keppni í þeim. Samþykkir
þingið því að fela stjórn TJMFÍ að
skipuleggja leiðbeiningar í starfs-
fþróttum þannig, að þær nái til
sem flestra unglinga í landinu
enda treystir þingið á vaxandi
fjárframlög til þessa menningar-
Séra Elrlkur J. Elriksson flytur
ræðu á þinglnu.
máls. Þingið þakkar öllum ein-
staklingum og stofnunum, sem
stutt hafa viðgang starfsíþrótta,
ómetanleg framlög í þeirra þágu.
f þeim felst viðurkenning á því
að leggja beri áherzlu á þennan
þátt til aukins þroska fyrir æsku
landsins.
Þingið leggur til, að á næsta
landsmóti UMFÍ fari fram keppni
í eftirtöldum starfsiþróttum:
1 Lagt á borð og blómaskreyting
2. flokkur.
2. Ostafat og eggjakaka 2. fl.
3. Jurtagreining 2. fl.
4 Dráttarvélarakstur 1. flokkur
unglingar.
5. Gróðursetning trjáplantna 1.
flokkur, full'orðnir.
6 Búfjárdómar, 1. flokkur.
Stjórn og mótsnefnd heimilast
þó að láta búfjárdóma fara fram
á öðrum stað og tima, ef hag-
kvæmara þykir. Ef keppni fer
fram I tveimur aldursflokkum,
skal yngri flokkur miðast við 20
ára og yngri, en sá eldri yfir 20
ára. Sé keppt í tveimur aldurs-
flokkum, eru tveir þátttakendur
hámark frá hverju héraðssam-
bandi, en þrír ef um einn flokk
er að ræða.
Þingið telur að stefna beri að
því, að hal'dm verði sjálfstæð
starfsíþróttamót, enda verði
keppnisgreinum fjölgað og þær
teknar úr fleiri atvinnugreinum
f samræmi við keppni hjá hinum
Norðurlöndunum.
Þingið þakkar ungmennafélög-
um, sem unnið hafa við gróður-
setningu í Þrastaskógi, vel unnin
störf og hvetur öll ungmennafé-
lög á landinu til að vinna vel að
skógræktarmálum.
Þingið leggur áherzlu á, að hald
ið verði áfram framkvæmdum við
fþróttavöllinn í Þrastaskógi og
að lokið verði við að jafna völl-
inn og sá í hann á næstkomandi
vori.
Þingið felur stjóm UMFÍ, að
athuga möguleika á, að komið
verði upp greiðasölu í Þrastaskógi
á svæði því, sem Þrastalundur
hafði áður verið og stefnt verði
að því, að þar verði bækistöð fyr-
ir ungmennafélögin.
Þingið beinir þeim tilmælum
til menntamálaráðherra, að UMFÍ
fái fulltrúa í nefnd þeirri, er
íjallar um væntanlega löggjöf
um fjárhagslegan stuðning við
leikstarfsemi i landinu.
Þingið felur sambandsstjórn
að taka ákvörðun um Norrænu
æskulýðsvikuna í samræmi við
þá venju, sem verið hefur undan
farið.
Þingið samþykkir, að áskriftar
gjald Skinfaxa skuli vera kr.
60,00. Bl'aðið komi út ekki sjaldn
ar en tvisvar á ári, vor og haust,
og aukablöð, ef sambandsstjórn
telur ástæðu til og fjárhagur
leyfir. Sambandsstjórn skal sjá
um útgáfu blaðsins.
Þingið samþykkir að fela skóg-
arverði í Þrastaskógi að athuga
nú þegar, hvort ástæða er til að
brunatryggja Þrastaskóg. Þyki
■Eiramh. é 13 siðu.
Nokkrir þingfulltrúa. (Ljósmyndlr: TÍMXNN, Gudjón Einarsson).
Forseti íslands, hr. Ásgeir Ásgeirsson, gengur í fundarsalinn ásamt
formannl UMFÍ, séra Elrfkl J. Elrfkssyni.
TÍMINN, fimmtudaginn 3. október 1963 —
9