Tíminn - 16.11.1963, Page 7
Otgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Frainkvæmdastjóri: Tómas Arnason. — Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og IndriSi
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Frétta-
stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Daviðsson.
Ritstjórnarskrifstofur i Eddu húsinu, símar 18300—18305. Skrif
stofur Bankastr 7. Afgr.sími 12323 Augl., sími 19523 Aðrar
skrifstofur, sími 18300 Áskriftargjald kr. 80,00 á mán. innan-
lands. t lausasölu kr 4.00 eint. - Prentsmiðjan EDDA h.f —
Bústofnslán
Það er viðurkennd staðreynd af öll.im þeim, sem gerzt
þekkja til mála, að efnahagsráðstafanir núverandi. ríkis-
stjómar hafi ekki orðið öðrum stéttum þyngri í skauti
eji bændum, og við hefur bætzt margvíslegt óréttlæti og
stirfni stjórnarvalda við bændastéttjna, c. d. í veitingu
afurðalána, svo sem alkunnugt er. Harðast hafa þeir
bændur þó orðið úti, sem hafa lítil bú, lítinn vélakost
og litla ræktun, ekki sízt frumbýlingar. Hinir, sem höfðu
þetta allt í betra lagi, áður en „viðreisnin“ hófst, hafa
komizt betur af.
Það er talin óyggjandi staðreynd, að síðustu árin hafi
enn breikkað að miklum mun efnahagsbil milli þessara
bænda. Munur búanna er enn meiri en áður, og efnahag
hinna búminni bænda hrakar. Síðustu tvo áratugi hefur
Búnaðarþing og Stéttarsamband bænda þó sífellt lagt á
það áherzlu, að búa yrði svo um hnúta, að litlu búin stækk-
uðu svo að þau gætu veitt bændum sæmileg afkomuskil-
yrði. Veigamikill þáttur í því er að sjáifsögðu góður lána-
stuðningur við byggingar og ræktur. en það hrekkur
ekki til. Búskapurinn hefur einnig b»'eytzt svo, að miklu
meiri og dýrari vélar þarf til en áður og meðalbúið verð-
ur að stækka. Engin sérstök lánastofr.un hefur sinnt bú-
stofnslánúm sérstaklega, og vísir hinrar aimennu stofn-
lánadeildar til þess kemur að litlu haidi.
Hér er þörf stórátaks, ef ekki á nia að fara, eins og
þróunin er nú. Þessum málum verður að sinna sérstak-
lega með fastmótaðri lánastofnun.
Framsóknarflokkurinn hefur mjög beitt sér fyrir því
hinsíðari ár, að hér yrðu haldkvæm ráð fundin í samræmi
við þörfina og breytta þróun. Á síði^stu þingum hefur
hann flutt frumvarp um sérstakan bústofnslánasjóð, sem
hefði verulegan styrk til úrbóta. Þetta frumvarp hefur
el£ki fundið náð fyrir augum stjórnarflokkanna, sem
virðast kappkosta að halda bændum ? sömu kreppunni i
þessu efni. Enn hafa sex þingmenn F1? amsóknarflokksins
lagt fram frumvarp um bústofnslánas>óð á þessu þingi, og
er þar gert ráð fyrir því, að hann tái þegar um 100
milljónir króna til umráða. bæði af íramlagi ríkisins og
að láni. Tilgangur hans er að lána frumbýlingum myndar-
leg lán til bústofns- og búvélakaupa, svo og öðrum bænd-
um, sem hafa of lítinn bústofn og getr ekk" aðstoðarlaust
stækkað búin í sæmilegt horf.
Ef þetta frumvarp næði fram að ganga, mundi það
verða mikil lyftistöng og koma eðliíegum framleiðslu-
fótum undir fjölda bænda, sem nú haía ekki bústærð eða
vélakost til sæmilegrar afkomu.
Engin stórvirki
Morgunblaðið flytur Bjarna Benediktssyni sérstök eft-
írmæli sem góðs iðnaðarmálaráðhe’ ra. Þetta minnir á
þá hörmulegu staðreynd, að s.l. fimrn ár eða í tíð Bjarna
og þessarar stjórnar hafa engin stó 'átök átt sér stað í
iðnvæðingu landsins Þar hafa engin stórvirki verið
unnin á borð við þau viðfangsefni, sem áður voru með
höndum höfð, svo sem áburðarverksmiðju og sements-
verksmiðju. Kyrrstaðan er einkunn Bíarna sem iðnaðar-
málaráðherra. Með því dáðleysi hefur þjóðinni verið unn-
ið tjón, sem hún mun síðar gjalda, og óskandi væri, að
eftirmaður hans yrð? skeieggari.
Þetta hefur haldizt bróðurlega í hendur við kvrrstöð
una í rafvirkjunarmálum, svo að raf eiagnsskortur krepp
ir nú mjög að og lamar m. a. starf áhnrðarverksmiðju.
Þingið óþjált Kennedy og Rusk
EfnahagsaSstoS víið aðrar þjóðir sætir vaxandi gagnrýni
RUSK, utanríkisráðherra.
KENNEDÝ forseti hefur
mætt miklum mótgangi á
Bandaríkjaþingi undanfarna
mánuði, þótt flokkur hans sé
í miklum meirihluta í báðum
deildum. Seinustu vikurnar hef
ur þessi mótgangur einkum
mætt honum i sambandi við
frumvarp stjórnarinnar um
efnahagslega aðstoð við aðrar
þjóðir. Hvað eftir annað hafa
staðið vonir til, að það yrði af-
greitt frá þinginu, en það jafn-
an dregizt og þessi dráttur orð-
ið til þess, að þingið hefur stöð-
ugt verið að minnka þau fram-
lög, sem stjórninni eru heimil-
uð til efnahagslegrar aðstoðar
við önnur ríki, og jafnframt
sett strangari skilyrði um veit-
ingu slíkrar aðstoðar. Upphaf-
lega lagði stjórnin til, að hún
fengi 4,900 millj. dollara fjár-
veitingu til umræddrar aðstoð-
ar. Öldungadeildin. sem fyrst
fjallaði um málið. lækkaði
þessa upphæð nokkuð, en síðan
lækkaði fulltrúadeildin hana
enn meira eða niður i 3.900
milljónir dollara Öldungadeild
in fékk málið þá aftur til með-
ferðár og þar hefur það verið
til umræðu seinustu dagana.
Það hefur hingað til verið venj
an, að öldungadeildin hefur
dregið úr niðurskurði fulltrúa-
deildarinnar og síðan náðst
samkomulag milli deildanna á
þeim grundvelli. Nú er öldunga
deildin hins vegar búin að
minnka fjárveitinguna niður í
3.722 miiljónir dollara.
AF HÁLFU ríkisstjórnarinn-
ar, og þó alveg sérstaklega af
þeim Kennedy forseta og Rusk
utgnríkisráðherra, hefur þess-
um niðurskurði jaingsins verið
harðlega mótmælt. Kennedy og
Rusk hafa sagt. að Bandaríkja-
stjórn gæti illa fylgt fram nú-
verandi utanríkisstefnu sinni
ef ekki yrði dregi.ð úr þessum
niðurskurði. þar sem hún bygg-
ist mjög á því að geta veitt efna
hagslega aðstoð vinveittum þjóð
um. Þessar yfirlýsingar þeirra
Kennedys og Rusks virðast lítil
áhrif hafa haft. á þingmenn
Þau átök, sem átt hafa sér
stað um þessi mál á Bandaríkja
þingi. hafa alls ekki farið eft-
ir flokkum. Forustumenn
beggja flokkanna í öldunga-
deildinni hafa t. d. staðið við
hlið stjórnarinnar og reynt að
hamla gegn niðurskurði og
strangari skilyrðum um veit-
M O R S H *
W
ingu aðstoðar. Þetta hefur ekki
nægt. í báðum flokkum hefur
verið gerð uppreisn gegn for-
ustunni.
Það kann að ráða einhverju
hér um, að þingkosningar fara
fram á næsta ári og ekki er
ótítt undir þeim kringumstæð-
um. að þingmenn gerist þá spar
samari en ella á þau útgjöld.
sem ekki renna til framkvæmda
í kjördæmum þeirra Þetta er
þó ekki aðalástæðan. Aðalástæð
an er sú. að reynslan virðist
sanna, að miklu af því fé, sem
hefur farið til aðstoðar öðrum
þjóðum, hefur ekki verið vel
varið. Það hefur farið í sukk
og óreiðu hjá þeim ríkisstjórn-
um, sem hafa fengið það og
sennilega i ýmsum tilfellum
orðið til þess, að þær hafa gerzi
andvaralausari og áhugaminni
um að taka efnahagsmálin fösA
um tökum.
SÁ MAÐUR. sem látið hefur
mest bera á sér í umræðunum
um þessi mál í öldungadeild
inni að undanförnu, er Wayne
Morse öldungadeildarþingmað
ur frá Oregon. Hann tilheyrir
róttækari armi ciemokrata, þótt
hann væri áður republikani
Hann hefur m. a. bent á. að
ýmis hernaðaraðstoð. sem
Bandarikin hafa veitt öðrum
þjóðum, hafi komið að teljandi
gagni, eins og t. d. í Laos. Þá
hefur hann gagnrýnt þá dýru
hernaðaraðstoð, sem Suður
Vietnam hefur verið veitt, því
að hún muni einnig reynast
glatað fé, því að fyrr en síðar
hljóti Suður-Vietnam og Norður
Vietnam að sameinast og beri
að vinna að því, eins og de
Gaulle hefur lagt til. Þá sé hinn
mikli stuðningur, sem Chiang
Kai Shek sé veittur til að halda
uppi stórum her, hreinn óvita
háttur. f her Chiang Kai Sheks
séu fleiri hershöfðingjar en !
öllum her Bandaríkjanna og sé
annað sukk eftir því. Þessi her
hafi ekki heldur minnstu þýð-
ingu fyrir varnir Formósu, því
að ekki þyrfti nema skáta
til að sigra hann. í Suður-Kóreu
sé ástandið litlu betra og væri
nær að láta herinn þar leggja
vegi og rækta landið en að
borga honum fyrir ekki neitt,
en þar eins og á Formósu byggj
ast varnirnar raunverulega al-
veg á Bandaríkjunum Öll hern
aðaraðstoðin. sem sé veitt i
Suðaustur-Asíu sé meira og
minna hreint bruðl til að styðja
til valda afturhaldsklíkur, er
reyni síðan að auðga sjálfar
sig á allan hátt
MORSE deilir ekki síður á
þá efnahagsaðstoð, sem er veitt
ríkjum í Suður-Ameríku Hann
segir. að þessi aðstoð beri oft-
ast ekki annan árangui en þann
að halda lífi í ríkisstjórnum.
sem ekki hafi hug og dug til
að taka viðfangsefnin réttum
tökum Þannig verði efnahags-
aðstoð Bandaríkjanna til að
fresta þeim aðgerðum. sem
koma þurfi i Suður-Ameríku
Þá sé Htið vit í því. að Banda-
ríkin veiti Suður-Ameríku mikil
fjá^framlög á sama tíma og
auðmenn þar keppisi við að
leggja fé sitt inn í svissneska
banka í stað þess að nota það
til framkvæ.mda heima fyrir
Það hefur styrkt Morse í þess
ari gagnrýni. að Goulart, for-
seti Brasilíu hefur nýlega látið
svo ummælt að umrædd að-
stoð Bandaríkjanna væri Suður
Ameríku ekki mikils virði, og
að hinn nýi forseti i Argentínu,
tllia. virðist staðráðinn í því
að þjóðnýta olíunámur banda-
rísku olíufélaga þar. þótt
Bandaríkjastjórn reyni að
snorna gegn því
Morse hefur oft áður vakið
á sér athygli fyrir það að berj
ast fyrir málum. er lítinn stuðn
ing áttu i öldungadeildinni í
þetta sinn hefur hann hins ves
ar fengið til stuðnings við sig
marga þingmenn úr þáðum
flokkum, þótt sumir þeirra
byggi það á nokkuð öðrum for
sendum en hann.
Framhðie * <3 -ilSo
TÍMINN, laugardaginn 16. nóvember 1963
í