Tíminn - 16.11.1963, Qupperneq 9
1
MÁNUDAGINN 4. þ. ra. flutti
dr. Benjamin Eiríksson, bankastj.
útvarpserindi um daginn og veg-
inn. í upphafi erindis síns vék
hann máli sínu til bænda og ræddi
m. a. um útrýmingu mæðiveiki úr
Dala og Mýrahólfi. Ámælti hann
bændum í Dölum fyrir trassaskap
í útrýmingaraðgerðum og fullyrti,
að bændur, sem þarna ættu hlut að
máli vildu ekki skera niður féð til
útrýmingar veikinni. Hér tel ég
að rætt sé af ókunnugleika og van-
þekkingu um vandmeðfarið mál.
Bankastjóranum hefði verið í lófa
lagið að kynna sér málið, áður en
liann feildi sleggjudóma um menn
og þetta málefni.
Verið er að framkvæma niður-
skurð í öllum hreppum Suður-Dala
nú.
Sannleikurinn er sá, að óvíða
mun við fjárskipti hafa verið gætt
jafnmikillar nákvæmni í útrýming
araðgerðum eins og var í Mýra-
og Dalahólfi. Þeim aðgerðum var
á sínum tíma stjórnað af ágætis-
manninum Cuðmundi heitnum á
Hvítárbakka.
Árlega síðan féð kom hefur far-
lítt aðgerða á drottningarvængn-
um). (
12. Rf3, RfS. 13. Bd2, b6. 14.
eð, —
(Hvítur v'rðist full fljótur á sér
að hefja sóknaraðgerðirnar, þar
eð staða hans' gefur ekki tilefni
til neins oráðlætis. Betra var að
treysta stöðuna með t. d. 14. Hcl.
15. b3 o. f. frv., og athuga síðan,
hvernig svartur brj'gðist við könn
unarleikjum, ef svo má nefna 16.
Rg5. Svart.i er þá lagður sá vandi
á herðar, hvort hann vill reka
riddarann á brott, eða láta hann
afskiptalausan, en óneitanlega
hlyti h7-h6 að veikja svörtu stöð-
una).
14. —, Rfd7. 15. Re4(?)
(Þessi liður í sóknargerðunum
virðist óneitanlega háður skekkju
í útreikningunum. Hvítur fær nú
stakt peð a e5 og hefði verið af-
farasælast fyrir hann að leika í
staðinn 15. exd6, Bxd6. 16. Re4
o. s. frv.).
15. —, dxe5. 16. fxe5, Bb7.
17. Bc3, Rg6. 18. Rfg5?
(Enn er bráðlætið einkennandi
fyrir sóknaraðgerðir hvíts. Með
18. De3! gat hvítur haldið öllu
sínu til haga, því að 18. —, Rdxe5.
19. Rxe5, Rxe5, strandar á 20.
Dg3).
18. —, Bxe4!
(Þessi leikur, sem hvíti hefur e.
t. v. yfirséM, markar þáttaskil í
skákinni. Svartur fekur atburða-
rásina í sinar hendur).
19. Bxe4!?
(Eftir 19. Rxe4, Rxe5, hefur svart
ur unnið peð og sókn hvíts algjör
iega fjarað út. Hvítur reynir því
að flækja taflið með því að gefa
tvo létta nenn fyrir hrók, en all-
ar sóknartilraunir hans stranda
á öruggri vörn svarts).
19. —, Bxg5. 20. Bxa8, Hxa8.
21. Hxf7, Hf8.
(21. —, K>-f7. 22. Df3f hefði veitt
hvíti meu-a mótspil).
22. Hxf8t, Rdxf8. 23. Hfl, —
(Hrókurinn virðist eiga meira er-
indi á d-hnunni).
23. —, Dc6. 24. Bb4, Rd7. 25.
Bd6, Bf4.
(„Ekki verður feigum forðað":
Framhald á 13. síðu.
ið fram skoðun á heilbrigði þess.
Það er því áreiðanlega ekki sök
þeirra bænda, er í þessu hólfi
búa, að veikin hefur borizt þangað
á ný. Þar má frekar um kenna erf-
iðum staðháttum og óhentugum til
öruggra varna.
Fljótlega eftir að veikinnar varð
vart að nýju var haldinn almennur
fundur bænda og hann samþykkti
tillögur um útrýmingaraðgerðir.
En þá stóð á sérfræðingum ríkis-
valdsins og lafnframt stóð á fjár-
veitingarvaídinu að Ieggja til nægi
legt fé, svo hægt væri að fram-
kvæma niðurskurð í öllu hólfinu á
ný. Og þar stendur hnífurinn í
kúnni. Doktorinn hefði því átt að
beina geiri sínum og ádeilum um
fáfræði, trassaskap og seinlæti
gegn þeim aðilum, en ekki bænd-
unum, sem verða að búa við pest-
ina eða a. m. k. óvissu og öryggis-
leysi.
Dr. Benjamín ræddi um yfir-
standandi launabaráttu stéttafélaga
c.g fannst fátt um kröfur bænda og
verkamanna um að fá laun, sem
nægðu til að lifa menningarlífi. —
Hann taldi íétt að launamismun-
ur færi vaxandi á milli „fákunn-
andi bænda og verkamanna" ann-
ars vegar og tækni- og háskóla-
menntaðra manna hins vegar.
Ekki vil ég gera lítið úr sér-
þekkingu eða menntun háskóla-
genginna manna og þó eru þeir
mjög mistækir til starfa eins og
aðrir menn. Vissulega eru störf
þeirra margra mikilsverð en það
má ekki heldur vanmeta verkþekk
ingu og vinnuvilja þeirra, sem
vinna hörðum höndum erfiðustu
framleiðslustörfin til sjós og lands.
Allar þjóðir eiga mikið undir því
komið, að pau störf séu vel af
hendi leyst, en fáar þjóðir eiga
jafn mikið í húfi í þessu efni eins
og íslendingar, sem byggja megin-
hluta afkomu sinnar á framleiðslu
matvæla til neyzlu innanlands og
hráefna sem flutt eru úr landi
meira og minna óunnin.
Góð verkþekking er mikilla pen-
inga virði.
Að sjálfsögðu er hægt að bæta af
komu þjóðarinnar með aukinni
tækni og vinnslu hráefnanna í
landinu sjálfu. Og allar stéttir
ættu að njóta bættrar afkomu af
slíkri þróun. En ekki virðist banka
stjórinn koma auga á þann mögu-
leika a. m. k. nefndi hann ekkert
’ þá átt.
Á undanförnum árum hefur þjóð
arframleiðslan aukizt verulega,
vegna aukinnar tækni og iðnvæð-
ingar og meira að segja þeir „fá-
kunnandi bændur“, sem bankastjór
inn nefndi svo, hafa verið þar í
broddi fylkingar og nýtur öll þjóð-
in hagnaðar af því. En þrátt fyrir
þetta hafa kjör erfiðisvinnustétt
anna versnað síðustu árin. Ein-
hverjir sjúga þar merginn. Það
væri verðugt verkefni fyrir dokt-
orinn, sem er hagfræðingur, að
finna ráð, sem tryggði að öll þjóð-
in geti notið bættra lífskjara vegna
tækniframfara og aukinnar fram-
leiðslu undanfarinna ára.
Það má minna bankastjórann á
það, að öll þióðin leggur á sig
miklar byrðar vegna skólakerfis-
ins, þar á meðal til reksturs Há-
skóla íslands og líka til að styrkja
ungt fólk til háskólanáms erlend-
is.
Þjóðin öll á því rétt til að njóta
góðs af þekkingu þeirra manna.
Þeir standa í skuld við þjóð sína
fyrir þau tækifæri og þann fjár-
styrk, sem þeir hafa fengið til
námsins. Uáglaunastéttirnar eiga
ekki síður sinn hlut í þessu.
Menntamennirnir svokölluðu
verða að sýna þegnskap ekki síð
ur en aðrir landsmenn. Og þeir
verða að sýna meiri hæfni til
starfa vegna menntunar sinnar, til
þess að þeim séu borgandi meiri
laun. Þetta á ekki sízt við um hag-
fræðinga og bankastjóra. Það eru
engin meðmæli með menntun
þeirra, að beir hafa nú síðustu ár-
in með endurteknum gengisbreyt-
ingum, vaxtaokri. sölusköttum o.
fl skipulagt verðbólgu, sem étið
hefur upp allan hagnað vegna auk
innar þjóðariramleiðslu, svo kjör
þeirra, sem vinna hörðum höndum
fara versnandi.
Slfkir menn eiga ekki mikil laun
skilið. Er bankastjórinn að mæla
fyrir þvi að þjóðin skiptist í iðju-
litla yfirstétt annars vegar og ó-
menntaðan öreigalýð liins vegar?
Mér fannst ræða bankastjórans
bera vott um litla þekkingu og lít-
inn skilning á þjóðlífinu yfirleitt
Og mér kom í hug saga af banka
stjóra, sem ætlaði að hefja búskap
Hann fór til ráðunautar og leitaði
ráða hans. Hann kvaðst ætla að
hafa 300 ær á búi sínu og spurði
hvort hann þyrfti jafn marga
hrúta. Ráðunauturinn sagði, að
hann þyrfti 5—6 hrúta. Bankastjór-
inn spurði hvort hann væri að
gera grín að sér. Hann væri viss
um að ærnar sættu sig ekki við
slíkt ,,fjölkvæni“ og yrðu larnb-
lausar!!
Ræða bankastjórans um lands-
gæðin og sauðféð bar þennan svip.
Hvað skyldi eiga nota landsgæð-
in, t. d. afréttina. ef sauðfénu stór
fækkaði eða yrði útrýmt? Skyldi
bankastjórinn ekki hafa heyrt tal-
að um landbúnaðarvísindi og rækt
un? Veit hann ekki, að með nú-
tima tækni, áburði og fræi er hægt
að stórauka og bæta gróðurlendi
íslands ,án þess að friða landið
fyrir beit? Væri ekki betra að
verja fé úr Framkvæmdabanka fs-
lands til gróðurrannsókna og upp-
græðslu lands í stað þess að búa til
glerfjöll í Reykjavík?
Bónði.
NYRZTAGARD
1 RKJUSTÖDIN
Laufin falla, litir dofna, ljúf-
ust blóm á hausti sofna. Klæð-
izt úlpu, kyndið ofna, karlinn
vetur >:nýr í garð. Verður hann
í bragði byrstur, bölrúnum í
annál ristur? Hver vill spádóms
freista fyrstur? Ég frétti um
músagang við Skarð!
Jæja, að öllu gamni slepptu
mun enn þá vera tími til að
setja niður blómlauka úti í
görðum. Nóg er af þeim á boð-
stólum og maöurinn lifir ekki
af einu saman brauði. Uppskera
garðávaxta reyndist rýr s.l.
sumar. Island er af sumum tal-
ið í jaðri hins byggilega heims.
>ó eru til staðir miklu norðar
þar sem reynd er garðyrkja!
í Upernivik á Grænlandi á 73
gr. norður breiddar, þar sem
meðalhiti er aðeins 3 mánuði
yfir frostmarki og næturfrost
tið allt sumarið, og úrkoma lit-
ið meiri en í Sahara-eyðimörk-
inni, eru samt gerðir vermireit-
ir og í þeim ræktað ofurlítið
af grænkáli, hreðkum, salati,
spínati, kerfli og steinselju.
Við Umanak á 71. gr. er hægt
að rækta grænkál og hreðkur
úti. Kartöflur, blómkál og gul
rætur eru þar ræktaðar undir
gleri En í Alta í Noregi,
skamrnt sunnan við 70. breidd-
arbaug mun vera nyrzta garð-
yrkjustöð i heimi. Þar stundar
Kári Gransliagen gróðurhúsa-
garðyrkju við góðan orðstír.
Hann hefur 2 gróðurhús, alls
500 íerinetra og auk þess
nokkra sólreiti. Og ræktar með
góður árangri nellikkur, krýs-
anthemur o.fl. afskurðarblóm
og margar tegundir potta-
blóma Þið getið litið á kortið
og séð hve stöð Kára í Alta ligg
ur langt norðan við Horn, Mel-
rakkasléttu og Grimsey. Reykja
vík er suðlægur staður í saman
burði við Alta og Hammerfest.
Þar nyrðra má heita stöðugt
bjart hálfan þriðja mánuð, en
vetrarmyrkrið er að sama skapi
mikið.
Ég var að minnast á blóm-
lauka. Þið þekkið vel túlípana,
páskaliljur og dvergaliljur
(crocus). Reynið líka hinar
sérkennilega fögru perluliljur
(Muscari) sem blómgast mjög
lengi. t.d. undir trjám og runn
um. Einnig er gaman að rækta
blómlauka inni í stofu og njóta
blómskrúðs þeirra um hávetur-
inn! Goðaiiljur (hýasintur) eru
alkunrar. Setja má laukana i
fremur sendna mold í jurta-
potta, okki dýpra en svo að að-
eins sjái á laukoddinn. Síðan
eru pottarnir hafðir í svala, t.d.
í frostlausum kjallara og í
dimm i. Má breiða yfir pottana.
Sjá þarf um að moldin sé alltaf
sæmilega rök. Þarna eru pott-
arnir hafðii unz blómhnappur
er komin í ljós á spírunum. Þá
má taka bá inn í stofu. Umskipt
in mega þó ekki verða of
snögg. Hægt er líka að skorða
goðaliljulaukana í opinu á glasi
með vatni í sem á aðeins að
ná upp ao lauknum. Vaxa svo
rætur niður í vatnið og er að-
ferðin að öðru leyti hin sama
og áður er lýst.
Jólaliljur (jólazettur Tatus
albus) eru einnig hentugar til
vetrarblómgunar. Má setja lauk
ana í skálar sem fylltar eru
með smasteinum, möl eða
sandi, þannig að oddur lauks-
ins s'andi upp úr. Síðan er
vatni hellt í skálina og á það
sífellt að ná upp á miðjan lauk
inn allan tímann. Þessar jóla
tazettur mcga vera inni í stofu
strax irá byrjun, ef það er ekki
mjög heitt og þær þurfa birtu.
Geta t.d. staðið í glugga, þar
sem ekk: er ofn undir. Eftir
4—6 vikur bera þær hvít ilm-
andi Wóm sem endast lengi.
Dvergaiiliui (crocus) er hægt
að rækta inni eins og goðalilj-
ur í pottum. Þær þurfa að
vera á svölum dimmum stað
.framan af eins og goðaliljur. —
Eftir rúma 2 mánuði má setja
pottana í birtu í 8—10 gráða
heitt herbergi og láta þá standa
þar unz blóm koma í ljós. Þá
fyrst er tími til kominn til að
láta dvergliljurnar inn í stofu.
Tulipana er líka hægt að rækta
inni á svölum stað í sírakri
mold ö svipaðan hátt og goða
liljur En þolinmæði þarf til,
því að tíminn frá setningu til
blómgunar er oft 3—4 mánuð-
ir.
Ingólfur Davíðsson.
SILDARSKYRSLA
Fiskifélagið birtir nú fyrstu
heildarskýrslu yfir haust- og vetr-
arsíldveiðarnar á þessum vetri. —
Meðfylgjandi skýrsla nær yfir
tímabilið 11. okt., en þann dag var
fyrsta löndunin, til laugardagsins
9. nóv. og, var þá heildarmagnið
á land komið 159,614 uppm. tn., en
á sama tíma í fyrra var engin síld-
veiði, enda stóð þá yfir verkfall
á bátaflotanum.
Á þessu tímabili hafa gæftir
verið fremur stirðar, og langt fyr
ir bátana að sækja, en aðalveiði-
svæðið hefur verið í Jökuldjúpi.
Hæstu veiðistöðvar eru: (Upp-
mældar tunnur).
Grindavík
Sandgerði
Keflavík
Hafnarfjörður
Reykjavík
Akranes
Hellissandur
Ólafsvík
Grundarfjörður
8.405
12.505
31,875
13.306
51.750
23.946
2.015
10.939
98
Stykkishólmur 1.569
Patreksfj. /Tálknafj. 1,690
Bolungarvík 1.516
Samtals 159.614
Vitað er um 83 skip, sem fengið
hafa afla og af þeim hafa 61 skip
aflað 1000 tunnur eða meira og
fylgir hér með skrá yfir þau skip.
Anna, Siglufirði 2219
Arnfirðingur Reykjavík 3078
Ámi Geir, Keflavík 1276
Árni Magnusson, Sandgerði 3826
Arnkell. Sandi 1070
Ásbjörn, Reykjavík 4315
Auðun, Hafnarfirði 1810
Bára, Keflavík 1070
Eldey, Keflavík 2926
Engey, Reykjavík 4293
Faxi, Hafnarfirði 3383
Garðar, G^irðahreppi 1238
Gnýfari, Grafarnesi 1438
Grótta, Revkjavík 3262
Gullfaxi, Neskaupstað 1063
Hafrún, Bolungarvík 2837
Hafþór, Reykjavík 1376
Halldór Jónsson, Ólafsvík 3487
Hamravfk. Keflavík 2528
Hannes Hafstein, Dalvik 3410
Haraldur, Akranesi 2703
Hilmir II. Keflavík 3703
Hólmanes, Keflavík 1768
Hrafn Sveinbjarnarson GK 1058
Hrafn Sveinbjarnarson II. GK 1560
Erafn Sveinbjarnarson III. 7173
Höfrungur, Akranesi 1825
Höfrungur 11., Akranesi 6224
íngiber Ólafsson, Keflavík 1218
Jón Finnsson Garði 2048
Jón Gunnlaugss.. Sandgerði 2136
Jón Jónsson. Ólafsvík 1229
Jón á Stapa, Ólafsvík 2707
Jökull, Ólafsvík 1523
Kópur, Kef1avík 3528
Kristján Valgeir, Garði 1507
I.ómur. Keflavík 3023
Margrét, Siglufirði 2121
Pétur Sigurðsson, Reykjavík 2420
Reykjanes, Hafnarfirði 2600
Eifsnes, Revkjavík
Sigurður, Akranesi
Sigurpáll, Garði
Sigurvon, Akranesi
2398
2461
5760
1360
Framhald é 13. «(8u.
T í M I N N , laugardaginn 16. növember 1963
9
« • >
V •>