Tíminn - 22.05.1964, Side 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason. — Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Frétta-
stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson.
Ritstjórnarskrifstofur i Eddu-húsinu, símar 18300—18305. Skrif-
stofur Bankastr. 7. Afgr.simi 12323. Augl., sími 19523. Aðrar
skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 90,00 á mán. innan-
lands. — í lausasölu- kr. 5,00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f.
Löggæzla og ölæði
ÞaS hefur aS vonum vakið mikla athygli, að atburð-
ir þeir, sem gerðust í Þjórsárdal um hvítasunnuna í
fyrra, skuli hafa endurtekið sig að Hreðavatni um hvíta-
sunnuna nú. Ástandið þar hefði að öllum líkindum orð-
ið enn ömurlegra en í Þjórsárdal, ef ekki hefði verið
aukinn viðbúnaður að hálfu lögreglunnar til að mæta
þessum ófögnuði.
Eins og að líkum lætur, finna menn margar skýringar
á þessum atburðum. Einna oftast nefna menn það, að
ekki sé nóg gert til að fullnægja þörfum æskufólks fyrir
hollt tómstundalíf og er það hverju orði sannara. Þar
hefur þjóðfélagið mikið verk að vinna. Þar þurfa hinir
færustu menn að bera saman ráð sín um nauðsynlegar að-
gerðir. Því er sérstök ástæða til að fagna því, að þing-
vilji virtist fyrir því á nýloknu Alþingi að kveða sam-
an sérstaka ráðstefnu fulltrúa ýmissa helztu félagssam-
taka og stofnana til undirbúnings slíkum framkvæmd-
um. Snorri Sigfússon fyrrv. námsstjóri varpaði þessari
hugmynd fram í útvarpserindi á síðastliðnu hausti, en
hún var síðan flutt af Framsóknarmönnum á Alþingi í
þingsályktunarformi. Þingnefnd mælti síðan með því,
að þessari tillögu yrði hrundið í framkvæmd.
Það er hins vegar ekki eina skýringin á drykkjulátun-
um í Þjórsárdal og á Hreðavatni, að illa sé búið að ungu
fólki í sambandi við tómstundir þess. Augljóst er, að
ungt fólk þyrpist ekki þannig á vissa staði til drykkju-
skapar og óláta, nema einhver samtök eða einstaklingar
gangist fyrir því. Það er verkefni dómsmálastjórnarinn-
ar að upplýsa þetta til fulls og búa þannig um hnútana,
að slík saga endurtaki sig ekki refsilaust. Hér má ekki
sýna neina linkinnd.
Löggæzlan þarf einnig að ganga miklu ríkara eftir
því en verið hefur, að ölæði eigi sér ekki stað á al-
mannafæri og menn geti því sótt veitingastaði eða farið
um göturnar óáreittir af drykkjulýð. Þennan ósið, sem
eykst mjög hér á landi, verður að uppræta með harðri
hendi. Menn eiga ekki að sleppa refsingarlaust fyrir slíka
framkomu. Þannig verður að haldast í hendur aukin holl
tómstundaiðja fyrir ungt fólk og aukið viðnám löggæzl-
unnar gegn ölæði á almannafæri. Hvorugt þetta má (
vanrækja.
Nú eru ekki kosningar
f gær birtist hér í blaðinu grein eftir Hannes Pálsson
um hið ömurlega ástand, sem nú ríkir í lánamálum hús-
næðismálastofnunarinnar. Stofnunin hefur enn ekki get-
að veitt íbúðarlán á þessu ári, en það hefur aldrei komið
fyrir áður, að lánveitingar hafi hafizt svo seint á árinu.
I fyrra var úthlutað rúmum 80 millj. kr. fyrstu þrjá
mánuði ársins, en þá stóðu líka kosningar fyrir dyrum.
Síðar á árinu 1963 var svo aðeins úthlutað röskum 20
milljónum kr. og engin úthlutun hefur svo verið á
þessu ári. Nú eru ekki heldur neinar kosningar fram-
undan.
Ekki þ'arf að útskýra þau óþægindi, sem þessi seina-
gangur á lánveitingum húsnæðismálastjórnar veldur
íbúðabyggjendum.
Nokkur von er nú til þess, að eitthvað rofi bráðlega
til í þessum efnum vegna samninga launþegasamtak-
anna við ríkisstjórnina, en þau hafa m. a. gert kröfu
um bætta framkvæmd húsnæðismálanna. Hætt er þó
við að það verði alltof lítið, sem fæst fram.
Söguleg aukakosning í Devizes
Enn er þó a-imenni spáö sigri Verkamannaflokksins.
SIÐAST LIÐINN fimmtudag
fóru fram fjórar aukakosningar
í Bretlandi. Aukakosningar
þessar fóru allar fram í kjör-
dæmum, þar sem íhaldsmenn
höfðu unnið í seinustu þing-
kosningum. Home forsætisráð-
herra hefði getað látið fresta
þeim til haustsins, þegar aðal-
kosningar eiga að fara fram,
ef hann hefði viljað, og ráð-
lögðu margir flokksmenn hans
að það yrði gert, þar sem úrslit
þeirra myndu leiða í ljós fylgis
hnignun íhaldsflo'ksins. Home
leit hins vegar svo á, að hann
hefði engu að tapa í þessum
efnum, þar sem fylgistap 1-
haldsflokksins væri talin stað-
reynd, en hins vegar gæti verið
von um vinning, ef heppnin
væri með.
í tveimur af þessum kjör-
dæmum, hafði meirihluti
íhaldsflokksins verið það mik-
ill í seinustu þingkosningum,
að ekki þótti líklegt að hann
tapaði þeim. Hins vegar þótti
líklegt, að hann tapaði hinum
tveimur. í öðru þeirra, Ruther-
glen í Skotlandi, hafði meiri-
hluti hans. verið 1520 atfcv.,
en í hinu, Devizes, sem er smá-
borgarkjördæmi í 80 mílna
fjarlægð frá London, hafði
•meirihlutinn verið 3840 atkv.
Mest athygli beindist að þessu
síðarnefnda kjördæmi. Úrslitin
urðu þaq, að íhaldsmenn héldu
þeim tveimur kjördæmum, sem
talin höfðu verið viss fyrir
fram, en töpuðu Rutherglen.
Hins vegar héldu þeir Devizes
með 1670 atkv. meirihluta, og
þykir það mesti sigur, sem
íhaldsflokkurinn hefur unnið
um langt skeið. Ef íhaldsflokk-
urinn tapaði hlutfallslega ekki
meira fylgi í aðalkosningunum
en hann gerði í aukakosning-
unni í Devizes, myndi hann
halda 4—5 þingsæta meiri
hluta á þingi áfram. Ef tap
hans yrði hins vegar álíka mik-
ið í aðalkosningunum og það
vaíð í hinum þremur kjör-
dæmunum, myndi Verkamanna
flokkurinn fá um 70 þingsæta
meirihluta á þinginu. í heild
eru því úrslitin ekkert ánægju-
leg fyrir íhaldsflokkinn, en úr-
slitin í Devizes veita honum
þó verulegan siðferðilegan
stuðning pg styrkja nokkuð sig-
urtrú meðal liðsmanna hans
ANNARS vilja margir telja
kosninguna í Devizes sérstakt
tilfelli, sem ekki megi miða al-
mennt við. íhaldsflokkurinn
hafi verið mjög heppinn með
frambjóðanda í Devizes og
jafnframt rekið áróður þar af
meira kappi en yfirleitt verði
komið við í almennum jkosning-
um. Flokkurinn h'afði marga
launaða erindreka í þjónustu
sinni meðan á kosningabarátt
unni stóð. Tveir fyrrv. forsæt-
isráðherrar eða þeir Eden og
Macmillan, voru fengnir til að
halda ræður, og alls mættu 25
íhaldsþingmenn þar á kosn-
ingafundum. Þá var lögð mikil
áherzla á að fá unga menn, sem
bjóða sig fram fyrir íhalds-
flokkinn í fyrsta sinn í næstu
kosningum, til að mæta þar á
fundum og sýna með því, að
íhaldsflokkurinn væri flokkur
Charles Morrison og frú á heimili þeirra.
hinna yngq manna. Ekki faerri
en 100 slíkir frambjóðendur
voru iátnir koma fram við ýmis’
tækifæri. Annar áróður var
eftir þessu.
Það er þó talið hafa riðið
baggamuninn, að frambjóðandi
íhaldsflokksins var sérlega álit-
legur, ungur maður, sem hefur
um skeið starfað að ýmsum fé-
lagsmálum í kjördæminu og
aflað sér vinsælda og kunn-
ingja á þann hátt.
SIGURVEG ARIN N í kosn-
ingunni í Devizes heitir Char-
les Morrison. Faðir hans hefur
átt sæti á þingi í 22 ár fyrir
Salisbury, en hann erfði þing-
sætið frá föður sínum. Auð-
legð ættarinnar er mikil og
stendur víða fóturn, en hana
má nokkuð marka af því, að
Morrison eldri hefur verið tal-
inn einn ríkasti maðurinn,
sem hefur átt sæti í brezka
þinginu að undanförnu. Jafn-
hliða þingmennskunni rekur
hann stórfelldan búskap, á
fræga veðhlaupahesta, og tekur
þát í stjórn ýmissa fyrirtækja.
í höll hans eru sögð ekki færri
en 60 herbergi. Morrison yngri
hlaut að sjálfsögðu menntun í
samræmi við stöðu föðurins
Hann stundaði nám í Eton og
Cambridge, og var um skeið •
frægn herdeild. Siðar gekk
á landbúnaðarskóla, og hefur
m.a. rekið umfangsmikinn bú
skap undanfarin ár. Þá hefur
hann tekið þátt í ýmsum fé-
lagsstörfum, og bæði hann og
kona hans eiga sæti í héraðs-
stjórn. Á þann og annan hátt
hafa þau aflað sér verulegra
vinsælda, og kom það honum
að góðum notum í kosninga-
baráttunni nú. Hann er allgóð-
ur ræðumaður og þykir koma
vel fyrir
Þótt Morrison yngri búi ekki
jafn ríkmannlega og faðir hans,
býr hann eigi að síður á stór-
um og fornfrægum herragarði.
Sagan segir m.a., að í einni
stofunni þar hafði Walter Ra-
leigh kveikt í pípu í fyrsta
ÞÓTT spádómar um úrslit
aðalkosninganna í haust, séu
enn yfirleitt hliðhollir Verka-
mannaflokknum, hafa úrslitin
í Devizes heldur ýtt undir þá
skoðun, að sigur hans sé alls
ekki öruggur. M.a. geti það
hjálpað íhaldsflokknum, ef við-
skiptaþróunin verður hagstæð
næstu mánuðina, eins og al-
mennt er búizt við. Sumir telja,
að Wilson hafi birt ýmis lielztu
stefnuskráratriði Verkamanna-
flokksins of snemma, en það
hafi stafað af því, að hann hafi
búizt við kosningum fyrr. Þess
vegna verði allt nýjabragð far
ið af þeim, þegar gengið verð-
ur til kosninga.
Allmikil athygli er nú
veitt aukakosningum, sem eiga
að fara fram í tveimur kjör-
dæmum 4. júní, en Verka-
mannaflokkurinn sigraði í báð-
um þeirra í seinustu kosning-
um. í öðrum þeirra varð meiri-
hluti hans þá aðeins 200 atkv.
íhaldsmenn heyja harða bar-
átu í þessu kjördæmi nú.
Þ.Þ.
TÍMINN, föstudaglnn 22. mai 1964
7