Tíminn - 22.05.1964, Page 15
Þórhallur
F. 1. sept 1906.
D. 7. maí 1964
Þórhallur Jónasson léz' á heim-
ili sínu að Höfn við Bakkafjörð.
Foreldrar hans voru Kristín Jó-
hannesdóttir og Jónas Jakobsson
é Gunnarsstöðum í Skeggjastaða-
hreppi.
Hann átti við erfiðan sjúkdóm
að stríða hin síðari ár, sem hann
ibar með karlmennsku og þeirri
stillingu, er jafnan einkenndi
hann. Hann féll í starfinu. Síð-
ustu handtökin, voru að hlynna
að lambám, sem hann átti. Þau
voru unnin fyrir lífið og gróand-
ann. Þetta var einmitt mjög ein-
kennandi hjá Þórhalli og lífsstarf
hans, allt mótað af þessum eigind
um.
Hann vann meðan orkan entist
og fyrst og fremst fyrir sveitina
sína og hélt tryggð við hana enda
búsettur þar að þremur árum
undanskildum, en þá var hann
kennari í Keflavík, en stundaði
jafnframt útgerð heima á sumr-
um.
Hann nam einn vetur við bænda
skólann á Hólum, en brautskráð-
ist sKSar frá Kennaraskólanum í
Reykjavík.
Heima stundaði hann mest
kennslu og útgerð. Þórhallur' var
um tíma formaður Verkalýðsfé-
lags Skeggjastaðahrepps og starf-
aði í hreppsnefnd um langt ára-
bil, auk margra annarra trúnaðar
starfa, sem hann annaðist fyrir
sveit sína.
Framkvæmdir og framtak ein-
staklinga og sveitarfélaga á an-
nesjum við yzta Dumbshaf láta
ekki mikið yfir sér. Og ekki er
nú orðið fýsilegt að heyja lífsbar
áttuna þar, en sem betur fer
höfum við þó enn átt menn, sem
ekki hafa hopað, og trúað á til-
verurétt og lífsmöguleika þess-
ara byggðarlaga og Þórhallur Jón
asson var einn af þeim. Hafnar-
gerð, rafmagn og vatnsveita, að
ógleymdri Síldarverksmiðjunni á
Bakkafirði, er að vísu samstillt
átak margra manna, en hans hlut
ur var þó stærri, en flestra ann-
arra.
Þórhallur var prýðilega ritfær-
og vel hagorður — svo sem hann
átti kyn til í móðurætt. Móðir
hans og Þórunn amma hans voru
vel hagmæltar. Jakob Jónasson
rithöfundur er bróðir hans en
Kristján skáld frá Djúpalæk syst-
ursonur hans.
Þórhallur var kvæntur Dýrleifu
Þorsteinsdóttur frá Syðri-Brekk-
um á Langanesi, en missti hana
21. jan. 1960. Þau áttu fjögur
börn. Kristján, sem dó ungur,
Halldóru og Ingibjörgu, sem báö-
ar eru giftar og Hörð, sem er
nemandi í menntaskóla.
Þegar Þórhallur lézt var hann
heitbundinn Járnbrá Friðriksdótt-
ur frá Bakka í Skeggjastaðahreppi
og hún annaðist hann með frá-
bærri fórnfýsi og alúð til síðustu
stundar.
Við Þórhallur þekktumst frá
barnæsku og lögðum út í lífið
með glæstar vonir. Sumt hefir
farið að óskum eins og gengur,
annað miður, en allt jafnast þetta
í lokin. »
í samstarfi okkar þau 50 ár,
sem við lengst af áttum samleið
í gleði og baráttu bar aldrei
skugga. Og óvildarmann hygg ég
að hann hafi engan átt. Þetta er
mikið sagt, eh rétt.
Eg þakka þér Halli minn, fyrir
allt.
Við fráfall þitt, er sár harmur
kveðinn að vinum og aðstandend
um þínum. Harmur, sem tíminn
einn, er fær um að mýkja og fara
höndum um. En minningarnar lifa
og það er bjart yfir þeim öllum.
„Þú hefir gengið til góðs göt-
una fram eftir veg“.
Eg trúi því að líkamsdauðinn,
sé tímamót í lífinu — ekki tor-
tíming heldur fæðing og að við
sem enn bíðum á ströndinni, eig
um endurfundi í vændum.
Þórarinn frá Steintúni
Vísitalai)
upp 2 stig
Vísitala framfærslukostnaðar
hækkaði um tvö stig í apríl, nánar
tiltekið 2,2 stig. Þar af 0,9 stig
vegna hækkunar á verði ýmissar
matvöru og 0,6 stig vegna hækkun
ar húsnæðisliðs vísitölunnar, en
0,7 stig stafa af ýmsum öðrum
verðhækkunum. Vísitala frarn-
færslukostnaðar er nú 163 stig
og vísitála vöru og þjónustu 187
stig.
MARGRÉT
Framhaia ai 1 síðu.
kannski bila ég fyrst, þegar á hólm
inn er kotnið. Ég skalf að minnsta
kosti mest af stelpunum í gener-
al-prufunni.
— Hvernig stóð á því, að þú á
kvaðst að taka þátt í keppninni?
— Ég hitti Einar* af tilviljun á
götu og hann spurði mig, hvort ég
vildi ekki vera með. Fyrst var óg
alveg mótfallin því, en svo lét ég
undan.
— Hvar vinnurðu?
— Ég vann á Læknastofunum á
Klapparstíg 27, en er hætt þar
núna.
— Hvernig verður kjóllinn þinn?
— Hann er hvítur, perlusaumað
ur í hálsinn, ég er bara í vafa,
hvort ég á að ganga inn í salinn
eftir laginu Romantika, eða ein-
hverju öðru.
RÓSA
Framhald af 1. síSu.
— Ertu vön að koma fram?
— Ég hef verið í tízkuskólanum
hjá Sigríði Gunnarsdóttur, hún
bað mig um að taka þátt í keppn-
inni.
— Hvað gerirðu annars, þegar
þú tekur ekki þátt í fegurðarsam-
keppnum?
— Ég vann hjá Últíma, en er
hætt. Mig langar til að fara eitt.
hvað út.
T f M I N N, föstudaginn 22. maí 1964
LISTAHÁTÍÐIN
Framhald af 16. síðu.
hámarksviðstaða hér sé tíu dag-
ar og keyptur sé aðgöngumiði að
einu hátíðaratriði.
Dagskrá Listahátíðarinnar verð-
ur sem hér segir:
Sunnudagur 7. júní: Setningar-
athöfn í samkomuhúsi Háskólans,
; þar sem menntamálaráðherra og
borgarstjóri flytja ávörp, en Hall
dór Laxness rithöfundur heldur
ræðu. Síðan verða flutt tónverk
eftir Jón Leifs og Pál ísólfsson.
Tveir kórar syngja í sameiningu,
Fílharmonla, og Fóstbræður, og
verður það víst fjölmennasti kór,
sem hér hefur sungið til þessa.
Sinfóníuhljómsveit íslands leikur,
en Igor Buketoff stjórnar bæði
hljómsveit og kór. Um kvöldið
verður hátíðarsýning í Þjóðleik-
húsinu á óperettuni Sardasfurst-
innunni.
Mánudagur 8. júní: Tónleikar
í samkomuhúsi Háskólans, þar
sem Kristinn Hallsson syngur „An
die feme Geliebte“ eftir Beet-
hoven og „Dichterliebe“ eftir
Schumann. Vladimir Asjkenazy
leikur undir á píanó og auk þess
píanósónötu op. 110 eftir Beet-
hoven.
Þriðjudagur og miðvikudagur 9.
og 10. júní: Leikfélag Reykjavíkur
frumsýnir í Iðnó leikritið Brunna
Kolskóga eftir Einar Pálsson und-
ir stjórn Helga Skúlasonar. Að
auki lesa þar nokkrir rithöfund-
ar upp úr verkum sínum.
Fimmtudagur 11. júní: Þjóðleik
húsið frumsýnir leikritið Kröfu-
hafa eftir Strinberg undir stjórn
Lárusar Pálssonar.
Föstudagur 12. júní: Listamanna
kvöld í Tónabíó, þar sem rithöf-
undar og tónskáld flytja frum-
samin verk.
Laugardagur 13. júní: Ruth
Little söngkona heldur ljóðakvöld
með píanóundirleik Guðrúnar
Kristinsdóttur.
Sunnudagur 14. júní: Musica
nova kynnir ný íslenzk tónverk-
og að auki Tríó eftir Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, en það hefur
aldrei áður verið flutt opinber-
iega. Það eru síðdegistónleikar,
en um kvöldið verður Listamanna-
kvöld í Tjarnarbæ, þar sem Til-
raunaleikhúsið Gríma frumflytur
einþáttunginn Amelíu eftir Odd
Björnsson, og skáld og rithöfund-
ar flytja eigin verk.
Mánudagur 15. júní: Frumflutn
ingur í Þjóðleikhúsinu á fyrstu ís-
lenzku óperunni, höfundurinn Þor-
kell Sigurbjörnsson, stjórnar sjálf
ur tónlistinni, en leikstjóri verður
Helgi Skúlason. Ennfremur verð-
ur þar ballettsýning á vegum
Félags islenzkra listdansara, flutt
verkið Les Sylphides undir stjórn
Elizabetn Hodgson ballettmeist-
ara. f þriðja lagi leikur Sinfóníu-
hljómsveit íslands, Igor Buketoff
stjórnar.
Þriðjudagur 16. júní: Myndabók
úr Fjallkirkju Gunnars Gunnars-
sonar, sett á svið af Lárusi Páls-
syni.
Föstudagur 19. júní: Hátíðarlok
með listamannasamkvæmi að
Hótel Sögu, og verður þar Páll
ísólfsson veizlustjóri en Tómas
Guðmundsson aðalræðumaður.
Allan hátíðartímann standa
þrjár sýningar, mjög fjölbreytileg-
myndlistarsýning í Listasafni ís-
lands, sýning í Bogasalnum á ís-
lenzkri bókagerð síðustu 20 árin,
og hafa rithöfundafélögin ann-
azt val sýningarbóka, og loks verð
ur í húsakynnum Byggingarþjón-
ustunnar að Laugavegi 26 sýning
á þróun íbúðahúsabygginga ó ís-
landi frá stofnun lýðveldisins.
BERGIÐ HART
Framhald al 16. stðu.
kom í ljós. Berglögin eru mjög
hörð, og er það orsök þess hve
hægt verkinu miðar.
Aðalfundur Kaup-
félags Skagfirðinga
DAGANA 13. og 14. maí s. L.
var aðalfundur Kaupfélags Skag-
firðinga haldinn á Sauðárkróki. —
Fundinn sátu 68 menn með full-
trúaréttindum. Formaður félagsins
Tobías Sigurjónsson, bóndi í Geld-
ingaholti, flutti skýrslu stjórnarinn
ar og taldi hann s. 1. ár í flestum
greinum með hagstæðustu rekstr-
arárum félagsins. Tobías minntist
þriggja atburða, er fundarmenn
fögnuðu sérstaklega: 1. Hinn 8.
apríl var upp kveðinn í Hæstarétti
dómur í útsvaramáli félagsins með
fullum sigri þess.
2. Efinn 23. apríl voru 75 ár lið-
in frá stofnun félagsins.
3. Hinn 12. maí var stofnað hér
á Sauðárkróki útibú frá Samvinnu
bankanum.
Sveinn Guðmundsson, kaupfél.
stjóri skýrði ýtarlega reikninga fé-
lagsins ræddi rekstur þess og af-
komu. Félagsmenn voru 1368 í árs-
lok 1963 og hafði fjölgað um 38
á árinu. Vörusala hafði aukizt um
19% frá fyrra ári og nam rúml.
63 milljónum króna. Er þá sala
verkstæða talin með. Sala land-
búnaðarvara nam ucn 62 millj. kr.
og sala sjávarafurða hjá Fiskiðju
Sauðárkróks h.f. nam um 12 mill-
jónum svo að heildarsala á vegum
félagsins nam um 137 milljónum
króna á árinu. Greiðsla til fram-
leiðenda landbúnaðarafurða var
tæpar 50 milljónir króna á árinu
og náðist mjög hagstætt afurða-
verð miðað rið verðlagsgrundvþll
Mjólkursamlagið tók á móti 5.762.
521 kg. tnjólkur og er það 17,58%
aukning miðað við árið áður. Sala
neyzlumjólkur var aðein| 14,4%
en var 17,1% af innlögðu magni
árið áður. Sauðfjárslátrun s. 1.
haust var 36.525 kindur sem er
1316 kindum fleira en árið áður
hins vegar er kjötmagnið mjög
álíka vegna minni meðalþunga
fjárins.
Fjárfesting hjá félaginu nam utn
3 milljónum króna á árinu og var
stærsti hluti þess vegna mjólkur-
samlagsins.
Afskriftir af eignum námu um
1,7 milljónum og var reksturshaga:
aður eftir að lagðar höfðu verið
kr. 400.000,00 í varasjóð og kr.
50.000,00 í menningarsjóð kr. 1.
655.649,42, sem fundurinn ákvað
að endurgreiða félagsmönnum i
hlutfalli við vöruúttekt þeirra.
Framkvæmdastjóri Fiskiðju
Sauðárkróks h.f. Marteinn Frið-
riksson, flutti skýrslu um starf-
semi þess fyrirtækis á s. 1. ári og
taldi hann reksturinn hafa gengið
framar vonum. Reksturstap varð
samkvæmt rekstursreíkning rúm-
lega 50 þús. krónur. Hafði afurða-
Sonur minn,
magn minnkað nokkuð frá fyrra
ári, vegna hins alvarlega aflabrests
fyrir Norðurlandi, sem verið hefur
hvað tilfinnanlegastur við Skaga-
fjörð. Greiðsla vinnulauna og fyr-
ir akstur og þjónustu nam samtals
hjá kaupfélaginu og Fiskiðjunni
um 15,6 millj. kr. Byggjast at-
vinnutekjur mikils hluta bæjarbúa
á starfsemi félaganna.
Fundurinn kaus þriggja manna
nefnd, sem vinna á að athugun &
stofnsetningu iðnaðarfyrirtælkja á
félagssvæðinu og samþykkt var til
laga um að athuga sérstaklega
um sútunar- og skinnaverksmiðju.
Úr stjórn áttu að ganga Jóhann
Salberg Guðmundsson, Sauðár-
króki og Bjöm Sigtryggsson, Fram
nesi og voru þeir báðir endur-
kosnir. Auk þeirra eru í stjóm
Kaupfélags Skagfirðinga, Tobías
Sigurjónsson, Geldingaholti, for-
maður, Gísli Magnússon, Eyhild-
arholti, varamaður og Bessi Gísla
son, Kýrholti, meðstjórnandi.
Endurskoðendur era Jóhann L.
Jóhannesson, Silfrastöðum og
Árni Hansen, Sauðárkróki.
ELIZABET
Framhald af 1. síSu.
morguninn. Mér fannst ekki hægt
að fara að vakna þá.
— Var erfitt að fá þig til að
taka þátt í keppninni?
— Ég veit það efcki, annars var
ég beðin í fyrra lífca.
— Þú ert nú svolítið óstyrk að
sjá.
— Það er ekkert að marka, ég
er með 39 stiga hita. Ég er að
farast úr kvefi, en það háir raér
vonandi ekki, ég reyni að hlaða í
mig hylkjum.
— Hvar verður þú í röðinni,
Elizabet?
— Ég geng fyrst inn.
SKÁKHÚS
Framhald af 16. síðu.
krónur. Það var rifið og flutt til
Hólmavíkur og bygging hafin árið
1956, og fyrsti fundurinn í Skák-
höllinni var haldinn 5. maí 1957,
og síðan hafa þar verið haldnar
margar taflæfingar og fundir, en
félagsmenn eru nú um 20 talsins,
og formaður er Hans Sigurðsson.
UMFERÐARSKILTÍ
Framhald af 1. slðu.
vörðustígnum, þegar hann var
gerður að aðalbraut — nóg er af
umferðarslysunum samt. Svo er
það líka óþarfa sparnaður að
klessa umferðarskiltum hátt á
ljósastaura, sem standa upp við
húsagarða, og sjást því illa, eins
og Mávahlíðarskiltið imargumtal-
aða þegar það var og hét.
Sigurður Guðmundur Katarínusson
andaSist mánudaginn 18. þ. m. — Jarðsett verður laugardaginn
23. maí ki. 10,30 f.h. í Fossvogskirkju.
Katarínus Jónsson.
Jarðarför mannsins míns,
Bjarna Þorbergssonar,
smlðs, ^
sem andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyrl 17. þ. m. fer
fram frá Akureyrarkirkju laugardaginn 23. þ. m. kl. 2 e. h.
Fyrir mfna hönd og annarra vandamanna.
Guðrún Guðmundsdóttir.
te