Tíminn - 03.10.1964, Blaðsíða 13

Tíminn - 03.10.1964, Blaðsíða 13
J VOLVO AMAZON Argerð 1965 er komin ® Ný iimrétting og ákiæSi, glæsilegri en áður hafa sézt. • Nýir frábærir framstólar. ® Diskahemlar að framan. ® Galvaniserað stál í sílsum og hjólbogum. ® Enn aukin ryðvörn. • Nýjar felgur. ® Hjólkoppar úr ryðfríu stáli. • Aukið litaúrval. Volvo Amazon og P 544. árgerð 1965, verða til sýnis í verzlun vorri i dag, til kl. 17, næstu virka daga. Vandið valið - veljið Volvo Gunnar Ásgeirsson hf. RAFVIRKJAR — MÚRARAR Bridge-deildin hefur starfsemi sína miðvikudag inn 7. þ. m. með tvímenningskeppni, sem heist kl. 20. Tafldeildin hefur starfsemi sina fimmtudagmn 8. þ. m. kl. 20. Félagsmenn fjölmennið og takið með ykkur gesti. Nefndirnar. MELAVÖLLUR Bikarkeppni í dag laugardaginn 3. óktóber kl. 4. e. h keppa: KR — Akureyri Nú verður það fvrst spennandi Hrvað skeður nú’ Mótanetnd. -^^•KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA AKUREYRI Miðstöðvavörur alls konar, svo sem: katlar, ofnar,rör og annað tilheyrandi, ætíð fyrirliggjandi. Spyrjið um verð og afgreiðslutíma. Sendum gegn póstkröfu. \ MIÐSTÖÐVADEILD K.E.A. sími 1700 Akureyri. ÞEGAR ÞOTURNAR LENDA í HAFINU FramhaU ai Dls 3 er lendingar og flugtak hinna hraðfleygu þota á flugmóður skipunum. Þessar þotur fljúga með tvöföldum hraða hljóðsins, kallast þær Phantom og eiga mörg hraða og hæðarmet. Það er ævintýri líkast að sjá þær lenda í myrkri með 140 mílna hraða á skipunum og stöðvast á 20—25 metrum. En öryggis- tæki öll eru góð og þetta er ekkj eins mikið glæfrafyrirtæki eins og virzt gæti við fyrstu sýn. Lendingin er tiltölulega auðveld fyrir flugmanninn. Að- flugi hans er stjórnað með sér stökum tækjum. Framan á vél inni eru þrjú ljós, rautt, grænt og gult. Ef ljósið er grænt fer vélin of hratt, ef það er rautt fer hún of liægt en gult ljós merkir að hún er í réttri aðflugslínu og á réttum hraða og vélin lendir því aðeins að gult ljós sé logandi í aðfluginu. Strax og hjól vélarinnar snerta flugbrautina fara hreyflar vélar innar á fulla ferð, þannig að ef flugmaðurinn nær ekki að krækja vélinni í lendingarvír ana, sem stöðva vélina, þá tek ( ur vélin sig sjálfkrafa á loft að nýju. Lendingarvírarnir eru um fet frá þilfarinu og í lend ingu skýtur vélin niður eins konar hala með krók á endan um, sem á að krækjast í vírana. Um leið og vélin hefur krækzt í vírinn lokast sjálfkrafa fyrir hreyflana og vélin 'stöðvast á 20 til 25 metrum eins og fyrr er sagt. Rússar höfðu sérstakaíi á- huga á að fylgjast með þessum lendingum. Þeir eiga. engin flugmóðurskip, þeir hafa lagt áherzlu á smíði kafbáta og munu nú eiga rúmlega 450 slíka þar á meðal nokkra kjarn orkukafbáta. sem skotið geta eldflaugum með kjarnorku- hleðslum. Það kann að breyta töluvert aðstöðunni á Atlants- hafi, ef Rússar eignast nokk- ur flugmóður skip og tilheyr- andi útbúnað í Norðurhöfum, en eins og er virðast Rússar hafa meiri trú á öðrum herbún- aði í vígbúnaðarkapphlaupinu — Tjeká. Vettvangurinn Framhald af 5 síðu munum ræða um franitíðarverk efní flokksins. Eitt er það verkefni, öðrum stærra, sem leggja ber áherzíu á, en það er sameining allra frjálslyndra, lýðræðissinnaðra maima í einn flokk, Framsóknarflokkinn. Sá áfangi er næstur og stærstur. Hvernig það megi takast er verkefni okkar yngrl mann- anna að ræða ekki síður en hinna eldri, og þá sérstaklega á þingum okkar. ÞingstörTin hefjast nú inn an stundar og hér eru saman komnir t'ulltrúar alls staðar af Iandinu, sem bera inunu sam- an bækur sínar. Reynsla okk- ar mun að sjálfsögðu misjöfn og skoðanir minna að verða skiptar um leiðir a? markinu, eins og ætíð hlýtui að verða í stórum hópi manna. En hér á að ríkja hisin sanni sam- vinnuandi og því skyldi eng- inn óttast urn árangur erindis okkar og starfs. Megi störf okkar og umræður markast af hreinskilni. einurð og dreng- skap. Um teið og ég lýsi 10. þing Sambaivds ungra Fram- sóknarmanna sett á ég þá ósk heitasta. að ungir Fram- sóknarmenn gæti vel þess fjör eggs, sem sett er ■ lófa hverrar kynslóðar. en það er ísland, íslenzk tunga og menmng. MYNDLISTARMENN Framhalit at « iiðu að til, því þetta blessaða land er svo ríkt af fyrirmyndum. En það er fyrst og fremst sjór inn og ströndin, sem dregur mig að sér. Það er meiri kraft ur í sjónum en landinu, skal ég segja þér. Brimið bíður ekki eftir manni, en það gripur mann föstum tökum og heidur manni við myndsköpunina, það eru miklu sterkari tök en inni á landinu. Svo er líka það, að ég er miklu betur vakandi niðri við sjóinn, sjávarloftið er svo hressandi og hollt. Það er miklu hættara við að maður fari að dotta með pensilinn í hendinni uppi í sveitakyrrð- inni“. „Svo við hlaupum yfir í aðra sálma, þú varst úti í No-egi ekki alls fyrir löngu að forfram ast í kústinni. Hvar hélstu þig aðallega þar?“ „Mest í Osló og grennd. Það er komið heilt listamannahverfi umhverfis Egely, heimili mál- arans Munch, sem nú er orðið að opinberu safnhúsi. Bygging arfyrirtæki eitt tók að sér að byggja þarna tugi íbúða í nokkrum húsum, og var mynd Iistarmönnum gefinn kostur á að eignast íbúðir í þessum hús um með viðráðanlegum kjör- um. Þetta eru litlar íbúðir með rúmgóðri og biartri vinnustofu ljómandi skemmtilegar og hentj ugar. Þarna fékk ég inni i einni íbúð á meðan ég stundaði nám í listaháskólanum í Osló í eitt ár. Þar var kennari minn Alexander Schultz prófessor. f sama húsi og ég bjó graflistar maður Roseland. Hann sá stundum það sem ég var að vinna að og hefur víst sagt þeim í Kunstforeningen eitt- hvað frá því. Því ein:j góðan veðurdag barst mér boð frá þeim um að halda sýningu á þeirra vegum á bezta stað 1 baénum. Þeir sögðu að ég skyldi láta þá vita, þegar ég væri tilbúinn með myndir á sýningu. Enn er óákveðið hve- nær ég tek þessu boði.“ „Eru ekki abstraktmálarar í meirihluta meðal yngri manna í Noregi?“ „Nei, það er nú öðru að heilsa. Þeir eru svo fáir, að það má heita hending að norsk abstraktlist verði á vegi manns. Hins vegar gera þeir allmargir nokkuð af því að stíisera mynd ir sínar.“ „Ertu enn í utanfararhugleið ingum?“ „Eg hef fullan hug á að halda aftur út — og þá helzt ti) Noregs, þegar peningaráðin leyfa það. Eg kunni mætavel við mig hjá Norðmönnum og landið er stórfenglegt. Ekki hef ég nú fullgert allar mynd irnar, sem ég gerði skyssur af þar úti, en hér eru tvær á sýningunni. Fleiri koma seinna.“ Starfsstúlkur óskast Starfsstúlkur óskast að Farsottarhúsinu í Reykja- vík upplýsingar gefur forstöðukonan Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur. Sendill Unglingur óskast til sendistarfa nú þegar, hálfan eða ahan daginn. Fyrirspurnum ekKi svarað i síma. Upplýsingar hjá skrifstofustjóra, Austur- ! i stræti 11, 3. hæð. Seðlabanki tslands. T í M I N N, laugardagur 3. október 1964. 13

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.