Alþýðublaðið - 24.12.1954, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 24.12.1954, Blaðsíða 12
 KAUPFELAG ISFIRÐINGA ÍSAFIRÐI Samvinnufélag neytenda og framleiðenda við ísafjarðardjúp , . Selur og útvegar atlar helztu nauðsynjavörur Tekur til sölumeðferðar flestar íslenzkar framleiðsluvörur. Umboð fyrir Samvinnutryggingar. Utibú í Súðavík, Bolungavík og Hnífsdal. GLEÐILEG JÓL gott og farsælt komandi ár! KAUPFELAG ISFIRDINGA hennar áður en hún kom til sjúkrahússins. Hún endur- lifði það æviskeið, sem hún hafði kvatt — kvatt, er hún leitaði athvarfs hjá systrun- um á sjúkrahúsinu. Hvað hafði þá skeð áður . . . ? Æsanái hljómar dans- músíkaritmar endurómuðu í glæstum • kabarettinum, þar sem Arma var ráðin sem dansm.ær, — og þar sem hún vakti fádæma hrifningu fyrir einstæðan dans sinn og nautnvekjandi látbragð. Líkami hennar var fullkom- inn — svo fullkominn, að konur öfunduðu hana og karlmenn gimtust hana, und- antekningalaust, er hún kom fram fyrir fóikið í trylltum dansi og djörfum söng; og augu hennar höfðu engu síð- ur sín áhrif en röddin. Anna vissi um töfravald sitt — hún var óvenjulega örugg í þessu starfi sínu, sem var í því einu fólkið að vekja frygð og æs- ingu hjá úrkynjuðum skemmtigestum. Við barinn stóð Vittario — barmaðurinn, einn þeirra, sem allsstaðar má sjá í kringum lauslætis- drósir stórborgarma og leitast við að hafa gagn af þeim á hvaða sviði sem hugsazt get- ur. Hann var þokkalegur í út- ' liti; fötin undirstrikuðu góð- an vöxt hans á allan hátt og gerðu hann eftirsóknarverð- an í augum vissra kvenna, miklu eftirsóknarverðari en andlit hans gat gert hann. Það 1 var eitthvað óbilgjamt og hörkulegt í andlitinu — svip- ; ur, sem orkaði vel á þær kon- ur, sem sjálfar voru kynferði- lega eggjandi; en það var svipur, sem engum geðjaðist, .12 er hugsaði út í hann nánar. Anna hafði fyrir nokkru látið fallast fyrir þessum manni; og síðan það hafði gerzt, hafði hún verið fremur miður sín. Ekki var því að heilsa, að hún elskaði hann — eða hann hana. Slík tilfinning var henni ennþá óþekkt af eigin raun — en í augum mannsins var stúlkan ný „reynsla“, sem um var að gera að hag- nýta — nýr kvemnaður, enn- þá fegurri og æsilegri en nokkur önnur kona, sem hann hafði verið með. Þrátt fyrir fegurð sína og þær hætt- ur, sem fegurð og kynþokki jafnan leiðir stúlkur út í, var Anna engan veginn hvers manns kona og hafði aldrei verið. Hún hafði vit á að hafa sig afsakaða, þegar „glæsi- boð“ ýmiskonar bárust henni frá viðskiptavinum kabaretts- ins — en gagnvart Vittario hafði hún frá því fyrsta haft aðra afstöðu — einhver líkamleg "áðlögun stjórnaði gerðum hennar varðandi hann fremur en aðra menn; það var óskylt ást, en hélt henni samt fanginni og veitti henni svölun, sem hún hafði ekki kynnzt hjá öðmm mönnum. Það, að hún var kuldaleg og kærulaus gagn- vart Vittario þegar aðrir sáu, gerði hana aðeins ennþá girnilegri í augum hans — hann vissi bezt, hvernig hún var, þegar þau voru tvö ein og hann tók hana —. Anna fór jafnan eiruburt frá kabar- ettinum, þegar vinnutíma var lokið. Þetta kvöld fór líka þann veg; en þegar hún stóð úti á dimmri götunni, var sem augu hennar leituðu eftir ein- hverju — og þegar hún gekk fyrir fyrsta húshornið, kom hún auga á litla bifreið, og þar sat einmanalegur maður. Hún gekk að vagninum og leit í kring um sig í skyndingi, en maðurinn opnaði bílhurð- ina og hún settist við hlið hans fram í. Þetta var í ann- að skipti sem hún sá Andrea — ungan, stæltan mann, sem bar með sér rótgróna og að- laðandi menningu ásamt sam- svarandi uppeldisáhrifum. Hún hafði fyrst séð Andrea kvöld eitt, er hann var gest- ur í kabarettinum, og í mót- setningu við það sem hún var vön, hafði hún þegið drykk við barinn. Henni fannst maðurinn aðlaðandi — tillitssemi hans, sem var ólík því, er hún hafði átt að venj- ast. Hún komst ekki undan því að finna, að Vittario leit á hana augum þess, sem þyk- ist hafa eignarrétt, á meðan hún sat á tali við Andrea. Hún fann einnig, að með því að vera vingjarnleg við Andrea, gat hún hefnt sín á Vittario, — en hvers hún var að hefna, gerði hún sér ekki ljóst. Þau Andrea höfðu dansað nokkra dansa, og um nóttina hafði hann keyrt hana heim til hennar, og þau höfðu kvaðzt fyrir utan húsdyrnar. Áður en þau skildu, hafði hann samt beðið hana um leyfi til að koma aftur nokkr- um kvöldum síðar, og hún hafði heitið honum því, að rabba þá við hann og halda þeim kunningsskap áfram, er hafði byrjað svo ánægjulega. Þau höfðu boðið góða nótt, og hvort farið heim til sín. En Vittario hafði ekki gleymt því, er hann hafði séð í kabar- ettinum. — Hann ásetti sér að sýna „stelpunni" það við fyrsta tækifæri, hvorum þeirra henni bæri að hlýðn- ast. Þetta kvöldi átti Andrea að koma, en hann var ekki kominn, þegar Anna hafði lokið fataskiptunum, og hún fór burt úr kabarettinum í veikri von um, að hann biði fyrir utan — enda kom hún brátt auga á bílinn hans — og þarna sátu þau allt í einu saman og óku rólega út úr borginni. Anna snéri sér til hálfs að Andrea og mælti: „Eg leitaði að þér meðal gestanna í kvöld — en þú varst hvergi“. „Nei. Ég varð því miður of seinn fyrir“, svaraði hann af- sakandi. „Ertu nú viss um, að það sé af því?“ spurði Anna stríðnislega. „Nei — satt að segja. Það er of margt fólk þarna inni, fólk sem borgar fyrir að sjá þig dansa og syngja, og æsir sig upp við þá stemningu, sem þú vekur“. „Einu sinni varst þú samt einn af þessu fólki — ha?“ spurði Anna. Andrea leit á hana: „Já. En þá var allt öðru vísi. Ég horfði aðeins á þig eins og maður horfir á fallega stúlku — en ég hef brunnið af löngun eft- ir að sjá þig aftur“. Þau voru komin upp á hæðadrögin fyrir utan borg- ina, stigu út úr bílnum og litu yfir ljósadýrðina. „Anna — þú verður að koma út til okkar á sunnu- daginn — ég vil kynna þig fyrir mömmu minni“. Rödd Andrea var alvarleg — biðj- andi. Anna Ieit annarshugar yfir borgina, og í rödd hennar var öryggisleysi: „Ég kann vel við mig uppi í sveit. En ég kem þangað aldrei nú orðið“. „Anna! Hvers vegna skyld- irðu ekki koma með mér?“ spurði Andrea. Anna leit í augu hans, er hún spurði á móti: „Hvers vegna sækirðu mig í kabarettinn? Hvers leitar þú hjá mér?“ „Það hlýturðu að vita“, svaraði Andrea rólegur. „Nei, það veit ég ekki. Ég hef unnið á næturklúbb í tvö ár — og ég hef aldrei fyrr verið í óvissu um það, hvað karlmaður vildi mér — Hún gretti sig um leið og hún hélt áfram: „En um þig er ég ekki viss. Þú kannt víst að gefa kvenmanni undir fótinn . . .“ Andrea tók fram í fyrir henni: „Ég er ekki að gefa þér undir fótinn, Anna — ég bið þig um að giftast mér —“. „Það er ekki hægt“, svar- aði Anna, næstum óheyrilega lágt. „Stundum finnst mér, að ég sé búin að eyoileggja líf mitt------“. „Hví segirðu . þetta?“ spurði Andrea?. En Anna gekk í átt að bílnum um leið og hún svaraði: „Við skulum ekki tala meira um það. — Við skulum koma —“. Þau óku aftur til borgar- innar. Eftir langa þögn spurði Andrea, er þau voru að kveðjast: „Kemurðu á sunnudag- inn?“ „Kemur þú og sækir mig — eitthvert kvöldið?“ svar- aði hún. ALÞYÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.